Tíminn - 08.10.1977, Side 19
Laugardagur 8. október 1977
19
flokksstarfið
Reykjaneskjördæmi
Fundur verður i fulltrúaráði kjördæmissambands Reykjanes-
kjördæmis þriðjudaginn 11. október kl. 20.30 í Iðnaðarmanna-
húsinu i Hafnarfirði.
Fundarefni: Undirbúningur framboðs við komandi alþingis-
kosningar.
Stjórnin
„Opið hús// Flateyri
Framsóknarfélag önundarfjarðar verður með opið hús i sam-
komuhúsinu Flateyri á þriðjudagskvöldum kl. 20.30-23.30. Leikið
verður af plötum, spilað, teflt, myndasýningar.
Allir velkomnir.
London
Samband ungra framsóknarmanna gengst fyrir Lundúnaferð
dagana 20.-25. nóvember. Gisting á góðu og vel staðsettu hóteli.
Upplýsingar og farmiðapantanir á skrifstofu Framsóknar-
flokksins Rauðarárstig 18. Simi 24480. — Stjórnin
Hagkeðja —
Efnahagsmál
Félag ungra framsóknarmanna I Reykjavik heldur almennan
félagsfund að Hótel Esju fimmtudaginn 13. október kl. 20.30.
Frummælandi Kristján Friðriksson mun gera grein fyrir aöal-
efni hagkeðjunnar i stuttu máli og mun siðan sitja fyrir svörum
um efnið.
Fundarmönnum gefst tækifæri til að ræða efnahagsmál.
Fundarstjóri verður Sveinn Grétar Jónsson.
Allir velkomnir.
Haustmót Framsóknarfélags Súgandafjaröar verður haldið í
félagsheimilinu á Suðureyri laugardaginn 8. október kl. 21.00.
Ræður flytja Gunnlaugur Finnsson, alþingismaður og Jón
Sigurðsson, ritstjórnarfulltrúi.
Annað á dagskrá er ljóðalestur Guömundar Inga Kristjáns-
sonar, skálds á Kirkjubóli og eftirherman Jóhann Briem mun
skemmta. Trió 72 leikur fyrir dansi.
Stjórnin
Viðtalstímar
alþingismanna og
borgarfulltrúa
Framsóknarflokksins
Alfreð Þorsteinsson borgarfulltrúi veröur til viötals á skrif-
stofu Framsóknarflokksins Rauðarárstig 18 laugardaginn 8. "
október kl. 10-12.
Almennir fundir
Framsóknarfélag Reykjavikur heldur sex fundi að Hótel Esju.
Fyrsti fundurinn verður mánudaginn 17. október kl. 20.30.
1. fundur mánudaginn 17. október kl. 20.30
Stjórnmálaviðhorfið
Ræðumenn:
Þórarinn Þórarinsson, alþingismaður
Einar Agústsson ráðhprra
2. fundur mánudaginn 24. október kl. 20.30
Staða aldraðra (elli- og lifeyrisþega) i Borgarkerfinu.
Ræðumenn:
Alfreð Þorsteinsson, borgarfulltrúi
Auðunn Hermannsson, framkvæmdastjóri
3. fundur mánudaginn 31. október kl. 20.30
Landbúnaðarmál. Landnýting og gróður landsins.
Ræðumenn:
Halldór E. Sigurðsson, landbúnaðarráðherra
Ingvi Þorsteinsson, magister
4. fundur laugardaginn 7. nóvember kl. 20.30
Skipulagsmál og lóðaúthlutun
Ræðumenn:
Kristján Benediktsson, borgarfulltrúi
Kristmundur Sörlason, iðnrekandi
5. fundur laugardaginn 14. nóvember kl. 20.30
Þróun verðlagsmála og vextir.
Ræðumenn:
Ólafur Jóhannesson, ráðherra
Þorvarður Eliasson, framkvæmdastjóri Verzlunarráðs
Helgi Bergs, bankastjóri
6. fundur laugardaginn 21. nóvember kl. 20.30
Orkumál
Ræöumenn:
Steingrimur Hermannsson, alþingismaður
Páll Pétursson, alþingismaður
Allir fundirnir eru almennir fundir og opnir öllum. Eru haldnir
að Hótel Esju og hefjast kl. 20.30.
Stjórnin
Félag framsóknarkvenna
í Reykjavík
Fundur verður að Rauðarárstig 18 næst komandi miðvikudag,
12. þessa mánaðar, kl. 20.30. Fundarefni: Sólveig Alda Péturs-
dóttir segir frá landsfundi Kvenfélagasambands Islands að
Laugum siðastliðið sumar.
