Tíminn - 21.08.1977, Qupperneq 19
Sunnudagur 21. ágúst 1977
19
Otgefandi Kramsóknarflokkurinn.
Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar:
Þórarinn Þórarinsson (ábm.) og Jón llelgason. Ritstjórn-
arfulltrúi: Jón Sigurðsson. Auglýsingastjóri: Steingrfmur
Gislason. Ritstjórnarskrifstofur, framkvæmdastjórn og
auglvsingar Siðumúla 15. Simi 86300. Verð i lausasölu kr.
70.00. Askriftargjald kr. 1.300 á mánuði.
Blaðaprent h.f.
Grátkonu-
þjóðfélagið
Margir hugsuðir fyrr og siðar hafa verið þeirr-
ar skoðunar, að maðurinn risi hæst, þegar hann
þarf að fórna sér og taka á, og að hann sé þá
sterkastur, þegar hann verður að bita á jaxlinn.
Þessir hugsuðir halda þvi og fram, að hamingja
manna vaxi ekki með aukinni vesæld eða auði og
velgengni.
Ósjálfrátt verður mörgum hugsað til kenninga
og hugmynda af þessu tagi, þegar fylgzt er með
almennum umræðum og skrifum á íslandi nú um
stundir. Enda þótt fréttir berist hvaðanæva að úr
veröldinni af hamförum náttúrunnar, farsóttum,
styrjöldum og skerandi hungri, þá er eins og ekk-
ert taki fram þvi ægilega böli sem islenzka þjóðin
virðist lifa við.
Sagt er, að hér sé allt á afturfótunum, öliu
stefnt til hruns og allir séu að fara á hausinn,
einkum þeir sem mest berast á. Maðurinn i næsta
húsi á alltaf að vera að bardúsa við að smygla eða
stela undan skatti, ef hann er þá ekki upptekinn
af einhverjum öðrum syndum. Og svo er verið að
tina upp misrétti hér og misrétti þar. Svo virðist,
sem það sé almennt álit, að Islendingurinn sé ein-
hver hrjáðasta skepna verlaldarinnar.
Þegar slik ógæfa er höfð i huga er ekki að
undra, að lundin sé ekki ævinlega jafn létt á land-
anum. Timakaupið er að sönnu lágt og yfirvinna
svo mikil að til vanza er. En samtimis þyrpist
fólkið til sólarlanda, eignast rúmgóðar og glæsi-
legar ibúðir og hefur skipti á stórri bifreið fyrir
aðra enn þá stærri. Sárþjakaður og hrakinn arkar
íslendingurinn að svo mæltu á næsta skemmti-
stað og fær langþráða útrás við mikil fagnaðar-
læti. Það verður honum helzt til ásteytis við
skemmtanir að á staðnum er venjulega þröng
eins og i niðursuðudós, þvi að allir hinir sárþjáðu
fátæklingarnir verða lika að fá einhveria útrás
eftir allar kjaraskerðingarnar.
Að þvi þarf auðvitað ekki að spyrja, að atvinnú-
reksturinn á íslandi er i meiri háttar kreppu svo
sem annan hvern mánuð eða svo. Ef ferðast er
um landið má hins vegar sjá ný atvinnutæki
hvarvetna, ný frystihús og nýjar verksmiðjur og
verkstæði. Sé litið i hagtölur kemur i ljós, að f jár-
festing er mjög mikil. Sé nánar að gætt fer ekki
hjá þvi, að menn sjái og að lifnaðarhætttir at-
vinnurekenda eru ekki alveg með þurrabúðar-
sniði yfirleitt.
Ef trúa má ráðstefnum, fundum og blaðaskrif-
um einatt, er eiliflega verið að berja á mennta-
fólki á íslandi. Hefur sjálfsagt oft verið vegið i
þann knérunn og sér þó ekki högg á vatni. Helzta
keppikefli sumra i þessum hópum virðist vera
það að auka svo umsvif rikisins að allir
fræðingarnir fái vel launaða vinnu, enda sýnt að
enginn annar muni telja sig hafa þörf fyrir þá.
