Tíminn - 31.01.1978, Side 24

Tíminn - 31.01.1978, Side 24
':«*! 8-300 —N * f ifff- HREVFJLL tjBÍSF 8fl Auglýsingadeild Tímans. Slmi 8 55 22 P A núftCiöGM TRÉSMIDJAN MEIDUR L ! SÍÐUMÚLA 30 • SÍMI: 86822 Allur ágreiningur jafnaður á milli Skáksambandsins og íslenzku stór- meistaranna — íslenzku stórmeistararnir fá ekki greidda dagpeninga 17 SKIP MEÐ SLATTA — flest lönduðu i Norglobal GV — A sunnudag og aöfaranótt mánudags öfluðu 17 skip 4.520 lesta loðnuafla og lönduðu flest skipanna eða niu samtals 3.500 lestum i bræðsluskipiö Norglobal, Norglobal sigldi inn á Eyjafjörö aöfaranótt sunnudagsins og ligg- ur nú rétt vestan við Hrisey, á móts við Dalvik. Að sögn frétta- ritara blaðsins á Dalvik, var1 óvenju liflegt i höfninni þar i gær, þar sem skipin sigldu hvert af öðru inn i höfnina drekkhlaðin af loðnu, og biðu þar eftir löndun i Norglobal. Upp úr miðnætti á mánudag byrjaði að bræla á miðunum, og hættu flestir veiðum um það leyti. 1 gær var ekki útlit fyrir veiöiveð- ur á miðunum. Nú er aðallega veitt á tveim svæöum norður og norðaustur af Melrakkasléttu. Landsbankamálið: Gæzluvarðhaldsúrskurður rennur út á morgun GV — Það er ekki búið að taka á- kvöröun um kröfu rannsóknar- lögreglunnar i þvi máli. Það kem- ur i ljós á morgun sagði Hallvarð- ur Einvarösson, er hann var spurður um hvort ákvörðun lægi fyrir um það, hvort gæzluvarö- hald fyrrverandi forstöðumanns ábyrgðardeildar Landsbankans verði framlengt eða ekki, en eins og kunnugt er var forstööumað- urinn fyrrverandi Haukur Heið- ar, úrskurðaður i gæzluvaröhald 22. desember til 1. febrúar. Að öðru leyti vildi rannsóknar- löreglustjóri ekki gefa upplýsing- ar um gang málsins. Fjölmennur baráttufundur Fjölmargir borgarbúar flykktust niður á Hailærisplan I kulda og trekki siðastliðinn laugardag á fund og mótmæitu þar, með stöðu sinni og góðri þátttöku, þeirri stefnu borgaryfirvalda, að rffa 11 hús Ikringum Hallærisplanið og á Steindórsplani og byggja i staðinn margar og miklar byggingar á þessu sama svæði. Gamli bærinn gjörbreytti um svip. Dagskráin var öll mjög skemmtileg, og tókst fundurinn I alla staði mjög vel. Myndin er tekin, er leiklistarskólanemar fluttu leikþátt, sem saminn var sérstaklega af þessu tilefni. Tímamynd: Róbert ESE —Nú viröist svo sem ágrein- ingur sá, sem upp kom fyrir helg- ina milli Skáksambands Islands og islenzku stórmeistaranna, sé úr sögunni. I samtali við Einar S. Einars- son forseta Skáksambands Is- lands kom það fram, að málin hefðu verið útkljáð á fundi siðast liðinn laugardag, og hefðu lyktir orðið þær að þeir Friðrik og Guð- mundur hefðu fallið frá kröfum sinum um dagpeninga, en eins og kunnugt er greiðir Skáksamband- ið erlendu stórmeisturunum, sem þátt taka i mótinu, dagpeninga á meðan á dvöl þeirra stendur. Auk dagpeninganna fá stórmeistar- 11 bílar í ein- um árekstri í Kópavogi GV — 1 gærkveldi um átta leytið skeði sá einstæði atburður að 11 bílar rákust saman á