Tíminn - 04.01.1978, Blaðsíða 5
ílJIÍ.'AiHH!1
Miövikudagur 4. janúar 1978
5
a viðavangi
I alla enda og kanta
„Hvaö liður baráttunni fyrir
sósialisma á tslandi?” spyr
leiðarahöfundur Þjóðviljans i
gær og verður að vonum dálit-
ið ringlaður við svo viður-
hiutamikla fyrirspurn, þótt
ekki verði honum með öllu
svarafátt.
Eftir að hafa lýst veröldinni
örfáum orðum, eins og hiín er
að mati ieiðarahöfundar, gef-
ur hann cftirfarandi heiðræði:
,,Ættu allir þeir sem nefna
sig sósialista að ganga hægt
um gleðinnar dyr og gá að
sér.”
Munu margir mæla að hér
sé heilt ráðið.
En að svo mæltu segir leið-
arahöfundur:
,,Á siðustu timum kann
mörgum bilifismanni að virð-
ast það merkingarlitið að
kalla sig sósialista, svo marg-
ir og ólikir hópar sem skreyta
sig með þeirri nafngift, og sd
tið er reyndar fyrir
iöngu liðin þegar bezta fólk
trúði þvi að sósialisk bylting
hlyti undir öllum kringum-
stæðum að færa þjökuðum lýð
himnariki á jörð og leysa flest
mannleg vandamál.”
i raun og veru hefur leiðara-
höfundur Þjóðviljans með
þessum orðum svarað fyrir-
spurn sinni endanlega. Annars
vegar veit enginn stundinni
lengur hvað þetta útjaskaða
hugtak „sósialismi” merkir
eiginlega nú orðið, vegna þess_
að flestir virðast vilja eigna
sér það. Hins vegar eru jafn-
vel þeir sem i einlægni leggja
trúnað á hugsjónina farnir að
draga það mjög i efa að hún
muni færa mannkyninu mikla
blessun i framkvæmd. Þessar
efasemdir styðjast að sjálf-
sögðu við hörmulega reynslu
sem fengizt hefur af fram-
kvæmdinni.
Eftirsóttur
titill
t siðara hluta leiðara sins
kemst höfundurinn að þeirri
niðurstöðu að „sósialisti” sé
sama sem „jafnaðarmaður”.
Þetta má rétt vera frá mál-
söguiegu sjónarmiði, en allir
tslendingar vita að áratugum
saman hefur ekki verið lögð
sania merking i þessi tvö orð
hérá landi. „Jafnaðarmaður”
hefur verið notað i merking-
unni: Alþýðuflokksmaður —
krati — sósfaldemókrat, en
„sósialisti” i merkingunni:
marxisti — kommúnisti — sá
scm aðhyllist allsherjarþjóð-
nýtingu og alræði öreiganna
eða m.ö.o. flokksins.
t hugleiðingum leiðarahöf-
undar Þjóðviljans um þetta
efni kemur fram að á rit-
stjórnarskrifstofum Miögarðs
hf. rikja nú i alveldi hefðbund-
in sjónarmið sósialdemó-
krata, en fáar stjórnmála-
hreyfingar hafa notið jafnlit-
illar hrifningar Þjóðvilja-
manna fram til siðustu ára.
Er nú fróðlegt að sjá og
heyra hvernig Alþýðuflokks-
menn taka þessum sinnaskipt-
um Alþýðubandalagsins, en
það er sjálfur formaður fram-
kvæmdastjórnar Alþýðu-
bandalagsins sem er höfundur
þessa krataleiðara. Hvort
mun Alþýðuflokkurinn fagna
eða fyrtast við, eða munu
kratarnir endast til þess að
leggja trúnað á hollustuyfir-
lýsinguna yfirleitt?
En hvað segja
kratarnir?
Það er ljóst fyrir löngu að
hugmyndaleg leit þeirra sem
til skamms tima kenndu sig
við sósialisma og Karl Marx er
orðin harla örvæntingarfull.
Leiðari Þjóðviljans i gær gef-
ur til kynna að Alþýðubanda-
lagið hefur áhuga á þvi að
veröa krataflokkur. Stendur
sá ásetningur vafalitið að ein-
hverju leyti i sambandi við
áhuga Alþýðubandalags-
manna á þvi að drepa Alþýðu-
flok kinn.
Hætter nú við að allmargir
flokksmenn i Alþýðubanda-
laginu séu leiða rahöfundi
Þjóðviljans siður en svo sam-
mála um ágæti þess að vera
krati. Og við þvi má svo sem
búast að kratarnir sjálfir séu
miður glaðir við þennan ný-
stárlega félagsskap. Aðrir
hafa alla ástæðu til að fagna
þvi ef Alþýðubandalagið lýsti
þvi yfir í eitt skipti fyrir öll að
það og allir fuiltrúar þess séu
fallnir frá trú sinni á „kórrétt-
an” marxisma, byltingar-
hreyfingar og alræði „öreiga-
flokksins”, — og sýndu það
siðan iverki að þeir aðhyllast
lýðfrjálst velferðarsamfélag
af heilum hug, þótt róttækir
reyni að vera innan þess
ramma.
Vilja fá
að vera
„kommar”
Von sem þessi á þvi miöur
alllangt i það að geta rætzt.
