Tíminn - 31.01.1978, Qupperneq 8
8
Þriðjudagur 31. janúar 1978.
„Ódýrar Norðurlandaferðir
bezta kynningarstarfsemin”
segir Hjálmar Ólafsson formaður Norræna félagsins
SJ — Við lítum á það sem hlut-
verk Norræna fclagsins að
koma fólki til Norðurlandanna á
eins ódýran hátt og kostur er,
sagði Hjálmar ólafsson for-
inaður félagsins Timanum. — Á
þessu ári bjóðum við ferðir, sem
eru ódvrari en nokkrar aðrar
fcrðir til Norðurlanda. Jafn-
framt er tekin upp nýbreytni,
svo scm ferðir héðan beint til
Norðurkoilulanda, þ.e. lands-
svæðanna við og norðan við
heimskautsbaug.
Ferðir verða farnar á vegum
Norræna félagsins til Kaup-
mannahafnar frá þvi 18. feb. til
21. des. Til Osló verða farnar 12
ferðir á timabilinu marz til
september. Einnig er áætluð
íólaferð þangað. Þrjár ferðir
verða til Stokkhólms, 12. júni-
17. júli og 7. ágúst. Ferð verður
til Helsinki 16. júli. Þá verða 9
ferðir til Færeyja i mai-septem-
ber.
Miðaö við verð á flugi til
Noröurlanda nú um siðustu ára-
mót verða fargjöld á vegum
Norræna félagsins báðar leiðir
þessi:
Til Helsinki kr. 62.950
Til Stokkhólms kr. 56.100
Til Kaupmannahafnarkr. 48.635
TilOsló kr. 44.805
TilFæreyja kr. 26.045
Til færeyja frá Egilsstöðum
kr. 21.222
Aætlað er að allt millilanda-
flug hækki um ca 7% 1. april, en
hlutfallið milli fargjalda breyt-
ist ekki.
Skrifstofa Norræna félagsins
skráir nú alla sina farþega til
Norðurlanda^ og tekur á móti
innborgun. Engin bókun er
staöfest, fyrr en viðkomandi
félagi hefur greitt kr. 5.000.-
(2.500.- fyrir börn 2-11 ára ) upp I
fargjaldið. Þessi upphæð er
óafturkræf, ef farþegi hættir við
að fara.
Þess er farið á leit við þá
félaga sem þurfa að hafa sam-
band við skrifstofu Norræna
félagsins vegna Norðurlanda-
ferða að gera það á timabilinu
kl. 9-14 daglega.
Ferðir um Danmörku
t sambandi við Kaupmanna-
hafnarferðir félagsins i sumar
verður farþegum boðið upp á
skoðunarferðir innan Danmerk-
ur. Annan hvern þriðjudag
verður efnt til 4 1/2 tima
skoðunarferðar um Kaup-
mannahöfn. Hefst hún við aðal-
járnbrautarstöðina (Hoved-
banegárden) og verður ekið
viða um borgina t.d. skoðuð
Rósinborgarhöll, Grundtvigs-
kirkjan og Tuborg- eða Carls-
bergverksmiðjurnar. Fyrsta
ferð verður 30. mai og siðasta
ferð 5. september.
Annan hvern föstudag verður
ekið um Norður-Sjáland einn
fegursta hluta Danmerkur ca. 9
tima ferð. Skoðað verður
Fredriksborgslot i Hilleröd.
Fredensborgslot og snæddur
hádegisverður i Hotel Store
Kro. Haldið verður áfram til
Helsingör skoðað Kronborg slot
og Louisiana-safnið i Humle-
bæk. Einnig verður annan hvern
föstudag efnt til ferðar um Suð-
ur-Sjáland ca. 9 tima ferð. Farið
m.a. til Knuthenborg-parken
þar sem fjöldi villtra frum-
skógadýra ganga laus og er
hægt að sjá þau út um bilglugg-
anaeinnig til Aalholm, þar sem
er eitt stærsta safn gamalla bila
Framkvæmdaráð Norræna félagsins: Þórdis Þorvaldsdóttir,
Hjálmar ólafsson, Karl Jeppesen og Jónas Eysteinsson fram-
kvæmdastjóri (standandi).
