Tíminn - 03.12.1977, Síða 11
Laugardagur 3. desember 1977
11
LOKAST INNI í LYFTU
eftir Snjólaugu Bragadóttur frá Skáldalæk
Örlög Reykjavíkurstúlku ráðast þegar hún lokast inni í lyftu með ungum manni í skrif-
stofuhúsi i höfuðborginni. Hún ræðst mes lionum til starfa við byggingu orkuvers inni á
miðhálendinu þar sem aðeins eru fimm konur en tvöhundruð karlmenn. Ástir kvikna og
slokkna af afbrýði og öfund gera vart við sig í samfélagi sem aðeins lýtur sínum eigin
lögmálum. Það er ekki rétt að rekja hér söguþráðinn en það er Ijóst að það getur verið
örlagaríkt að lokast inni í lyftu. Það er misjafn sauður í mörgu fé og margt skeður á
miðhálendinu annað en spennufall af ástum og afbrýði; náttúruhamfarir valda slysum,
óvandaðir hlaupamenn ræna stórupphæðum og að lokum flýr Reykjavíkurstúlkan vestur á
land til þess að finna sjálfa sig.
Lokastinni
ílyítu
SnKtatí Bmgndoitir
frá Sknklalæk
HAMAR ÞÓRS
þrumufleygur norðursins
eftir Magnús Magnússon
Werner Forman myndskreytti.
í bókinni fer saman í máli og myndum snilld-
arleg, Ijóslifandi athugun og gagnger skil-
greining á sögu vikinga, goðafræði þeirra og
Ijóðlist. Þessi stórfallega bók kemur eins og
þrumufleygur inn í ríkjandi söguskoðun og
opnar áður óþekktar staðreyndir um norræna
menn. Sjálfsögð bók á hverju heimili.
hAlDAR pÓRS
ppumupevtjUR nopóuRSins
Hct|ur og pifoiípls! i vikisiÁíW
4 ; j 1 1
Heimsmeta
bókin þín
% r »
j
HEIMSMETABÓKIN ÞÍN
Heimsmetabók Guinnes í íslenskri
Ritstjóri: ömólfur Thorlacius
I þessarí bók cr sagt frá því sem er stærst, fremst,
hæst, fljótast, en einnig frá því minnsta og sein-
asta. Viltu vita um geimferðir, stærstu hús eða
elstu byggingar, um víddir geimsins eða þyngstu
konu veraldar, bestu mjólkurkú, stærstu risa eða
minnstu dverga? Við öllu þessu og þúsundum
annarra spuminga gefur HEIMSMETABÓKIN
ÞtN svaríð.
,$*ört.o»nept»k - tú Uifci*
tcm ég hútl i*ya árab>r
AktSIAm MACUfcfttí
Nauðlent á
Norðurhöfða
JoePoyer
NAUÐLENT
ÁNORÐURHÖFÐA
eftir Joe Poyer
í þýðingu Bjöms Jónssonar
Bókin segir frá bandarískum njósnaflugmanni sem
Rússar skjóta niður yfir Norður-Noregi. Á Norður-
íshafi geisar versta óveður sem komið hefur í manna
minnum en eigi að síður er herskipum Rússa og
Bandaríkjamanna á þessum slóðum skipað að finna
flugmanninn hvað sem það kostar og þar með hefst
æsispennandi eltingaleikur.
KARLUK
eftir William Laird McKinlay
þýðing Jón k. Gissurarson
Magnþrungin frásögn af rannsóknarleiðangrí
í norðurhöfum, saga sem Vilhjálmur Stef-
ánsson lét liggja f þagnargildi.
Þessi bók fyllir eyðu í annála um rannsókn-
arleiðangra í norðurhöfum — saga þessi hef-
ur ekki birst áður. Þetta er lifandi frásögn um
raunir reynslulausra manna, sem voru yfir-
gefnir á Lsnum. Einstök Iffslöngun í ótrúleg-
um þrcngingum bjargaði mörgum þeirra.
LIYINGSTONE
og Afríkuferðir hans
Fjórða landafunda bókin
eftir Elspeth Huxley í þýðingu
Kristínar Thorlacius
Finndu Livingstone hvað sem það kostar var sagt
við blaðamanninn Henry Morton Stanlcy, enda
stóð heimurinn á öndinni þegar Livingstone hvarf
inn i frumskóga Afrfku og ekkert hafði til hans
spurst árum saman. Liviiigstone var mestur
landkönnuður Afríku fyrr og siðar og saga hans
og Stanleys er æsispennandi og ein fræknasta
landkönnunarsaga ailra tfma.
DAGLEGT LÍF
Á DÖGUM KRISTS
eftir A. C. Bouquet í þýðingu
séra Jakobs Jónssonar
Þetta er heillandi bók sem eykur skilning manna á
sögum Biblíunnar. Hún er æði góð heimild, sérlega
læsileg og gefur skýra og skiljaniega mynd af menn-
ingu íbúa Paiestínu. Hún bregður upp skýrri mynd af
húsum, fatnaði og daglegu Iffi fólksins, högum þess
og háttum. Mörghundruð myndir fullkomna þá
mynd af Gyðingalandi fyrir tvö þúsund árum, sem
lcsandinn lifir sig inn í við lesturinn.
Metsölubókin eftir Hafliða Vilhelmsson:
LEIÐ 12, HLEMMUR—FELL
komin í annarri útgáfu
Samtfðarsaga úr höfuðborginni. Skrífuð af mikilli þekkingu á Iffi og kjörum unga fólksins
og e.t.v. sá samtfðarspcgill þar sem margir myndu þekkja sig og sfna, ef þeir bara litu f
spegilinn opnum augum.
Eriendur Jónsson sagði f Mbl: „Hafliði er hress og kátur ungur höfundur, ódeigur, ófeim-
inn, hreinn og beinn og að minu viti hleypidómalaus. Saga hans gcymir Iffssannindi ...
Höfundurínn dansar af frásagnargleði... Þetta er einmitt bók til þess að taka með sér hvert
sem farið er — út á sjó, upp f flugvél, eða f bólið á kvöldin...
„HÖFUNDURINN DANSAR AF FRÁSAGNARGLEÐI"
f ^
Geymið auglýsinguna
Öm&Örlygur
Geymið auglýsinguna