Vitað er að innan Alþýðu-
bandalagsins eru menn allra
sizt samdóma um það að vera
eða verða kratar. Flestir i
þeim herbúðum vilja halda
áfrain að vera „kommar” og
þeim finnst, níörgum hverjum
a.m.k. heiður að þeirri nafn-
gift.
1 flokki „sósialistanna” eru
menn hins vegar að þvi er
virðist orðnir sammála um
þaö að bera kápuna á báðum
öxium, slá úr og i um raun-
verulegt innihald og merkingu
margorðrar stefnuskrár sinn-
ar og vera sannarlega opnir i
alla enda og kanta, ef slikt
gæti orðið til þess að þeim
féllu einhver ný óánægjuat-
kvæði i hlut. JS
Skipuð stjórn
Þj óðhátí ðar sj óðs
GV— Af alþingi hafa verið kosnir
I stjórn Þjóðhátiðarsjóðs sam-
kvæmt 6. grein skipulagsskrár
fyrir Þjóðhátiðarsjóö Gisli Jóns-
son, menntaskólakennari, Ey-
steinn Jónsson fyrrv. ráðherra og
Gils Guðmundsson alþingismað-
ur.
1 varastjórn sjóðsins voru kosn-
ir af alþingi Erna Ragnarsdóttir,
innanhússarkitekt, Ásgeir
Bjarnason, forseti sameinaðs al-
þingis, og Arni Björnsson þjóö-
háttafræðingur. Rikisstjórn ts-
lands hefur tilnefnt Björn Bjarna-
son skrifstofustjóra forsætisráðu-
neytisins, til setu f stjórninni, og
hefur forsætisráðherra skipaö
hann formann sjóðsstjórnar.
Rikisstjórnin tilnefndi Þór Magn-
ússon, þjóðminjavörð, sem vara-
mann Björns I stjórninni.
Seðlabanki tslands hefur til-
nefnt Jóhannes Nordal, seðla-
bankastjóra, sem sjóösstjórnar
mann, og Guðmundur Hjartar-
son, seðlabankastjóri, hefur verið
tilnefndur varamaður Jóhannes-
ar Nordal.
Bifreiðaeigendur
Athugið!
Við lagfærum hemla á öilum gerðum bif-
reiða. 17 ára starfsreynsla tryggir yður
góða þjónustu. Framkvæmum ennfrem-
ur almennar viðgerðir ef óskað er. Höfum
ávallt fyrirliggjandi hemlahluti i allar
gerðir ameriskra bifreiðá á mjög hag-
stæðu verði. ,
Stilling hf.
Skeifan 11 — Simi 3-13-40
pwMmnMiii
I
V.íUs'
i. '1
Eftirtaldar stöður ers lausar til umsóknar
við nýja heilsugæslustöð að Asparfeili 12 i
Breiðholti:
A. HJÚKRUNARFRÆÐINGUR.
B. LÆKNARITARI. Leikni I vélritun, gott vald á Islensku
og nokkur tungumálakunnátta áskilin.
Starfsreynsla æskileg.
Laun samkvæmt kjarasamningum
Hjúkrunarfélags Islands og Starfsmanna-
félags Reykjavikurborgar við Reykja-
vikurborg.
Umsóknir sendist skrifstofu Heilsuvernd-
arstöðvar Reykjavikur fyrir 13. janúar nk.
U
■fív
k
n
m
%
m
Vy*.
•f-V-
■y-’
v>>
Heiísuverndarstöð Reykjavikur £
'if-
Tíu hljóta
fálkaorðu
A nýársdag sæmdi forseti Is-
lands eftirtalda menn riddara-
krossi hinnar islenzku fálkaorðu:
Frú önnu Bjarnadóttur, fv.
kennara, fyrir fræöslu- og félags-
málastörf.
Frú Geirþrúöi Asgeirsdóttur,
hjúkrunarkonu, fyrir hjúkrunar-
og liknarstörf.
Ingimar Finnbjörnsson, fv. út-
gerðarmann, Hnifsdal, fyrir
sjávarútvegs- og félagsmála-
störf.
Ingólf Daviðsson, grasafræð-
ing, mag. scient., fyrir fræöslu-
og ritstörf á sviöi náttúrufræði.
Jón Nordal, skólastjóra Tón-
listarskólans I Reykjavik, fyrir
tónlistarstörf.
Magnús Runólfsson, frv. skip-
stjóra, fyrir skipstjórn og störf aö
félagsmálum.
Frú Sesselju Jónsdóttur, Dals-
mynni, Noröurárdal, Mýrasýslu,
fyrir aöhlynningu feröafólks um
langt skeið.
Frú Þóru Jónsdóttur fyrir
félags- og menningarmálastörf.
Þorvald Brynjólfsson, kirkju-
smiö, Hrafnabjörgum, Hval-
fjarðarstrandarhreppi, fyrir
kirkjusmiði.
Ævar R. Kvaran, leikara, fyrir
leiklistarstörf.
Byggingavörur
Sambandsins
Suðurlandsbraut 32 • Simar 82033 • 82180
Hitablásarar
úrvals þýskir hitablásarar, 3 stærðir.
Hitaaf köst 22-75 þús. kcal./h.