Mánudagsblaðið - 20.12.1971, Blaðsíða 4
4
Mánudagsbiaðið
Mánudagur 20. desember 1971
JÓLABÆKUR
Kristleifur Þorsteinsson:
Or byggðum
Borgarfjarðar
Samtíð Kristleifs Þorsteinssonar
á Stóra-Kroppi hefur í þakkarskyni
fyrir fróðleikssöfnun hans og rit-
störf gefið honum hið yfirlætis-
lausa en sviptigna sæmdarheiti
frcsðaþidur. — Kristleifur hefur
borið þetta réttnefni með sóma.
Hann var þjóðkunnur sem búhöld-
ur og gáfumaður, þegar hann hóf
ritstörf sín, en með þeim hefur
hann tryggt nafni sínu og minn-
ingu langlífi með þjóðinni, enda
þótt því hafi farið fjarri, að hann
ynni þetta starf sér til auðs eða
frægðar. Fyrir honum vakti það
eitt að bjarga frá gleymsku merki-
legum fróðleik um menn og háttu
liðinna alda og ára.
En það er ekki aðeins, að Krist-
leifur á Stóra-Kroppi hafi forðað
frá gleymsku fróðleik um menn
og háttu í byggðum Borgarfjarðar.
Hann hefur í sagnaþáttum sínum
og frásögum brugðið upp myndum
úr lífi þjóðarinnar, og komandi
kynslóðir munu ekki síður kunna
honum þakkir fyrir það starf en
samtíð hans. Hann hefur lýst bæj-
unum, búskaparháttunum og bænd-
unum í Borgarfirði á löngu og
merkilegu árabili. Hann hefur Iýst
menntun og menningu þessa fólks,
Iífsbaráttu þess og örlögum, rakið
feril þess í blíðu og stríðu frá
vöggu til grafar. Hann hefur kruf-
ið til mergjar kjarnann í lífi og
menningu íslendinga á liðnum öld-
um, lýst á glöggan og áhrifaríkan
hátt umhverfi, starfsskilyrðum,
vinnubrögðum, aðbúð og dægra-
dvöl íslendinga á sjó og í sveitum
á tímabilinu, frá því að þjóðin fór
afmr að rísa á legg og þangað til
vélamenningin tók að leggja undir
sig landið.
Krisdeifur Þorsteinsson er fylgd-
armaður lesenda sinna. Fer með þá
um byggðir Borgarfjarðar, víðlent,
fagurt og kostaríkt hérað. Hann
sýnir þeim Borgarfjörðinn eins og
hann var og er, og hann kynnir
fyrir þeim hina gömlu, sérkenni-
legu og skemmtilegu Borgfirðinga.
Hann sannar ferðafélögum sínum,
að hver einn bær á sína sögu, og
hann rifjar upp fyrir þeim sögu
fólksins, sem forðum lifði þar,
starfaði og dó. ■— Bækur Kristleifs
fjalla um Borgarfjörðinn og Borg-
firðinga. En þær eru um leið annað
og meira en tímabundin saga þess
héraðs og íbúa þess. — Þær eru
aldarspegill, þar sem lesandinn sér
í megindráttum líf og starf þjóðar-
innar á því tímabili, sem bækur
Kristleifs ná yfir. — Samfylgd
Kristleifs er ógleymanleg sökum
kunnugleika hans og ratvísi. Og
því, sem hann sér og sýnir, lýsir
hann á hinu hljómþýða og þrótt-
uga máli, sem lifað hefur hreint
og mótað á vörum gáfaðs og heil-
brigðs alþýðufólks öld af öld og
kynslóð af lcynáóð. '**~*"~
Gleðileg jól!
Farsælt komandi ár.
□
Þökkurn gott samstarf á liðnum
árum.
Sölumiðstöð
hraðfrystihúsanna
Krisdeifur Þorsteinsson hefur
með ritstörfum sínum reist sér
óbrotgjarnan minnisvarða með því
að rækja skyldu við hérað sitt og
sögu þess.
Gunnar M. Magnúss:
Bókin um Sig-
vslda Kældalóns
Þessi saga tónskáldsins og lækn-
isins Sigvalda Kaldalóns skiptist í
þrjá aðalhluta: Listamaðurinn og
lífið, Frá vinafundum og Skrá yfir
sönglög Kaldalóns. Aftast í bókinni
er myndaörk, 16 blaðsíður, með
myndum úr lífi hans.
LISTAMAÐURINN OG LÍFIÐ
segir frá foreldrum Kaldalóns og
uppvexti hans í Reykjavík, frá
námsárunum og hvernig tónlistin
átti alla tíð hug hans. Þar segir
einnig frá starfsárunum í Ármúla,
í Flatey og í Grindavík, rakin er
lífssaga læknisins og listamannsins
á þessum stöðum þar sem hann
dvelur og starfar, og allir verða þess-
ir staðir sögufrægir vegna dvalar
hans.
FRÁ VINAFUNDfM eru minn-
ingaþættir vina hafl's og vanda-
manna, sem hver um sig lýsir
Kaldalóns á sérstæðan hátt og eins
og þeir kynntust honum.
HÓTELSAGA
OKKAR BEZTU JÓLA OG
NÝÁRSÓSKIR.
HITTUMST HEIL Á NÝJA ÁRINU
ÆVINTÝRAHEIMUR
AUSTURLANDA
Bókin sem hefur verið ljúfasta lesning íslenzkra ung-
menna í meira en hundrað ár er nú aftur fáanleg.
ÞUSUND
OG EIN NÓTT
í þýðingu Steingríms Thorsteinssonar
Fyrsta bindi af þremur kemur út í dag.
Síðari bindin ko'ma á næstu tveim árum.
615 bls. Verð kr. 880,00 + söluskattur.
HE