Tíminn - 08.10.1977, Blaðsíða 17
Laugardagur 8. október 1977
17
íþróttir |
Evrópuslagur i
Hafnarfirði........
FH-ingar mæta Kiffen frá Finnlandi i
Evrópukeppni bikarhafa i dag
FH-ingar verða enn' í
sviðsljósinu í Evrópu-
keppninni í handknattleik
i dag/ þegar þeir mæta
Kiffen frá Finnlandi í
Evrópukeppni bikarhafa.
FH-ingar/ sem hafa stað-
ið sig mjög vel i Evrópu-
keppni — tvisvar sinnum
komizt í 8-liða úrslit «
Evrópukeppni meistara-
liða/ eru sigurstranglegri,
en þeir mega þó ekki van-
meta Finnana, sem geta
verið óútreiknanlegir.
Fh-ingar tefla fram öllum sin-
um sterkustu leikmönnum, sem
eru harOákveðnir að standa sig
vel, og eru þeir staðráðnir i að
komast i 16-liða úrslitin. FH-
ingar verða að vinna leikinn i
llafnarfirði meö góðum mun, til
aö gulltryggja sig, þar sem
Finnarnir geta orðið sleipir á
heimavelli.
l.eikur liðanna hefst kl. 3 I i-
þróttahúsinu i Hafnarfirði og
eru áhorfendur hvattir til að
fjölmenna á leikinn og styðja
við bakiö á FH-ingum. Forsala
aðgöngumiða hefst i iþrótta-
húsinu kl. 1.
FH-ingar hafa einu sinni áður
leikið gegn finnsku liöi i
Evrópukeppninni og fóru þá
báðir leikirnir fram i Laugar-
dalshöllinni. Þetta var 1970 og
lék FH þá gegn UK 51 og lauk
báðum leikjunum með sigri FH
— fyrst 13:10 og siðan 17:10.
KR-ingar flagga
nvium leikmönnum
islandsmeistarar Vals i hand-
knattleik fá nóg að gera um helg-
ina — þeir hefja vörn sina á
meistaratitlinum þegar þeir ieika
gegn nýliðum KR I Laugardals-
höilinni i dag. Valsmenn, sem
leika án Þorbjörns Guömunds-
sonar, eru sigurstranglegri, en þó
er ekki hægt að afskrifa KR-inga,
sem eru með ungt og efnilegt lið.
KR-ingar hafa fengið góðan
liðsstyrk að undanfömu þeir hafa
fengið þrjá snjalla handknatt-
leiksmenn i raðir sinar, þar sem
Björn Pétursson, langskyttu úr
Gröttu. Jóhannes Stefánsson,
linumáður úr Val, og Orn Guð-
mundsson, markvörður úr tR
eru.
Vikingar, aðalkeppinautar
Valsmanna um meistaratitilinn,
verða einnig i sviðsljósinu i dag —
þeir mæta nýliðum Armanns i
Laugardalshöllinni kl. 5, og strax
á eftir leika Valur og KR.
Valsmenn og Víkingar leiða
síðan saman hesta sina i Laugar-
dalshöllinni annað kvöld, og má
þá búast við geysilega spennandi
og f jörugum leik, þvi að leikurinn
hefur mikla þýðingu fyrir liöin.
Þessi stórleikur verður strax á
eftir leik Fram og Hauka, sem
hefst kl. 20.15.
JÓHANNES STEFANS-
SON.... sést hér skora fyrir
Val i leik gegn Þrótti. Jó-
hannes leikur I dag með KR-
liðinu, gegn sinum gömlu fél-’
ögum.
þegar þeir mæta íslandsmeisturum Vals i
Laugardalshöllinni i dag. Valsmenn leika síöan
gegn Vikingum á morgun
Tony
Knapp
þökkuö
unnin
störf
TONY KNAPP
Stjórn K.S.Í. hélt Tony Knapp
fyrrum landsliðsþjálfara i
knattspyrnu kveðjusamsæti í
gærkvöldi, þar sem Eilert B.
Schram þakkaði Knapp unnin
störf með landsiiðinu undanfar-
in fjögur ár og óskaði honum
farsældar i hinu nýja starfi
hans, en eins og sagt hefur verið
frá, hefur Tony Knapp skrifað
undir tveggja ára samning við
norska liðið Vikingur frá Stav-
anger, og mun Knapp byrja að
þjáifa Vikingana ibyrjun febrú-
ar 1978.
