Tíminn - 31.01.1978, Qupperneq 19
Þriðjudagur 31. janúar 1978.
19
leiklist
Síðbúinn póker
Pókerspilarnarnir
RÍKISCTVARPIÐ
SJÓNVARP
PÓKER, eftir
BJÖRN BJARMANN
Leikstjóri:
Stefán Baldursson
Leikendur:
Sigmundur örn Arngrimsson,
Róbert Arnfinnsson,
Valgerður Dan
Kristbjörg Kjeld
Flosi ólafsson,
Erlingur Gislason
Margrét Helga Jóhannsdóttir og
fl.
Kvikmyndun:
Baldur Hrafnkell Jónsson
Myndataka:
Snorri Þórisson
Hljóðupptaka og
hljóðsetning:
Oddur Gústafsson
Stjórn upptöku:
Tage Ammendrup
Spillingin á Miðnes-
heiðinni
Hinn opinberi söguþráður
Pókers, eftir Björn Bjarmann
er á þessa leið: „Póker fjallar
um leigubifreiðastjóra i Kefla-
vik, starf hans og einkalif. Ná-
vist varnarliðsins á Miönes-
heiði eykur tekjur hans, en hon-
um gremst sú spilling sem dvöl
liðsins leiðir af sér.”
Það er ekki mjög auövelt að
rita um islenzkar sjónvarps-
kvikmyndir fyrir gagnrýnend-
ur.
Þegar ritað er um leikhús,
geta skrif þeirra gert gagn þau
geta orðið leikendum til leið-
beiningar, geta örvaö fólk til
þess að fara og sjá leikrit — og
öfugt, og skrifin eru innlegg i al-
menna umræöu, sem mótar al-
menningsálitið sem er blóð-
vökvi allra leiksýninga, og ráða
framtið þeirra og lifi.
Ekki svo aö skilja, að við hér
áli'tum að leiklistin eigi lif sitt
undir slikum skrifum, það er
öðru nær. A hinn bóginn er
vandinn annar, þegar um er aö
ræða s jónvarpsmynd sem þegar
er búið að demba yfir, svo að
segja hvert einasta heimili i
landinu.
Eiga gagnrýnendur kannski
að segja þjóðinni hvernig hún
skemmti sér? eða eiga menn að
ráða þvi sjálfir?
Aðalpersónan i Póker er ung-
ur leigubílstjóri sem er nýflutt-
ur til Keflavíkur, þar sem hann
byrjar að aka leigubifreið. Hann
hefur gefizt upp á sjómennsku i
bili, og hann reynir að sjá sér
farborða I hinu nýja starfi, m.a.
við að aka stúlkum inn og Ut um
vallarhliðið.
A stöðinni spilar hann póker
og tapar.
I kvikmyndinni fáum við
nokkuð trúverðuga lýsingu á
leigubifreiðastjórum Suður-
nesja, vissum þætti starfsins
a.m.k. en leigubilstjór-
arnir þar gegna vist ákaflega
merkilegu hlutverki i gjaldeyr-
ismálum þjóðarinnar, þvi ég
hefi heyrt að þeir ráði um þess-
ar mundir allri gengisskráningu
i landinu, eða hinu fljótandi
gengi. Þeir fá greitt i dollurum,
sem þeir selja i banka, og lika
Pétri og Páli ef svo ber undir,
og verðið á þeim dollurum mun
vera eina nothæfa gengisskrán-
ing dollarans i þessu landi, þvi
hann verðleggur aðra „svarta
dollara” og sagt er að sjálfur
Seðlabankinn leggi eyrun viö og
taki viss mið af flotgengi bíl-
stjóranna,sem er hið eina rétta
i landinu.
Við seljum þessa sögu ekki
dýrara en við keyptum, en svo
mikið er vist að þessi gengis-
skráning er flestum i landinu
kunn.
