Mánudagsblaðið


Mánudagsblaðið - 17.08.1970, Page 6

Mánudagsblaðið - 17.08.1970, Page 6
6 Mánudagsblaðið Mánudagur 17. ágúst 1970 Það er sjnilegt að erlendu stúlktmiar hafa mikinn áhuga á skinnavörunni. Islenzkur markaður á Kefla- víkurvelli - Rekstur evkst Nýlega buSu fyrirsvarsmenn (slenzks markaðar blaðamönn- um suður á Keflavíkurflugvöll til að sýna og kynna hin nýju húsakynni. Einar Elíasson, formaður stjórnarinnar o. fl. veittu eftirfarandi upplýsingar. íslenzkur markaður h.f. er sam- tök nokkurra stærstu framleiðenda útflutningsvara um verzlun þá í flughöfn Keflavíkurflugvallar, sem nú er risin um 600 mL' að stærð, sem opnaði kl. 12 á hádegi 1. ágúst sl. Verzlunin er byggð á kostnað fslenzks markaðar h.f., en afhendist síðan ríkinu. Byggingar- kostnaður skoðast sem fyrirfram greidd húsaleiga. Stofnfundur félagsins var hald- inn 25 apríl sl. Hlutafé er 7 millj- ónir, en hluthafar eru 16 talsins, þeirra á meðal Álafoss h.f, Glit h.f., » _— < ÍHvar ^ \er ég l) Mig langaöi enn einu sinni til að heimsækja æfintýraheim Tívolí- garðsins, en þar er myndin tekin. Auðvitaö flaug ég með Loftleiðum til Kaupmannahafnar. w koFTLEIDIR, ^mmmmmmmmmmmmmmmmmm^ Heimilisiðnaðarfélag fslands, Osta- og smjörsalan s.f., Rammagerðin h.f., Samband ísl. samvinnufélaga og Sláturfélag Suðurlands. í stjórn voru kosnir Einar Elíasson formað- ur, Hilmar Bendtsen, Jón Arnþórs- son, Óskar H. Gunnarsson, Pétur Pétursson og varamenn Gerður Hjörleifsdóttir og Guðjón Guð- jónsson. Gjald til Ferðaskrifstofunnar Aðdragandi að stofnun félagsins er orðinn nokkuð langur eða allt frá því að Agnar Tryggvason framkv.- stjóri hjá SÍS og Einar Elíasson framkv.stj. Glits h.f., byrjuðu á ár- inu 1966 að leita hófanna hjá stjórnvöldum um kynningaraðstöðu í flughöfn Keflavíkurflugvallar fyr ir útflutningsvörur íslenzkra fram- leiðenda. Þessi hugmynd hefir síð- an vaxið í sniðum þannig að nú hafa hlutaðeigandi yfirvöld veitt félaginu leyfi til verzlunarreksturs í flughöfninni og samtímis Iagði Ferðaskrifstofa ríkisins niður sölu- starfsemi sína þar. í stað þess greið- ir félagið til Ferðaskrifstofu ríkisins 21 krónu af hverjum farþega, en með auknum farþegafjölda verður það myndarlegur stuðningur við ís- lenzka Iandkynningu. Aukin farþegatala Stjórn Islenzks markaðar er bjart sýn á framtíð fyrirtækisins og bendir í því sambandi á eftirfar- andi Farþegafjöldi um Keflavíkur- flugvöll varð sl. ár 306.938, en sambærilegar tölur á fyrstu mánuð- um þessa árs sýna um 20% aukn- ingu eða fyrstu 7 mán. í fyrta 161.272 farþega, en ú þessu ári 192.866 farþega. Þetta er þrátt fyr- ir verulegan samdrátt í umferðinni vegna verkfallanna í júní sl. Beztu vörurnar Þá er brotið blað í sögu útflutn- ings íslenzkra iðnaðar:vara með samvinnu hluthafanna, sem eru stærstu framleiðendur þeirra vara, sem hafa á undangengnum árum verið beztu söluvörurnar á innlend- um markaði fyrir erlenda ferða- menn. Vöruval Vöruval er mikið en mest ber þar á ullar- og skinnavöru, silfri og keramik auk bóka, korta og lit- skuggamynda. Einnig er boðið glæsilegt úrval íslenzkra matvara. Það skal tekið fram, að gert er ráð fyrir aðallir íslenzkir framleið- endur geti selt þessari verzlun fram leiðslu sína, að því tilskyldu að vörugæði og verð séu aðgengileg og að varan sé hönnuð til útfiutn- ings. Samvinna ágæt Þessi samvinna framleiðenda hefir verið með miklum ágætum og minna má á hagnýtt gildi þess, að framleiðendur hafi eigin sam- tök um sölu vara sinna í flughöfn- inni. 1. Markaðskynning íslenzks iðn- varnings til erlendra neytenda. 2. Markaðsöflun erlendis, þar sem beint samband fæst við erlenda kaupsýslumenn, sem um flug- höfnina fara. 3. Tækifæri til markaðskönnunar nýrra framleiðslugreina og á hönnun umbúða o. s. frv., og er þá sérstaklega átt við vöru- tegundir, sem reyna skal á er- Iendum mörkuðum. 