Kinverjar
fóru létt
með
Hauka
Kinverska landsliðið i hand-
knattleik átti ekki i erfiðleikum
meö Hauka frá Hafnarfirði,
þegar liðin léku vináttuleik i
Hafnarfirði á fimmtudags-
kvöldið.
Kinverjarnir unnu sigur
(32:25) yfir Haukum — og mun-
aöi þar mest um góðan leikkafla
þeirra i fyrri hálfieik, þegar
þeir skoruðu tiu mörk i röð hjá
Haukum, án þess að Ilaukum
tækist að svara fyrir sig. Kin-
verjarnir breyttu þá stöðunni úr
6:51 16:5, og var þá sigur þeirra
innsiglaður.
Jóhannes
og Jón til
Pórs
— og leika
körfuknattleik
Körfuknattleikslið Þórs á
Akureyri — nýliðarnir i 1.
deildarkeppninni I körfuknatt-
leik, hefur nú fengið góðan
liðsstyrk, þar sem Jóhannes
Magnússon landsliðsmaður úr
Val, og Jón Indriðason, fyrr
um leikmaður með stúdentum
og ÍR, hafa ákveðið að leika
með liðinu I vetur.
Þeir Jóhannes og Jón munu
styrkja Þórsliðið mikið og
verður fróðlegt aö sjá hvernig
þeim og Bandarikjamannin-
um Mark Christiansen tekst
upp með Akureyrarliðinu.
Þeir Jóhannes og Jón eru
miklir skorarar og einnig
Bandarikjamaðurinn, sem
þjálfar Þórsliðið.
Bandaríkj amennir nir
eru iðnir við kolann
Bandarisku körfuknatt-
leiksmennirnir, sem
leika með KR, Val og
Ármanni, létu mikið að
sér kveða i Reykja-
vikurmótinu á miðviku-
dagskvöldið — þeir voru
allir stigahæstir hjá lið-
um sinum.
Valsmenn áttu ekki i erfiðleik-
um með ÍR-inga og sigruðu ör-
ugglega —87:73. Valsmenn gerðu
út um leikinn i byrjun, þegar þeir
náðu 23 stiga forskoti — 38:15.
Eftir það tóku þeir lifinu með ró
og létu alla varamenn sina inn á
og leyföu þeim að spreyta sig.
Rick Hockenos varð stigahæstur
hjá Valsmönnum með 20 stig, en
Erlendur Markússon varð stiga-
hæstur hj IR-ingum — með 24
stig.
Bandarikjamaðurinn Michael
Wood lék sinn fyrsta leik með Ar-
mannsliöinu, þegar það mætti
KR-ingum. Ekki dugði þessi góði
liðsstyrkur Armenningum til sig-
urs, þvi að KR-ingar fóru létt með
þá — sigruðu 92:73. Andrew
Piazza skoraði flest stigin fyrir
KR-liðið, eða 27 stig. Wood skor-
aði flest stig Armenninga — 22
stig.
Tveir leikir verða leiknir i
Reykjavíkurmótinu i körfuknatt-
leik i dag. Stúdentar mæta Fram
kl. 2 i Hagaskólanum og strax á
eftir mætast 1R og Armann.
Markakóngabarátta
Mikið markakóngs einvigi er
nú hafið i v-þýzka „Bundeslig-
unni” i knattspyrnu, en þar eig-
ast við fyrrum miðherji v-þýzka
landsliðsins, sjálfur Gerd
„Bomber” Mííller hjá Bayern
Munchen og núverandi miðherji
v-þýzka landsliðsins Dieter
Muller hjá 1 F.C. Köln en þetta
eru tveir mestu markaskorarar
sem hafa komið fram i
V-Þýzkalandi á undanförnum
árum og reyndar er Gerd Mull-
er mesti markaskorari sem
V-Þýzkaland hefur átt. Þessir
tveir marksæknu Ieikmenn hafa
nú skorað sin hvor 12 mörkin i
„Bundesligunni”, en næstu
menn koma með 8 mörk. Nú eru
uppi veðmál i V-Þýzkalandi, um
hvor Mullerinn skorar fleiri
mörk og veðja fleiri á gömlu
kempuna — „Bomber”.