Tíminn - 21.08.1977, Qupperneq 37
Sunnudagur 21. ágúst 1977
37
m
Fyrir hverja nifnútu I hnefaleikaatriöum myndarinnar, voru oft teknar upp 40 minútur til reynslu. Sylvester Stailone vildi að allt væri fullkomið.
bjartsýnislegt — slétt og felld
öskubuskusaga um manninn sem
ræður örlögum sinum. Ég hef
alltaf verið veikur fyrir kvik-
myndum um litla manninn sem
sprengir takmörk sinnar eigin til-
veru og leggur til atlögu við þá
stóru til að ryðja þeim um koll.
Ég er orðinn hundleiður á nei-
kvæðum myndum um hetjur sem
eru stjórnleysingjar, uppreisnar-
menn eða morðingjar. Svo ég fór
að hugsaum persónu á borð við
flakkara Chaplins, litinn náunga
sem getur látið þig bæði hlæja og
gráta. Það skiptir ekki máli hvort
hann sigrar eða ekki,við elskum
hann samt fyrir að reyna.
Hnefaleikaþjálfun
Þegar Stallone er spurður
hvers vegna hann hafði haldið að
þessi öskubuskusaga gengi í fólk,
segist hann bara hafa vitað það.
Móðir Stalllones ótróleg kona” —
hálf frönsk, hálfur marzbúi, og
sem hefur unnið fyrir sér með
spádómum i 15 ár, spáði þvi
reyndar. Timinn var réttur.
— Lofið mér að segja ykkur
eitt, segir Stallone ákveðinn. —
Margir telja að ég sé einurrt of
öruggur með mig og beinskeytt-
ur. Ég reyni ekki að móðga neinn
eða þröngva skoðunum mínum
upp á aðra. En maður verður að
reynaað vera svolítið jákvæður...
Hann leggur áherzlu á að orðin
með þvi að berja loftið fyrir
framan sig.
— Þegar ég fór til framleiðand-
ans til að tala um fyrir honum
sagði ég. — Þú verður að gera
Rocky, þvi að þegar það er búið,
verður sagt: — Þessi náungi er
snillingur! Þessi náungi rakar
saman peningum handa okkur.
Þetta nægir flestum.
Þegar verið var að taka mynd-
ina, vann Stallone „Sly” meðal
vina — eins og bersekur.
Hann æfði geysilega, til þess að
hnefaleikaatriðin tækjust sem
bezt var oft að 16-17 stundir á dag
og breytti jafnvel handritinu i
upptökuhléum. Vonsvikni leikar-
inniliki hnefaleikarans gekk bók-
staflega berserksgang. Hefur það
alltaf verið þannig?
— Alitaf. Hann hlær. — Ég er
reyndar ekki heltekinn eins og
Howard Hughes,en ég er rekinn
til að skrifa til að fullnægja sjálf-
um mér.
1 auglýsingum fyrir myndina
segir: — Möguleikar hans voru
einn á móti milljón, en honum
tókst það! Þegar farið er að tala
um að svona auglýsingar geti
verið varhugaverðar og hann er
spurður, hvort menn, sem hafa
orðið fyrir vonbrigðum muni ekki
reyna að gera eitthvað svipað
svarar hann:
— Ég veit ekki hvað ég hef
fengið mörg bréf úr öllum áttum
siðan myndin kom á markaðinn.
Þeir skrifa ogsegja sem svo: —
Ég er fertugur og var leikari
áður. Eftir að hafa séð myndina
hef ég hugsað mér að — já, fjand-
inn hafi það, ég reyni einu sinni
enn.
— En ef maðurinn er nú lélegur
leikari?
— Já, það er erfitt. Stallone
hugsar sig um.
— Maður sem er vonlaus, en
heldur þó að hann geti orðið bezt
ur í heimi? Það sem hann þarfn-
asteru vinir,sem eru ekki hrædd-
irvið að segja: — Heyrðu mig, þú
getur þetta alls ekki. Mér geðjast
vel að þér sem manni, en þú ert
hreinasta slys sem leikari. Ég
sting upp á að þú fáir þér vinnu
við flokkunarvél.
