Mánudagsblaðið - 21.02.1966, Blaðsíða 4
4
Mánudagsblaðið
Mánudagirr 21. febrúar 1966
Margar merkilegar uppfinn-
ingar eru runnar frá Kínverj-
um og ein þeirra eru gleraug-
un. Enginn vafi mun vera á því
að Kínverjar hafi notað gler-
augu löngu á undan öðrum
þjóðum. Vitað er með vissu
að gleraugun voru allútbreidd
í Kína á tíundu öld. Þegar
Marco Polo var við hirð Kublai
Khans á þrettándu öld, sá hann
að sumir hirðmannanna notuðu
gleraugu, og þótti honum sá
siður skrýtinn.
1 Evrópu mun hafa verið
farið að nota gleraugu á síðari
hluta þrettándu aldar. Hinn
gáfaði Englendingur Roger Ba-
con getur um þau. Annars voru
gleraugu í fyrstu aðallega gerð
í Flórens á Italíu, og var Aless
andro di Spira hinn fyrsti gler
augnasmiður, sem vitað er um.
Ekki er óhugsandi, að uppfinn
ingin hafi borizt frá Kína til
Italíu, því að ítalir áttu um
þessar mundir mikil verzlunar-
viðskipti við Austurlönd. Það
er til dæmis talið að spilin hafi
um þetta leyti borizt frá Kína
til ítalíu, líklega með Araba
sem millilið. Hin fyrstu gler-
augu í Evrópu voru oft gerð
úr gimsteininum beryl og er
af því heiti dregið orðið brille.
Síðar var aðallega farið að nota
gler , og eftir það voru Núm-
berg og Feneyjar um langan
aldur miðstöðvar gleraugna-
gerðar ! Evrópu. Gleraugna-
smiðir höfðu með sér sérstök
iðnfélög eða gildi eins og flest-
ir iðnaðarmenn fyrr á öldum.
Veradardýrlingur gleraugna-
Ólafur Hansson menntaskólakennari:
GLERAUGU
smiða var heilagur Hieronym-
us kirkjufaðir. Þetta mun stafa
af því, að á frægu málverki
Ghirlandajos af heilögum Hiero
nymusi sjást gleraugu á borð-
inu.
Á síðari öldum hafa auðvit-
að orðið margvíslegar framfar-
ir í gleraugnagerð. Einn þeirra
uppfinningamanna, sem hér
komu við sögu, var Benjamin
Franklín. Margvísleg tízka hef-
ur verið í gleraugnaumgjörð-
um. Á seinni hluta 19. aldar
og fram á 20 öld voru um-
gjörðarlaus gleraugu mjög al-
geng. Á síðustu tímum hafa
plastefnin komið mjög við sögu
í gleraugnaumgjörðum.
Á 19. öld og lengur fram á
þóttu gleraugun oft bera vott
um gáfur og andríki. Það er
haft fyrir satt, að mörg ung
skáld1 þeirra tima hafi borið
gleraugu án þess að þurfa
þeirra með sjónarinnar vegna.
Bara til þess að verða gáfu-
legir á svipinn. Það er einnig
fullyrt, að smekkur kvenfólks
á karlmenn með gleraugu hafi
verið mjög svo sveiflum háð-
um. Á sumum tímabilum kvað
það hafa aukið á kvenhylli karl
manna að ganga með gleraugu,
á öðrum kvað það heldur hafa
dregið úr henni. Hreint tízku-
fyrirbæri í sambandi við gler-
augun er einglymið (monocle).
Það var mikið í tízku seint á
nítjándu öld og fram yfir síð-
ustu aldamót. Þá þótti það ar-
istókratiskt að ganga með ein-
glyrni. Það gerðu þá ýmsir
framámenn, svo sem Joseph
Chamberlain. Síðar fór þetta að
þykja bera vott um spjátrungs
skap og snobberí. Þó rekur
maður sig enn í dag einstöku
sinnum á menn með einglyrni,
einkum í Englandi og Þýzka-
landi. En einglyrnið er búið að
lifa sitt fegursta.