En á íslandi er lika til fólk, sem ekki er hágrát-
andi daginn út og daginn inn. Og þetta fólk á oft
við vanda að striða. Hér er um að ræða lifeyris-
þega, sem ekki mega bera hönd fyrir höfuð sér
vegna elli eða örorku. Hér er og um að ræða raun-
verulegt láglaunafólk, sem býr i rokdýru leigu-
húsnæði. Hér er um að ræða nokkra, og tiltölu-
lega fámenna hópa, sem láta litið fyrir sér fara i
samfélaginu og mættu gjarnan hækka röddina
meira.
Þá gæti farið svo, að þjóðkór islenzkra grát-
kvenna yrði hljóður um stund.
JS
ERLENT YFIRLIT
Sænsku blöðin fá 10
milljarða ríkisstyrk
Dagens Nyheter og síðdegisblöðin á undanhaldi
SÆNSKU dagblöBin munu á
þessu ári fá 215 milljónir
sænskra króna i styrk eða
rúma 10 milljarBa islenzkra
króna. Þó hafa sænsku blöBin
það umfram islenzku blöBin,
aB hvorki hljóBvarp eBa sjón-
varp keppa viB þau um aug-
lýsingar. GizkaBer á, aB hefBi
blaBastyrkurinn ekki komiB til
sögunnar, hefBu 25 dagblöB
hætt aB koma út sex siBustu
árin, en aðeins tvö dagblöB
hafa hætt aB koma út á þessu
timabili. Hæstan blaBastyrk fá
Svenska Dagbladet, sem er
aðalmálgagn ihaldsmanna i
Stokkhólmi, og Arbetet i
Malmö, sem er aöalmálgagn
sósialdemókrata i SuBur-Svi-
þjóð. Þau fá 19.5 millj.
sænskra kr. hvert eða tæpar
1000 millj, islenzkra króna.
Næst kemur Skanska Dag-
bladet, sem er málgagn Mið-
flokksins, meB 14.5 milljónir
sænskra króna.
Blaðastyrk rikisins er skipt
þannig, að 145 milljónum er
ráöstafað beint til blaðanna,
en 70 milljónum sænskra
króna er ráðstafaö til sameig-
inlegs dreifingarkerfis fyrir
blöðin. Af þvi leiöir að sjálf-
sögðu stórsparnað fyrir blöö-
in.
Alls koma núút 180dagblöö i
Sviþjóö og er þá átt við blöB,
sem koma út alla daga vik-
unnar. Samanlagt upplag
þeirra eru tæpar 5 milljónir.
Siðustu misserin hefur sú
breyting orðið, að útbreidd-
ustu blööin, sem ná til landsins
alls, eru á undanhaldi, en
minniblöð.sem eru bundin við
takmörkuð svæði, hafa haldið
hlut sínum. Þetta er sama
sagan og gerzt hefur viða ann-
ars staðar á þessum tima t .d. i
Bandarikjunum.
DAGENS NYHETER i Stokk-
hólmi hefur um alllangt skeiö
verið útbreiddast þeirra
blaða, sem koma út á morgn-,
ana. Það kemur út í um 400
þús. eintökum. Það styður
Frjálslynda flokkinn. Siðustu
mánuðina hefur það verið á
undanhaldi. T.d. var upplag
þess 12.000 eintökum minna i
júni i ár en i júni i fyrra og i
júli var upplag þess 14 þús.