Faðirinn munkur,
móðirin skyggn.
Stallone hefur verið að svo
heppin að eiga konu sem alltaf
hefur verið sannfærð um að hann
væri óuppgötvaður snillingur og
fjölskyldu, sem er svo einkenni-
lega samansett, að þar er flest
sérvizkan talin daglegt brauð.
Faðir hans var innflytjandi frá
Italiu og var i mörg ár munkur i
lokaðri reglu.
— Hann var þar, þangað til
hann uppgötvaði, að konur voru
til. Þá fleygði hann kuflinum og
sagði: — Hvað i ósköpunum er ég
að gera hér?
Faðirinn hitti móður Stallones
þegar hún kom fram i sýningu á
Bröadway. Henni geðjaðist að
honum, af þvi hann var svo „heil-
brigður” ásýndum, en hjóna-
bandið var ekki upp á það bezta,
og þau skildu, þegar Stallone var
11 ára.
Móðirin — fyrrverandi ungfrú
Amerika —er afar sérstök að sjá,
ungleg, en þó gömul og klæðist
eins og hippi. — Hún er einn af
mestu sérvitringum i heimi, segir
hann. Hún var atvinnustjörnu-
spámaður i 15 ár, og þegar sonur
hennar var 22 ára, sagði hún, að
hann skyldi ekki búast við neinum
frama fyrr en eftir hálft sjöunda
ár, en þá yrði hann á svipstundu
frægur rithöfundur.
Hún yfirgaf nýlega stjörnu-
spekina og sneri sér að óperum.
Aður en hún hætti, spáði hún þvi,
að Sylvester heyrði bráðlega frá
Banda rikjaforseta . Carter
skrifaði daginn eftir (Stallone vill
ekki segja hvert erindið var, en
deplar augunum og segir það
hafa verið leynilegar upplýsing-
ar) En nú er móðir hans sem sé
við óperuna.
— Hún kom frami sjónvarpinu
um daginn, segir hann. — Hún
var svo léleg, að það fór ekki hjá
þvi, að hún vekti óskipta aðdáun.
Þóhannhafiekki jafn mikla trú
á stjörnuspeki og móöir hans, er
Stallone sannfærður fylgismaður
hennar. Sonur hans, Saga Moon-
blood Stallone, var getinn á
stjörnufræðilega réttu augna-
bliki:
— Við vildum eignast dreng
fæddan i nautsmerkinu, en með
tunglið i vogarmerkinu og ljónið
Hin trygga vinkona hnefaleikarans Rocky er leikin af Taliu Shire.
risandi og Merkúr i tviburunum.
Það þýðir að hann verður i
skarpgreindur.
Stallone dregur saman sina eig-
in eiginléika samkvæmt stjörnu-
spánni: — Krabbinn i mér veldur
þvi að ég er fremur heimakær, en
annars er ég óttalega ruglingsleg
blanda. Ég svik minar eigin
skoðanir, er hræsnisfullur,
teygjanlegur úr hófi fram og
áhrifagjarn. Hvað handritið
varðar hlýt ég að hafa verið góð-
ur, notalegur og ástrikur, þegar
égskrifaði það. Jæja, en það hlýt-
ur að koma aftur... Hann glottir
striðnislega.
Góð móðir og ljósmynd-
ari
Heimilið — sem um þessar
mundir er ibúð i Hollywood — er
honum mikilvægt. Siminn hringir
stöðugt ( -Aðurhringdi enginn.til
min) Allar dyr Hollywood standa
honum galopnar, og hann þarf
duglegt fólk til að starfa fyrir sig.
Sasha, sem hann hefur verið
kvæntur i fimm ár, er dugleg.
Hún er ljóshærð og minnir dá-
litið á Candice Bergen og hún
starfaði sem dyravörður við leik-
hús eitt þegar Stallone sá hana i
fyrsta sinn.
