Mánudagsblaðið - 07.03.1966, Page 6
UR EINU
í ANNAÐ
Hve mörg verkföll? — Ella — Skattapolitíið -
Innréttingar að utan — Raunir Magnúsar -
Þursahlátur — Hætta fegurðarkeppnir?
Það væri gaman ef ríkisstjómin vildi taka saman hve
mörg verkföll og verkfallshótanir hafa verið gerð t.d.
síðustti tvö velmektarárin, sennilega þau nytjamestu til
lands og sjávar sem komið hafa í sögu þjóðarinnar. Þau
eru orðin býsna mörg og ærið hafa þau dregið úr þeim
möguleikum sem þjóðin hefur haft í þessum allsnægtum.
Sannleikurinn er sá, að réttilega eða ekki hefur almenn-
ingur — fylgismenn Sjálfstæðisflokksins — aldrei bölvað
leiðtogum hans eins og síðustu misesri. — Something is
rotten in the state of Denmark.
Það er vissulega virðingarvert að flytja hingað til lands
heimskunna skemmtikrafta, enda hefur margur slíkur „inn
flytjandi“ grætt alþokkalegar summur á slíku tiltæki. Hitt
er eins vist, að Ella Fitzgerald „trekkti" ekki eins og ætl-
að var og urðu sýningar fásóttar, ekki hálft hús meðan
miðaverðið var hvorki meira né minna en 450 krónur á
kjaft. 900 fyrir hjón. Efa má, að jafnvel auðhjón í USA
borguðu ca $ 20,00 fyrir a, hlusta á Ellu. Svona brjál-
æði hefnir sín enda varð innflytjandinn að „bakka niður“
— kr. 300,00 og má vera að hann hafi bjargazt á flótta.
Nú er sagt að skattalögreglan sé byrjuð að hafa sér til
hliðsjónar utanferðir manna, einkum langferðamanna og
þeirra sem sækja heim frægustu skíðalönd í S-Evrópu eða
skemmti- og vín- og gjálífisstaði, þ.e. athafnasvæði mill-
anna við Miðjarðarhaf. Eru slíkar ferðir alltíðar hjá þeim,
sem bölvun nouveau riche hefur heltekið. Allmargir Islend-
ingar eru á vappi þama meðan kaldast er hér heima og
skattalögreglan hugsandi um þeirra heill og fjárhagslegu
heilsu.
Það mun fara í vöxt að húsbyggjendur íbúða fari nú að
flytja inn t.d. eldhúsinnréttingar til að spara stórfé. Is-
lenzki iðnaðurinn er orðinn svo ofboðslega dýr í þessum
efnum að við brjálæði liggur og eru þessi viðbrögð mjög
skiljanleg og sjálfsögð. Það er eitt að gapa um samkeppni
og annað að standa í henni. Islenzki iðnaðurinn, undan-
tekningalítið hefur treyst um of á einangrun og höft enda
sýnir það sig víðar þegar um samkeppnisvörur frá útlönd-
um er að ræða, kex, konfekt og annað álíka. Það eru fyr-
irtæki eins og t.d. Kassagerðin, sem standast fyllilega sam-
keppni, en því miður eru of mörg sem kjósa „hina leið-
ina“, þ.e. höft og tolla.
Það er nú farið að káma gamanið hjá Magnúsi frá Mel,
því vinsældir hans hafa farið minnkandi þessa mánuði, sem
hann hefur verið fjármálaráðherra. Að vísu sókst dr.
Bjama að flæma Gunnar Thor út í óvinsælar ráðstafanir
og sumar alveg óþarfar en nú er viðbúið að Magnús sé
að komast í sömu klípu. ýmsar stéttir, sem áður fylgdu
flokknum kjósa hann aldrei aftur — nema í borgarstjórn-
arkosningum — og aðrar ætla sér að sitja auðum höndum
á kjördag. Það væri ýmsum nær að hætta að dansa eins-
konar hetjudans um minningu Ólafs Thors en reyna held-
ur með lipurmennsku og víðsýni að reyna að feta í póli-
tísk fótspor hans a.m.k. hvað flokkinn snertir.
