Mánudagsblaðið


Mánudagsblaðið - 25.10.1971, Page 7

Mánudagsblaðið - 25.10.1971, Page 7
Mánudagur 25. október 1971 Mánudagsblaðið 7 Þjóðleikhúsið Framhald af 3. síðu. Richard vill ekki að Jenny vinni úti, jafnvel hálfan daginn, til að auka heimilistekjurnar. Freisting ^emur í spilið og Jenny fer að sfinna. úti" og aflar gnótt fjár. Af hreinni tilviljun þá kemst Richard að þessarri óskaplegu tekjulind konunnar, einmitt eftir að þau hjónin hafa fangnað óvæntri pen- ingasendingu, $ 4900, hvaðan þau vita ekki hvar komu, en ákveða að halda smá kokkteil-party í tilefni dagsins. Ég rek ekki efnið lengur, Jætta ættu menn að gera sér ferð og sjá. Leikstjórn Baldvins Halldórsson- ar er snuðrulaus enda svo vendi- lega gengið frá öllu umhverfi leiks- ins, hraða og andrúmslofti, að leik- stjórinn þarf þar lítið eða ekki að hlutast til. Val leikara er yfirleitt mjög svo prúðmannlegt en því skeikar þó þar sem sízt skyldi þ. e. í vali Jóns Viðars Jónssonar (Rogers), ungs pilts með enga reynslu, en þó í hlutverki, sem í rauninni er veigamikið af höfundar hálfu, því Roger er rödd hinnar órólegu Ameríku, sem í dag og reyndar undanfarin ár hefur verið hávær og uggandi. Hins vegar er yfir leikstjórninni blær öryggis, sem eflaust verður að þakka hversu vel skipið er upprunalega gert úr garði. Gunnar Eyjólfsson, Richard, leikur aðalhlutverk verksins, ekki sérlega erfitt hlutverk, en þó verk- efni nokkurra átaka og skapbrigða, sem vel ætti að hæfa Gunnari og hinum dramatísku tilþrifum, sem j^fngn,; þg^a^verið aðalsmerki hans á sviðinu hvort heldur tilefni eða ekki. Gunnar gerir margt dável, en hann leikur þungt, jafnvel í létt- ustu atriðum og intónasjóminn batnar ekki ár frá ári eins og von- ir stóðu til. Þetta eru eins mistök leikstjóra og leikara, því hann ætti að hafa séð þau leiðu mistök sem verða á hjá Gunnari er hann gerir upp við konu sína, svo merkilegt sem það uppgjör er. Hann er kátur, án þess að vera glaður, illur án þess að leiftra af innbyrgðri fyrirlitn- ingu og hatri í garð „skækjunnar", örmagna af mótlæti án sannfæring- ar. Hins vegar fullnægir hann ósk- um höfundar sem „laglegur mað- ur", og oft þegar fremur hdu máli skiptir afgreiðir hann verkefni sitt þekkilega. Oðru máli gegnir um Þóru Friðriksdóttur, Jenny. Þóra hefur til þessa verið, almennt, það sem kallað er traust leikkona, aldrei brilliant og aldrei heldur valdið vonbrigðum, svo teljandi sé. Hins vegar er hér dáiítíll annar svipur á leik Þóru. Hún er kankvís, bregð- ur fyrir skemmtilegum svipbrigð- um, einkum í fyrri liluta, skýr og blæbrigðarík í tali og öllu sviðsfasi, eins og henni er mögulegt. Þóra verður hins vegar áður en það er um seinan, að temja sér betra göngulag, þ. e. kvenlegra, auka mýkt í hreyfingum, því æda má, að henni verði í framtíðinni skipað í hlutverk, sem krefjast kyn- og yndisþokka, sem reyndar konur að- eins búa yfir. Þetta er að vísu ekki í anda rauðsubbanna, en hver vill rauðsubbu? Þóra sýndi beztan leik kvöldsins. Jón Viðar Jónsson, Roger, hafði allt útlit 15 ára skóla- pilts og höfundur lagði honum bæði skemmtilegt fas og skemmti- legar spurningar í munn. Hvatvísi og hreinskilni æskunnar er alltaf