Mánudagsblaðið - 26.07.1971, Page 3
Mánudagur 26. júlí 1971
Mánudagsblaðið
3
Tll BIADSINS
Ólafur og „ung-
arnir“ Ijófu
Þakkir miklar fyrir greinagóða
athugasemd varðandi NATO og af-
stöðu einstakra afla innan ríkis-
stjórnarinnar til bandalagsins. Það
er ekki heppilegt, að Framsókn
skyldi fá Ólaf Jóhannesson sem
formann og nú forsætisráðherra,
því hann túlkar síður en svo sjón-
armið flokksmanna í varnarliðsmál-
unum. Ólafur er ennþá við já-já
-nei-nei-hornið, enda er hann
menntaður á öllu öðru sviði en al-
þjóðamálum. Leitt er að Einar
Ágústsson skuli vera settur í þann
vanda, að vera við stýrið hjá ringl-
uðum skipstjóra.
Ólafur formaður má vita, að
vinstri armur flokksins og svokall-
aðir ungframsóknarmenn eru ekki
annað en hækjulið frá kommum,
sem leigðir eru til uppsteits. Ör-
væntingarbragð flokksforustunnar,
að koma einum af æstustu ung-
kommum flokksins í húsvarðat-
stöðu í flokkshælinu í Vesturbæn-
um mislukkaðist með öllu, en slíka
menn verður að þurrka burtu en
ekki taka þá alvarlega. Vonandi
tekst flokknum að hreinsa til áður
en það er um seinan.
Sarínur Framsóknarmaður.
Þetta er erfitt mál fyrrí Fram-
"sóknarmenn, að flokkurinn er far-
inn að skiptast eins og kommaliðið,
lover upp á móti annarri.
Sjnir það gleggst hver upplausn-
in er þegar gamlir, grónir rrtenn
innan flokksins sýna þessu bröili
tómlceti og láta sem um óróa cn
ekki byltingu innan frá sé að rceða.
Máske rætist eitthvað úr er Ólafur
hefur jafnað sig eftir þessa skyndi-
legu og óvcentu uppbefð. — Ritstj.
Hvað líður hunda-
málinu?
Hr.' ristjóri.
Senn líður að hundadögum hin-
um seinni þeim, sem ákveða örlög
heimahunda í Reykjavík. Geir
borgarstjóri og co. gáfu hundum
grið til septembermánaðar en
kváðu svo á, að allir skyldu þeir
drepnir eða útlægir verða ella er
sá mánuður rynni í garð. Til þessa
hefnr'ekkert heyrzt frá Hundavina-
félaginu annað en það, að við höf-
um f'engið bréf frá því þar sem sem
okkur er gert .að gefa upp nafn,
aldur, -tegund o. s. frv. hundsins.
.Þegar Geir og co. samþykktu af-
tÖkhr hundanna — allir nema AI-
bert knattspyrnukappi — þá var
látið í veðri vaka, að til endanlegra
úrslita kæmi hjá ráðherra. Mér er
ókunnugt hver er hundamálaráð-
herra í hundastjórninni, en gaman
váeri ef hann léti skoðun sína í
Ijós sem fvrst. bví vilji hann hunda
feiga eða úflæga verða foreldrar að
fara að gera ráðstafanir gagnvart
hvarfi þeirra af heimilum, einkum
gagnvart börnum, sem. eru elsk að
hundum og skilja lítt þörf hins op-
inbera á að drepa þá, Einhvern veg-
inn finnst manni, að stjórn, undir
forsæti Framsóknarflokksins, geti
vart verið þekkt fyrir að drepa
miskunnarlaust „bezta vin bónd-
ans", afkomanda smalahundsins
trygga, sem fann sauðfé, barg
bónda frá villu í myrkri og fjúki,
varði bæ hans o. s. frv.
Hvernig sem þessu máli á að
Ijúka nú í september, þá finnst
mér, að ríkisstjórn, sem á öllu sínu
þarf að halda gæti að minnsta kosti
þyrmt lífi þeirra hunda, sem nú eru
fyrir — auðvitað gegn því, að eig- i
endum væri gert að passa þá sem
bezt en hljóta stórar sektir ef út af
brygði. Vera má, að sú stjórn hefði
ekki verra af sem þyrmdi hund-
kvikindunum.