— Ég man að ég hafði óskap-
lega sitt hár þá, segir hann. —
Þegar ég sá hana, hljóp ég heim
og næstum snoðaði mig til að fá
vinnu sem dyravörður. Ég leit
skelfilega út á eftir og hún vildi
ekki tala við mig i sex vikur. Ég
gekk á eftir henni með grasið i
skónum.
Það getég imyndað mér. Þegar
Stallone byrjar að tala af alvöru,
gæti hann áreiðanlega selt hverj-
um sem er jólakort fyrir páskana.
— En þetta leiddi að minnsta
kosti til varanlegs sambands. Ég
held að sterkasta bandið milli
okkar sé það að hún kann að vél-
rita.
Aftur striðnistóninn. Sasha
vann sem framreiðslustúlka á
kvöldin og vélritaði handrit
manns sins á daginn. Hún segist
hafa notið þess að hjálpa honum
og að það hafi ekki skipt sig neinu
máli að þurfa að hætta við að
skapa sjáifri sér frama sem
leikari.
Sylvester nefnir nokkra af frá-
bærum eiginleikum hennar: —
Fyrir utan það að vera dásamleg
manneskja, er hún ágætis kokk-
ur, góö móðir og góður ljós-
myndari. Auk þess er hún fyndin.
Meðan verið var aö kvikmynda
Rocky, segir Sasha að hann hafi
verið svo niðursokkinn I vinnuna,
að stundum hélt hún á'ð hann
mundi brotna niður. ft„
— Eina ráðiö til að fáha£H) af tur
inni raunveruleikann, var að láta
klukkuna á eldavélinni hr,iögja og
kalla: „Timinn er kominjj” segir
hún hlæjandi.
Jákvæðar kvikmynda-
hetjur
Ofan á alla frægðina hef-ur Stal-
loneeignastson i kaupbæti. Undir
breiðum brjóstkassanusn: slær
það bliðasta hjarta, sem til er
i ItölskumföðuuÞað hefpr komið
honum til að hugsa náhar um
hvers konar lif hann vill sýna á
hvita tjaldinu. Rocky er sérkenni-
lega laus við leiðinlegt og gróft
tungutak og I myndinni eru engin
atriði sem kallast geta kynferðis
lega gróf á nútima mælikvarða.
— Mig langar ekkert til að
verða eins konar Louis B. Mayer
annar, segir Stallone. — En mig
langar að gera myndir sem hylla
manneskjuna sem lifveru, sem
lætur fólk finnast það betra þegar
þaðferút, en þegar það kom inn.
Þegar börn fara i bió og fá
framan i sig glæpi, örvæntingu,
brjálæði og þunglyndi á tjaldinu
er óafvitandi sáð fræjum i sál
þeirra. Mig langar til að skapa
kvikmyndahetjur, sem geta orðið
góðar fyrirmyndir.
Þessa stundina eyðir hann
drjúgum tima i að ganga fram og
aftur framan við spegilinn og
reyna ýmsar hárgreiðslur. Hann
er að leita að einni, sem hentar
nýja hlutverkinu sem vörubil-
stjóri úr miðvesturrikjunum.
Hann er löngu búinn að skrifa
Rocky nr. 2.
Innan kvikmyndaiðnaöarins er
það almenn skoðun, að erfitt
verði að slá Sylvester Stallone út.
Að hann muni berjast sinar fullu
15 lotur gegn siðferðinu i Holly-
wood og að hann muni vinna rétt-
látan sigur.
Daginn sem upptökur á Rocky
hófust —f Philadelphia — minnist
hann þess að hafa horft á sjálfan
sig I speglinum og sagt: — Syl-
vester, nú hefur þér tekizt að
kjafta þig til góðs tækifæri6. Nú
skaltu sanna að þú sért þess virði,
eða leggja upp laupana.
— Ég vissi aö annaö hvort
endaði ég sem hetja eða gjörsam-
lega útskúfaður vesalingur, sem
hefði lifað i hugsjónaheimi.
Þegar Rocky var fyrst sýudur i
einrúmi fyrir móður Stallones,
stökk hann upp á sviðið og
hrópaði: — Hæ, mamma^jnér
tókst það!
Og móðirin þerraði táriiý'íem
runnu niður vangana...