Dettifoss er nú á leið til Ameríku með fisk. Skipinu seink-
aði um þrjá daga vegna þess, að ekki fékkst leyfi til und-
anþágu um útflutningstolla, sem gengu í gildi 1. marz.
Ríkisstjornin neitaði um undanþáguna svo Eimskip og út-
flytjandinn S.H. ákváðu þriggja daga bið. Biðin kostar
Eimskip kr. 80 þús. á dag en sparar S.H. ca 800 þús.
Þetta er vist kallað á máli stjórnarinnar að vinna á sig
vinsældir. Sú var tíðin að forusta Sjálfstæðisflokksins
hefði ekki viljandi né af smávægilegum nánasarástæðum
kosið á sig hreina óvináttu útgerðarmanna. En — eins og
nú hefur skeð — útgerðin á hauk í horni þar sem Þjóð-
viljinn er.
Sennilega leggjast nú fegurðarkeppnir niður nema Einar
Jónsson taki aftur við stjóm. Skandallinn frá í fyrra má
ekki endurtakast en þetta mun þó gleðja þá Hannes á
Hominu og Halldór á Kirkjubóli, sem jafnan stendur í
fjósi meðan kropparnir eru sýndir hér á malbikinu
og í menningunni. Gaman er þó að vita að margar þessar
stúlkur hafa vakið mikla athygli á landi og þjóð, sum-
ar orðið kunn model og aðrar lagt fyrir sig ýmsa sér-
menntun við kvenfólk, modelskóla, snyrtingu o.fl. En
keppnum þessum verður að fylgja viss agi og viss virð-
ing — án þess er eins gott að hætta þeim.
Sjónvarpið
þessa viku
Hroðalegar lýsingar á fram-
komu Alsírhermanna
Nauðganir, morð, svívirðingar og villimennska
— Málið fyrir Italíuþingi — 60 þúsund konur
svívirtar — Aldur 11—80 ára — Umræður í vest-
ur-evrópskum blöðum
Hryllingsgrein sú, sem hér fer á eftir, er allmjög til um-
ræðu í ýmsum blöðum V-Evrópu, en nú er farið að tala
meira og frjálsara um ýmsa glæpi, aðra en þá þýzku,
sem framdir voru í stríðinu. Blaðið fékk þessa grein fyr-
ir skömmu svo og eintök þeirra blaða, sem hún er rituð
upp úr, myndir og annað. Málið er nú fyrir þingi ítala
og valda kröfur þær og lýsingar allmikla athygli. Þó eng-
inn afsaki stríðsglæpi og ofsóknir þýzkra þá má vel benda
á að villimennskan er vart bundin einni þjóð í styrjöld
og flestir muna, að frægasti rithöfundur Rússa á stríðs-
árunum, Ehrenburg, gaf rússneska hernum sem sótti í
Þýzkaland þá skipan, að nauðga, drepa og svívirða kon-
ur og börn á öllum aldri að vild, enda varð vörn þýzkra
eftir því. Eru hroðasögur af hálftrylltum Mongólum úr
herjum Rússa. í Berlín ein ljótasta frásögn stríðsins.
Blaðið birtir grein þessa aðeins til glöggvunar fyrir þá,
sem enn í dag telja aðeins annan aðilann sekan í þess-
um þætti styrjaldarinnar. — Ritstj.