Það er ekki minnsti vafi á þvi,
aö kvikmynd Björns Bjarman
líður notóiuð fyrir það, hversu
seint hún er flutt.
Smásagan, sem filman er
gerð eftir, er komin nokkuö til
ára sinna, og það leið langur
timif rá þvi að henni var breytt i
kvikmyndahandrit, þar til hún
var tekin til vinnslu hjá kvik-
myndatökumönnum Sjónvarps-
ins. A þeim tima sem liðinn er
hefur spillingin á Vellinum
nefnilega breytzt að flestra
mati. Ýmsar forsendur i sög-
unni eru þvi dálitið hæpnar af
þeim sökum.
Hérfyrrá árum, þá var tekju-
munur hermanna og íslendinga
án efa mesti spillingarvaldur-
inn. Hermenn höfðu hærra
kaup, tollfrjálsar vörur, ódýrt
áfengi, sigarettur og þeir höfðu
tyggigúmmi og Mackintosh i
haugum.
Amerikanar voru rflúr.
Siðan hefur á orðið veruleg
breyting. óbreyttir ameriskir
hermenn hafa ekki lengur meiri
peninga en við. Það eru meiri
peningar utan við hliðið en fyrir
innan það, og ég hygg að ,,sam-
skiptin við varnarliöið” sé ekki
það söguefni, sem þau voru,
fremur en ástamál annarra fá-
tæklinga i landinu yfirleitt.
Kjarninn hefur sem sé flutzt
til, oghættan af herstöðinni hef-
ur gert það lika. Þeir sem nú
sækjast harðast á völlinn munu
vera menn, sem eiga jarðýtur
og krana.menn sem vilja fá nýja
samninga, en ekki fólk i leit að
ódyru áfengi sigarettum og
Mackintos.
Fyrir bragðið þá missir saga
Björns Bjarman fótanna i nútið-
inni, þótt hún sé um margt hag-
lega samið verk. Sagan er sam-
timaverk, þjóðlifslýsing, sem á
réttum tima hefði án efa verið
þýðingarmikið innlegg i hina
daglegu umræðu.
Myndin er of löng
Ég veit ekki hvers vegna mér
finnst ávallt vera viss ömurleiki
i skandinaviskum kvikmynd-
um, og þá islenzkum lika. Þess-
ar frásagnaglöðu þjóðir sem
hafa alið svo marga skáld-
jöfra, senda yfirleitt frá sér
langdregnar og leiöinlegar
kvikmyndir.
Það er mikið pissað og
skroppið i rúmið, en það nefna
margir „sænska kvikmynda-
raunsæið” og þessa gætti að
sjálfsögðu i kvikmynd þeirra
Björns Bjarman og Stefáns
Baldurssonar. Langtimum
saman er ekið þegjandi i bil og
talatriðin koma siðan með leik-
sviðsleik, og maður hrekkur I
kút.
Þessa mynd þarf að klippá.
Þeir sem lengst náöu i kvik-
myndaleik voru stúlkurnar á
Vellinum og afgreiðslustúlkan á
bilastöðinni. Pókerspilararnir
og þá sérstaklega Flosi Ólafs-
son, sem virðist hafa náð sér-
stökum tökum á kvikmynda-
leik, þvi honum liður svo vel
frammi fyrir kvikmyndavél-
inni, að skelfing við filmuna
verður ekki lengur greind.
Um kvikmyndatökuna sjálfa
má margt gott segja, nema
skærin hefðu mátt koma aö
meiri notum.
Lika áræðumviðhérað benda
á að túikun þessa efnis fær ekki
afgerandi meðhöndlun i kvik-
myndinni frá stilfræðilegu sjón-
armiði. Var verið að segja sög-
una meö töluðum texta eða meö
myndatöku? Tilaösegja söguna
meö talí varleikritið ekki nógu
vel samið, þrátt fyrir ýmsa
kosti. A.m.k. fór verkið ekki
fram i orðræöunni einvörðungu.
