Tíminn - 07.10.1977, Page 8

Tíminn - 07.10.1977, Page 8
8 Föstudagur 7. október 1977 Óttinn við lýðræðið Fátt óttast kommúnistar meiren lýðræðið.Á þeim bæ vilja forustumennirnir að öllum hlutum sé ráðið á þann veg sem flokksforustan vill á hverjum tima. Þar má ekki spyrja hinn almenna flokksmann álits á framgangi mála nema nokkuð sé vist að svörin falli flokksforustunni i geð. Þvi er ekki að undra, þótt alþýðubandalagsmenn finni prófkjörum og skoðanakönnunum flest til for- áttu, og muni hvergi viðhafa þá aðferð við val sinna frambjóðenda i næstu alþingiskosningum, enda er hætt við að i einstaka tilfelli yrðu niðurstöður ekki i anda flokksforustunnar ef prófkjör yrði viðhaft. Alþýðubandalagsmenn hafa þegar tilkynnt um röðun efstu sæta á framboðslistum flokksins við næstu alþingiskosningar i nokkrum kjördæmum. Ákvörðun sem að sögn er tekin á þingum flokksins i kjördæmunum, en engin skýring hefur þó á þvi ver- ið gefin hvers vegna var ekki jafnframt raðað i neðstu sætin. Skýringin skyldi þó ekki vera sú að flokksforustan fyrir sunnan hefði raðað i efstu sætin og sú röðun verið samþykkt með lófataki á kjör- dæmisþingi. Siðan á að eftirláta flokksmönnum i kjördæminu að raða i neðri sætin, sem áhrifalaus eru með öllu. Ein af ástæðunum fyrir þvi að alþýðubandalags- menn óttast persónukjör þingmanna er sú, að þeir óttast að harðlinukommar hverfi þá smám saman af þingi. Þeir eigi ekki jafn miklu fylgi að fagna og þeir alþýðubandalagsmenn, sem eigi eru jafn rót- tækir. Slikt getur flokksforustan alls ekki hugsað sér. Hún vill hafa harðan róttækan kjarna, sem öllu stjórnar, en i kringum þá má vera nokkur hirð, nokkurs konar skrautblóm, góð til atkvæðaveiða, en að mestu áhrifalaus innan flokksins. Þannig hefur það verið og þannig vilja harðlinukommarnir að það verði. 1 öðrum stjórnmálaflokkum hér á landi en Al- þýðubandalagi á persónukjör þingmanna sifellt meiri og meiri hljómgrunn. Ungir menn úr þremur stjórnmálaflokkum, Framsóknarflokki, Alþýðu- flokki og Sjálfstæðisflokki hafa ályktað um nauðsyn þess að gjörbreyta hér kosningafyrirkomulaginu þannig að kjósendur velji sina þingmenn eftir per- sónum en séu ekki neyddir til að kjósa lista, sem flokksforustan á hverjum stað hefur ákveðið og engu þar um hægt að breyta. Meðan sú skipan kosningalaga hefur ekki verið tekin upp, þá eiga flokkarnir ekki aðra möguleika til að fá álit sinna kjósenda á röðun frambjóðenda en efna til skoðanakannana eða prófkjörs. Sú leið hefur þegar verið fa’rin hjá framsóknarmönnum i einu kjördæmi fyrir væntanlegar alþingiskosning- ar, og ákveðið er að viðhafa þá aðferð i þremur öðr- um kjördæmum. Sömu sögu er að segja úr hinum flokkunum. En alþýðubandalagsmenn halda fast við sinar gömlu venjur og láta fámennar klikur raða frain- bjóðendum á sina lista. Á þeim bæ er lýðræðinu ekki fyrir að fara, nema þá einungis i skálaræðum for- ingjanna. Og við val frambjóðendanna er þess vandlega gætt að harðlinumennirnir séu hæfilega margir i öruggum sætum, en siðan er ýmsum skrautblómum, svo sem skáldum og leikurum rað- að þar i kring. Þannig er munstrið fullkomið. Skrautblómin sjá um atkvæðaveiðarnar, en harð- linumennirnir ráða ferðinni á stjórnmálasviðinu. Magnús ólafsson Kynning á ungum framsóknarmönnum Tíðarandinn og lí f sgæðakapphlaupið draga úr stjórnmála- Rætt við Sigurð J. Sigurðsson í Keflavík áhuga Siguröur J. SigurBsson er einn af forystumönnum ungra fram- sóknarmanna. Hann er tuttugu og fjögurra ára og starfar sem innheimtustjóri Keflavikurbæj- ar. Hann lauk prófi frá Sam- vinnuskólanum 1974 og hefur tekiö mikinn þátt í félagslifi i Keflavik. Hann er formaöur Félags ungra framsóknar- manna i Keflavik og Starfs- mannafélags Keflavikurbæjar. Auk þess er hann ritari Junior Chamber á Suöurnesjum og á sæti í stjórn Sambands ungra framsóknarmanna. SUF-siðan átti fyrir skömmu viðtal viö Sigurö og birtist þaö hér. — Hverjar eru helztu fram- kvæmdir