Tíminn - 09.11.1977, Blaðsíða 17

Tíminn - 09.11.1977, Blaðsíða 17
Miðvikudagur 9. nóvember 1977 17 líþróttir og félagar til A-Þýzkalands — þar sem þeir mæta Carl Zeiss Jena í 16-liða úrslitum UEFA- bikarkeppninnar ASGEIR Sigurvinsson og félagar hans hjá Standard Liege drógust gegn a- þýzka liðinu Carl Zeiss Jena í 16-liða úrslitum U E FA-bikarkeppni Ev- rópu í knattspyrnu og leika þeir fyrri leikinn á Ernest- Abbe-leikvellinum í Jena. Það verða þrir stórleikir leiknir i 16-liða ilrslitunum. Bayern Miinchen mætir v-þýzka liðinu Frankfurt og leika þvi þar saman tvö af sterkustu félagsliðum V- Þýzkalands. PSV Éindhoven frá Hollandi dróst gegn Braun- schweig frá V-Þýzkalandi og Ast- on Villa mætir Johann Cruyff og félögum hans hjá Barcelona. Drátturinn varð þannig i UEFA-bikarkeppninni: Frankfurt-Bayern Aston Villa-Barcelona Carl Zeiss-Standard Liege Eindhoven-Braunsvweig Ipswich-Bilbao Bastia (Frakkl)-Torino Magdeburg-Linz (Frakkl.) Dynamo Tiblisi (Rússl.)-Grass- hoppers (Sviss). Kemur Januz ekki til íslands? Danska blaðið „Politiken” segir að hann eigi erfitt með að fá sig lausan úr starfi sínu í Gdansk Danska blaðið „Politik- en" skýrði frá því fyrir stuttu að óvíst sé ,hvort Januz Czerwinski, sem þjálfar islenzka liðið í handknattleik muni þjálfa íslenzka liðið fyrir HM- keppnina í Danmörku. Blaðið segir að það hafi komiö fram, að Januz eigi erfitt með að fá frí frá starfi sínu, en hann er einn af æðstu mönnum íþrótta- háskólans í Gdansk — og séu Pólverjar ekkert hrifn- ir af að missa hann frá .starfi í langan tíma. „Politiken” segir að Januz hefði haft áhuga á þvi að fara til Islands i september en þá hefði hann ekki getað fengið fri frá störfum sinum. Það yrði mikið áfali fyrir is- lenzka landsliðið ef Januz getur ekki undirbúið það fyrir HM- keppnina. Islenzka landsliðið er nú i æfingabúðum i Gdansk i Pól- landi, þarsem Januz stjórnar æf- ingum liðsins, en fyrirhugað er að hann komi siðan með landsliðinu heim. Januz átti upphaflega að koma til Islands fyrir Norður- landamótið sem fór fram hér á dögunum — þá fékk hann ekki fri frá starfi sinu. Eftir Norðurlandamótið kom Birgir Björnsson formaður lands- liðsnefndarinnar, fram i sjón- Póllandi (Timamynd: Róbert) JOHN CONNOLLY. seldu tílArsenalá240þús.pund. Þeir hafa augastað á David Cross hjá W.B.A. og Geoff Merrickhjá Bristol City, en vit- að er að Gordon Milne, fram- kvæmdastjóri Coventry, ræddi við Merrick fyrir helgi. Greenwood gerir 5 breyt- ingar á landsliöshóp sínum, sem mætir ítölum á Wembley RON GREENWOOD landsliðseinvaldur Eng- lands, hefur gert fimm breytingar á enska lands- liðshópnum fyrir landsleik Englendinga gegn Itölum á Wembley á miðvikudaginn kemur en leikur þjóðanna er síðari leikur þeirra í HM-keppninni. Greenwood hefur valið Billy Bond, fyrirliða West Ham, Bob Latchford, Everton, Steve Copp- ell, Manchester United, Stuart Pearson, Manchester United, og hinn unga leikmann Manchester City, Peter Barnes, i lið sitt. Það hefur vakið mikla athygli að Bond skuli vera valinn — hann hefur ekki leikið með enska landsliðinu áður. En Greenwood fyrrum framkvæmdastjóri West BILLY BONDS,,, hinn baráttuglaði fyrirliði West llam. Ham, hefur mikla trú á hæfileik- um Bonds. Fjórir leikmenn voru settir út úr landsliðshópnum — Liverpool- leikmennirnir Ian Callaghan og Terry McDermott og Ipswich- leikmennirnir Trevor Whymark og Clive Wood. Italir hafa valið liö sitt sem leikur á Wembley, og er það skip- að sömu mönnum og unnu stór- sigur (6:1) yfir Finnum i Torino i HM-keppninni. Enski landsliðshópurinn er skipaður þessum leikmönnum: Markverðir: Ray Clemence, Liverpool Peter Shilton, Nott. For. Joe Corrigan, Man. City Aðrir leikmenn: Mick Mills, Ipswich John Gidman, Aston Villa Emlyn Hughes, Liverpool. Dave Watson, Man. City Trevor Cherry, Leeds