Hafnar- fjarðarveginum, nánar tiltekið á austari akbraut norður undir fremri brúnni yfir gjána. Orsaka- valdurinn að þessu öngþveiti var fljúgandi hálka, sem varð á þessum slóðum eftir að frysti slð- degis I gær. Bílarnir lentu saman á ýmsa vegu en sem betur fer urðu engin meiðsli á fólki að þvl Kópavogslögreglan tjáði blaðinu I gærkvöldi. Umferð um „gjána” tafðist um stundarsakir. Nánast sömu mínúturnar uröu tveir aðrir árekstrar I Kópavogi og er annar þeirra óvenjulegur að þvi leyti að ökuþórar voru engir. Annar billinn rann af stað sjálf- viljugur. Fyrr um daginn urðu fimm árekstrar i Kópavogi allir stórslysalausir. Alls urðu þvi átta árekstrar á einum degi i Kópa- vogi I gær. — í dreifingii dagblaðanna út um land arnir þátttökuþóknun, og hennar njóta þeir Friðrik og Guðmundur að sjálfsögðu til jafns við aðra. Timinn hafði samband við Guð- mund Sigurjónsson út af þessu máli og kvaðst hann ekki hafa verið á fundinum á laugardaginn, en að sinu mati væri þetta ekkert ágreiningsefni. Einar S. Einarsson Guðmundur Sigurjónsson. SJ — Komið hefur til tals meöal framkvæmdastjóra dagblaðanna i Reykjavik að hætt verði að senda blööin út á land um mán- aöamótin til þeirra áskrifenda sem fá þau póstsend sérpökkuð héöan frá Reykjavik. Yrði þetta gert I mótmælaskyni við hækkun á póstburðargjöldum, en um mánaðamótin stendur til að burð- argjald undir hvert eintak af dag- blöðunum hækki úr fimm krónum I tuttugu krónur. Kæmi þetta einkum niöur á áskrifendum blaöa i sveitum, en til stærri bæja og kaupstaða eru blöðin send i frakt, fjöldi eintaka i einu. Haraldur Sveinsson fram- kvæmdastjóri Morgunblaðsins sagöi Tfmanum i gær, aö komið hefði tilboð frá póststjórninni um viðræður við útgefendur vegna þessa máls, og kvaðst hann gera ráð fyrir að þær yrðu I dag. Þeir framkvæmdastjórar dag- blaðanna, sem Timinn ræddi viö I gær, höfðu ekki tekið ákvörðun um hvað gert yrði i þessu máli nú um mánaðamótin, og fer það væntanlega eftir þvi, hvort tekst að ná betri kjörum við póststjórn- ina á fundinum I dag eða ekki. David Z. Rivlin afhendir Guðlaugi Þorvaldssyni bókagjöfina. Bókagjöf frá ísrael ESE — I gær afhenti David Z. Rivlin, ambassador Israels á Is- landi, Háskóla tslands bókagjöf frá israelska rikinu. Bækurnar eru israelskt alfræðisafn mjög merk heimild um uppruna krist- inna trúarbragða. Við athöfn i Háskólabókasafni veitti Guölaugur Þorvaldsson, háskólarektor, bókagjöfinni við- töku og þakkaði hlýhug i garð is- lenzku þjóðarinnar. David Z. Rivlin flutti einnig kveðjuorð frá Israel og lýsti yfir vináttu og á- huga ísraela á Islandi. Við athöfnina voru viðstaddir. nokkrir embættismenn háskól- ans, og auk rektors fluttu þeir Einar Sigurðsson, háskólabóka- vörður, og Þórir Kr. Þórðarson, deildarforseti guðfræðideildar á- vörp. Einnig var viðstaddur athöfn- ina Aðalsteinn Eggertsson, kon- súll Israels á tslandi. Hækkun póstgjalda veldur erfiðleikum

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.