Tíminn - 24.08.1977, Page 7
Miðvikudagur 24. ágúst 1977
7
mæli
Lsins
staka stjórnmála-
maður sést t.d. sást
þarna forsætisráð-
herra Danmerkur,
Anker Jörgensen.
Þær stöllur uröu óafvitandi laumufarþegar.
Laumufar-
þegar
Út i hinum stóra
heimi eru mikil
brögð að þvi, að fólk
laumist um borð i
skip, sem liggja i
höfnum. Þetta veld-
ur skipafélögum
miklum fjárútlátum
— svo ekki sé minnst
á óþægindi og tima-
eyðslu i sambandi
við laumufarþegana.
Þrjár bar.dariskar stúlkur
urðu óafvitandi laumufar-
þegar um borð i frönsku
skipi i New York. Þær Lauie
Branigan, Lisa Podell og
Alice Ryerson komu um borð
i skipið i þeim tilgangi að
kveðja kunningja sina þar.
Vin var á borðum og eigi leið
á löngu þar til þær stöllur
urðu allölvaðar, og tóku þær
þá það ráð, að leggjast til
svefns. Þegar mesta viman
var af þeim runnin og þær
hugðust ganga á land, brá
þeim heldur betur i brún, þvi
að skipið var komið langt út i
hafsauga — og ekki varð
snúið aftur að svo komnu.
Sex dögum seinna var lagzt
að bryggju í Englandi. Þar
eð atvik þetta þótti m jög hjá-
kátlegt i alla staði horfði
skipafélagið framhjá öllum
lögum og reglum um laumu-
farþega og sleppti þeim vin-
komu af skipinu. Frelsinu
fegnar flugu þær beinustu
leið heim til New York — á
kostnað foreldra sinna.
En ekki eru allir eins
heppnir og þessir þremenn-
ingar. Yfirleitt biða laumu-
farþega miklar fésektir eða
fangelsisvist, og skipafélag-
inu er fullkomlega leyfilegt
að hneppa þá i gæzluvarð-
hald eða vinnumennsku
meðan þeir dveljast á skip-
inu.
,,Ég vona þeir noti messing-
kúlur. Ég hef svo voðalegt
ofnæmi fyrir blýi.”
★
„Hvort finnst þér ég ætti að
fara i köflóttu fötin sem töl-
urnar vantar á, eða þau tein-
óttu meö saumsprettunni?”
,,Þú ferð ekki út fyrir dyr
með svona áberandi bindi”.
★
„Þessi spegill hefur aukið
söluna um 50% hjá okkur.”