Mánudagsblaðið


Mánudagsblaðið - 26.07.1971, Blaðsíða 2

Mánudagsblaðið - 26.07.1971, Blaðsíða 2
2 Mánudagsblaðið ►- • • Mánudagur 26. aprí! 1971 ÚR SÖGU LANDS OG LÝÐS Bsuiaðu nú Búkolla mín Einu sinni voru karl og kerling í koti sínu. Þau áttu einn son, en þótti ekkert vænt um hann. Ekki voru fleiri menn en þau þrjú í kotinu. Eina kú áttu þau karl og kerling; það voru allar skepnurnar. Kýrin hét Búkolla. Einu sinn bar kýrin, og sat kerl- ingin sjálf yfir henni. En þegar kýr- in var borin og heil orðin, hljóp kerling inn í bæinn. Skömmu seinna kom hún út aftur til að vitja um kúna. En þá var hún horfin. Fara þau nú bæði, karlinn og kerlingin, að leita kýrinnar og Ieituðu víða og lengi, en komu jafnnær aftur. Voru þau þá stygg í skapi og skipuðu stráknum að fara og koma ekki fyrir sín augu aftur, fyrr en hann kæmi með kúna; bjuggu þá strák út með nesti og nýja skó, og nú lagði hann á stað eitthvað út í bláinn. Hann gekk lengi, Iengi, þangað til hann settist niður og fór að éta. Þá segir hann: „Baulaðu nú, Bú- kolla mín, ef þú ert nokkurs staðar á lífi". Þá heyrir hann, að kýrin baular langt, langt í burtu. Gengur karlsson enn lengi, lengi. Sezt hann þá enn niður til að éta og segir: „Baulaðu nú, Búkolla mín, ef þú ert nokkurs staðar á lífi". Heyrir hann þá, að Búkolla baular, dálítið nær en í fyrra sinn. Enn gengur karlsson lengi, lengi þangað til hann kemur fram á fjarskalega háa hamra. Þar sezt hann niður til að éta og segir um leið: „Baulaðu nú, Búkolla mín, ef þú ert nokkurs staðar á lífi". Þá heyrir hann. að kýrin baular undir fótum sér Hann klifrast þá ofan hamrana og sér í þeim helli mjög stóran. Þar gengur hann inn og sér Búkollu bundna undir bálki í hellinum. Hann leysir hana undir eins og leiðir hana út á eftir sér og heldur heimleiðis. Þegar hann er kominn nokkuð á veg, sér hann, hvar kemur ógna- stór tröllskessa á eftir sér og önnur minni með henni. Hann sér, að stóra skessan er svo stórstíg, að hún muni undir eins ná sér. Þá segir hann: „Hvað eigum við nú að gera, Búkolla mín?" Hún segir: „Taktu hár úr hala mínimi, og leggðu bað á jörðina". Hann gjörir það Þá segir kýrin við hárið: „Legg ég 'á; og mæli ég um, að' þú verðir að svo stórri móðu, að ekki komisr yfir nema fuglinn fljúgandi" í sama bili varð hárið að ógnastórri móðu. Þegar skessan kom að móð- unni, segir hún: „:Ekki skal þér þetta duga, strákur. Skrepptu heim, stelpa", segir hún við minni skess- una, „og sæktu stóra nautið hans föður míns". Stelpan fer og kemur með ógnastórt naut. Nautið drakk undir eins upp alla móðuna. Þá sér karlsson, að skessan muni þegar ná sér, því hún var svo stór- stíg. Þá segir hann: „Hvað eigum við nú að gera, Búkolla mín?" „Taktu hár úr hala mínum, og leggðu það á jörðina", segir hún. Hann gerir það. Þá segir Búkolla við hárið: „Legg ég á, og mæli ég um, að þú verðir að svo stóru báli, að enginn komist yfir nema fugl- inn fljúgandi" Og undir eins varð hárið að báli. Þegar skessan kom að bálinu, segir hún: „Ekki skal þér þetta duga, strákur. Farðu og sæktu stóra nautið hans föður míns, stelpa", segir hún við minni skess- una. Hún fer og kemur með nautið. En nautið meig þá öllu vatninu, sem það drakk úr móðunni, og slökkti bálið. Nú sér karlsson, að skessan muni strax ná sér, því hún var svo stór- stíg. Þá segir hann: „Hvað eigum við nú að gera, Búkolla mín?" „Taktu hár úr hala mínum, og leggðu það á jörðina", segir hún. Síðan segir hún við hárið: „Legg ég á, og mæli ég um, að þú verðir að svo stóru fjalli, sem enginn kemst yfir nema fuglinn fljúgandi". Varð þá hárið að svo háu fjalli, að karlsson sá ekki nema upp í heiðan himininn. Þegar skessan kemur að fjallinu, segir hún: „Ekki skal þér þetta duga, strákur. Sæktu stóra borjárnið hans föður míns stelpa!" segir hún við minni skess- una. Stelpan fer og kemur með