GLERAUGU OG ÞJÓÐTRÚ
Þó að gleraugu séu ekki ýkja
gamalt fyrirbæri hefur mynd-
azt um þau ýmisleg þjóðtrú.
Þessi trú á að miklu leyti ræt-
ur sínar að rekja til eldfomra
hugmynda um töframátt aug-
ans og augnaráðsins. Slíkar
hugmyndir eru útbreiddar um
allan heim. Einna mest kveður
að trúnni á hið „illa auga“, sem
á að geta gert ýmislegt mein,
jafnvel valdið sjúkdánHun og
Kaupmenn - Kaupfélög
ÁVALLT FYRIRLIGGJANDI:
Vefnaðarvara:
Damask. margar gerðir hvítt
og mislitt.
Lakaléreft
Handklæði. margar gerðir. .
Þurrkudregill.
Eldhúsþurrkur..
Þvottapokar.
Smávara:
Hárspennur.
Hárburstar.
Hámet
Hárgreiður.
Tvinni. Mölnlycke.
Teygja.
Bendlar.
Herraveski.
Reykjarpípur.
Tilbúinn fatnaður:
Perlonsokkar.
Nylonsokkar.
Crepesokkar. dömu og herra.
Herraskyrtur, ANGLI.
Herranærföt.
Sundskýlur.
Herrapeysur.
Vinnuvettlingar.
Gúmmívörur:
Gúmmíhanzkar.
Blevjubuxur.
Snuð
Hitapokar.
Bamapelar.
Túttur.
ULLARGARN:
Skútugarn — ZERMATT BENFICA CORVETTA
Btarni Þ. Hallciórsson & Co. sef.
Garðastræti 4. Reykjavík. Símar 19437 og 23877.
dauða. Víðast hvar þekkist ým-
is konar varnargaldur gegn
hinu illa auga.
I þjóðtrúnni í sambandi við
gleraugun kemur fljótlega fram
tvískinnungur. Annars vegar
kemur fram sú trú, að með
gleraugum geti menn gefið illt
auga á harla máttugan hátt.
Kvað svo rammt að þssu, að í
sumum ítölskum borgum var
mönnum um hríð bannað með
lögum að ganga með gleraugu.
Á hinn bóginn kom einnig
snema fram sú trú, að gleraug-
un væru til vamar gegn illu
augnaráði annarra, það beit
ekki á þann, sem gleraugu bar.
Varnarmátt gleraugnanna gegn
þessum áfögnuði mátti einnig
auka með ýmsum aðferðum, svo
sem að binda litla borða,
skráða galdrastöfum, við um-
gerðina. Oft voru þessir borðar
rauðir á lit, en rautt var í
fyrndinni oftast talinn litur
frjósemi, hagsældar og heilla.
Á 17. öld fer að bera á margs
konar trú í sambandi við töfra-
gleraugu af ýmsu tagi. Þá kem
ur upp trú á gleraugu, sem
gera mönum fært að sjá fram
í tímann eða aftur í tímann. Til
voru sögur um það, að framtíð-
argleraugun hefðu stundum
bjargað lífi manna, þau hefðu
varað við ókomnum hættum,
svo sem eldsvoða, fárviðri eða
skriðuhlaupum. Til þess að sjá
aftur í tímann höfðu menn oft
þá aðferð að nota augnatóftir
úr hauskúpum dauðra manna
sem umgjörð um glerin. Þá sáu
menn heiminn eins og hann
hafði verið á dögum hins
dauða. M. R. James notar þessa
gömlu þjóðtrú sem uppistöðu í
eina af smásögum sínum. Önn-
ur töfragleraugu höfðu þá nátt
úru, að með þeim gátu menn
séð leyndustu hugsanir manna,
og ekkert leyndarmál var svo
djúpt grafið, að það fengi
leynzt fyrir slíkum gleraugum.
Og enn önnur gleraugu sýndu
menn í liki dýra, sem samsvör-
uðu þeirra eðli. Menn sáu ná-
granna sína í líki refs, úlfs,
svins, hýenu eða höggorms.