4. Póstsendingarverzlun, sem er mikilvægur liður hjá mörgum þjóðum í gjaldeyrisöflun og markaðsleit. 5. Stórkostleg aukning ferðamanna straums um ísland gefur verzl- uninni vaxandi gildi. Framkvæmdir Nú þegar verzliunin er risin af grunni skal gerð nánari grein fyrir framkvæmdum: Byggingin er einar hæðar við- bygging við Flugstöðina á Kefla- víkurflugvelli 790 m2 að gólffleti. í byggingunni er um 465 m2 verzlunarsalur ásamt 150 m2 geymslu- og skrifstofuhúsnæði ís- lenzks markaðar h.f., auk 175 nr er tilheyra Fríhöfninni, en viðbygg- ingin er í tengslum við núverandi svæði Fríhafnarinnar og „transit"- sal Flugstöðvarinnar. Undirstöður og grunnplata húss- ins eru úr járnbentri steinsteypu og burðargrind úr stáli og útveggir úr timbri og gleri. Innveggir og þak að öðru leyti er úr timbri, klætt innan með gibsplötum. Byrjað var að grafa fyrir grunni byggingarinnar 12. maí síðast lið- inn en byggingunni var fulllokið 1. ágúst eins og að framan getur eða á réttum 10 vikum þrátt fyrir 2ja vikna verkfall. Verkið Arkitektateikningar af húsinu voru gerðar á Teiknistofunni s.f., Ármúla 6, en verkfræðiteikningar hjá Almenna byggingafélaginu h.f. Innéttingar voru teiknaðar á Teikni stofu SÍS af Hákoni Hertervig arki- tekt, en smíðaðar á verkstæðum í Keflavík. Verktakar við bygging- nna voru Keflavíkurverktakar, en yfirumsjón fyrir hönd íslanzs mark- aðar h.f. hafði Svavar Jónatansson verkfræðingur. Þegar verzlunin er skoðuð vekur það undrun og ánægju hvílíkt þrek virki verktakarnir og starfsmenn þeirra hafa unnið á 8 vikum. Eins og að framan greinnir opn- aði íslenzkur markaður 1. ágúst sl. kl. 12 á hádegi. Verzlunarstjóri er Guðmundur Ingólfsson, skrifstofustjóri Einar Sverrirsson og framkvæmdastjórar fyrst um sinn Jón Arnþórsson og Pétur Pétursson. Fyrstu 6 sólarhringana hefur um- ferðin um völlinn verið 12.513 far- þegar. Augljóst er því hve þýðingarmik- ið er að geta boðið farþegum að- gang að hinni nýju verzlun, sem býður það bezta af innlendum iðn- varningi fyrir erlenda ferðamenn. Lítið er enn hægt að segja um reksturinn að fenginni svo stuttri reynslu. Hitt er augljóst að þetta fyrirtæki á mikinn rétt á sér og að ástæða er til fyllstu bjartsýni urn framtíðina. Þjóðsögur Framhald af 3. síðu. vera hjá sér, þegar kerling komi. Hann segir: „Nei, og varstu ein í ráðum, þegar þú fékkst henni ull- ina, svo það er bezt, að þú gjaldir ein kaupið." Fer hann burt síðan. Nú kemur sumardagurinn fyrsti, og Iá konan ein í rúmi sínu, en enginn maður annar var í bænum. Heyrir hún þá dunur miklar og undirbang, og kemur þar kerling og er nú ekki frýnileg. Hún snar- ar inn á gólfið vaðmálsstranea miklum og segir „Hvað heiti ég nú, hvað heiti ég nú?" Konan var ,nær dauða en lífi af ótta og segir: „Signý?' „Það heiti ég,- það heiti ég, og gettu aftur, húsfreyja," segir kerling. „Ása?" segir hún. Kerling segir: „Það heiti ég, það heiti ég, og gettu enn, húsfreyja!" „Ekki vænti ég, að þú heitir Gilitrutt?" segir þá konan. Kerlingunni varð svo bilt við þetta, að hún datt kylliflöt niður á gólfið, og varð þá skellur mikill Rís hún upp síðan, fór burtu og sást aldrei síðan. Kon- an varð nú fegnari en frá megi segja yfir því, að hún slapp frá óvætti þessum með svona góðu móti, og varð hún öll önnur. Gjörð- ist hún iðjusöm og stjórnsöm og vann æ síðan sjálf ull sína. DiepassencCe Frisur zu jedsm Kleid! Sommermode wie noch nieí 70 Schnittð GröÖe 36-52 Bezaubemd: Modelle aus ganz neuen zarten Stoffen Praktísch: Rund-um-die Uhr-Kieider Sommerfich: Komplets fiir Vollschiankc- | JUU1970 PnnsDMÍ.50

x

Mánudagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.