Tíminn - 15.02.1978, Síða 12
12
Miðvikudagur 15. febrúar 1978
í dag
Miövikudagur 15. febrúar 1978
Lögregla og slökkviliö
Reykjavik: Lögreglan simi’
11166, slökkviliöiö og sjúkra-
bifreið, simi 11100.
Kópavogur: Lögreglan simi
41200,- slökkviliöiö og sjúkra-
bifreiö simi 11100.
Hafnarfjörður: Lögreglan
simi 51166, slökk viliö simi
51100, sjúkrabifreiö simi 51100.
Heilsugæzla
Slysavarðstofan: Simi 81200,
eftir skiptiborðslokun 81212.
Sjúkrabifreiö: Reykjavik og
Kópavogur, simi 11100,
Hafnarfjörður, simi 51100.
Hafnarfjörður — Garðabær:
Nætur- og helgidagagæzla:
Upplýsingar á Slökkvistöð-
inni, simi 51100.
Læknar:
Reykjavik — Kópavogur.
Dagvakt: Kl. 08:00-17:00
mánud.-föstudags, ef ekki
næst I heimilislækni, simi
11510.
Kvöld- nætur- og helgi-
dagavarzla apóteka i Reykja-
vfk vikuna 10. til 16 febr. er i
Apóteki Austurbæjar og
Lyfjabúð Breiðholts. Það apo-
tek sem fyrr er nefnt, annast
eitt vörzíu á sunnudögum,
helgidögum og almennum fri-
dögum.
'Hafnarbúðir.
Heimsóknartimi kl. 14-17 og
19-20.
Heimsóknartimar á Landa-
kotsspitala: Mánudaga til
föstud. kl. 18.30 til 19.30.
I.augardag og sunnudag kl. 15
til 16. Barnadeild alla daga frá
kl. 15 til 17.
Kdpavogs Apótek er opið öll
kvöld til kl. 7 nema laugar-
daga er opiö kl. 9-12 og sunnu-
daga er lokað.
Bilanatilkynningar
Rafmagn: i Reykjavik og
Kópavogi i sima 18230. I
Hafnarfirði I sima 51336.
Ilitaveitubilanir kvörtunum
verður veitt móttaka i sim-
svaraþjónustu borgarstarfs-
manna 27311.
Vatnsveitubilanir simi 86577.
Símabilanir simi 95.
Bílanavakt borgarstofnana.
Simi 27311 svarar alla virka
daga frá kl. 17 siðdegis til kl. 8
árdegis og á helgidögum er
svarað allan sólarhringinn.
Félagslíf
Kvenfélag Kópavogs:
Fundur verður i efrisal
Félagsheimilisins fimmtu-
daginn 16. febr. kl. 20.30. —
Stjórnin.
Mæðrafélagið heldur
skemmtifund að Hallveigar-
stöðum laugardaginn 18.
febrúar kl. 8. Matur, góð
skemmtiatriði. Félagskonur
fjölmennið og takið með ykkur
gesti.
Kvennadeild Slysavarna-
félagsins i Reykjavik heldur
fund fimmtudaginn 16. feb. kl.
8 stundvislega I Slysavarnar-
félagshúsinu. Þórður Sigurðs-
son frá Dagverðará kemur á
fundinn, Hlif Káradóttir og
Sverrir Guðmundsson syngja
einsöngva og tvisöngva. Ariö-
andi er að félagskonur fjöl-
mennið. — Stjórnin.
Aðalfundur Ferðafélags
tslands
Verður haldinn þriðjudaginn
21. febr. kl. 20.30 i Súlnasal
Hótel Sögu. Venjuleg aðal-
fundarstörf.
Félagsskirteini 1977 þarf að
sýna við innganginn.
Stjórn Ferðafélags islands
18.-19. febrúarkl. 07 Þórsmörk
Hin árlega vetrarferö i Þórs-
mörk verður um næstu helgi.
Farið verður kl. 07 laugardag
og komið til baka á sunnu-
dagskvöld. Farnar verða
gönguferðir um Mörkina og
komið að Seljalandsfossi á
heimleið. Fararstjóri: Þor-
steinn Bjarnar. Nánari
upplýsingar og farmiðasala á
skrifstofunni Oldugötu 3.
Ferðafélag tsiands
Mæðrafélagskonur. Af óvið-
aráðanlegur ástæðum verður
skemmtifundurinn, sem verða
átti 25. febr. færður til laugar-
dagsins 18. febr. — Stjórnin.
