Tíminn - 31.01.1978, Qupperneq 2
2
Þriðjudagur 31. janúar 1978.
Empain
ófundinn
— fréttaflutning-
ur talinn
skaölegur
París/Reuter. Franskar frétta-
stofur fengu i gær harðar ákúrur
frá innanrikisráðuneytinu, en i
tilkynningu frá því sagði, að
hvers konar slúður og æsifréttir
af ráni beigiska milljónamær-
ingsins Edouardo-Jean Empain
stofnuðu lif ihans ihættu. Einkum
var talið skaðvænlegt aö dylgjað
er með það að tengsl séu milli
ræningjanna og fjölskyldu bar-
ónsins.
Vika er siðan baróninum var
rænt, en komið hafa fram kröfur
um 20 milljónir dollara I lausnar-
gjald. Talsmaður innanrikisráðu-
neytisins sagði að um 14.000 lög-
reglumenn taki nú þátt i leitinni
að Empain. Aukin athafnasemi
iögreglunnar hefur ekki leitt til
þess að spurzt hafi til afdrifa bar-
ónsins, en hins vegar hafa 56
glæpamenn af ýmsu tagi verið
handteknir er lögreglan reyndi að
grafast fyrir um slóð hins týnda
baróns.
Atvinnuleysi
eykst í
Danmörku
Kaupmannahöfn/Reuter. A árinu
1977 voru að meðaltali 154 þúsund
manna atvinnulausir i Danmörku
eða 7,3% alla vinnufærra i land-
inu. Er þetta talsverð hækkun frá
árinu áður, því 1976 var atvinnu-
leysið hjá grannþjóð okkar 6,1 af
hundraði. Mest varð atvinnuleys-
ið i desember siðastliðnum, en þá
gengu 8,9% vinnuafis Dana at-
vinnulaus. í nóvember sl. voru
7,5% atvinnulausir, og 7,9% i des-
ember 1976.
Afvopnun-
arviðræður
hafnar að
nýju
Vin/Reuter. Austur- og Vestur-
veldin hefja i dag að nýju samn-
ingaviðræður um minnkun her-
afla i Mið Evrópu. Vonast er til að
langþráður árangur verði nú af
viðræðunum. Nú eru liðin ná-
kvæmlega fimm ár siðan NATO
þjóðirnar 12 og sjö aöildarþjóðir
Varsjárbandalagsins hófu samn-
ingaumleitanir um fækkun i herj-
um sinum.
Báðir aðilar hafa löngum
brigzlað hvor öðrum um að segja
ósatt til um fjöida hermanna i
helztu herstöðvum Mið-Evrópu.
en nú er talið að brátt verði sætzt
á ákveðnar höfðatölur, sem að
öllum likindum er undirstaða
þess að hægt sé aö fá yfirsýn yfir
fækkunina.
Viðræðum var frestað hinn 15.
desember, en talsmenn beggja
bandalaganna hafa sagzt vongóð-
ir um að samningar náist nú inn-
an nokkurra vikna.
Akureyri.
Ekið á
gamlan mann
á gangbraut.
ESE — Um kl. 17 I gær varð al-
varlegt umferðarslys á Akureyri.
Ekið var á 87 ára gamlan mann á
gangbraut á Hörgárbraut.
Tildrög slyssins voru þau, að
maðurinn var á leið vestur yfir
Hörgárbraut, en Skoda bifreið
var ekið suður götuna á vesturak-
rein. Skipti það engum togum, að
billinn lenti á manninum, sem við
það féll i götuna. Maðurmn er tal-
inn hafa hlotið alvarleg höfuð-
meiðsl, en upplýsingar um liðan
hans lágu ekki fyrir, er haft var
samband við Fjórðungssjúkra-
húsið á Akureyri.
Bifreiðaeigendur, athugid að þetta er allt á mjög
hagstæðu verði og sumt á mjög gömlu verði.
Gerið verðsamanburð áður en þið festið kaup
annars staðar.
Bílavörubúðin Fjöðrin h.f.
Skeifan 2 simi 82944
HDámi
Tekst Young og Owen að fá skæruliða og stjórnarhermenn til að
leggja niður vopn?
Malta:
Lítill árangur
af Ródesíu-
viðræðunum
Valletta, MaUa/Reuter. Þeldökk-
ir skæruliðaleiðtogar lögðu i gær
fram gagntillögur um skilyröi
varðandi vopnahlé. Viðræður
ieiðtoganna Robert Mugabe og
Joshua Nkomo við utanrikisráð-
herra Breta David Owen, og
sendiherra Bandarikjanna hjá
S.Þ. Andrew Youngstóðu I fjórar
klukkustundirLen að þvi loknu af-
hentu ródesisku blökkumanna-
leiðtogarnir viðmælendum sínum
skjöl varðandi friðartillögur.
Talið er að blökkumannaleið-
togarnir geri grein fyrir kröfum
sinum um meirihlutastjórn
biökkumanna i Ródesiu i tillög-
unum er afhentar voru i gær, en
skærur milli stjórnarhersins og
skæruliða hafa nú staðiö i fimm
ár.
David Owen hefur ekki viljað
ræða árangur viðræðnanna, en
sagði i gær, að „hann tcldi ekki
rétt að segja að árangur hefði
náðst.”