Yfirleitt var talið, að slík gler-
augu gerðu menn harla svart-
sýna á innræti mannkindarinn-
ar.
GLERAUGU A ISLANDI
Ekki er vitað með öruggri
vissu, hvaða íslendingur hefur
fyrstur gengið með gleraugu.
Ekki er ósennilegt, að Islend-
ingar hafi fyrst kynnzt þeim
hjá Hansakaupmönnum, sem
ráku hér verzlun á 15. og 16.
öld. Gleraugu munu um þær
mundir hafa verið orðin tals-
vert algeng i Þýzkalandi. Vera
má, að Pétur Einarsson hafi
fyrstur manna borið gleraugu
á Islandi. Svo mikið er víst, að
gleraugu þóttu um þær mundir
svo mikil nýlunda hér á landi,
að hann var af þessu nefndur
Gleraugna-Pétur. Pétur var
göfugra manna, sonur séra Ein-
ars Snorrasonar Ölduhryggja-
skálds og Ingiríðar, systur
Stefáns biskups Jónssonar.
Bróðir Péturs var Marteinn
biskup Einarsson. Gleraugna-
Pétur kom talsvert við sögur á
sextándu öld, fór stundum með
sýslumannsvöld, en var síðast
prestur í Hjarðarholti. Hann
notaði gleraugu er hann tók að
gerast sjóndapur á efri árum.
Pétur hafði á unga aldri dval-
izt í Þýzkalandi, og hefur senni
lega kynnzt gleraugum þar.
Ætla jná, að eftir þetta hafi
gleraugu tekið að breiðast eitt-
hvað út hér á landi, í fyrstu
líklega einkum hjá klerkum og
öðrum embættismönnum. Al-
þýðan mun hafa átt erfiðara
um vik að notfæra sér þessa
nýjung framan af. Á 19. öld
fara þó gleraugu að fá tals-
verða útbreiðslu meðal almenn-
ings. Sérmenntaðir augnlæknar
koma þó tiltölulega seint til
sögunnar hér á landi. Hinn
fyrsti þeirra er sennilega Björn
Ólafsson, sem hlaut sérmennt-
un sína í Kaupmannahöfn litlu
fyrir 1890.
Lengi vel mun það hafa þótt
fremur nýstárlegt hér á landi
að sjá menn með gleraugu
nema við lestur og skriftir. Til
slíks gæti bent hin alkunna
vísa Bólu-Hjálmars um Sölva
Helgason:
Heimspekingur hér kom einn í
húsgangs klæðum.
Með gleraugu hann gekk á
skíðum
gæfuleysið féll að síðum.
Það hefur þótt heldur fárán-
leg sjón í þann tíð að sjá mann
á skíðum með gleraugu. En
þessi meistaralega, gróteska
mynd af hinum gáfaða óláns-
manna verður ógleymanleg.
Ólafur Hansson.
SÖLUBÖRN
Mánudagsblaðið vantar sölubörn, sem búa
í úthverfunum.
Blaðið verður sent til þeirra sem óska.
MÁNUDAGSBLAÐIÐ
— Sími 13975 - 13496.
KROSSGÁTAN
LÁRÉTT:
1 Fjötrar
8 Urgangur
10 Upphafsstafir
12 Þvottur
13 Upphafsstafir
14 Heymartæki
16 Hernaðarbandalag
18 Berja
19 Grjótskriða
20 Topp
22 Klifur
23 Alþjóðasamtök
24 Forfeður
26 Ósamstæðir
27 Slitnir
29 Heiðarbýli
LÓDRÉTT:
2 Upphafsstafir
3 Sönn
4 Drykkjustaður
5 Sáir
6 Ending
7 Prédikari
9 Alþýðusöngvar
11 Bæjirnir
13 Ófriður
15 Sjór
17 Peningur
21 Látin
22 Stafur
25 Hvfldi
27 Tvíhljóði
28 Friður
i
t