á Norðurlöndum. Ferðir falla
niður ef færri en 301áta skrá sig
iþær. Allar ferðirnar hefjast við
Hovedbanegárden og lýkur þar.
Fyrsta ferð um Norður-Sjáland
verður 2. júni og síðasta ferð 8.
september. Fyrsta ferð um
Suður-Sjáland verður 9. júni og
siðasta ferð 15. september. All-
ar nánari upplýsingar á skrif-
stofunni.
Grænlandsferðir
Þá má geta þess(að Norræna
félagið er að vinna að þvi að
koma á ferðum til vesturstrand-
ar Grænlands og hefur hafið
samvinnu við Útivist þar um.
Likur eru á að farnar verði tvær
ferðir i júli og ágúst ca. 20 far-
þegar i hvora, en dagsetningar
og verð er ekki ákveðið. Ahuga-
fólk um þessar ferðir ætti að
snúa sér til skrifstofu félagsins
eftir 1. april og fá nánari upp-
lýsingar.
Sérferðir
Þá hefur hefur félagið fengið
40sæti I ferð til Ume3 i Norður-
Sviþjóð 28. júli-6. ágúst i vél er
flýgur með hóp iþróttafólks á
Kalotkeppnina og 40 sæti i ferð
til Þrándheims i Noregi 10. júli-
23. júli. Fargjöld i þessar ferðir
verða nálægt 40. þús. kr. Far-
þegar i þeim þurfa að hafa með
sér viðleguútbúnað og gista i
tjöldum. Ýmsar skoðunarferðir
verða skipulagðar i sambandi
við þær.
Þeir, sem hafa áhuga á þess-
um ferðum eru beðnir að hafa
samband við skrifstofuna, sem
gefur allar upplýsingar.
Starfsemin verður
stöðugt umsvifameiri
Arsfundur sambands norrænu
félaganna á Norðurlöndum var
haldinn i Vestmannaeyjum i
september. Þar var samþykkt
ný stefnuskrá fyrir norrænu
félögin, og verður hún væntan-
lega kynnt á næstunni. Reidar
Carlsen frá Noregi er nú for-
maður sambands norrænu
félaganna. Móttökur Vest-
mannaeyinga voru frábærar og
dáðust gestirnir að uppbygg-
ingarstarfinu I Eyjum. Þátttak-
endur voru um 50 þar af 10 ís-
lendingar.
Fjölmenn Norðurkollu-
ráðstefna var einnig
haldin hér i sumar.
Fjórar nýjar félagsdeildir
voru stofnaðar á árinu 1977, en
þær eru i Grundarfirði i Dala-
sýslu, i Dýrafirði og á Hólmavik
fyrir Strandasýslu. Einnig var
blásið nýju lifi i deildirnar á
Ólafsvik og Bolungarvik, en þar
hafði starfsemi legið niðri um
hrið. Nú eru þvi 39 deildir i Nor-
ræna félaginu með 11600 félaga.
1 tilefni 25 ára afmælis
Norðurlandaráðs var ákveðið
að norrænu félögin á öllum
Norðurlöndum kynntu starf-
semi ráðsins sem viðast. Nor-
ræna félagið vildi ekki láta sitt
eftir liggja og hófst samvinna
milli félagsins og tslandsdeild-
ar Norðurlandaráðs um kynn-
inguna i janúar. Á sjálfan af-
mælisdaginn 23. marz var fjöl-
mennur kynningarfundur i
Reykjavik og hjá deildinni á
Siglufirði. I Reykjavik var
Tryggve Bratteli frá Noregi
aðalræðumaður en auk þess
voru mörg norræn skemmtiat-
riði. Siðan hafa verið haldnir
kynningarfundir á 19 stöðum i
öllum landsfjórðungum, en
stærsta átakið var gert er for-
maður félagsins ásamt Erlendi
Paturssyni frá Færeyjum og frú
hans heimsóttu svo til allar
deildir á Vesturlandi, Vestfjörð-
um og vestanverðu Norðurlandi
alls 15 deildir og kynntu Norður-
landaráð þá. Þá hafa einnig
verið haldnir formannafundir á
Austurlandi.
Nokkuð hefur miðað i átt að
auknum tengslum milli is-
lenzkra bæjarfélaga og vina-
bæjakveðja á Norðurlöndum.
