Tíminn - 15.02.1978, Page 11

Tíminn - 15.02.1978, Page 11
Miövikudagur 15. febrúar 1978 11 „íslenzkur meistari í norskri þýðingu’ ’ Fyrirlestur í Norræna húsinu ,,Bli ndingsleikur (á norsku:Blindebukk) eftir Guö- mund Danielsson fær hástemmt hrós i norskum blööum. Þýöing Asbjörn Hildremyrs er talin frá- bær. Fjöldi blaöa hefur birt greinar um bókina og skulu hér tilfærö nokkur sýnishorn úr þeim. „Islenzkur meistararóman” er fyrirsögn á grein eftir Olav Dal- gard i Oslóarblaöinu „Dag og Tid”. Segir þar meöal annars: „Við erum orðin vön aö halda og trúa, að tsland eigi aðeins eitt mikið skáld nú á dögum og að sjálfsögðu er það hinn Nóbels- krýndi Laxness. Vissulega verð- skuldar hann sitt óvenjulega álit, en er þó samt ekki sá eini, sein skipar meistaraflokkinn á sögu- eynni um þessarmundir. Eftir að hafa lesið hina stuttu, en gnæv- andi skáldsögu „Blindingsleik” eftir Guðmund Danlelsson, vil ég, án þess að hika, einnig leiða hann til sætis meðal hinna útvöldu”. Ludvik Jerdal skrifar grein i blaðið „Dagen” og segir m.a.: „Það er islenzkur meistari sem kemur hér aftur meðbókþýdda á norsku. Guömundur Danielsson hefur óvenjulega góð tök á efni sinu. Þetta er nánast hinn full- komna skáldsaga, svo vel byggð, svo hrifandi að maður fylgir frá- sögninni i miklum hugaræsingi”. I greinarlok segir: „Þetta er sterk skáldsaga um rúmhelgina og um mæðu og erfiðleika, en hún er ósvikin (ekte). Asbjörn Hildre- myr hefur þýtt hana á betri norsku en maður á að venjast nú á dögum.” „Verdens gang” birtir ritdóm eftir Annetta Mörkberg sem segir m.a.: „Sagt er að enginn íslend- ingur með sjálfsvirðingu ljúki lif i sinu án þess að hafa skrifaö eina bók. öruggt er aö á Islandi eru margir rithöfundar. En fáir þeirra rata veginn Ut hingaö. Einn þeirra er Guðmundur Dani- elsson.” Siðar segir: „Skáldsag- an (Blindingsleikur) hlitir svo að Guðmundur Danielsson, rithöf- undur. segjahinni sigildu kröfu um sam- ræmi tima og rúms. Hún er aö öllu samanlögðu afar traustlega byggð og þess vegna ákaflega spennandi. Maður hlýtur að lesa hana i einni lotu.” 1 dagblaðinu „Sogn og Fjor- dane” segir m.a. i nokkuð langri grein: „Þegar Fonna Forlag kynnti fyrst islenzka rithöfundinn Guðmund Danielsson fyrir norksk. um lesendum meö skáldsögunni „Sonur minn Sinfjötli”,skrifaði einn ritdómarinn (Knut Hauge i Nationen) að ef Danielsson hefði lifað og ort meöal fjölmennari þjóðar, þá væri hann án efatalinn til hinna mikiu rithöfunda á vor- um dögum.”undir þessa tilvitnun tekur greinarhöfundur siðan og skýrir og skilgreinir bókina. Mörgfleiriblöð hafaskrifaðum bókina og eiga þær greinar þaö sameiginlegt að bera mikið lof bæði á höfundog þýðanda hennar. Danski rithöfundurinn Elsa Gress kemur hingaö til lands mánudaginn 13. febrúar i boði Norræna hússins. Von var ó henni fyrir helgi, og var fyrirhugaö aö hún héldi fyrirlestur hér um helg- ina, en af því gat ekki orðiö. Sem fyrr segir kom hún f gær, og held- ur fyrirlestur i Norræna húsinu á miðvikudagskvöld, 15. febr. kl. 20:30 sem ber heitiö „Indirekte og direkte brug af virkeligheden i kunsten”. Siðari fyrirlestur Elsu Gress verður i Norræna húsinu siðdegis á laugardag 18. febrúar kl. 16:00 og ber heitið „Kan viö bruge Kunstnerne?” Tveir norrænir heimspekingar koma siðan hing- aö tíl lands i vikunni, og halda fyrirlestra i Norræna húsinu, þeir Lars Hertzberg frá Finnlandi og Peter Kemp frá Danmörku. Lars Hertzberg (f. I945)ereinn meöal fremstu ungra finnskra heimspekinga, lauk doktorsprófi frá Cornell-háskóia i Bandarikj- unum og starfar nú sem dósent i heimspeki viö Helsingforshá- skóla. Ritgerðir hans um sið- fræði, samfélagsheimspeki og heimspekisálfræði eru þekktar. I erindi Hertzbergs I Norræna hús- inu verður fjallað um ýmsar hlið- ar náms- og uppeldisaðferða, eins og t.d. Chomsky og Wittgenstein hafa skrifaö um. PeterKemplf. I937)hefurritaö margt heimspekilegs efnis,meðal annars margar aðgengilegar bækur um það efni. 1 Norræna húsinu talar hann um „nýju heimspekingana”, sem mikiö hafa verið til umræöu upp á sið- kastið. Þessir heimspekingar hafa snúizt gegn marxisma, og eru andstæöingar pólitiskra öfga til hægri eða vinstri. Þeir vilja sýna fram á, að pólitisku heimspekikerfin stefni meira og minna aö þvi að bæla manninn. Finnski heimspekingurinn Peter Kemp. onn Taktu þér hlé frá daglegum störfum um stund og fáðu þér mjólkurglas. Engin fæða uppfyllir betur þau skilyrði að veita þér flest þau næringarefni, sem nauðsynleg eru lífí og heilsu. Slakaðu á smástumHfrá starfí og streitu dagsins og byggðu þig upp til nýrra átaka um leið. n. Drekktu mjólk í dag - og rtjóttu þess. nx Næringargildi í lOOg af mjólk eru u.þ.b Prótín 3,4 g A-vítamín 80 Pita 3,5 g B.-vítamín 15 Kolvetni 4,6 g D-vítanjín 3 ICtalk 0,12 g Bj-vítamín 0,2 Fo\for 0.09 g C-vítamínN 1,5 Járrt^ 0,2 mg Hitaeiningar 63 ndokk

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.