Jöklarannsóknafélag
íslands
Aðalfundur félagsins verður
haldinn i Tjarnarbúð niðri
fimmtudaginn 16. febrúar
1978, ki. 20.-30.
Dagskrá:
1. Venjuleg aðalfundarstörf
2. Lagabreytingar
3. Kaffidrykkja
4. Helgi Björnsson fjallar um
þykktarmælingar á Vatnajökli
og Mýrdalsjökli sumarið 1977.
Jón E. Isdal segir frá skála-
byggingum i Esjufjöllum og
Kverkfjöllum.
Félagsstjórnin.
Minningarkort
Minningarspjöld Kvenfélags
Neskirkju fást á eftirtöldum
stöðum: Hjá kirkjuverði Nes-
kirkju, Bókabúð Vesturbæjar
Dunhaga 23. Verzl. Sunnuhvoli
Viðimel 35.
Hjáiparsjóður Steindórs frá
Gröf.
Minningarkort Hjálparsjóðs
Steindórs Björnssonar frá
Gröf eru afgreidd i Bókabúð
Æskunnar, Laugavegi 56, og
hjáKristrúnu Steindórsdóttur,
Laugarnesvegi 102.
Safnaðarfélag Ásprestakalls
heldur aðalfund næstkomandi
sunnudag 5. febrúar að
Norðurbrún 1. Fundurinn i
hefst að lokinni messu og
kaffidrykkju. Venjuleg aðal-
fundarstörf, einnigsér Guðrún
Hjaltadóttir húsmæðrakenn-
ari um ostakynningu.
Kirkjan
Hailgrimskirkja: Um föstuna
fara fram kvöldbænir og lest-
ur passiusálma kl. 6,15 siðd.
mánudaga, þriðjudaga,
fimmtudaga og föstudaga.
Séra Frank M. Halldórsson.
Frfkirkjan Reykjavik: Föstu-
messa i kvöld kl. 8.30. — Séra
Þorsteinn Björnsson.
Siglingar
Skipafréttir frá skipadeild
S.l.S. Jökulfell lestar i
Hafnarfirði. Disarfell fór i
gær frá Norðfirði til Helsinki
og Ventspils. Helgafell fer I
dag frá Húsavik til Djúpa-
vogs. Mælifell er i Wismar.
Fer þaðan til Reykjavikur.
Skaftafellfór 13.frá Halifax til
Reykjavikur. Hvassafell er i
Rotterdam. Ferþaðan til Hull.
Stapafell fór i morgun frá
Reykjavfk til Austfjarða-
hafna. Litlafell er i oliuflutn-
ingum i Faxaflóa. Paal fer i
dag frá Larvik til Reykjavik-
ur.
krossgáta dagsins
2706. Krossgáta.
Lárétt
1) Drangur 6) Eyði 7) Tók 9)
Bót 11) Eins 12) 999 13) Sár 15)
Þjálfa 16) Spé 18) Spiritismi.
Lóðrétt
1) Þekkta 2) Stafur 3) Nes 4)
Gangur 5) M jólkurvinnslustöð
8) Elska 10) )Bein 14) Eins 15)
Sturlað 17) Afa.
Ráðning á gátu No. 2705
Lárétt
1) England 6) Ráp 7) Frá 9)
Ala 11) Tó 12) An 13) 111 15)
MIG 16) Óma 18) Glannar.
Lóörétt
1) Elfting 2) Grá 3) Lá 4) Apa
5) Drangur 8) Ról 10) Lái 14)
Lóa 15) Man 17) MN.
Gyðingar
■ Tíu boóorö (il viöbótar?!
israelskur hermaður var
að afsaka að hann hefði að-
eins hertekið átta skriðdreka
og 250 hermenn: Já, en
maðurinn minn var ekki með
mér.
David Graham Phillips:
J
139
SUSANNA LENOX
C
Jón Helgason
hann höfðinu dálitið til, eins og til þess að gefa til kynna, hve vel
hann hefði rækt erindi sitt. „Hann verður góður” sagði hann. „Góð-
ur matur á laugardagskvöldi — og það sem á eftir honum kemur —
það finnst mér mikils virði. Ég vinn alla vikuna frá morgni til
kvölds. A laugardögum sleppi ég fram af mér beizlinu. A sunnudög-
um sef éf og bý mig undir að byrja bardagann um dalina að mánu-
dagsmorgni”. Hann laut fram yfir borðið og lyfti glasi slnu. „Hvað
heitið þér?” spurði hann.