Kvikmyndin sjálf er á hinn bóg-
inn aðeins ökuskýrsla, en ekki
frumgerandi i sögunni nema i
örfáum atriðum, eins og t.d. i
kirkjugarðinum, þar sem þot-
urnar syngja i staðinn fyrir-
hinn saíta storm. Þar t.d. nást
ákveðin áhrif sem sýna aö
myndatökumennirnir hefðu átt
að hafa sig meira i frammi viö
gerð sögunnar.
Myndin er öll tekin úti. Ekki i
kvikmyndaveri. og mun þetta
vera ein fyrsta leikna myndin
sem þannig er gerð, og þvi er
hún á vissu tilraunastigi sem
vonlegt er.
Jónas Guðmundsson
Húsaviðgerðir
Tökum að okkur viðhald og viðgerðir á
húseignum stórum og smáum svo sem:
Sprunguviðgerðir, ál, járn, stálklæðning-
ar, glerisetningar og gluggaviðgerðir,
uppsetningar á eldhúsinnréttingum, milli-
veggjum, hurðum, parketi o.fl.
Húsprýði h.f.
Simar: 7-29-87 og 5-05-13 eftir kl. 7.
íþróttir
deildar liðsins I ljós, og þeir
Viljoen og Talbot bættu við
mörkum og sigur Ipswich var
4—1 og þar með missti fjórða
deildin siðasta fulltrúa sinn úr
bikarnum.
Bristol Rovers kom mjög á
óvart er liöiö vannöruggan sigur
yfir bikarmeisturum 1976, South-
ampton, 2—0. 18 ára leikmaður i
liði Bristol Rovers, Paul Randall
skoraöi bæöi mörk leiksins, sitt í
hvorum hálfleik, og segja fróöir
menn, að Randall þessi eigi eftir
aðláta mikið að sér kveöa i fram-
tiöinni. ó.O.
Alþingi
Húseigendur
Hafið þér gert áætlun
um viðhald á húsinu yðar?
Við aðstoðum
Önnumst hverskonar viðgerðir
Endurnýjum gler og gluggakarma
orku og dauða innifalin i á-
byrgðatryggingu bifreiða.
6.1 stað núverandi vikugjalda at-
vinnurekenda annars vegar til
lifeyristryggínga og 'h'ins vegar
til slysatrygginga, komi eitt
sameiginlegt gjald, reiknað
sem hundraðshluti af heildar-
launagreiöslum á árinu. Flokk-
un eftir áhættu falli niöur, og
sjóðmyndun slysatrygginga
hverfi úr sögunni (að undan-
skildu framlagi til varasjóös i
samræmi við núgildandi á-
kvæöi um varasjóð lifeyris-
trygginga.)
7. Endurkröfuréttur almanna-
trygginga samkvæmt 59. gr.
laganna falli niður. Er hér bæði
um aö ræða endurkröfur slysa-
trygginga og sjúkratrygg-
inga.”
Viðgerðir - Nýsmíði
Kristján Ásgeirsson,
húsasmíðameistari Simi 53121
Ritstjórn, skrifstofa og afgreiðsla
Alternatorar
6 — 12 — 24 volt
35 — 100 amper.
Teg: Delco Remy, Ford
Dodge, Motorole o.fl.
Passa i: Chevrolet,
Ford, Dodge,
Wagoneer, Land-Rover
Toyota, Datsun og m.fl.
Verð frá kr. 13.500.-
Varahluta- og viðgerðaþjónusta
Bilaraf h/f
Borgartúni 19.
Simi 24-700
BÍLAPARTA-
SALAN
auglýsir
NYKOMNIR VARAHLUTIR I:
Mersedez Benz 220D árg. '70
Peugot 404 árg. '67
B.M.V. árg. '66
Volkswagen 1300 árg. '70
Saab 96 árg. '65
BÍLAPARTASALAN
Höfðatúni 10 — Sími 1-13-97