Mánudagsblaðið


Mánudagsblaðið - 25.10.1971, Side 6

Mánudagsblaðið - 25.10.1971, Side 6
6 Mánudagsblaðið Mánudagur 25. október 1971 SJÓNVARP KEFLAVÍK Vikan 24. — Sunnudagur 12.30 The Answer 1.00 The Big Picture 1.30 Grambling Highlights 2.15 President Nixon Message 2.30 College Scoreboard 3.00 World Series — Game 1 5.20 This Week In Pro Football 6.05 Dr. Seuss’ Cat In The Hat 6.30 Dead Or Alive 7.00 The World Report 7.15 Sacred Heart 7.30 Wild Kingdom 8.00 Ed Sullivan 9-00 Wild Wild West 9.55 Glen Campbell 10.45 The Christophers 11.00 News Brief 11.05 Northern Lights Playhouse — The Gift Of Love Mánudagur 4.00 Emily’s Afternoon 4.10 Roger Ramjet 30. október 4.20 TV Schedule 4.25 Barbara McNair 5.10 All Star Theater 5.45 Theater 8 — Soldier In Love 7.00 The World Report 7.30 Bill Cosby 8.00 High Chaparral 9.00 Hawaii 5—0 10.00 Johnny Cash 10.55 Reflection 11.00 Final Edition News 11.10 The Tonight Show Þriðjudagur 4.00 Emily’s Afternoon 4.10 Sesame Street 5.10 Favorite Martian 5.35 Bulletin Boatd 5.40 On Campus 6.10 Don Knotts 7.00 The World Report 7.30 Room 222 8.00 The World Of Harry Piasecki 8.30 Tuesday Night At The Movies — Body and Soul 10.05 Jim Nabors 10.55 Reflection 11.00 Final Edition News 11.10 Pro Boxing Miðvikudagur 3.55 Emily’s Afternoon 4.00 Animal World 4-25 Dobie Gillis 4.55 Bulletin Board 5.00 Green Acres 5.25 Theater 8 — No Survivors Please 7.00 The World Report 7.30 Daniel Boone 8.30 Play It Again Charlie Brown 9.00 Dean Martin 10.00 Mod Squad 10.55 Reflection 11.00 Final Edition News 11.10 Dick Cavett Vimmtudagur 4.00 Emily’s Afternoon 4.10 TV Scedule 4.15 Perry Mason 5.10 Bulletin Board 5.15 Theater 8 — The Gift Of Love (Repeat) 7.00 The World Report 7.30 Family Affair 8.00 Northern Currents 8.30 The Detectives 9.00 Andy Williams 9.55 Turned On Crisis 10.55 Reflection 11.00 Final Edition News 11.10 Northern Lights Playhouse — Terror Street Föstudagur 4.00 Emily’s Afternoon 4.15 Headlines 4.40 TV Schedule 4.45 Bill Anderson 5.10 Bulletin Board 5.15 Theater 8 — Body And Soul (Repeat) 7.00 The World Report 7.30 My Three Sons 8.00 Laugh-In 9.00 60 Minutes 10.00 Conally Press Conference 11.00 Final Edition News 11.10 Northern Lights Playhouse — Suicide Squad 12.20 Night Light Theater — Soldier In Love (Repeat) Laugardagur 10.30 Captain Kangaroo 11.15 Sesame Street 12.15 Cartoon Carnival 1.00 Hawaii Calls 1.25 Roller Game 2.20 Pro Bowlers Tour 3.30 CBS Golf Qassic 3.35 CBS Golf Classic 4.25 Lost In Space 5.20 Hee Haw 6.10 Country Carnival 6.30 Coronado 9 7.00 The World Report 7.15 Warren Miller 7.30 Mayberry RFD 8.00 Carol Burnett 9.00 Gunsmoke 10.00 The Defenders 10.55 Chaplain’s Corner 11.00 News Brief 11.05 Northern Lights Playhouse — No Survivors Please (Pepeat) Magnús Kjartanss. Framliald af 1. síðu. þegar innreið Rússa hæfist, yrði innan tíðar einn veiga- mesti sendimaður rússnesku utanríkisþjónustunnar og þakk létur handhafi Lenínorðunnar — ásamt tilhlýðilegri viður- kenningu handa þeim íslenzk- úm ráðherra, sem þar hefði unnið skítverkin að tjaldabaki. JÁ, JÁ — NEI, NEI Það er undarlegt, að rétt eftir að kjarni Eramsóknar- flokksins sparkar vinstra arm- inum með öllu úr unglinga- hreyfingu flokksins, þá skuli formaðurinn vera látinn vera við völd eftir aftaníoss-stefn- una við komma. Ólafur er, eins og margoft hefur sannast, algjört barn í utanríkismálum, einskonar prúðbúin dansmær, sem býður eftir næsta herra. Það er ósköp skiljanlegt að slíkar stásspíkur falli fyrir glæsilegum æfintýramanni og kaldlyndum glæframanni eins og Magnúsi. VESÖL STJÓRNARANDSTAÐA Það er margsannað, að ö!l þjóðin þ.e. sá hluti hennar sem skiptir máli er andvigur utanríkisstefnu stjórnarinnar, undir leiðsögn Magnúsar og með blessun Ólafs. Stjórnar- andstaðan er óvenjulega aum og óákveðin í þessum efnum. Alþýðuflokkurinn, sem er reyndar nær þurrkaður út, hef- ur enga skoðun en Jóhann Haf stein telur sig einfæran að standa upp í hárinu á stjórn- inni. Þetta er Jóhanni ofviða og hjálp sú er hann fær af Ellert Schram og öðrum nýlið- um á þingi nægir ekki til að þjappa saman andstöðunni gegn ríkisstjórninni og stefnu hennar í þessu máli. Er ekki tími til kominn, að málið sé lagt fyrir dóm almenn ings eða er meiningin að draga þá ákvörðun svo á lang inn, að um seinan sé? Kakali Framhald af 4. síðu. sem höfðu forsjálni til þess að panta Tsér betri sæti í himnariki ÁÐUR en miðar voru seldir almenningi. Það er síður en svo, að við séum að hneykslast á þessum viðskiptum og við- horfum peningadeildar Morgunblaðsins. Langt því frá. Um áratuga skeið hefur Mbl. verið kyndill hins frjálsa framtaks, sverð þess og skjöldur og því má þakka, að enn örlar pinulítið á hinum frjálsu samskiptum í þjóðfélaginu og þeirri blessun, að einstaklingar fá að sýna mennt sína án í- hlutunar hins opinbera. Það er einmitt vegna þess arna, að við fellum tár er Mbl. birtir langlokur um „gulu pressuna", sem er fyrirgefanlegt, þvi Mbl. ger- ir engan mun á gulu press- unni, sem grasserar i Eng- landi, Frakklandi, USA og Þýzkalandi, og fæst ein- göngu við kynferðismál, uppijóstranir einkamála, kynvillu heimsþekktra aðila, skilnaði, framhjáhöld og aðra persónulega hluti er varða fræga einstaklinga — og svo hinsvegar sensa- sjón — pressunnar — upp- sláttarpressunnar — sem slær upp fréttum i æsistíl sbr. Vísir og Alþýðublaðið oftar en ekki lengtum meira en efni tiltekinnar fréttar gefur tilefni til. Morgunblað ið getur ekki beinlínis skilið þennan mismun, sem eina blaðið, sem er milliliður í vændi og okri, blygðunar- laust, og þénar á hvoru- tveggja. Má vera, að það sé hinn duldi sjarmi við Mbl. og hornsteinn í óhemjuleg- um tekjustofni þessa jarls í íslenzkri blaðamennsku. Eins og Styrmir stúfur komst einu sinni að orði: Morgunblaðið tekur ekkl allt á sínar heilögu og sið- sömu síður. Gallinn er hinsvegar sá, að til þessa hefur enginn getað fundið þau takmörk, sem Mbl. setur — ef ann- arsvegar er pólitisk „sann- færing“ eða hinsvegar bein harðir peningar í skjóli aug- lýsinga og algers frjálsræð is blaðamennskunnar. Smábarnahneyksli Framhald af 1. síðu. aldrei hafa unnið ærlegt, lík- amlegt starf, þóttust menn til