Tíminn - 21.08.1977, Side 18

Tíminn - 21.08.1977, Side 18
ii 9ílí. * Sunnudagur 21. ágúst 1977 menn og málefni Atvinnumálaskýrslan er þung ádeila á einkareksturinn og íhaldsmeirihlutann £>ung ádeila Skýrsla sú, sem Hagfræ&i- deild Reykjavikurborgar hefur gert um atvinnumál borgarinn- ar er athyglisverö á margan hátt. Þött Morgunbla&iö og önnur málgögn Sjálfstæ&is- flokksins láti i veöri vaka aö skýrsla sýni fyrst og fremst a& siöustu árin hafi hallaö á Reykjavikurborg vegna byggöastefnunnar, sýnir hún ótvírætt, aö aörar orsakir hafa vegið miklu meira. 1 skýrslunni felst þung ádeila á einkareksturinn, ef hann skortir félagslega leiðsögu og aöstoö. í skýrslunni felst einnig þung ádeila á borgarstjórnarmeiri- hlutann vegna afskiptaleysis og aðgerðaleysis hans i atvinnu- málum. Megintillaga höfund- anna er, aö borgarstjórnin auki alls konar afskipti til eflingar atvinnulifi i borginni. Þetta skýrir þaö vel, aö borg- arstjórinn færöist undan þvi aö ræða skýrsluna i borgarstjórn- inni, þegar Björgvin Guðmundsson, fulltrúi Alþýöuflokksins, hvatti til þess aðþað yröi gert. Borgarstjórinn gerði sér ljóst, aö skýrslan er 1 raun þung ádeila á stjórn hans og félaga hans i meirihluta borgarstjórnarinnar. Aö sjálf- sögðu hefur skýrslunni ekki verið ætlaö aö vera þaö. Höf- undarnir skýra hins vegar rétt frá ýmsum staðreyndum. Þaö eru þær, sem eru eins óþægileg- ar borgarstjórnarmeirihlutan- um og veröa má. Hér á eftir veröur greint frá nokkrum atriöum skýrslunnar þessu til sönnunar. Kynslóða- skiptin A bls. 9 segir svo i skýrlunni um vandamál atvinnureksturs i borginni: „Vandinn gagnvart atvinnu- rekstrinum i borginni er i höfuö- atriöum tviþættur, þar sem annars vegar er um aö ræöa fyrirtæki i rekstri, en hins vegar stofnun nýrra. Þessum vanda veröa ekki gerö skil i einstökum atriðum, en nefnd skulu af handahófi fjögur atriöi, sem skipta máli i þessu sambandi. 1. Kynslóðaskipti eiga mikinn þátt i hægari vexti, stöönun, eða hnignun gróinna fyrir- tækja i borginni. Þau eru flest i' einkaeign og sú skoðun er rfkjandi, aö eignarinnar veröi ekki notið nema i starfi við hana. Eigendur og erfingjar þykja þvi oft standa I vegi fyrir ráðningu hæfra starfs- manna og viðhald fasteigna situr fyrir áhættusömum rekstri og nauösynlegri endurnýjun búnaðar. 2. Nýiönaðartækifæri eru flest þvi marki brennd, aö nauö- synlegar athuganir eru yfir- leitt kostnaöarsamar og timafrekar, árangur tiöum óviss og af þeim sökum veitist einstaklingum erfi&ara aö afla fjár til slikra verkefna en ef stofnaö væri til framleiðslu á einhverju, sem reynsla er þegar fengin af hérlendis. 3. Fjáröflun til eflingar eöa ný- breytni ,reynist oft torveld þrátt fyrir örfandi niöurstöö- ur athugana vegna tiðra sveiflna I fslenzku atvinnu- og efnahagslifi, Svo viröist sem áhættufjármagn sé ekki til ráðstöfunar i þessu skyni. 4. Of t eru bornar fram kvartan- ir um kvaöir hins opinbera, ósveigjanleika og seinagang I allri afgreiðslu.” Fjárfesting í húseignum A bls. 10 i skýrslunni segir svo: „Leitað var munnlegs álits kunnugra á ástandi i nokkrum helztu greinum sjávarútvegs og iðnaðar i Reykjavik og á höfuöborgarsvæöi og skulu hér tilgreind nokkur atriöi úr svör- um: l.Innan sjávarútvegs eru út- gerðar- og vinnsluhættir lak- arien viöa annars staöar. Fer þar saman gæöarýrari afli, lakari aflameðhöndlun og lakari nýting i vinnslu. 2. Þjónustufyrirtæki sjávarút- vegs, einkum innan málmiön- aöarins, hafa litlum sem engum framförum tekið á sama tima og stórstigar framfarir hafa orðið hjá hliðstæöum fyrirtækjum annars staöar. 3. Fjárfesting I húseignum situr tíðum fyrir eölilegum rekstr- armarkmiðum I smáiönaöi. Þetta á fremur við á höfuðborgarsvæði en utan svæöis þar, sem húseignir reynast ekki jafn trygg fjár- festing. Almenn lánaskilyrði gera þennan mun minni en ella. 4. Mannaflanotkun bygg- ingariðnaðarins er meiri en þörf væri á með bættu skipu- lagi og er búizt við fækkun starfsmanna i þeirri grein aö dbreyttum umsvifum.” Gallar einka- rekstrarins Þeir tveir kaflar úr skýrsl- unni, sem eru birtir hér að framan, fela vissulega I sér þungar ádeilur á einkarekst- urinn, þegarhann er ekki háður neinni félagslegri forustu, sem leitast viö aö beiná honum aö þeim verkefnum, sem mestu skipta. Þar hafa kynslóöa- skiptin vissulega mikið aö segja, en þeirra gætir miklu meira i einkarekstri en félags- legum. Mörg blómleg einka- fyrirtæki hafa sundrazt eða hreinlega lagzt niöur við kynslóðaskiptin. Sérgróöasjón- armiöiðer svo annar annmarki einkarekstursins. Vegna sér- gróöasjónarmiösins snýr einka- reksturinn sér einkum að þeim verkefnum, sem eru auöveldust og gróðavænlegust i svipinn. Þess vegna veröa nýjar at- vinnugreinar, sem kunna að verða erfiöar i byrjun, oft út- undan, en ofþensla skapast i eldriatvinnugreinum, sem voru arövænlegar um stund. 1 höfuð- borginni eru svo húsbygging- arnar sérstakur kapituli út af fyrir sig, eins og bent er á i skýrslunni. Fjárfesting i hvers konar skrifstofuhúsnæði hefur verið gifurleg og raunar einnig i ýmsu iðnaöarhúsnæði, þótt oft hafi skort atvinnurekstur til aö nýta þaö. Þannig hefur gifurlegt fjármagn sogazt úr atvinnu- rekstrinum I fasteignir, þar sem verið var aö koma fyrir verð- bólgugróöa. Þetta hefur að sjálfsögöu dregiö úr atvinnu- rekstrinum og þvi fjármagni, sem hann gat fengið til ráöstöf- unar. Afskipti s veitars tj ór na Þeir annmarkar einka- rekstursins, sem hér hafa verið raktir, koma aö minni sök en ella, ef bæjar- og sveitarst jórnir hafa nægilegt frumkvæöi um að beina honum að réttum verk- efnum. Aö þessu er vikið i skýrslunni á bls. 19 með þessum orðum: „Það lætur aö líkum, aö mjög eru skiptar skoðanir um það, hver skuii vera afskipti sveitar- stjórna og annarra opinberra aðila af atvinnumálum, en venjulega á slikur ágreiningur rætur aö rekja til óliks mats á atvinnuástandi. Þess er þvi aö vænta aöafskiptin ráöist frem- ur af þörf en hugmyndum um óhagganlega verkaskiptingu einkaframtaks og hins opin- bera. Helzta ályktun, sem dregin verður af þessari skýrslu er sú, aö þörf sé á að auka þessi afskipti og þykir rétt aö fara nokkrum óröum um helztu leiðir til þess. thlutun opinberra aöila til áhrifa á samkeppni og staö- setningu atvinnureksturs er viða vel þekkt og skulu hér nefndar nokkrar helztu aðgerð- ir, sem gripiö er til i þessu skyni.” Siðan eru nefndar ekki fyrri en 24 aögerðir, sem sveitar- og bæjarfélög geta beitttileflingar atvinnulifinu. Þessum aðgerð- um hafa sveitar- og bæjarfélög utan Reykjavikurbeittmeira og minna á undanförnum árum meöan borgarstjórnarmeiri- hlutinn hefur haldið aö sér höndum. Aukin opin- ber afskipti Þaö er svo meginniöurstaöa höfunda skýrslunnar, að komiö skuli upp sérstakri „atvinnu- máladeild” hjá Reykjavikur- borg og yrði henni f höfuð- atriöum ætluö fjórþætt verk- efni: 1. „Greiöa fyrir auknum sam- skiptum stjórenda borgarinn- ar, fulltrúa atvinnulifs I þvi skyni a& örva fyrirtæki i arö- vænlegum greinum til vaxtar og aukinna umsvifa þannig, að saman fari markmið at- vinnureksturs um ábatavon og markmiö borgarinnar um aukið atvinnuöryggi. 