bor- járnið. Borar þá skessan gat á fjall- ið, en varð of bráð á sér, þegar hún Framhald á 5. síðu. er tekið til starfa LfFTRYGGINGAMIÐSTOÐIN P Að Iiiftryggingamiðstöðinni h.f., sem ný- lega tók til starfa, standa 18 hluthafar, þar á meðal Tryggingamiðstöðin hf. Líf- tryggingamiðstöðin hf. er í sömu húsa- kynnum og Tryggingamiðstöðin hf að Aðalstræti 6 (Morgunblaðshúsinu, 5. hæð) og síminn er sá sami — 194 60. FJÖLBREYTNI OG NÝR GRUNDVÖLLUR Líftryggingamiðstöðin hf. býður upp á fjórar tegundir líftrygginga, þar sem komið er á móts við kröfúr almennings um skynsamlegri og nútímalegri háttu á líftryggingum. Þessar fjórar tegundir líf- trygginga flokkast bannig: 1) FÖST TBYGGING, 2) ÓVERÐTRYGGÐ STÓR- TRYGGING, 3) VERÐTRY GGÐ STÓR- TRYGGING og 4) SKULDATRYGGING. LÍFTRYGGING ER SJÁLFSÖGÐ Almenningi finnst nú orðið sjálfsagt að líftryggja sig, a.m.k. ættu allir Þeir, sem standa í húsbyggingum eða eru skuld- ugir, að taka einhvers konar Iíftrygg- ingu tíl langs eða skanuns tíma. Líf- tryggingarskilmála er sjálfsagt að ræða í góðu tómi, því að þeir, sem vilja líf- tryggingu, þurfa eðlilega margs að spyrja um réttindi sín og skyldur. Það er til dæmis ákaflega athyglisvert að kynna sér iíftryggingu þá, sem felur í sér bætur vegna slysaörorku. REYNDIR TRYGGIN G AMENN Hjá Líftryggingamiðstöðinni hf. starfa að- elns reyndir tryggingamenn, sem hafa sett sér þá meginreglu, að útskýra í smáatrið- um kosti og takmarkanir Iíftrygginga, þannig að viðskiptavininum sé fullkom- lega ljóst hvaða form Iíftryggingar hentar honum bezt. Tryggingamenn okkar eru reiðubúnir að koma hvenær sem er til fyrirtækja og einstaklinga til að ræða þessi mál. LÍFTRYGGINGAMIÐSTÖÐIN P AÐALSTRÆTI 6 — SÍMI 1 94 60. BHKEBi Einrrar mínútu getraun: Hve slyngur rannsóknarí ertu? Dauði stofustúlkunnar Um leið og Fordney prófessor néri gómunum við dyranetið þá rispaði hann eilítið puttann á vír, sem stóð út úr þar sem kúlan hafði farið gegnum netið. Hann gekk varlega eftir plankanum, sem lá yfir blóma- beðið og síðan eftir steinstígnum og inn í húsið. Frá legu líksins var auðséð, að stofustúlkan, Arv- onne Dupre, hafði slegið höfðinu í buffet-borðið um leið og hún féll á gólfið. Eitt skot, í bakið, þar sem hún stóð í beinni línu við gluggann, hafði endað í hjarta- stað, og Dupre hafði dáið samstundis. Caldwell lækn- ir skar eftir kúlunni. „Ég bauð nokkrum gestum hér til kvöldverðar með mér— konan mín skrapp til borgarinnar" sagði Sidney Blake, eigandi sveitasetursins í skýringarskyni. „Arvonne — eina vinnukonan, sem var eftir hjá okkur — þú veizt hvað erfitt er að fá vinnukonur — hlýtur að hafa verið að leggja á borðið. Af tilviljun leit ég út um gluggann í mínu herbergi, sem er beint fyrir ofan þetta herbergi og kom auga á mann, hálffalinn bak við tré, sem miðaði á borðstofugluggann og hleypti af — skammbyssu að mér sýndist, held ég. Ég þaut niður í borðstofuna og fann Arvonne". Fordney sneri sér ag buffet-borðinu — en þar lágu hnífar og gaflar í óreiðu, snéri baki að glugganum sem var um það bil 20 fet frá. Hann snéri sér við, gekk hægt að borðinu og skoðaði vandlega svæðið næst miðju gluggans. Dúkurinn á borðinu var dálítið krumpaðue Á gólfinu var þyrnóttur rósastilkur. „Ég þef náð henni" sagði Caldwell læknir, „kúlan er 38 cal. stærð." Þegar Fordney prófessor snéri ser að glugganum, hrópaði Blake. „Passaðu þig, þarna er hann aftur!" Prófessorin veifaði hendinni og leynilögreglumaður- inn, sem miðað hafði skammbyssunni bak við tréð, veifaði á móti og fór burtu. „Þú Blake", sagði Fordney glæpasérfræðingur, „ert hérmeð tekinn fastur fyrir morð. Hvaða sönnunargagn staðfesti þessa ákvörðun Fordneys? Svar á 6. síðu. — Með Iitprentuðu sniðörkinni og hár- nákvæmu sniðunum! — Útbreiddasta tízku- og handavinnublað Evrópu!

x

Mánudagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.