að slást, sem var hörmulegur misskilningur. Smástelpurnar, að venju kvenna, hvöttu bar- dagamennina, en hefði senni- lega sjálfar getað flengt þá. NÝ „SALTVÍK"? Ekki bólaði á lögreglu eða gæzlu yfirleitt. Enginn kom út úr Tónabæ til eftirlits með börnum, sem þessi æskulýðs- búlla hvetur til að koma þang- að. Hér er um að ræða borg- arskömm og skandala og engu líkara en að forráða- menn Æskulýðsráðs séu hér að efna til nýrrar Saltvíkur. Hve lengi verður þetta látið viðgangast? Því geta aðeins borgarvöldin svarað. Marco Polo Framhald af 5 síðu viðskiptastríð milli Feneyja og honuxn varpað í fangelsi í Genoa. Hann notaði tímann vel. Hann bað um ferðanótur sínar og sagði fyrir endurminningar sínar meðfanga sem reit þær niður. VIÐURKENNING Aldir liðu áður en lærðir menn og landkönnuðir fóru sömu leiðir og Marco hafði farið og sögðu frá því, að ferðabók hans væri stórkost- leg og ótrúlega rétt. Að lokum var bókinn þýdd á hvert einasta mál í menningarlöndum, „Ferðir Marco Polo" og varð ómissandi heimild handa landkönnuðum, landfræðing- um, söguspekingum og kortagerðar- mönnurn, auk þess sem hún varð djásn allra þeirra sem ferðast eða dreyma um það. LOKIN Samt vissi Marco Polo aldrei að hann hefði ritað klassískt verk. Þegar verk hans var birt, þá var það hætt, svívirt og hlegið að því sem heilaspuna einum saman. Náfn hans varð samnefnari lyga og ýkna. í aldarfjórðung gat ekkert sveigt Marco Polo frá þeirri skoðtur sinni, að bók hans væri ekki annað en hreinar staðreyndir. í janúar 1324 er hann lá deyjandi, þá hvatti prestur hann, sálu sinni til hjálpar, að draga til baka eða draga úr sumum af mestu fullyrðingum sín- um. Næstum í andarslitunum sagði hann: „Ég hefi ekki sagt helming- inn af því sem ég sá". Genoa. Marco var yfirmáður gal- eiðu og skip hans var hertekið og Dr. Hafþór Frajmihald of síðu 1. allt fyrir aðgerðir Lögmannafélagsins, og vissra sýsl- unarmanna og valda-aðilja. Ekki sakar að geta þess, að umræddar aðfarir gegn doktornum kveður hann eiga rót sina að rekja til þess, að hann hafi starfað að því „að bjarga bágstöddum mönnum og fyrirtækj- um undan fjárplógsmönnum og fjársvikurum11, og oft án minnsta þakklætis viðkomenda, eða eyrisborgunar til sín. Segja má, að hér sannist, að margar eru raunir rétt- láts manns!----------- Mánudagsblaðið vill vekja sérstaka athygli lesenda á væntanlegum greinum og frásögnum, sem birtar verða í blaðinu á næstunni. Mun sitthvað óvænt verða upplýst um gerðir og störf þeirra manna, sem kallaðir eru þjónar réttvísinnar og stjórnsýslunnar á íslandi í dag — auk þess sem harmsaga dr. Hafþórs verður rakin. Vél látum þetta nægja sem prologus . . . E. G. Svar við getraun Þegar Fordney heyrði skrjáfið í undirkjólum Rachelar þegar hún gekk yfir til hans, þá vissi hann, að það hefði verið úti- lokað fyrir hana að hafa gengið yfir sólarherbergisgólfið án þess að frú Morgan hefði heyrt í henni. Þá vissi hann einnig, að hinn þykki gólfdúkur hefði alveg dregið úr skóhljóðum Ronalds, Ronald játaði.

x

Mánudagsblaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.