Þannig hafa myndazt föst tengsl
milli Egilsstaða, Mosfellssveit-
ar og Ólafsf jarðar annars vegar
og þriggja norrænna vinabæja-
keðja hins vegar. Tengsl við 5
aðra islenzka bæi eru svo vel á
veg komin að likur eru á að þau
verði endanlega ráðin á þessu
ári. í sambandi við norrænar
menningarvikur hafa ýmsir
vinabæir sent fulltrúa hingað til
lands og fulltrúum islenzkra
bæja verið boðið til Norður-
landa.
Aldrei hafa fleiri islenzkir
nemendur stundað nám i lýðhá-
skólum á Norðurlöndum en nú,
og hefur félagið aðstoðað 131
nemanda við að fá námsdvöl og
styrki.
Samband norrænu félaganna
gefur út félagsblað og á árinu
kom út árbók Norrænu félag-
anna sem heitir Nordisk RSd i
25 ár.
Ætlunin er að hafa námskeið i
islenzku i Reykjavik i sumar
fyrir fólk frá öðrum Noröur-
löndum. Þegar Norræna félagið
stendur fyrir ferðum hingað til
lands bendir það erlendu gest-
unum sérstaklega á ferðir
Ferðaskrifstofu rikisins á sögu-
slóðir og svonefndar jarðfræði-
ferðir.
A sambandsþingi Norræna
félagsins 8. október s.l. var kos-
in ný sambandsstjórn. For-
maður var endurkjörinn Hjálm-
ar Ólafsson, en auk hans voru
kjörin i stjórnina Bárður Hall-
dórsson, Akureyri, Gunnar
Ólafsson Neskaupstað, Karl
Jeppesen Seltjarnarnesi Þórdis
Þorvaldsdóttir Reykjavik Þór-
oddur Guðmundsson, Hafnar-
firði og Þorvaldur Þorvaldsson,
Akranesi. Úr stjórninni gengu
samkv. eigin ósk: Arnheiður
Jónsdóttir, Reykjavik, Guð-
mundur Björnsson Akranesi,
Helgi Bergs Reykjavik og
Sverrir Pálsson Akureyri. Nor-
ræna félagið þakkar þessu fólki
frábær störf i þágu félagsins.
Á þinginu var Vilhjálmur Þ.
Gislason fv. útvarpsstjóri kjör-
inn heiðursfélagi þess en hann
hefur setið i stjórn félagsins
lengur en nokkur annar.
Framkvæmdaráð skipa nú
auk formanns og framkvæmda-
stjóra þau Karl Jeppesen og
Þórdís Þorvaldsdóttir og til
vara Þóroddur Guðmundsson.
Fundur miðstjórnar Málm- og skipasmiða:
Lífeyrissjóðirmr fuUnægja engan veginn lánaþörf
FI — A fundi miöstjórnar Málm-
og skipasmiöasambands tslands
þann 16. janúar s.l. var rædd sii
ákvöröun Alþingis, aö knýja lif-
eyrissjóöina meö lagasetningu, til
aö kaupa skuldabréf fjárfestinga-
sjóöa.
1 ályktun frá fundinumsegir, að
miöstjórnarfundur Málm- og
skipas miðasambands Islands
mótmæli þeirri ákvörðun Al-
þingis, að skylda lifeyrissjóði
verkalýösfélaga, sem tóku til
starfa 1. janúar 1970 til þess að
kaupa skuldabréf rikisins fyrir
40% af tekjum sjóðanna og skerða
þar með ráðstöfunarfé lifeyris-
sjóðanna stórle'ga.
Segir i ályktuninni, aö fyrir
þessa sjóði, sem hvergi nærri
hafa getað fullnægt lánaþörf
sjóðafélaga, veröi afleiðing
þessarar ákvörðunar sú, aö láns-
upphæðir lækka og biðtimi eftir
lánum lengist.
Við það skapist misrétti milli
þeirra, sem þegar hafa fengið lán
og þeirra fjölmörgu sem biða eft-
ir afgreiðslu lána, t.d. biða af-
greiðslu hjá Lifeyrissjóöi málm-
og skipasmiða um 270 lánsum-
sóknir.
Miðstjórnin telur slika lög-
þvingun forkastanlega og skorar
á háttvirt Alþingi aö endurskoða
þessa ákvörðun sina.