„Súsanna”.
„Það cr gamalt og gott nafn. Það minnir mig á stokkrósir og
hæsni, sem eru að leita að möðkum. Ég heiti Howland — Villi How-
land. Ég er ættaður frá Maryland... og af þvi er ég reglulega hreyk-
inn. Ég vildi ekki vera annars staðar upprunninn hvað sem i boöi
væri. Hvaöan eruð þér svo?"
„Or vesturrlkjunum”, sagði Súsanna.
„Jæja. Karlmennirnir i þessum heimkynnum yðar eru vist ekki á
marga fiskana, fyrst þeir létu yður ganga sér úr greipum. Ég fann
þa strax og ég sá yður, að þér voruð stúlka sem mér geðjaöist að —
Súsanna. Ég vona að blóðið i yöur sé heitara en nafnið. Eitt staup
enn?”
„Þakka yöur fyrir”.
„Eruð þér kannski ekki alveg frábitin áfengi?”
„Ég ætla að venja mig betur við það framvegis”.
„Þér hafið átt við örðugan hag að búa um tima — eða er það ef til
vill misskilningur?”
„Mjög örðugan” sagði Súsanna. Það var kominn glampi I augu
hennar. Vinið var fariðað koma hreyfingu á blóðið.
„Búið þér hjá vandafólki yðar?”
„Ég á ekkert vandafólk. Ég er frjáls”.
„Leikkona?”
„Ég hef stundum verið að hugsa að reyna að koma mér einhvers
staðar á framfæri”.
„Og þangaö til?”
„Og þangað til — bjarga ég mér eins og bezt gengur”. Súsanna
hló.
„Ég vona að þér getið að lokum hlegið hátt og lengi”, sagði hann.
„Ég hef aldrei heyrt hlegið svona fallega. Ég er happasæll maður,
Fyrir fimm árum var Villi þó ekki vel á vegi staddur:svaf I opnum
gangi ein skyrta, tveir flibbar á viku, ekki ráð á að kaupa rjómais
handa fallegri stúlku. Og svo allt i einu — bang! Allt volæðiö rokiö út
i veður og vind, allt snerist Vilhjálmi C. Howland I vil. Og hér er ég
nú. Ég held mér fast. Ég skeyti ekkert um hvað hratt maður má
aka. Ég beygi fyrir hornin á fleygiferð.Langaði yður nú ekki til þess
að fá eitthvaö gott að borða?”
„Ég hef ekki bragðað mat i hálft ár”.
„Þá hljótið þér að hafa veriö langt uppi i fjöllunum. A-ha! Þarna
kemur hann þá til þess að segja okkur að maturinn sé tilbúinn”.
Þau tæmdu staupin i annað sinn. Það gladdi hana, að nú leit
Brent aftur á hana og henni fannst — þótt hún hefði annars illan bif-
ur á vininu i því sambandi — augnaráð hans eitthvaö svo spyrjandi
eins og hann vildi vita eitthvaö sem hann heföi ekki getað lesið út úr
henni. Þegar þau Howland voru sezt við litið borð út viö vegginn I
hinum salnum, mælti hún:
„Þekkið þér Brent?"
„Skáldiö? Nei, fjarri þvi. Ég er bara venjulegur kaupsýslumaður.
Hann myndi varla virða mig viðlits. Hafið þér kannski mætur á
þess háttar fólki?”
„Ég vildi fegin geta orðið leikkona, ef þess væri kostur", sagði
Súsanna varfærnislega.
„Ja — við skulum nú fyrst snúa okkur að matnum. Ég bað um
kampavin, en ef þér vilduö heldur eitthvað annað...”
„Ég vildi helzt kampavin. Ég vona að það sé ekki sætt”.
Howland horfði á hana aödáunaraugum. „Mér þykir vænt um
þegar kvenfólk gerir greinarmun á kampavini og einhverju
freyðandi glundri. Ég hugsa að við séum talsvert lik um margt.
Mér þykir gott að borða góðan mat — þaö finnst yður lika. Ég hafna
ekki staupi af góðu vini — það geriðþér ekki heldur. Mér þykir gam-
an að lyfta mér upp — yöur lika. Mér finnst þér vera helzt til mögur
en þér fitniö áreiðanlega. En hvers vegna urðu varirnar svona
blóðlausar?”