Tíminn - 21.08.1977, Side 40

Tíminn - 21.08.1977, Side 40
 ? fíSMMi > ' 1 * 18-300 Auglýsingadeild Tímans. Marks og Spencer HEIMSÞEKKT GÆÐAMERKI YTRIFATNAÐUR Sunnudagur 21. ágúst 1977 . W&Ð . Guðbjörn Guðjónsson Heildverzlun SfAumúU 22' Slmar 85494 & 8S29S Nútima búskapur þarfnast JBHUSR haugsugu Alhirt um miðj- an ágúst — Um miöjan ágústmánuö var búiö aö alhiröa svo aö segja alls staöar austan fjalls, sagöi Helgi Haraldsson á Hrafnkelsstööum f Hruna- mannahreppi, er hann leit inn ^ skrifstofur blaösins. Hey- fengur mun vera nærri meöal- lagi, og heyin eru góö. Hefur árferöi á Suöurlandi veriö sér- lega gott sföan um höfuödag i fyrra og allt fram til þessa. Þaö er til dæmis um sfðastliö- inn vetur.aö þá sást aldrei snjótittiingur viö hús eöa bæi. Nú er yfirleitt hætt að tvislá tún, og kemur hvort tveggja til, að þau eru svo til alls staö- ar orðin svo stór og auk þess eru þau notuð til beitar handa kúm og lömbum. Bera margir á snemmslegnar sléttur, og þar fæst forlátabeit. En mjög er algengt, að lömb, sem ætluð eru til slátrunar, eru tekin frá ánum og sett á túnin, en ánum sjálfum og liflömbum sleppt i úthaga, þegar þær koma af fjalli. — Að þessu sinni verður féð sótt á afréttú. september, viku fyrr en venjulega, og gildir sú regla um allt Suðurland. Þeir, sem farið hafa á fjall, segja, að fé liti mjög vel út, enda hafa grös verið aö gróa á af- rétti fram að þessu. Kemur hér fram, að kalt var til fjalla i vor, en mikil hlýindi hafa ver- ið að undanförnu, upp i átján stig á Hveravöllum. Hjá okkur á Hrafnkelsstöð- um, sagði Helgi, eru þrir bændur, og túnin á fjórða hundrað dagsláttur. Hver þessara þriggja bænda keypti tilbúinn áburð fyrir meira en eina milljón króna i vor. Einn bændanna setti fjörutiu til fimmtfu kýrfóður i votheys- hlöðu, og vinnubrögðin hjá honum eru þau, að tvær drátt- arvélar eru i gangi. Með ann- arri er slegið, og sópast grasið jafnóöum upp i vagn, sem steypt er úr i votheyshlöðuna. Inni i henni er svo annar mað- ur með dráttarvél og treður grasið með henni og þjappar úr þvi loftinu. — Þetta eru mikilfengleg vinnubrögð, sagði Helgi, og ólik þvi, þegar staðiö var á velli með orf, ljá og hrifu. Efsta myndin er af nokkrum dvalargestum aö Laugalandi, ásamt Jóni Sigurgeirssyni, sem er einn forstööumanna hvildarheimilisins. A myndinni til vinstri eru Sonja Helgason, Arni Gunn- laugsson og Jónatan Ólafsson i einum trjálundinum á Lauga- landi. A myndinni hér fyrir neöan er Kristján Jóhannsson söngvari aö skemmta dvalargestum, og Kári Gestsson viö hljóöfæriö. Timamyndir: KS KS-Akureyri —Hvildar- og hress- ingarheimili er nú starfrækt aö Laugalandi i Eyjafiröi annaö áriö i röö. Upphafsmenn og forstööu- fólk fyrir heimilinu eru hjónin Asta Guövaröardóttir og Úlfur Ragnarsson læknir, ásamt Jóni Sigurgeirssyni, skólastjóra á Akureyri. Hvildarheimilið varrekiö um 12 vikna skeið i fyrrasumar, og vegna þeirrar góðu reynslu, sem fékkst af starfseminni, þá var ráðizti að halda henni áfram I ár. Nú hófst starfsemin 24. júni og henni lýkur 3. september. Jón Sigurgeirsson sagöi i viötali, að stefnt yrði að þvi að starfrækja slikt heimili á næstu árum ef mögulegt væri, þar sem reynsla þessara tveggja sumra gæfi vissulega tilefni til þess. Aðsókn hefur verið góð I sumar, en þó mun vera hægt að fá einhver dvalarpláss þær vikur, sem eftir eru I sumar. Fréttamaöur kom viö að Laugalandi fyrir skömmu og hitti þá m.a. þá Jónatan Ólafsson, og Arna Gunnlaugsson, en þeir höfðu þá dvaliö vikutima á hressingar- hælinu. — Hvernig likar ykkur dvölin hér að Laugalandi og i hverju er hún fólgin? — Þessi dvöl er ólikt öllu þvi sem ég hef reynt áður, en ég hef þó viöa farið og mörgu kynnzt, segir Arni. Hér er áherzla lögð á það, að fólki lfði sem bezt á allan hátt, bæði á sál og likama. Fólkið hér, jafnt gestir sem starfsfólk, er eins og stór samstillt fjölskylda, þar sem allir keppast viö að gera hver öðrum lifið sem þægilegast. Hér eru stundaðar daglega jóga- æfingar undir stjórn frú Astu Guðvarðardóttur, þá er sundlaug hér á staönum, sem fólkið notar eftir vild og ekki má gleyma um- hverfinu meö fallegum trjálund- um og öörum skemmtilegum stöðum. Þá eru helgistundir hér á hverju kvöldi, sem allir dvalar- gestir taka þátt i, og þær eru eink- ar hugljúfar með fallegri tónlist og almennum söng. Ég get-alveg sagt þér, að ef ég ætti að velja á milli sólarlandaferöar og dvalar hérna veldi ég hiklaust dvölina hér. — Já ég er sammála Arna i þessu, sem hann hefur sagt, segir Jónatan. Ég var búinn að frétta af þessu i fyrra og hve ánægjulegt væri að dvelja hér og þvi dreif ég mig hingað. En þetta fór fram úr öllum minum vonum. Hér fer fram sannkölluð mannrækt, þar sem góðmennska og kærleikur sitja I fyrirrúmi, án allra öfga. Og eins og Arni nefndi áöan, er um- hverfi staðarins sérstaklega skemmtilegt, og hér rikir ætiö kyrrð og friöur, og maður er laus við hávaða og eril borgarsam- félagsins. Hér er dásamlegt að vera, og ég get sagt þér það, að viö Arni erum báðir búnir að framlengja dvöl okkar hér, svo þú getur rétt imyndað þér hvernig okkur likar staðurinn sagði Jónatan. Þá má geta þess, að dvalargestir hafa aðgang að bókasafni, og pianó og plötuspilari eru I dagstofunni, sem þeir hafa einnig aðgang aö. Þeir Arni og Jónatan sögðu að lokum, að þeir vildu þakka mjög þeim er stæöu fyrir starfseminni á Laugalandi og óskuðu henni alls góðs i framtiðinni. I sama streng tóku þær Sonja, Gunnlaug og Hulda, en þær bar að i þann mund er fréttamaður var að búast til heimferðar. Þetta er mannrækt og’ o góðvildin í fyrirrúmi — segir fólk á hvíldarheimili að Laugalandi í Eyjafirði

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.