Ný ferðaskrif-
stofa hefur
starfsemi
sína
Þessadagana er að hefja starf-
semi sina ný ferðaskrifstofa i
Reykjavik. Nafn skrifstofunnar
er ATLANTIK TRAVEL eða
Ferðaskrifstofan ATLANTIK, og
hefurhún aðsetur i Iðnaðarhúsinu
aö Hallsveigarstig 1.
Skrifstofan mun hafa á boð-
stólum hvers konar ferðaþjón-
ustu, svo sem útgáfu farseðla i
áætlunarflugi utanlands sem
innanlands, hópferðir til nær-
liggjandi landa og sólarlanda.
Ætlunin er að leggja megin-
áherzlu á nýja áfangastaði og þá
með smærri hópa. Auk þess mun
skrifstofan annast móttöku er-
lendra ferðahópa. Hafa þegar
náðst samningar við þekktar er-
lendar ferðaskrifstofur um þjón-
ustu fyrir þær.
Meginmarkmið skrifstofunnar
er að leggja meiri áherzlu á gæði
en f jölda og að afla tekna sinna að
jöfnu með þjónustu við islenzka
og erlenda ferðamenn.
Eigandi og framkvæmdarstjóri
ATLANTIK er Böðvar Valgeirs-
son, sem á að baki áralangt starf
hjá Samvinnuhreyfingunni hér-
lendis sem erlendis, siðast sem
framkvæmdarstjóri Samvinnu-
ferða. Auk hans starfa á skrifstof-
unni tvær stúlkur, Ölafia Sveins-
dóttir og Soffia Kjaran. Ólafia
hefur starfað að ferðamálum
meira og minna s.l. 8 ár, einkum
á sviði móttöku erlendra ferða-
manna. Soffia hefur einnig starf-
að að ferðamálum s.l. 7 ár og hef-
ur sérhæft sig I útgáfu farseðla i
áætlunarflugi.
*
Utflutningxir
á landbún-
aðarafurðum
— Nýjungar á
markaði
erlendis
Að frumkvæði Búnaöarþings var
komið á fót á siðastliðnu ári
Markaðsnefnd landbúnaðarins. t
nefndinni eiga sæti fulltrúar til-
nefndir af Búnaðarfélagi Islands,
Framleiðsluráði landbúnaðarins,
Stéttarsambandi bænda, Sam-
bandi Islenskra Samvinnufélaga
og landbúnaðarráðuneytinu. For-
maður nefndarinnar er Sveinn
Tryggvason.
Þýðingarmestu málin, sem
nefndin hefur fjallað um, er út-
flutningur landbúnaðarafuröa,
enda var tilgangurinn með stofn-
un hfefndarinnar, fyrst og fremst
sá,að kanna sem itarlegast alla
þá möguleika, sem um væri að
ræða, til að koma landbúnaðaraf-
urðum okkar í sem bezt verð er-
lendis. Haldið hefur verið uppi
fyrirspurnum erlendis og haft
samband við innflytjendur i
mörgum löndum, en þetta er að-
eins upphafið, sem vonandi ber
verulegan árangur áður en lang-
ur timi liður.
Hafin er könnun innan kjötiðn-
aðarins um möguleika á fram-
leiðslu sérstakra kjötvara, sem
gætu orðið eftirsóttar á erlendum
mörkuðum. A þann hátt telur
nefndin meiri möguleika á sölu
dilkakjöts, sem sérstakri gæða-
vöru, sem gæfi hærra verð, en
verið hefur fram að þessu. Rædd-
ar hafa verið ýmsar hugmyndir,
s.s. mismunandi mikið reykt
dilkakjöt, saltkjöt og mismunandi
tilbúnir réttir úr kindakjöti.
Markaðsnefndin hefur mikinn
áhuga á, að sem flestir komi fram
með hugmyndir, sem gætu komið
að gagni til aukinnar og bættrar
sölu á landbúnaöarafurðum.
Jón R. Björnsson hjá Fram-
leiðsluráði landbúnaðarins,
starfsmaður Markaðsnefndar,
tekur fegins hendi við öllum til-
lögum og væntir þess, að þeir,
sem telja sig geta bent á nýjar
leiðir i markaðsöflun, hafi sam-
band við Markaðsnefndina sem
fyrst.