sjarmerandi þó hún geti stundum slegið mann, og því nauðsyn, ein- mitt í þessu verki, að koma þessu ferska kuli eins vel fram og mögu- Iegt. Jón náði þessu ekki, því mið- ur. Leikstjórinn hefur sýnilega van- metið hlutverkið og, eins og oft vill verða, jxígar misskilningur Ieik- stjóra á hlutverkiun er annars veg- ar, þá er þeim kastað í viðvaninga til að „venja þá sviðinu". Þvílík opinberun af leikstjórans hálfu. Erlingur Gíslason, Jack, auðmaður og happy-go-lucky heimsmaður, jafnframt því að vera sögumaður- inn, nær mjög skemmtilegum blæ og Ieik úr verkefninu. Erlingur fær einhvern veginn þegar í upphafi hið kæruleysislega fas auðmannsins, áhyggjuleysi hans og vissa fágun. Hann tekur eftir, og ósjálfrátt gef- ur persónan í skyn, að bak við gljáandi yfirborð er maður með eftirtekt, vonsvikinn maður, sem tekið hefur sér hlutverk glaum- gosans, steypt því yfir sig eins og einskonar brynju. Leikur hans var með hreinum ágætum, miklu fram- ar því, sem hann hefur sýnt síðustu árin. Satt bezt sagt er ekki annað sjálfsagðara en komplimentera leik- stjóra fyrir valið. Þá er Guðbjörg Þorbjarnadóttir, frú Tooth „mynd- arleg, glæsilega klædd kona um fimmtugt" eins og stendur í leik- skránni. Guðbjörg leysir verkefni sitt Iýtalaust af hendi, skarar hvergi framúr, sem er reyndar heldur und- arlegt, því þarna eru reyndri leik- konu gefin tækifæri. Hún leikur „í lágum tóni", jafnvel dregur um of úr möguleikum hlutverksins. Hér er á ferð skemmtilegt leik- rit og mjög eftirtektarvert, ekki svo mjög að það sé stórkostlegt, heldur hitt að það er mannlegt og lýsir vandamálum, sem hent getur fjölskyldur fjölbýlisins í stórborg- um. Albee byggir þetta efni á þeim staðreyndum sem fyrir hendi eru og voru mikið til umræðu vestra í blöðum fyrir 10—15 árum. Kom þá upp, að ýmsar húsmæður, há- skólastúlkur og jafnvel venjuleg módel drýgðu tekjur sínar á þenn- an hátt. Spruttu deilur af þessu og töldu formæður rauðsokkanna, að hér væri alls ekki um hjúskapar- brot að ræða heldur tilraun til að „hafa það af" í samkeppnis- og allsnægtarþjóðfélagi þar sem konan er bundin við heimilið, en fær ekki að valsa að vild. Kannski þetta sé framtíðin með velferðarástandið á næstu grösum. Og því ekki? — konan er, oftast sú sama, a. m. k. að utan, og hvað er einn sæðisprjónn milli vina? A. B. Símaskráin 1972 SÍMNOTENDUR I REYKJAVÍK, SELTJAPNARNESI, KÓPAVOGI, GARÐAHREPPI OG HAFNARFIRÐI. Vegna útgáfu nýrrar símaskrár eru símnotendur góðfúslega beðnir að senda breytingar skriflega fyrir 1. nóvember n. k. til Bæjarsímans auðkennt símaskráin. Bæjarsíminn. -ý* i \ f i i ;' ' ,t i (i l.í;t I :M; i Z - • ; 2 . • ‘ : K » • ? w ’j. h «. 4 frnpn kemur ITONE ekki a ovart Enda býður Bridgestone snjónum byrginn hvenær sem er. Bridgestone snjóhjólbarðar, með hinu kunna Bridgestone mynstri, eru gerðir þannig, að hægt er að nota á þeim snjónagla. Sterkir þverbitar á köntunum auka aksturshæfni' í snjó og leðju. Sérmynstur í miðju lækkar sóninn þegar ekið er á auðum vegum. Margra ára reynsla Bridgestone snjó- hjólbarða hérlendis sannar gæðin. BRIDGESTONE SSHfESSS hæfa íslenzkum aðsíæðum

x

Mánudagsblaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.