Hugsandi.
Vera má að rétt sé. Okkur finnst,
að þyrma megi þessum kvikindum
sem lifa eins lengi og þeim er
atiðið, enda gefi hundavinafélag-
ið upp nafn, aldur og heimili hvers
einasta hunds, svo ekki geti verið
um frekari víxlspor hundaeigenda
að rceða. — Ritstj.
Flugfreyjur enn
Mánudagsblaðið.
Já þetta um flugfreyjurnar í síð-
asta blaði voru orð í tíma töluð.
Einkurn þó það, sem varðar af-
greiðslu í vélunum. Ég hefi heyrt
og fylgir hér með sönnun (blaðið
geymir hana. Ritstj.) að flugfreyjur
ræða saman um hve mikil hver af
áhöfninni ætlaði að taka af góss-
enu, sem til var um borð, en af-
ganginum síðan skipt milli far-
þega meðan entist. Urðu í þessu til-
felli margir að snúa vonsviknir frá
borði, en ekki var svo með þessar
stúlkur sem vikulega fara milli
landa. En það er eins og þið blaða-
menn þorið aldrei að segja neitt og
að forstjórar flugfélaganna hafi
ykkur í vasanum vegna utanferða-
boða. Aðeins eitt blað Morgunblað-
ið skammaði annað flugfélagið í
vetur út af afgreiðslu um borð,
enda mun Morgunblaðið eina blað-
ið sem er nógu sterkt til að þora
því. Þið hinir getið ekki vegna fá-
tæktar og umkomuleysis sagt orð
gegn gestgjöfum ykkar, sanianber
að aldrei gagnrýna blöðin,- ekki
einu sinni Mbl., rekstur þessarra
fyrirtækja þótt kjafturipn sé- á lofti
um rekstur annarra fyrirtækja, sem
þið hafið enn minna vit á.'
Og þú herra Agnar Bogason rit-
stjóri geðillur og súr, gantast milli
landa, sæll og ánægður og það
skiptir þig engu máli, þótt samfar- !
þegar þínir séu beittir órétti og fá
ekki þá litlu fyrirgreiðslu, sem þei
vonast eftir áður en lent er
Reykjavík. Jæja góði, góða fc'
skemmm þér vel. •
„Disgusted". I
Ég hefi nú betri manna orð en
þín um það, að ég sé manna
skemmtilegastur á ferðalögum og
reyndar undir öllum öðrum kring-
umstceðum, auk þess, sem ég „gant-
ast" ekki milli landa, heldur sit ró-
legur, rabba við ncesta mann og
berg á því, sem fram er reitt. Um
flugfreyjmnar er þetta að segja:
Þessar kvartanir hafa heyrzt oft áð-
ur, og flest munu blöðin leita til
flugfreyjufélagsins til að fá stað-
festingu á hvort þetta sé svo í rann
og verti. Það er vart hcegt að sak-
ast um heildina, þó eflaust sé þarna
misjafn sauður, en, ef ég má tala,
sem maður sem „gantast" hefur
víða í lofti og með fleiri félögum
en íslenzkum, þá er þjónusta fylli-
lega sambxrileg við þau og oftar
en ekki betri, því farþegar þekkjast
mevra á íslenzku vélunum. Annars
verður að telja að blöðin birti alltaf
réttmceta gagnrýni og skiptir engu
hvort blaðamenn ferðast með vél-
unum sem gestir eða ekki. (Til
þess að sýna hve réttsýnir við erum
hér við blaðið, þá hringdum við í
greinahöfund, sem er mikill ferða-
maður og lásum fyrir hann svar
okkar). Hann hlustaði rólegur á
þuluna en sagði svo:
„Vissi ég ekki, þú gugnaðir
helvízkur". — Ritstj.
'kítugær stúlka-
^ssidur
Hr. ritstj.