Soares tekinn
við embætti
Varnarmála-
0
ráðherra Isra-
Audi 100S-US.................... hljóökútar aftan og framan
Austin Mini............................hljóökútar og púströr
Bedford vörubila.......................hljóökútar og púströr
Bronco 6 og 8 cyl......................hljóökútar og púströr
Chevroiet fólksbila og vörubila..... . hljóðkútar og púströr
Datsun disel — 100A — 120A — 1200—
1600— 140— 180 ........................hljóðkútar og púströr
Chrysler franskur......................hljóðkútar og púströr
Citroen GS................. ..........hljóðkútar og púströr
Dodge fólksbila........................hljóökútar og púströr
D.K.W. fólksbila.......................hljóðkútar og púströr
Fiat 1100 — 1500 — 124 —
125 — 128 — 132 — 127 — 131 .......... hljóðkútar og púströr
Ford, ameriska (ólksbila...............hljóökútar og púströr
Ford Concul Cortina 1300 — 1600.......hljóðkútar og púströr
Ford Escort...........................hljóökútar og púströr
Ford Taunus 12M — I5M — 17M — 20M . . hljóökútar og púströr
llillman og Commer fólksb. og sendib... hljóðkútar og púströr
Austin (íipsy jeppi....................hljóðkútar og púströr
lntcrnational Scout jeppi.............hljóðkútar og púströr
Rússajeppi (i AZ 69 ...................hljóðkútar og púströr
VVillys jeppi og Wagoner...............hljóðkútar og púströr
Jeepster V6 ...........................hljóðkútar og púströr
,-at*a................................lútar framan og aftan,
I.androver bensin og disel.............hljóðkútar og púströr
Mazda 616 og 818.......................hljóökútar og púströr
Mazda 1300 ............................hljóðkútar og púströr
Ma/.da 929 ......................hljóökútar framan og aftan
Mercedes Benz fólksbila 180 — 190
-00 220 — 2.>o — 280.................hljóökútar og púströr
Mercedes Benz vörubila.................hljóðkútar og púströr
Moskwitch 403 — 408 — 412 .............hljóðkútar og púströr
Morris Marina l,3og 1,8 ...............hljóðkútar og púströr
Opel Itekord og Caravan................hljóðkútar og púströr
Lissabon/Reuter. Mario Soares
sór i dag öðru sinni embættiseið
sem forsætisráðherra Portúgals.
Sósialistar verða þvi áfram við
völd, en að þessu sinni eru þrir i-
haldsmenn i stjórn Soaresar.
Aðrir I stjórninni eru 10 sósialist-
ar og tveir óháðir. Annar hinna
óháðu ráðherra er herforingi.
M innihlutast jórn Soaresar
hrökkiaðist frá völdum I desem-
ber vegna andstöðu þingmanna
við efnahagsstefnu hennar. Talið
er nú,, að Soares muni taka upp
þráðinn að nýju og reyna að koma
fram efnahagsáætlun sinni, þvi
efnahagur Portúgala er vægast
sagt bágborinn.
Samsteypustjórnin hefur verið
harðlega gagnrýnd af kommún-
istum, sem eru fjórði stærsti
stjórnmálaflokkurinn I Portúgal.
Búast má við að Soares muni
reynast erfittað róa á móti
kommúnistum, einkum ef and-
staöan á eftir að harðna.
els til Kairó
Tel Aviv, Kairó/Reuter. Aðstoð-
arutanrikisráðherra Bandarikj-
anna Athertonkom til Kairó i gær
og sagði að árangur hefði orðið af
viðræðum hans i tsrael og viðræð
ur verði teknar upp að nýju innan
skamms. Atherton mun ræöa við
utanrikisráðherra Egyptalands i
dag. Einnig er von á Ezer Weiz-
man varnarmálaráðherra tsraels
til Kairó i dag til að hefja að nýju
viðræður i hermálanefndinni.
Viðræður i stjórnmálanefnd
egypzk-israelsku friðarviðræðn-
anna liggja enn meiri. Talið er að
fundir hcrmálanefndarinnar
muni snúast um búsetu Gyðinga á
herteknu svæðunum, og hern-
aðarbækistöðvar tsraelsmanna i
norðurhluta Sinai eyðimerkur-
innar. Weizman mun dvelja eina
viku I Egyptalandi.
Opel'Kadctt og Kapitan................hljnökútar og púströr
Passaf .........................hljóðkútar framan og aftan
Peugeot 204 — 404 — 505 ..............hljóðkútar og púströr
Rambler American og Classic ..........hljóðkútar og púströr
Range Rover...........Hljóðkútar framan og aftan og púströr
Renault R4 — R6 — R8 —
R10 — R12 — R16 ......................hljóökútar og púströr
Saab 96 og 99.........................hljóðkútar og púströr
Scania Vabis 1.80 — 1.85 — I.B85 —
1.110 — I.Bl 1(1 — l.B 140......................hljóðkútar
Simca fólksbila....................... hljóðkútar og púströr
Skoda fólksbila og station............hljóðkútar og púströr
Sunbeam 1250 — 1500 ................. hljóðkútar og púströr
Taunus 'I ransit bensin og disel......hljóðkútar og púströr
Toyota fólksbila og station...........hljóðkútar og púströr
Vauxhall fólksbila....................hljóðkútar og púströr
Volga fólksbíla.......................hljóðkútar og púströr
Volkswagcn 1200 — K70 —
1300— 1500 ...........................hljóökútar og púströr
Volkswagen sendiferðabila........................hljóðkútar
Volvo folkshila . .....................hljöökúlar og púströr
Volvo vöruhila F84 — 85TD —
\S8 — FH8 — NH6 — F H6 —
\X0TD — FH6TD og FH9TD .........................hljoðkúlar
Púströraupphengjusett í flestar gerðir
bifreiða.
Pústbarkar flestar stærðir.
Púströr i beinum lengdum 1 l/<* 'il 3 1/2"
Setjum pústkerfi undir bíla, simi 83466.
Sendum í póstkröfu um land allt.
Mario Soares