Sunnudagur
1600 Chapel of the Air
1630 This Is the Life
1700 Golf
1800 Disney Presents
1900 News
1915 Sacred Heart
1930 Bonanza
2030 Charade
2100 Ed Sullivan
2200 What’s My Line
2230 News
2245 „Claudia and David“
Robert Young
Mánudagur
1700 Air Power
1730 To Tell the Truth
1800 Official Detective
1830 Fractured Flickers
1900 News
1930 My Favorite Martian
2000 The King Family
2030 The Danny Kaye Show
2130 Greatest Show on Earth
2230 News
2245 The Tonight Show
Þriðjudagur
1700 „The Quiet Gun“
Forrest Tucker, Mara Cor-
day, Jim Davis
1830 The Andy Griffith Show
1900 News
1930 The Adams Family
2000 The Red Skelton Hour
2100 Assignment Underwater
2130 Combat
2230 News
2245 The Nut House
Miffvikudagur
1700 High Road to Danger
1730 Frontiers of Knowledge
1800 Salute to the States
1830 Shindig
1900 News
1930 Dick Van Dyke Show
2000 Discovery
2030 Hollywood Palace
Bob Newheart, Ben Blue
2130 Voyage to the Bottom of
The Sea
2230 News
2245 „12 OClock High“
Dean Jagger, Gary Merrill,
Gregory Peck, Hugh Mar-
lowe
Fimmtudagur
1700 „The Last Bandit“
William Elliott
1830 The Big Picture
1900 News
1930 Beverly Hillbillies
2000 F.D.R.
2030 Ben Casey
2130 Bell Telephone Hour
Victor Borge, Patti Page,
Benny Goodman, Joan Sut-
herland, Jacques d’Amboise
2230 News
2245 „Murder Among Friends“
Marjorie Weaver, John
Hubbard
Föstudagur
1700 Dobie Gillis
1730 I’ve Got a Secret
1800 The Third Man
1830 Shindig
1900 News
1930 Jimmy Dean
2030 Rawhide
2130 Companionship Wrestling
2230 News
2245 Telenews Weekly
2300 Around Midnight
2400 N.L. Playhouse
Laugardagur
1330 Kiddies Corner
1500 Saturday Sports
1700 Language in Action
1730 G. E. College Bowl
1800 Championship Bridge
1830 Where the Action Is
1855 Chaplains Corner
1900 News
1915 Armed Forces
Military Report
1930 Perry Mason
2030 Gunsmoke
2130 Twelve O’Clock High
2230 News
2245 „12 O’Clock High“
Blaðið tekur enga
ábyrgð á dagskrár-
breytingum.
Þá tvo áratugi, sem liðnir eru
frá lokum síðari heimsstyrjald
arinnar, hefur almenningur um
gjörvallan heim verið fræddur
um aðdraganda hennar, upphaf
og endi, svo o geftirköst, í tug-
þúsundum bóka, milljónum
blaða- og tímarita-greina, auk
þess sem útvarp og sjónvarp
hafa sízt látið sinn hlut eftir
liggja. Svo að segja allur þessi
fróðleikur hefur verið einhliða,
allt hefur verið málað hvítum
eða svörtum lit — sigurvegar-
amir nánast taldir flekklausir
englar, hinir sigruðu, einkan-
lega Þjóðverjar, taldir djöflar
í djöfulsmynd.
Ekki getur talizt verulega á
neinn hallað, þó að gizkað sé
á að báðar þessar skrautmynd-
ir séu álíka f jarri raunveruleik-
anum.
Einn snarasti og fyrirferðar-
mesti þáttur ofannefndra fróð-
leiksfeikna hefur verið kaflinn
um „stríðsglæpi Þjóðverja", og
hefur vist engum, allra sízt
Þjóðverjum sjálfum, komið til
hugar að halda því fram að
þeir væru syndlausir, enda hafa
þeir orðið að gjalda ósigur sinn
dýru verði.
En með tilliti til þess að
þetta tröllaugna fróðleiksmagn
minnist varla einu orði á aðra
glæpi en „stríðsglæpi Þjóð-
verja“, hlýtur hrekklaus leik-
maður að álykta að Bandamenn
hafi aldrei hent sá raunalega
slysni, að svo mikið sem hall-
ast á braut dyggða og velsæm-
is. Þetta er þeim mun furðu-
Iegra þegar það er hugleitt að
Bandamenn voru alltaf marg-
falt fjölmennari heldur en Þjóð
verjar, og að í röðum þeirra
voru ófáir milljónatugir komm-
únista, svo og að Bandamenn
notuðu skæruliða, þ.e. launmorð
ingja og brennuvarga, í ríkum
mæli.