minna en i júli i fyrra. Hins
vegar hefur Svenska Dagblad-
et verið að sækja á. Þaö var
farið niður i 150 þús. eintök, en
er nú komið upp i 180 þús. ein-
tök. Svenska Dagbladet hefur
notað rikisstyrkinn til að gera
ýmsar breytingar á blaðinu,
og segjast forráðamenn þess
m.a. hafa miðað þær viö það,
að fullnægja vissum þáttum,
einkum menningarlegum,
sem Dagens Nyheter hafi van-
rækt. Dagens Nyheter var
orðinn slikur risi i blaða-
heiminum, að bæði ritstjórar
þess og blaðamenn létu oft
meira stjórnast af eigin geð-
þótta og sérlegum áhugamál-
um þeirra sjálfra og vanræktu
þvi ýmislegt efni, sem a.m.k.
vissir lesendahópar, höfðu á-
huga á. Svenska Dagbladet
hefur eins og hlaupið hér i
skarðið og má þvi sennilega
orðið telja þaö vandaðasta og
menningarlegasta blað Svi-
þjóðar, eins og þaö var um
langt skeið áður fyrr. Blaöiö
er lika orðið opnara en það var
áður.
TVÖ siödegisblöð, Expressen
og Aftonbladet, koma út i
Stokkhólmi og ná þau til
landsins alls sökum hins góða
samgöngukerfis, sem Sviar
búa við. Hörö samkeppni er
miíli þessara blaða, sem bæði
leggja mikla stund á æsifrétt-
ir, þótt þau flytji einnig nokk-
uð af menningarlegu efni. Ex-
pressen er gefiö út af sama
fyrirtæki og Dagens Nyheter,
en Aftonbladet er gefið út af
verkalýðshreyfingunni. Ex-
pressen hefur veittheldur bet-
ur i samkeppninni, en þó mun-
ar ekki miklu. Sagt er að bæði
leggi mikla stund á að njósna
hvort um annað, enda takist
öðru þeirra sjaldan að koma
með frétt, sem ekki er lika að
finna i hinu blaðinu. Oft reyna
þessi blöð að gera sér mikinn
mat úr litlu efni. Gott dæmi
um það er fæðing Viktoriu
prinsessu. í fyrstu ætlaði
Aftonbladet, sem vill afnema
konungdóminn, að leiöa þenn-
an atburð hjá sér, en hann var
orðinn mikið fréttaefni i
sænskum blöðum alllöngu áð-
ur en prinsessan fæddist.
Aðalritstjóri Aftonbladets
skrifaði mikla hneykslunar-
grein um þennan fréttaflutn-
ing og i lesendabréfi var kom-
izt svo að orði, aö maklegast
væri að spellvirkjar væru
fengnir til að útrýma konungs-
fjölskyldunni, svo aö þjóöin
losnaði við öll þessi læti. En
þrátt fyrir þetta, fór svo að
Aftonbladet neyddist að lokum
til að dansa með og birti það
margar myndir af hinni ný-
fæddu prinsessu. Þessu fylgdi
sú afsökun ritstjórnarinnar,
að vegna þjónustu sinnar sem
siðdegisblað yrði blaðið aö
gera þetta, þótt það væri and-
vigt konungdæmi. Expressen
fór öðru visi að, það byrjaði að
skrifa um hina væntanlegu
fæðingu strax eftir, að tilkynnt
hafði veriö að drottningin ætti
von á erfingja. Meira að segja
gekk það svo langt að stela og
birta læknisskýrslur um
heilsufar drottningar. Þetta
mæltistilla fyrir, þarsem meö
sliku væri gengið of nærri
einkalifinu. Svar Expressen
var að birta forustugrein, þar
sem mælt var með þvi, að
Karl konungur og Silvia
drottning yrðu siðustu kon-
ungshjónin i Sviþjóð.
Þrátt fyrir þessi og önnur
læti siðdegisblaöanna hafa
þau tapað lesendum að undan-
förnu og konungdómurinn
virðist standa föstum fótum
hjá Svium.
Þ.Þ.
Morgunblöðin i Sviþjóð hafa bækistöðvar á Marieberg I Stokkhóimi —■ bygging Svenska
Dagbiadets er til vinstri og bygging Dagens Nyheter og Expressen til hægri.