2. Hvetja til nýbreytni i at- vinnurekstri eftir þvi, sem frekast eru föng á. 3. Vera til ráðuneytis um val á aðgerðum og greiða fyrir af- greiðslu erinda úr atvinnu- li'finu og vinna þeim réttan farveg. 4. Annast sjálfstæöa upplýsingaöflun um helztu þætti atvinnulifsins og treysta tengsl viö þær stofnanir rikis- valdsins, sem fjalla um at- vinnumál.” Þá er sundurliðað nánar hvernig störfum deildarinnar skuli háttaö, en m.a. er henni ætlað aö gera áætlun um fjár- framlög tilsérstakra verkefna á vettvangi atvinnulifsins. Bersýnilegt er, að hér er gert ráð fyrir stórauknum opinber- um afskiptum til eflingar at- vinnulífsins. Atvinnumáladeild- inyrði stórstofnun og umfangs- mikil, ef hún ætti að geta fullnægtöllum þeim verkefnum, sem höfundar skýrslunnar ætla henni. Álit minni- hlutans A slöasta borgarstjórnarfundi var nokkuð rætt um áðurnefnda skýrslu að frumkvæöi Björgvins Guðmundssonar. Hér i blaöinu hefur áður verið sagt frá ræðu Kristjáns Benediktssonar viö þaö tækifæri. Skal þvi aöeins minnzt á ummæli talsmanna hinna tveggja minnihlutaflokk- anna. Björgvin Guömundsson sagði, að það væri rétt, aö fram- kvæmd byggöastefnunnar hefði með nokkrum hætti bitnað á höruöborginni en veigamesta ástæðan fyrir því hvernig komið væri, væri hins vegar aðgeröa- leysi borgarstjórnarmeirihlut- ans I atvinnumálum s.l. 10 ár a.m.k. Flestar tillögur til úrbóta heföu sem minnihlutaflokkarnir hefðu flutt undanfarin ár, heföu veriö felldar eða þeim eytt. Minnti ræðumaöur m.a. á till. sem hann hefði flutt um aukinn iönaö og útgerö. Þessi óheilla- þróun heföi átt sér staö til fleiri ára, en borgarstjórnarmeiri- hlutinn hefði ekkert gert nema aö láta búa tii skýrslu um staö- reyndir, sem öllum væru kunn- ar. Bar ræðumaður saman aö- búnaö Akureyrar aö Útgerðar- félaginu þar og Slippnum og Reykjavikurihaldsins að Bæjar- útgerö Reykjavikur og skipa- smlðum. í Reykjavik eru iön- fyrirtæki hrakin til nágranna- byggða þvi þau fá ekki lóðir. Ekki er það byggðastefnunni að kenna. Sigurjón Pétursson, talsmað- ur-Alþýðubandalagsins, sagðist geta tekiö undir margt, sem Björgvin heföi sagt en vera þó ánægður með skýrsluna. Hún gæfi gott yfirlit yfir stöðu at- vinnumála i Reykjavik. Hins vegar væri byggðastefnan höfö fyrir rangri sök. Það væri stað- reynd, að borgarstjórnarmeiri- hlutinn hefði beinlinis hrakið iðnfyrirtæki burt úr borginni. Skeifan hefði átt að vera iðn- aðarsvæði, en þriðja hverju svæði þar væri úthlutað til verzlana. Ekki yrði sú úthlutun skrifuð á reikning byggðastefn- unnar. Afleiðing þessa væri m.a. sú, að iðnfyrirtæki, sem hér hefði verið, væri uppistaöan i heilum iðnaöarhverfum, sem upp væru að risa annars staðar. Fækkun fólks f framleiðslu- greinum i Reykjavik væri hrein afleiðing af stefnu borgarstjom- armeirihlutans. Iðnfyrirtækin biða þess ekki að kaupmenn byggi yfir þau og leigi þeim svo húsnæði, þau flytja úr borginni. eins og reynslan sýnir, sagði Sigurjón Pétursson. Þannig ber ihaldsmeiri- hlutinn, en ekki byggðastefnan, meginábyrgð á þvi, hvernig komið er i atvinnumálum Reykjavikur. Þ.Þ.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.