Þetta hefur þó breytzt lítil-
lega siðustu árin. Famar eru að
síast út óvefengjanlegar og
staðfestar frásagnir, sem renna
stoðum undir þann lúmska grun
minn, að allt sé ekki annað
hvort hvítt eða svart. Sokum
þess að mér berast annað veifið
nokkur erlend blöð og tímarit,
þá hefi ég haldið nokkrum slik-
um frásögnum til haga með
birtingu fyrir augum, því að
hvort tveggja er, að mér er
fróðleiksfýsn Islendinga löngu
kunn, svo og hitt, að mér er
ekki síður kunnugt að fátt gleð
ur hjarta alþýðu meira heldur
en hrollvekjandi hraðafrásagn-
ir um morð og hryðjuverk. Eg
gríp þá fyrst niður í frásögn,
sem að mestu er tekin saman
eftir „Fria Ord“, „Folk og
Land“, „Stern“ og Die Welt“,
og er um:
HÓPNAUÐGANTR 60.000 tT-
ALSKRA KVENNA FRÁ
CASSINO OF FROSINONE.
Þegar brezki hershöfðinginn
Alexander og franski hershöfð-
inginn Juin frelsuðu Italíu
í Maí 1944.
SIGURLOFORÐ
Frans'ki hershöfðinginn AIp-
honse Juin útlistaði fyrir hin-
um dökkleitu Marokkó-hersveit-
um sínum á litlauðugri arabisku
hið óbeizlaða dýrðarlíf, sem
þeirra biði: „Þegar þið í nótt
hafið drepið fjandmennina
munuð þið koma í hérað, hand-
an þessara fjalla, sem iðar af
kvenfólki og flýtur í víni. Hers-
höfðingi ykkar lofar ykkur há-
tíðlega: Eftir að þið hafið sigr-
að fjandmennina, tilheyra ykk-
ur einum húsin, kvenfólkið og
vínið í 50 klukkustundir. I 50
klukkustundir megið þið njóta
lífsins eing og ykkur sjálfum
einum sýnist.“
MÁLIÐ I ÞINGI
Svo lítur út sem afleiðingar
þesarar dagslripunar, sem gefin
var út í maí 1944, muni verða
ítalska ríkinu dýrar. Einn af
þingmönnum Konungssinna, Al-
fredo Covelli, formaður flokks-
ing bar fram frumvarp í ítalska
þinginu í haust, sem gerir ráð
fyrir árlegum skaðabátagreiðsl-
um til samtals 60.000 ítalskra
kvenna, sem nauðgað var á
hinn viðbjóðslegasta hátt í hér
uðunum umhverfis Cassina og
Frosinone. Frumvarpið gerir
ráð fyrir árlegum greiðslum að
upphæð fimm milljörðum líra
(nálægt 350.000.000 íslenzkra
króna).
MAROKKÓHERMENN
Alphonse Juin, franskur mar-
skálkur síðan 1952 og æðsti yf-
irmaður Mið-Evrópu-herafla
Atlant-shafsbandalagsins frá
1953 til 1956, var vorið 1944 í
sókn gegn Þjóðverjum, sem
voru þá á undanhaldi' í Mið-
Italíu. Hermenn hans voru að-
allega Marokkó-menn — um
Framhald á 3. síðu.
Nýstárlegar breytingar
í sjónvarpinu
Þegar lesin er yfir sjónvarpsdagskráin þessa viku, er
augljóst, að ýmsar skemmtilegar breytingar eru í vænd-
um, og sumir gömlu þáttanna komnir aftur.Þá hafa og
færzt til nokkrir þættir, og stóru „nöfnin“ í sjónvarp-
inu mæta með úrvalslið listamanna, t.d. Victor Borge,
Benny Goodman, Joan Sutherland og enn fleiri.
Þá eru fréttamyndir, þættir um heimsmálin og enn
annar fróðleikur, stórhættulegur „intelligensíunni“ okk-
ar brothættu. Eru meðlimir hennar alvarlega minntir
á að hætta sér ekki í of náið samband við slikt.
Fyrir hina kátu æsku er svo Shindig — alltaf það
nýjasta og fyrir miðaldra nokkrar myndir frá í gamla
daga þegar Nýja bíó og Gamla bíó réðu hér lögum og
lofum.
Einn þátturinn teljum við að hvorki skemmi 60-menn-
ingana né brothættu stúdentana. Það er „Champion-
ship Wrestling“ — hlutlaus sýning á líkamsmennt.
*