Tíminn - 03.12.1977, Síða 12
Geymið auglýsinguna
SÍGILDAR SÖGUR MEÐ LITMYNDUM
GULLEYJAN og RÓBINSONF J ÖLSKYLD ANI þýðingu Andrésar
Kristjánssonar
Bækurnar eru í stóru broti og með litmyndum af hverri síðu.
Þessi bókaflokkur hefur þegar hlotið heimsfrægð. t fyrra komu tvær fyrstu bækurnar,
HEIÐA og RÓBINSON KRÚSÓ sem seldust báðar upp löngu fyrir jól.
Nú bætast við GULLEYJAN eftir Robert Louis Stevensen snjöll og æsileg sjóræningjasaga,
þar sem Simmi, Jón Silfri og Svarti Seppi koma við sögu, og RÓBINSONFJÖLSKYLDAN
eftir Johann Wyass. Saga af skipbrotsfólki sem dvelst áratugum saman á eyðiey og vex að
þreki og þroska við hverskonar mannraunir og hættuspil.
Sjóræningjabækurnar: Bókaflokkur fyrír börn og unglinga um fær-
eysku þjóðhetjuna Magnús Heinason sem uppi var á 16. öld.
OFURHUGAR HAFSINS
gerist í Færeyjum 1562. Magnús Heinason þráir að komast út i heiminn. Hann dreymir um
hættulegar sjóferðir og orrustu við sjóræningja. Hann flýr að heiman til Noregs, ásamt vini
sinum, fslendingnum Pétri.
SJÓRÆNINGJAR í SJÓNMÁLI
Sjóræninginn grimmi, Don Bredo Alvarez, hefur tekið Magnús Heinason og vin hans Jap til
fanga, og gert að galeiðuþrælum.
Sjóræningjar í sjónmáli |
pp . gJSU
SKÁK FYRIR UNGA BYRJENDUR
Eftir William T. McLeod og Ronald Mongredien
Teikningar eftir Jean-Paul Colbus
GUÐMUNDUR ARNLAUGSSON ÞÝDDI
Það skiptir máli hvernig fyrstu skrefin eru tekin og vart er hægt að bjóða
betri leiðsögn en í fylgd höfundar bókarinnar og í þýðingu Guðmundar
Amlaugssonar. Enginn veit hvar hæfileikarnir leynast. Ef til vill er stór-
meistaraefni f fjölskyldunni. Látið ekki máta ykkur — eignist réttu bókina.
ja
Ef þú fyígtr feíöbeénÉngunum sög af sögi
geturþústrax náö tökum á leiknum
og orfHö sfyngur akákmaöur
FYRIR
UNGA
BYRJENDUR
LÁTIÐ EKKI MÁTA YKKUR — EIGNIST RÉTTU BÓKINA
HRINGBÆKUR
STÍGVÉLAÐI KÖTTURINN
og HANS OG GRÉTA
Enn önnur nýjung. Myndirnar eru unnar f þrivfdd þannig að
hver opna myndar einskonar leiksvip, þar sem sagan rfs upp af
bókarspjöldunum og talar sfnu sjálfstæða myndmáli til barn-
anna. Að lestri loknum er hægt að leggja kápuspjöldin saman
og myndar þá hver bók fimm leiksvið og þau öll fimm eins-
konar hringekju sem hægt er að hengja upp f barnaherberginu
til skrauts og augnayndis, til sffelldrar upprif junar sögunni og
daglegra samskipta við sögupersónur.
LOTTA LEYSIR GÁTUNA
eftir May Engvall
Spennandi leynilögreglusaga. Lotta er ell-
efu ára gömul. Kvöld eitt sér hún pakka
varpað niður úr þyrlu. Hún fer, ásamt vini
sfnum, Lennart, að rannsaka málið, og úr því
verður hörkuspennandi leynilögregluævin-
týri.
Geymið auglýsinguna
• •
Orlygur