i Keflavik? — Framkvæmdir á vegum Hitaveitu Suöurnesja eru um- fangsmestar um þessar mundir og hafa gengið meö nánast ótrú- legum hraöa. Loksins hillir und- ir viðunandi iþróttahúsnæði hér oggengursú framkvæmd einnig meö ólikindum. Vonir standa til að þaö komist aö meirihluta til I gagnið haustiö 1978. Eins og undanfarin ár er mikið byggt i Keflavik, og er nýtt ibúöahverfi að rfsai svokallaöri Heiöabyggö fyrir ofan bæinn. Samtals eru um 150 ibúöir á teikniboröinu eða I smiöum á öllum bygg- ingarstigum. Um 1300 fm. við- bygging Sjúkrahússins er i full- um gangi og verður sennilega tekin i notkun eftir rúm tvö ár, slitlag er jafnt og þétt lagt á göt- ur og fleira mætti til taka en þetta er þaö helzta. — Er félagslifiö öflugt hjá ykkur? — Félagslifiö er mjög fjöl- breytt. Hér starfa milli 50 og 60 félög yfir vetrarmánuðina, þannig að engum ætti aö leiöast i skammdeginu. Þaö félag, sem er án nokkurs vafa hiö dug- mesta á Suöurnesjum öllum, er Styrktarfélag aldraöra. Það dregur aldrei af sér allt áriö um kring, og hafa bjartsýnustu menn staöiö agndofa yfir krafti þess. Miklar vonir eru bundnar við leikfélagiö, sem var drifið upp i fyrravetur eftir nokkurra ára lægð. Þaö er þegar tekiö til starfa og hefur dugmiklu for- ystuliöi á aö skipa. — Nú hefur komið fram mikil óánægja kjósenda I Reykjanes- kjördæmi varðandi ójafnan kosningarétt. Telur þú aö úr- bætur séu liklegar f þeim efnum á næstunni? — Óánægja okkar yfir þessu misrétti er ofur eðlileg, tvi- mælalaust megn og sivaxandi. Hins vegar gefa starfs- og af- greiösluhættir Alþingis enga ástæöu til aö ætla, aö úr þessu hrikalega misræmi veröi bætt á næstu árum, enda þött mikill meirihluti alþingismanna vilji veg lýðræöisins sem mestan og viöurkenni þar af leiöandi þessa óhæfu. Þó hafa sumir þeirra leyft sér aö vlsa kröfum okkar til stjórnarskrárnefndar en viö áteljum slikan fyrirslátt sem óábyrgan, þegar um sllkt for- gangsmál er aö ræöa. Þegar við heimtum rétt okkar i þessu til- liti, þá erum viö um leiö aö krefjast þess, aö ein af grund- vallarhugmyndum lýöræöis- skipulagsins sé virt. Ef sú krafa höfðar ekki beint til Alþingis og hvetur ekki til skjótari viö- bragöa af þess hálfu, þá þurfa efalaust margir að endurskoða hugmyndir sinar um lýöræöi og tilgang Alþingis. — Hvenær hófstu afskipti af stjórnmálum og hvers vegna? — Þaö eru nú ekki nema tvö ár síðan ég gekk I FUF í Kefla- vik. Þá haföi ég lesið mér nokk- Sigurður J. Sigurðsson uð vel til um hinar mismunandi stjórnmálastefnur I full tvö ár og hafði á þvi timabili bankað uppá hjá Samtökunum en sniíið viö á þröskuldinum. Astæöuna fyrir stjórnmálaafskiptum fólks almennt tel ég hrenlega eölis- bundna, eins og m.a. Aristoteles héltfram á slnum tlma. Það býr I manninum hvöt eða löngun til að hafa áhrif á umhverfi sitt og axla ábyrgö I samfélaginu. — Hvers vegna valdir þú Framsóknarflokkinn sem vett- vang þinna afskipta? — Það kemur einfaldlega til af þvi aö ég tel þjóömálaskoöan- ir minar samrýmast meir stefnu og markmiðum hans en annarra stjórnmálaflokka þeg- ar á heildina er litiö. Hinn heil- brigði sveigjanleiki I pólitlskri stefnumótun Framsóknar- flokksins haföi einnig mikil áhrif á mig, þvi ég met ekki mikils einstrengingsleg sjónar- miö sem spretta uppúr ófrjóum jarðvegi taktfastra öfga til vinstri og hægri. Stefnuskrár Sjálfstæðis- og Alþýöubanda- lagsmanna sjá um alla stefnu- mötun, flokksmenn þurfa i sjálfu sér ekkert aö leggja til. Framsóknarmenn hins vegar sýna þá ábyrgö aö gaumgæfa alla hluti vandlega og taka af- stöðu til málefna I samræmi við timann og rikjandi aöstæöur. Hann er alltaf opinn fyrir nýjum og ferskum hugmyndum. Þú getur komiö þér fyrir skamm- laust I Alþýðubandalaginu, ef þú bara ert á móti hernum, og sömuleiðis getur þú skipaö þér i lið Ihaldsins ef þú ert með hon- um. En engin ákveðin skoöun I einu tilteknu máii gerir þig aö Framsóknarmanni, heldur heildaryfirbragö skoöana