Phil Neal, Liverpool Billy Bonds, West Ham Kevin Beattie, Ipswich Ray Wilkins, Chelsea Steve Coppell, Man. Utd. Peter Barnes. Man. City Paul Mariner, Ipswich Trevor Francis, Birmingham Kevin Keegan, Hamburger SV Bob Latchford, Everton Gordon Hill, Man. Utd. Stuart Pearson, Man. Utd. Trevor Brooking, West Ham Ray Kennedy, Liverpool varpi og var hann þá spurður um, hvenær Januz myndi koma. Birg- ir sagði þá, að landsliðsnefndin myndi fara með farseðil fyrir , Januz til Póllands, þar sem landsliðið myndi æfa undir stjórn hans. Birgir sagði þá að væntan- lega myndi Januz koma með landsliðinu til Islands, eða þá sið- ar. A þessu svari Birgis má sjá, að það er ekki enn orðið öruggt hvenær Januz gæti fengið sig lausan frá starfi. Vonandi fær Januz fri frá starfi sinu, en ef Pólverjar setja rautt ljós á hann þá yrði það enn eitt á- fallið fyrir islenzka landsliðið. — SOS JANUZ....hinn snjalli þjálfari frá Connolly á sölulista Birmingham he f ur oröið við ósk skozka útherjans John Conn- olly, að setja hann á sölulista. Þessi fyrrum leikmaður Ever- ton, óskaði eftir aö vera settur á sölulista, eftir að Sir Alf Ramsey breitti leikfyrirkomu- lagi Birmingham, með þvl að nota ekki útherja eins og hann geröi, þegar hann stjórnaði enska landsliöinu. — „Þessi breyting hefur oröið til þess, aö ég finn mig ekki meö liðinu”, sagöi Conolly. Aston Villa, Bolton og Stoke hafa áhuga á að kaupa Conn- olly. Þá má geta þess að Sir Alf er nú að leita eftir aöstoðar- manni — hann hefur mikinn áhuga á að fá fyrrum fyrirliða Birmingham, Ron Wylie, sem er a'ðstoðarframkvæmdastjóri hjá Coventry — og þá koma þeir Bobby Moore og Geoff Hurst einnig til greina. STEVE KINDON... er aftur kominn til Bumley. Burnley borgaði Clfunum 100 þús. pund fyrirhann, en þaö er sama upp- hæö og þeir greiddu Burnley fyrir Kindon fyrir 5 árum. STEVE HUNT...fyrrum leik- maður Aston Villa, sem lék með New York Cosmos i sumar, er nú byrjaöur aö æfa með Coven- try, og er reiknað með að hann byrji að leika með Coventry, þegar samningur hans við Cos- mos rennur út i desember. Olfarnir eru nú á höttum eftir nýjum miðherja i staðinn fyrir Alan Sunderland, sem þeir BILLY BONDS — kominn í enska landslidshópinn Helgi með FH HELGI Ragnarsson, knatt- spyrnumaöur úr FH, mun sjá um æfingar FH-liösins i hand- knattleik I vetur, en eins og viö sögöum frá fyrir stuttu, þá hætti örn Hallsteinsson meöFH-liöiö. Helgi mun fara eftir æfingapró- grammi, sem Geir Hallsteins- son, BirgirFinnbogason og Þór- arinn Ragnarsson hafa sett upp, enþeir leika allir meö FH-liöinu og eru iþróttakennarar aö mennt. Getrauna- áhugi að aukast 1 11. leikviku Getrauna komu fram 4 seölar með 10 réttum leikjum og var vinningur á hvern kr. 139.500.-. Voru allir seölarnir úr Reykjavik. Ennfremur voru 55 raðir meö 9 réttum leikjum og var vinning- urinn kr. 4.200.- á röðina. Eins og i siðustu viku komu engir seðlar fram með 11 eöa 12 réttum leikjum, þrátt fyrir það, að seldum rööum fjölgar stöö- ugt. Sennilega er skýringin á svo mörgum óvæntum úrslitum sú, að vellirnir eru að breytast vegna veðurfarsins, þurrir og sléttir vellir að versna meö stöðugri rigningu, og hefur slikt ávallt mikil áhrif á leik liðanna. Miðvikudaginn l6.-nóvember ferfram landsleikur á Wembley milliEnglendinga og ítala í for- keppni heimsmeistarakeppn- innar og er þegar uppselt. Sam- kvæmt upplýsingum enska knattspyrnusambandsins verð- ur landslið þess ekki með neinn forgang á laugardag, eins og var i fyrra, er flestir leikir i 1. deild féllu niður næsta laugar- dag fyrir landsleik. Enda er ó- hætt að fullyröa, að fleiri gætu tekið þetta sér til fyrirmyndar og sagt „The show must go on” þvl að öll röskun á skipulagðri deildakeppni verður alltaf til skaða fyrir fjöldann.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.