Gestur fundarins verður Kristján Friðriksson, iðnrekandi, sem
flytur erindi um hagkeðjuna og svarar fyrirspurnum. Takiö
kaffibrúsana með.
Stjórnin
O Dómurunum
fengið eitthvert magn áfengis
fyrir aðstoðina. Taldi öm rétt-
lætanlegt að Albert yrði látinn
sæta refsingu að lögum fyrir
það.
Þá rakti örn nokkuð aðdrag-
anda þess að Albert tengist
Guðmundarmálinu. Taldi hann
þaö fráleitt aö ætla Alberti hlut-
deild I morðinu aðeins fyrir þá
sök að vera viðstaddur atburð
þann sem varð að Hamarsbraut
11. Máli sinu til stuðnings nefndi
öm nokkur dæmi. Einnig nefndi
hann að i Bandarikjunum væri
hægt að gera menn sem við-
staddir væru verknað að hlut-
deildarmönnum. Lög hér á landi
gerðu hins vegar ekki ráð fyrir
þvi.
Þá rakti örn nokkuð málsat-
vik við atburðinn aö Hamars-
braut 11 og leiddi rök að þvi
samkvæmt framkonnum fram-
burði ákæröra að alls ekki heföi
verið um morð af ásettu ráöi að
ræða. Samkvæmt framburöi
ákærðra er aðdragandinn að láti
Guðmundar mjög tilviljana-
kenndur og til átaka hafi komið
vegna litils háttar þrass og
deilna með afleiðingum sem öll-
um séu kunnar. öm telur þvi aö
um slys hafi verið aö ræða og
nærvera Alberts gefi ekki
ástæðu eins og áður segir til
ásökunar um manndráp.
Annað atriði sem örn taldi
vafasamt aö ætla Albert hlut-
deild að, er þáttur hans I aö
koma likinu undan en svo að
segja strax eftir að atburðurinn
átti sér stað hafi hann ekið lík-
inu burt. Ekki sé hægt að dæma
Albert fyrir að koma undan
sönnunargagni, þar sem rann-
sókn hafi ekki veriö hafin. Hún
hefði ekki hafizt fyrr en löngu
seinna.
Þá geröi örn að umtalsefni
vitnisburð Alberts i öllum þeim
yfirheyrslum sem fram hefðu
farið. Þar hefði Albert skýrt vel
og ljóst frá málavöxtum og
hefði engu haft að leyna. Það
ásamt öðru gæfi til kynna sak-
leysi hans.
Varðandi þaðatriði að Albert
hefði öðru sinni veriö þátttak-
andi i flutningi á likamsleifum
Guðmundar Einarssonar i þrem
hlutum, taldi örn að Albert
hefði verið neyddur til þess og
gert það af ótta viö aö e.t.v. yrði
eitthvað gert við hann sjálfan.
Þetta eru helztu atriði úrmál-
flutningi Arnar Clausen og
itrekaði hann að lokum að sýkna
bæri Albert Klahn Skaftason af
öllum ákæruatriðum um hlut-
deild i morðinu á Guðmundi
Einarssyni sú refsing sem hann
þegar hefði hlotið með yfir-
heyrslum skrifum og ýmsu öðru
væri næg.
Engin ástæða til að
bendla Ásgeir við
málið
Næstur tók til máls Finnur T.
Stefánsson verjandi Asgeirs E.
Þórðarsonar eins hinna ákærðu.
Finnur sagöist ekki vilja gera
langt mál úr þátttöku Ásgeirs,
en hann færi fram á sýknun.
Asgeir haföi veriö dæmdur
fyrir ávana- og fikniefnadóm-
stólnum fyrir að smygla inn I
landið fikniefnum frá Hollandi.
Það undarlega viö þann dóm
hefði verið að naf n Asgeirs hefði
veriö birt, en þaö tiðkaöist að
öllu jöfnu ekki hjá þeim dóm-
stóli og mætti furöulegt teljast.
Finnur sagöi aö þau vanda-
mál sem Asgeirhefði lent i sam-
bandi við Guðmundarmálið nú
þegar væri næg refsing. Þau
væru félagslegs eðlis og fjöl-
skyldulegs og vegna þess eins
bæri að sýkna hann.
Þá tók Finnur fram að lokum,
aö Asgeir hefði siðan þetta
gerðist ávallt stundað vinnu á
sama stað, og ekki heföi reynt á
það hvernig honum myndi
ganga að fá vinnu annars
staðar.en reikna mætti fastlega
með þvi að þaö gengi erfiölega
vegna þeirra skrifa sem orðið
hafa um hlutdeild Asgeirs að
málinu.
Að máliFinnsT.Stefánssonar
tók Bragi Steinarsson vara-
rikissaksóknari til máls og
siðan verjendur á ný.