Er það algjör nauðsyn, að þær
stúlkur, sem vilja klæðast síðbux-
um og öðrum nútíma hversdags-
klæðum séu jafnframt eins skítugar
og mögulegt er. Svo vill tii, að
ég var í sundlaugum um daginn
og afklæddist með nokkrum „bítla-
stúlkum" sem ætluðu í sólbað. Und-
irföt þeirra, buxur og brjóstahald-
arar voru ein löðrandi svitatuska,
óhreint og viðbjóðslegt. Þessar
stúlkur voru ekki ósnotrar að upp-
lagi, en hárið og allt hreinlætið
var svo ofboðslegt, að maður ætl-
aði að kasta upp. Ég hefi oft séð
þessar stelpur á kvöldin niðri í bæ
og þá sitja þær á gangstéttum og
haga sér eins og óvita börn. Það
kann ekki að koma manni við
hvernig þetta fólk hagar sér en á
almennum baðstöðum og á gömm
úti á fólk heimtingu á að þessi við-
bjóður særi ekki hinn venjulega
borgara. Burm með þennan lýð af
almannafæri.
Hreinlát.
Við erum alveg sammála, en get-
um ekki dcemt undir.fötin í bún-
ingsherbergjum baðhúsanna. Ann-
ars er alveg dagsanna, að fjarlœgja
ber hinn mikla götuskríl, sem legg-
ur undir sig miðborgina á síðkvöld-
um. Hann er með öllu óþolandi.
— Ritstj.
Hótelstjirtr og
framkoma gesta
Hr. ritstj.
Hafa eigendur skemmtistaða eða
hótela engar skyldur gagnvart gest-
um almennt, eða til hvers eru dyra-
verðir. Um síðustu helgi var ég
staddur á einum frægasta og stærsta
bar Reykjavíkur og þóttist nú held-
ur en ekki hólpinn að komast inn
í þessa dýrð, því ég er Austfirðing-
ur, sjómaður. Ég klæddi mig vel og
hét því, að verða hvorki mér né
sveimngum mínum til skammar,
tempraði drykkjuna og drakk meira
segja viskí, sem mér þykir ekki
sérstaklega gott, en vildi gera eins
og Parísarbúar gera (þú meinar
Rómarbúar, máltækið segir: when
in Rome, do as the Romans do). En
það fóm heldur en ekki fínheitin
af staðnum. Þarna var fólkið dauða-
drukkið, æðandi ofan úr danssaln-
um, en mest bar á ungum manni,
sem mér var tjáð að væri pappír
í Sjálfstæðisflokknum, sem öskraði
og æpti á menn og konur, setti
lappirnar upp á borð og var í öllu
hinn dólgslegasti. Dyraverðirnir
létu hann eiga sig og yfirleitt leiðst
honum í öllu svívirðilegasta fram-
koma m. a. við hjón, sem þarna
vom að skemmta sér en gám ekki
að gert. Ýmislegt fleira kom mér
spanskt fyrir sjónir en ef þetta er
svokölluð hótelmenning höfuðstað-
arins, þá get ég alveg eins sótt
böllin heima, sem ekki gorta af
neinu sérstöku en eru, þegar öllu
er á botninn hvoflt alls ekkert
verri. Mér var sagt að skrifa ykkur
eða Vísi.
Sjómaður.
Eflaust hefur þetta verið emhver
undantekning, en þó er aldrei að
vita. Sú staðreynd er fyrir hendi, að
eftirlitið er oft afar lélegt og dyra-
verðir alltof mannlegir gagnvart
þeim skepnum, sem oft hugsa sem
svo, að áfengisneyzla sé afsökun
fyrir almennum drullnsokkshcetti í
hegðan. Því miður er þessi afstaða
alltof algeng og gerir reyndar þjóð-
inni tjón á þessum tíma árs þegar
gestakomur erlendis frá eru tíðar.
Framhald á 6. síðu.
Bættar samgongur
fleiri ferðir
I
Skip Eimskipafélags íslands komu 738
sinnum á 86 hafnir í 18 löndum árið 1970.
Sama ár komu skipin á 49 innlendar hafnir
utan Reykjavíkur í samtals 804 skipti.
EIMSKIP
Pósthússtræti 2, sími 21460.