Mánudagsblaðið


Mánudagsblaðið - 20.12.1971, Blaðsíða 13

Mánudagsblaðið - 20.12.1971, Blaðsíða 13
Mánudagur 20. desember 1971 Mánudagsblaðið 13 JÓLABÆKUR Páll Ólafsson: Fundin Ijéð Með þessari Ijóðabók bætist ís- lenzkum bókmenntum óvæntur og merkilegur fengur. Það er með einsdæmum, að í Ijós komi jafn- mikið Ijóðasafn eftir eitt af höfuð- skáldum nítjándu aldar, nú á átt- unda tug hinnar tuttugust, 66 ár- um eftir dauða skáldsins. Sjálf er bókin einstæð meðal íslenzkra ljóðabóka, því að hún er mesta safn ástaljóða, sem íslenzkt skáld hefur Iátið eftir sig. Ást Páls Ólafssonar til Ragnhild- ar konu hans er íslenzk minning, sem stígur fram með nýjum fersk- leik og margvíslegum tilbrigðum í þessari bók. Kvæðin geyma í senn andblæ liðins tíma og hita lifandi máls. Þau spegla ást skáldsins í geðbrigðum daglegs lífs, í kvíða og vonum, í örvæntingu og fögnuði. Beint sem óbeint segja þau sögu hans og Ragnhildar frá fyrstu kynn- um þeirra, áður en þau máttu eig- ast, og til ellidaga skáldsins, þegar kvíði dauðans tekur að sækja æ fastar að honum og hann óttast við- skilnað þeirra. Kvæðin segja Iíka frá sambandi Páls og Ragnhildar við föður hennar, Björn Skúlason, sem var einkavinur skáldsins. Hann er þriðja persóna í kvæðunum, verndari ástar þeirra lífs og liðinn. Páll Ólafsson er ástarskáld t sönnustu merkingu þess orðs, af því að ást hans til einnar konu endist honum til sífelldrar endurnýjunar. Hann er uppi á öld rómantísku stefnunnar, en kvæði hans eru í eðli sínu klassísk og raunsæileg. Ást hans er ekki skáldleg ímyndun, heldur lifandi tilfinning til lifandi konu. Þó að Páll Ólafsson sé ís- lenzkastur skálda, minna ástaljóð hans einatt á suðrænni mansöngva, en við eigum að venjast. Þau eru afburða fallegur skáldskapur og ákafíega raunveruleg. Marvin Jones: ástafundur hm néfit Af nafninu mætti ráða, að hér væri á ferð eitthvað af grófara tag- inu en á nútíma vísu fer því víðs fjarri. — Skip sem mætast á nóttú væri raunar réttnefni á þessari geðfelldu frásögn af kynnum Jóns og Maríu. Þau hittast í samkvæmi, eiga saman nótt og dagurinn á eftir fer í að gera úttekt á áhrifum þessara kynna. Án efa hafa mörg ungmenni lif- að og eiga eftir að lifa slíkar stund- ir. Vonandi lesa þau þessa bók sér til ánægju og ekki örgrannt að eitthvað mætti af henni læra. Sagan hefur verið kvikmynduð og verður ef til vill sýnd hér innan tíðar með Miu Farrow og Dustin Hoffman í hlutverkum Jóns og Maríu. — Prentrún gaf út. MATUR OG DRYKKUR eftir HELGLÍ SIGURÐARDÓTTUR Endurskoðuð útgáfa og færð til nútímabúnings af húsmæðrakennurunum Bryndísi Steinþórsdóttur og önnu Gísladóttur, m. a. er nýr kafli um glóðarsteikingu og geymslu matvæla í frystikistum. Þessi matreiðslubók er án efa lang vinsælasta matreiðslubók, sem út hefur komið á Islandi. ÓSKABÓK HVERRAR EINUSTU HÚSMÓÐUR. Kr. 1.600,00 + sölusk. VIÐ HLIÐINA Á MAT OG DRYKK ætti jafnan að standa bókin VAL OG VENJUR I MAT OG DRYKK eftir Conrad Tuor, einn viðurkenndasta og frægasta hótelstjóra í heimi. Þetta er bók, sem hver einasta húsmóðir ætti að eiga í eldhúsinu hjá sér, til að vita nákvæmlega hvernig á að bera fram réttina. Þetta er bók fyrir þá sem ferðast, til að vita hvað það er sem stendur á matseðlinum í útlöndum, þetta er bók, sem er full af hagnýtum alhliða upplýsingum um allt, er varðar framleiðslu, vínþekkingu og skýringar á hinum „klassísku“ réttum matreiðslufagsins. Verð kr. 520,00 + sölusk. Kjell Sörhus Fullhugarnir á MTB 345 IttUilt ’tudurjksylaiwts. herSicnQis og hc-ljuiiintjiv, ójiyurs co éháppft. - ftsiipéwisis^ f-ésógn ef norjkom heljliir: i Jlfið:. \)i! SSW höíill V<jf UpjJ 6 ii! CÍJ dttuðð cg hið siíare vsr a-5 iainsíí likk-jjrs ijluIíkipiS Vainö liinna. Öþekkti hermaðurinn Saga lífs og dauða eins herfylkis í stríði Finna og Rússa í heims- styrjöldinni síðari, — hér er sýnt grímulaust andlit stríðsins krydd- að harðhnjóskulegri kímni, hér rís maðurinn hæst gagnvart hinni ógnvænlegustu allrar mannlegrar reynslu: dauðanum Aðalpersónur þessarar bókar gleymast aldrei. — Ef hægt er að kynnast þjóð af einni bók þá er þetta slík bók. Jon Eiriksson Skipstjórar og skip Hér er sögð saga allra íslenzkra kiaiupsfcipa og varðskipa og í stuttu máli rakin ævisaga skip- stjóranna, sem stjómað hiafa þessum skipum. Myndir eru af öllum sfcipstjórumum og flest- öllum skipunum. Þetta er bók allra þeirra er áhiuigia hafa á ættfræði, sjó og sjómennsku SKUGGSJA. Ahrifarik og sönn frásögn af bar- áttu fámennrar norskrar skips- hafnar fyrir lifi sinu. Þetta er saga lítils tundurskeytabáts, saga ósigurs og óhappa, saga harðfeng- is og hetjulundar, æsispennandi frásögn af norskum hetjnm i stríði. þar sem barizt var upp á líf og dauða og hið síðara var að jafnaði iíklegra hlutskiptið. Oscar Ciausen aldir Aftur Oscar Clausen er meðal vinsæl- ustu sagnamanna þjóðarinnar og undrar það engan, þvi hann segir skemmtilega frá Og velur íhugun- arvert efni til frásagnar. Þessar sagnir eru viðs vegar af land- inu og fjalla um hin ólíkustu efni. Þær lýsa vel lífi og starfi fólks á fyrri tíð, þegar allt var með öðrum og erfiðari hætti en nú er Margt kunnra manna kem- ur við sögu og margir óvenjuleg- ir atburðir eru hér skráðir. Þetta er bók, sem allir hafa gaman af að lesa. SKUGGSJÁ. Fullhugarnir a

x

Mánudagsblaðið

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Mánudagsblaðið
https://timarit.is/publication/313

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.