Tíminn - 31.01.1978, Síða 10

Tíminn - 31.01.1978, Síða 10
10 Þriðjudagur 31. janúar 1978. LAND MEISTARA NU hefur verið opnuð á ný sýning á verkum Kjarvals i austursal Kjarvalsstaða, og mun sýningin standa til vors, en ef við munum rétt, var seinasta Kjar- valssýning tekin ofan á liðnu hausti, vegna stórra sýninga i húsinu. Á sýningunni nú eru 59 verk, sem flest koma kunnuglega fyrir sjónir, en samt eru nú fimm ný verk sýnd i fyrsta skipti, þar af sum býsna áhuga- verð. Gefin hefur verið út vönd- uö sýningarskrá, þar sem m.a. er að finna efnismikla og vand- aða ritgerð, i ótrúlega stuttu máli, eftir Indriða G. Þorsteins- son, rithöfund, sem nú vinnur að bók um Kjarval, og þvi færast- ur til slikra hluta i bili. Þaö er reynsla manna i list- um, að nokkurrar þreytu gætir hjá almenningi, ef ákveðnum mönnum er haldið of mikið fram. Þetta á við menn úr svo að segja öllum listgreinum og það er þvi auövelt að kála mynd- listarmanni með þvi einu að halda uppi stöðugum sýningum á verkum hans og endalausu brambolti um nafn hans. Þetta á þó ekki við um Kjar- val, hann hefur þá miklu sér- stöðu, aö verk hans eru yfirleitt ný og fersk i hvert skipti sem maöur sér þau. Hæfni og fjöl- breytni málarans á vafalaust sinn þátt i þvihvaö hann „þolir” að hanga uppi i sýningarsölum höfuðborgarinnar, og mynd- irnar breytast og endurnýjast af sjálfu sér, nægjanlega ört til þess að maður hlakkar ávallt til að finna þær aftur. Nýjar Kjarvalsmyndir Aö þessu sinni eru fimm ný verk sýnd eftir Kjarval. SÆNSKIR KVIKMYNDA- TÖKUMENN (olia), TEPPI 1 OLIULITUM, FYRSTU SNJÓAR (olia) MÓÐURAST (vatnslitir) og HLÍÐARHÚS (olia). Gaman væri að vita eitthvað um uppruna fyrstu myndar- innar, SÆNSKIR KVIK- MYNDATÖKUMENN, þvi myndefnið gæti bent til þess að meistarinn hafi setiö fyrir hjá kvikmyndatökumönnum, sem hingað lögðu leið sina, en allar eru myndirnar nokkur fengur fyrir hiö mikla safn Reykja- vikurborgar á myndverkum KJarvals. Annars eru myndirnar fimm ekki meðal beztu mynda á sýningunni, en það er önnur saga. Ég veit ekki hvers vegna undirrituðum finnst nú orðið mun meira variö i myndir þar sem meistarinn beitir vatnslit- Kj arvalssý stendur til um, bleki, eða blandaðri tækni, en i sjálf oliumálverkin. Ef til vill er þetta nýungagirni, en sagt hefur verið að borgin eigi aragrúa slikra smámynda, sem aldrei hafa verið sýndar. Þessu þyrfti að koma i verk, ekki i logandi hvelli, heldur mætti gera áætlun fram i tim- ann og taka ákveðinn fjölda til sýninga i hvert skipti, sem ný Kjarvalssýning er sett upp, en nóg um það. Þá er á þessari sýningu það nýmæli, að sýnd eru bréf frá Kjarval, gestabók frá seinustu sýningunni, sem hann hélt sjálfur og fleira smávegis, sem tilheyrði meistaranum og er að þvi mikill fengur, en undan þvi hefur oft verið kvartað, að myndlistarmanninum Kjarval, væri gert hærra undir höfði en meistaranum og rithöfundinum, þvi Kjarval var ekki aðeins málari, heldur lika margt ann- að, og þess utan persóna, sem setti svip á bæinn, meðatgjörvi sinu og háttum. Meðal merkilegra mynda er ENGILL málaður á stein, en steinn þessi er gjöf til borgar- fólk I listum

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.