þinna. — Hvers vegna er þátttaka ungs fólks I stjórnmálum ekki meiri en raun ber vitni? — Ég held hreinlega, aö unga fólkið vitiekki I hvorn fótinn það á aö stlga i þessu tilliti vegna hringlandaháttar dagblaðanna i pólitiskri umfjöllun sinni. Þau haga fréttamiðlun sinni eins og þeim og þeirra fylgifiskum hentar hverju sinni. Pólitlskir þrýsti- og hagsmunahópar standa aö baki þeim og hika ekki við aö beita siöiausum aö- feröum við að gera andstæöinga sina á stjórnmálasviðinu sem tortryggilegasta I augum kjós- enda. Pólitiskur uppspuni og all frjálsleg meðhöndlun sannleik- ans hefur verið daglegt brauð á siðum dagblaöanna sl. 2 ár. Þegar unga fólkiö kemst svo til pólitiskrar meövitundar, ef svo má segja, tekur að lita innviði samfélagsins gagnrýnum aug- um, þá hrópar þaö á breytingar, en veigrar sér við aö taka þátt i starfsemi stjórnmálaflokks, þvl samkvæmt fjölmiölum eru flokkarnir upp til hópa ekkert betri en kerfið sem fólk vill breyta og miöur gott orð fer af. Þaö er líka allt of mikiö um hörku og ósvifna staðreynda- fölsun. Sumirhafa jafnvel nefnt hatur, sem ég fæst ómögulega til að trúa upp á Islenzkan nú- tlma og vonandi ekki af ósk- hyggju eintómri. Einnig vil ég að nokkru leyti kenna tiöarandanum um þátt- tökuleysiö i stjórnmálum. Hið óstjórnlega lifsgæöakapphlaup, sem unga fólkið hefur alizt upp viö, hefur valdið þvi, aö mikill hluti þess á sér ekki annaö áhugamál en að græða peninga og má bara ekki vera að þvi aö standa i stjórnmálavafstri af þeim sökum. Það sækist i botn- laus lifsþægindi og undrast um leið, að ekkert skuli bóla á lifs- fyllingunni, sem ég álit að felist i einfaldri velferð. Veröur mér oft hugsað til orða indverska heimspekingsins, Rabindranath Tagore, þegar hann sagöi: „Wealth is the burden of big- ness, welfare the fullness of be- ing.” — Er fólk nægilega upplýst um störf og stefnu stjórnmála- flokka? — Stjórnmálastarfsemin fer að mjög miklu leyti fram fyrir opnum tjöldum. Þaö mætti þó gera meira að þvl aö fræöa ungt fólk um stjórnmálaflokkana á hlutlausan hátt eins og gert er i Sviþjóð. Þar hafa þeir slika fræöslu I skólakerfinu sjálfu. Einnig þyrfti að reyna aö draga úr þvi hvimleiða áliti almenn- ings, aö rikið sé eitthvert fjar- rænt fyrirbæri, sem ekki sé til neins nema bölvunar og komi engum viö nema alþingis- og embættismönnum. Fræösla I skólum ætti einnig aö miða aö þvi, aö unga fólkið taki i rikari mæli en nú er, sjálfstæöa ákvöröun um þaö hvaöa stjórn- málaflokk það gengur til liðs við. — Eru Framsóknarmenn I Keflavik farnir aö huga aö kosn- ingaundirbúningi? — Óneitanlega eru menn f arn- ir að hugsa um kosningarnar á næsta ári. Fulltrúaráðið gaf t.d. út blaö i júli sl. og annað er fyrirhugað á næstunni. Viö i FUF fórum fram á þaö viö full- trúaráðið i vor aö haldiö yrði prófkjör fyrir bæjarstjórnar- kosningarnar og tók stjórn þess mjög vel I það. Slik bón frá ung- um mönnum stingur að visu i stúf viö möguleika þeirra i próf- kjöri, þegar þess er gætt, að flestir þeirra eru óþekkt stærð meðal allt aö 90% kjósenda flokksins. Þá eldri þekkja kjós- endur af störfum þeirra I gegn- um árin. Viö setjum auövitað stefnuna á það, að ná 3ja framsóknar- manninum inn i bæjarstjóm, en i siöustu kosningum vantaði okkur einungis 16 atkvæði til þess. Viö erum bjartsýnir hér, enda engin ástæða til annars. — Hvaö um opiö prófkjör til alþingiskosninga? — Ég hef ekki ihugað þann möguleika aöneinu ráöi. Það er ekki sérsaklega uppörvandi að horfa á prófkjörsbrambolt krat- anna hér.Þeirhafa flestir játaö, að barátta þeirra snúist um þaö, að fá Suöurnesjamann inn á þing. Nú hafa þrir þeirra boðið sig fram I 'prófkjöriö I Reykja- neskjördæmi og engarlikur á aö neinn þeirra nái 1. sæti úr þessu og 2. sætið siöur en svo tryggt. Þóaðmaðurséekki krati,þá tel ég óneitanlega tima til kominn að Suöurnesjamaður fái inni á Alþingi, þó aö krati sé.

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.