Tíminn - 03.12.1977, Síða 15
Laugardagur 3. desember 1977
15
Vegurinn heim
Jón Helgason: ORÐSPOR Á
GÖTU. (Smásögur). Skuggsjá.
Hafnarfirði, 1977. 160 bls.
Svo er að sjá sem Jón Helga-
son hafi um sinn horfið frá ritun
sagnaþátta. Kemur nú frá hon-
um þriðja smásagnasafnið. Hið
fyrsta, Maðkar i mysunni.kom
1970, og Steinar i brauðinu fimm
árum siðar.
Smásögur Jóns taka með eðli-
legum hætti við af sagnaþáttun-
um. Hann leitar einkum efni-
viðar i mannlífi og lifsháttum
fyrri ti"ðar, eða þá lifi sem
sprottið er Ur grónum jarðvegi.
Ahuginn beinist i sagnaþáttun-
um einkum að sérkennilegum
örlögum og manngerðum,
gjarnan mönnum sem lenda
utangarðs. í smásögunum eru
slikir einfarar lika oft leiddir
fram. Mannlýsingar Jóns eru
einfaldar i sniðum, frásagn-
arháttur skýr og öruggur, mál-
far auðugt og lipurt.
Allt blasir þetta við i nýju
bókinni. En ég efast um að frá-
sagnarháttur Jóns hafi nokkurn
tima verið liðlegri en nú: hann
hefur fullt vald á viðfangsefni
sinu og fipast hvergi. Stillinn er
nær talmáli en fyrr og felldur
með nærfærni að lifsmynd
þeirri og manngerð sem greint
er frá.
Þetta sést glögglega i fyrstu
sögunni, Fengin Fia. Þar segir
frá einbúa nokkrum, Arna i
Gröf: Hann þarf á ráðskonu að
halda og fær til sin mæðgur
tvær. Náungi á næsta bæ tælir til
sin dótturina en Arni situr uppi
með roskna móður hennar.
Sagan er mestöll sögð frá
sjönarhóli einbúans og verður
hann ljóslifandi: einn af þeim
búrum sem við þekkjum svo vel
úr bókum allt frá Pilti og stúlku.
Nokkrar linur úr sögunni verða
að nægja til að sýna kankvisan
stilsháttinn:
„Hann ætlar að stökkva, það
erbezt hann reyni þær, þessar,
og tiðin gefur svo að sanna,
hvort þær lukkast skár en hinar
biðja hann að skreppa eftir
þessu. Hann kæmist betur frá
þvi þannig i kostnaðarlegu tilliti
heldur en seti undir þær
kaupstaðardrossiu, þvi að þeir
eru fram úr hóf i dýrir á þeim til
allra vika, leigubilstjórarnir”.
Vegur i inyrkri er saga af
farmanni á heimaslóðum: hann
hlýtur að hrekjast undan vindi
og báru og á i rauninni hvergi
heima, slitinn úr tengslum við
átthaga sina og lifið þar. Hér er
vel farið með kunnuglegt efni.
Sama má segja um Straumend-
ur, nærfærnislega sögu um
feiminn sveitastrák og jafn-
öldru hans úr kaupstaðnum.
Bindur hann vonir sinar við að
geta horft með henni á stráum-
endur, sem auðvitað láta ekki
sjá sig fyrr en hún er farin. — 1
Sakramenti segir frá gömlum
bónda sem er að geispa golunni
og lætur reka sauði sina fyrir
baðstofugluggann svo hann
megi leiða þá augum áður en
hann skilur við:” ... þeir stóðu
þarna eins og ungir guðir og
horfðu á hann með velþóknun.
Það brá fyrir bliki djúpt i hálf-
slokknuðum augum Sigurðar,
og slappar varimar bærðust
viðlika og máttdregnir vöðvarn-
ir væru að reyna að særa fram
bros.”
Sumardagarer undirfurðuleg
frásögn af ungu skáldi sem
dvelst við skriftir i sumarbústað
og keppir um hylli stúlku á
næsta bæ við sambýlismann
sinn. Auðvitað lýtur skáldið i
lægra haldi. —Mestur húmor er
Jón Helgason.
isögunni Kvöldin á Kormáksgöt
unni.um sérlundaðan ungan úr-
smið sem hefur ofan af fyrir
mæðgum nokkrum og annast
úrsmiðaverkstæði húsbóndans i
ganglóumar, sem hann hefur
prófað. Og þá er ekki annað
betra til ráðs að taka en hringja
i Sigga á Flötum, hann hefur
jeppann á bæjarhlaðinu, og
sjúkralegu hans. Þetta er kimi-
leg erótisk saga. Sögukorn úr
Geilárdölum er ófrumleg saga
af harðskeyttum hreppstjóra og
stoltri ekkju. — Einna bezt sögð
er siðasta saga bókarinnar,
Maður frá Kaldbak, um lifs-
harm Nabba Færeyings. Þar
heldur höfundur eftirvæntingu
lesandans vakandi allt til loka.
Þetta sem nú var sagt um
sögurnari Orðsporiá götugefur
auðvitað litla hugmynd um þær.
