Tíminn - 21.08.1977, Page 1
GUÐLAXí
VÖRPUNNI!
AAynd þessa tók Heiöar Guðbrandsson matsveinn
um borð í skuttogaranum Bjarna Herjólfssyni frá
Stokkseyri, af guðlaxi, er fékkst á Vestfjarða-
miðum.
Fremur óvanalegt er, að guðlaxar fáist á svo
norðlægum slóðum, en þeir halda sig einkum í heit-
ari höfum. Lengd Guðlaxins er frá 1.5 upp í 1,8
metra, og er hann miðsævis djúpfiskur. Aðallega
verður vart við guðlaxinn á sumrin og haustin, og er
útbreiðsla hans í nokkru samræmi við göngur beitu-
smokksins. Guðlax þykir góður til átu og minnir
bragðið á lax.
— Sjá opnuna í blaðinu.
Á sjó með
Bjarna
Herjólfssyni
— sjá opnu
t>rír fluttir
á slysadeild
— eftir árekstur á stein og
Ijósastaur á Arnarneshæð
Kás-Heykjavík. Á föstudags-
kvöld, um hálf niu leytiö, ók
leigubifreið úr Reykjavik út af
Hafnarfjarðarveginum, , norðan
megin. á Arnameshæðinni, lenti
þar á stórum steini og kastaðist
siðan á ljósastaur, með þeim af-
leiðingum að þrir menn sem i
bifreiðinni voru slösuðust.
Að sögn rannsóknarlögreglunn-
ar iHafnarfiröi varekkienn vitað
um tildrög slyssins, þar sem ekki
var búið að yfirheyra hina slös-
uðu.
Ekki var fulljóst hve mennirnir
slösuðust mikið, en enginn mun
Þ^i lifshættu.
Ofnaskemmdirnar í Hrisey:
Gíf urlegur kostnaður
gébé Reykjavfk — Færabátar,
sem geröir eru út héðan hafa
fengiö ágætisafla að undan-
förnu. Snæfeil, skuttogarinn,
sem landar hjá okkur er i slipp
núna, en við höfum fengið fisk
frá Dalvik og eins iandaði einn
Akureyrartogaranna, Sólbakur,
hér 60 tonnum s.l. mánudag,
þannig að nóg vinna er i frysti-
húsinu, sagði Björgvin Jónsson
oddviti i Hrisey þegar Timinn
ræddi við hann.
Eins og skýrt hefur verið frá i
Timanum, kom i ljós mikil tær-
ing i ofnum i ibúðarhúsum i
Hrisey fyrir nokkru. Björgvin
var inntur eftir þvi hvernig þau
mál stæðu nú.
— Það hefur verið skipt um
ofna i miklum mæli og i ljós hef-
ur komið að það þarf að skipta
um heimtaugar i um 30 hús
hér. Tilraunir þar, sem gerðar
voru meö að setja ákveðið efni i
vatnið til þess að koma i veg
fyrir tæringuna og minnka úr-
fellið úr vatninu, gáfust vel.
Þetta efni er nú á leiðinni til
okkar. Þaö eru gifurlegar fjár-
hæðir, sem greiða þarf fyrir
ýmsan. kostnað t.d. á upp-
setningu tækja þeirra, sem
notuð eru i sambandi við blönd-
un efnisins i vatnið svo og
auðvitað allt það sem greiða
þarf i sambandi viö skemmdir á
ofnum, heimtaugum og fleira
sagði Björgvin Jónsson. Hann
kvað sveitarfélagið hafa þurft
að taka lán til að greiða þennan
kostnað.
Þá munu og einhverjir vatns-
skaðar hafa orðið i sumum hús-
um vegna skemmda i ofnum, en
i flestum tilfellum hafa
tryggingarfélög borgað þá
skaða.
Frá byggðinni I Hrfsey
Tveir slasaðir
fluttir til
Rey kj aví kur
— eftir umferðarslys noröur
af Lónsheiði
Kás-Reykjavik. Um kl. 4 á að-
faranótt föstudagsins varð alvar-
legt umferðarslys norðan við
Lónsheiði i Snæfjallahreppi. Þar
lenti út af veginum bifreið þriggja
ungra ísfiröinga, og slösuðust
þeir allir. Flugvél var send frá
tsafirði með lækni innanborðs og
kom hún rúmum klukkutima
seinna á slysstaðinn. Einn hinna
slösuðu var lagður inn á sjúkra-
hús á tsafirði, en tveir voru fluttir
til Reykjavikur, á slysadeildina á
Borgarspitalanum. Ekki tókst
blaðinu að fá nánari fréttir um
liðan þeirra áöur en blaðið fór i
prentun.
Talið er að tildrög slyssins hafi
orðið á þá leiö, að bill þeirra
þremenninganna hafi lent i lausa-
möl eftiraðhafa flogið yfir skarð
sem er á veginum, og siðan enda-
stungizt meö fyrr greindum af-
leiöingum.
-------------N
Elvis Presley
in memoriam
— sjá síðu 31