Þar eru í kunnuglegum föstum
sniðum og hnepptar um glögg-
lega markaðán kjarna. Þær
manngerðir og aðstæður sem
hér er lýst þekkjum við flestar
vel úr eldri bókmenntum. En
hitt er vert að undirstrika, að
Jón Helgason er engin eftir-
herma. Ef mönnum þykir
mannskilningur hans.viðhorf og
frásagnarháttur likjast öðrum
eldri höfundum, stafar það ein-
ungis af þvi að hann er vaxinn
úr sama menningarlegum jarð-
vegi og þeir.
Smásagnaformið lætur Jóni
Helgasyni vel, af þvi að áhugi
hans beinist að einstaklingnum.
1 sumum sagnaþáttum sínum
hefurhann brugðið upp viðtækri
aldarfarsmynd, en það lánast
ekki eítis vel og þeir þættir sem
eru hnitaðir um æviferil og
örlög sérkennilegs manns, kyn-
legs kvists. 1 þessu fer Jóni likt
og mörgum öðrum sagnamönn-
um okkar. Persónusagan hefur
löngum verið Islendingum hug-
leikin. 1 smásögum sinum er
Jón laus við skorður heimilda og
getur gefið mannskilningi si'n-
um frjálsan vettvang.
1 nútimasamfélagi hefur smá-
sagnaformið átt örðugt
uppdráttar. Það er eins og sú
reynsla sem samtiðin færir
mönnum að höndum rúmist illa
i afmörkuðu, luktu formi. Nú
virðast fáir leggja rækt við
smásöguna, og sagt er að ýmsir
útgefendur fúlsi við slikum bók-
um. Timarit eru lika flest dauð,
en þau voru kjörinn vettvangur
smásagnahöfunda. Jón Helga-
son leggur þó ótrauöur rækt við
þetta form. Ég hygg að beztu
sögur hans myndu sóma sér vel
i úrvali islenzkra smásagna.
Væri raunar gaman að efna til
sliks úrvals, enda rúmir tveir
áratugir siðan það var siðast
gert. Orðspor á götu minnir á
þessá bókmenntagrein og er til
marks um það hvernig enn er
hægt að segja sögur á Islandi.
En ef smásagan á eftir að lifa
nýtt blómaskeið verður hún með
öðrum svip en höfundar af kyn-
slóð Jóns Helgasonar hafa gætt
sinar sögur. Þá myndu sögurn-
ar fá örari hrynjandi og veröa
fjölþættari myndir af hraðfara
lifi nútiðar, sem hefur rofið þá
einingu manns og náttúru er
ráðiðhefur svipmóti bókmennta
okkar bókmennta ökkar fram á
siðustu tima.
Gunnar Stefánsson.
bókmenntir
Aðstandendur Galleris Sólon tslandus á blaðamannafundi.
Aðstandendur
Gallerís Sólon
íslandus sýna
í tilefni árs
afmælis
SSt — í dag, 3. des. verður opnuð i
Galleri Sólon tslandus Aðalstræti
sýning og að þessu sinni eru það
aðstandendur Gallerisins sem
sýna verk sin.
A sýningunni verða margs
konar myndverk og listmunir til
sölu og má þar nefna málverk,
klippmyndir, kermik og textil-
vefnaður.
Þessi sýning er haldin i tilefni
þess að 3. des er liðið ár frá þvi að
Galleriið var opnað. Aðstandend
ur þess sögðu á blaðamannafundi
að nokkuð væri á huldu með
framtið Gallerisins og það væri
ekki, sizt undir þessari sýningu
komið að halda mætti áfram
þessari starfsemi, en hún var og
er nokkur nýlunda i listlifi borg-
arinnar og hefur almennt hlotið
góðar viðtökur.
Þessi sýning er sérstök að þvi
leyti, að um leið og verk seljast
verða önnur ný hengd upp og
efgestir sýningarinnar ákveða að
kaupa verk taka þeir þau með sér
heim þegar þeir hafa skoöað sýn-
inguna.
Sýningin verður opin allan
desembermánuð og mun opn-
unartimihennar verða sá samiog
verzlana rétt fyrir jólin, en virka
daga verður hún opin frá 1-6.
Vöruafgreiðsla innan-
landsflugs flytur
áþ — Um þessar mundir standa
yfir breytingar f afgreiðslu Flug-
leiða á vörum til útlanda. Vöru-
móttaka hefur verið fram að
þessu I vöfuafgreiðslu innan-
landsflugs á Reykjavikurflugvelli
en flyzt nú um helgina að Bilds-
höfða 20. Vörumóttakan þar opn-
ar n.k. mánudagsmorgun.
Um þessar mundir eru rúm tvö
ár liðin siðan Vöruafgreiðsla
Flugleiða fluttist að Bildshöfða
20, en hafði áður verið á fjórum
stöðum í borginni. Nú standa
fyrir dyrum breytifigar á vöruaf-
greiðslunni og veröur hún að
nokkru endurskipulögð. M.a.
verður tekin i notkun tölva sem
mun flýta fyrir allri afgreiðslu.
GIRMI
hraðsuðupottar
Verð kr. 14.355
Verð kr. 12.750
Sendum i póstkröfu
RAFIÐJAN
KIRKJUSTRÆTI 8 - SÍMI (91) 1-92-94