Tíminn - 16.03.1978, Qupperneq 3

Tíminn - 16.03.1978, Qupperneq 3
Miövikudagur 15. marz 1978 3 Fólksflutningar á íslandi 1977 ESE — A siðasta ári fluttu 2367 manns af landi brott, en aðflutt- ir hingað voru 1358. A þessum tölum séstað rúmlega lOOOfleiri flytjast frá landinu, en til þess. Flestir af þeim sem flytjast ut- an fara til Norðurlandanna, og þar eru Sviþjóð og Danmörk efst á blaði, þvi að i fyrra fluttu 921 til Sviþjóðar og 547 til Dan- merkur. Ef hins vegar er litið á hve margir settust hér að frá fyrrgreindum löndum, kemur i ljós að sá samanburður er okkur mjög óhagstæður, þvi að frá Sviþjóð fluttust 271 hingað til lands og frá Danmörku voru þeir 331. Ef litið er á alla flutninga sem áttu sér stað hér á landi i fyrra bæði innanlands og milli landa, kemur i ljós að alls voru aðflutt- ir 12653, en þeir brottfluttu 13662. Munurinn er sem sagt Reykjavik önnur sveitarfélög á höfuðborgarsvæði Suðurnes o.fl. Vesturlnd Norðurland vestra Vestfirðir Norðurland eystra Austurland Suðurland Ef litið er nánar á þessar tölur sést að i sveitarfélögum á höf- uðborgarsvæðinu, Suðurnesjum og Norðurlandi eystra varð fólksfjölgun, en annars staðar er um fólksfækkun að ræða. Vestfirðir koma vel út að þessu sinni, og mun þar mest muna um innflutt vinnuafl frá Nýja- 1009 manns, eða fjöldi þeirra sem „tapazt” hafa héðan af landi i flutningum siðasta árs. Munurinn verður mun iskyggi- legri, ef iitið er á þá staðreynd að mun fleiri islenzkir rikis- borgarar flytjast úr landi en þeir sem flytjast heim. Ef litið er nánar á tölurnar um aðflutta og brottflutta milli landa, kem- ur i ljós að af þeim 2367 mönnum sem flytjast til útlanda á árinu, eru 2034 islenzkir rikisborgarar, en af aðfluttum hingað til lands, samtals 1358, eru aðeins 867 is- lenzkir rikisborgarar. Þvi er munurinn raunverulega 1167, og er það fjöldi þeirra islenzku rikisborgara, sem flytjast af landi brott umfram þá sem heim flytjast. Ef litið er á flutninga innan- lands milli byggðarlaga, kemur eftirfarandi í ljós: Aðfluttir Brottfluttir 3481 4796 3253 2950 1047 891 696 838 513 559 737 734 1206 1027 576 602 1125 1253 Sjálandi og Astraliu, en margar stúlkur frá þeim löndum vinna i frystihúsum viðs vegar á Vest- fjörðum. Þessar og fleiri upplýsingar er að finna i nýútkomnum Hag- tiðindum, sem Hagstofa íslands gefur út. Ekki öll von úti enn HEI— Aðspurður um rafmagns- mál Vestmannaeyinga sagði Garðar Sigurjónsson, rafveitu- stjóri, i gær, að lokun hefði verið frestað til morguns, þ.e. i dag. Eins og kunnugt er af fréttum hafði Rafveita Vestmannaeyja tilkynnt frystihúsunum i Eyjum um lokun fyrir rafmagn til þeirra á s.l. þriðjudag og Rafmagnsveit- ur rikisins hafa jafnframt til- kynnt að lokað verði fyrir raf- magn til Vestmannaeyja þann sama dag. Hefur þvi fengizt tveggja daga frestun á þessum aðgerðum svo menn hafa ekki misst alla von um að takast megi að leysa þessi mái án svo harka- legra aðgerða sem lokun fyrir rafmagn til Eyja yrði. Um það fást vonandi nánari fréttir i dag. 1 gær fór fram i Fossvogskapellu minningarathöfn um Karl Kristjánsson, fyrrverandi aiþingismann, að viðstöddu fjölmenni. Séra Þórir Stephensen, dómkirkjuprestur, flutti minningarorð. Karl Kristjánsson verður jarðsettur frá Húsavfkurkirkju næstkomandi laugardag. TfmamyndG.E. Danskt verksmiðju- skip til Þorlákshafnar „Hagnýtum heimild rikisstjórnarinnar” JB — „Tildrög þessa máls eru að i janúar sl. samþykkti rikisstjórnin aö veita Rann- sóknastofnun fiskiðnaðarins heimild til að leigja verk- smiðjuskip af danska fyrirtæk- inu Esbjerg til að framleiða fljótandi skepnufóður úr magurri loðnu i lok loðnuvertiðar i ár, og er nú bara verið að hagnýta þessa heimild. Skipið er komið og hóf vinnslu i gær. Enn sem komið er fer allt eftir áætlun, en fram- haldið hlýtur að fara eftir þvi hvern áhuga innlendir aðilar sýna þessu máli. Þvi þótt framleiðslan fari fyrst i stað fram i dönsku verksmiðjuskipi er að þvi stefnt að um islenzka framleiðslu verði að ræða siðar.” Kom framangreint fram er blaðið ræddi við Björn Dagbjarts- son, framkvæmdastjóra Rann- sóknastofnunar fiskiðnaðarins varðandi komu dansks verk- smiðjuskips til Þorlákshafnar s.l. mánudag i þeim tilgangi að taka þar loðnuúrgang og slor og vinna úr þvi dýrafóður. Að sögn Björns hafa Danir framleitt dýrafóður úr ruslfiski i mörg ár. Hefur verksmiðjuskipið farið út á miðin, keypt skitfisk af bátunum, unnið úr honum og far- ið með framleiðsluna i land. þar sem hún hefur verið selu til bænda. En nú mun búið að loka miðunum fyrir þeim á Norður- sjónum, og hafa þeir þvi þurft að leita annað til að fá hráefni en þeir hafa komið sér upp stórum markaði fyrir þessa framleiðslu. Vinnslan fer þannig fram, að það er eins og um raunveruiega melt- ingu sé að ræða. Sýrustiginu i hráefninu er breytt, eftir að það hefur verið hakkað, eins og um magameltingu sé aö ræða, þannig aðhráefnið verður eins kona súpa eða grautur. Og þannig fer það til bænda. sem gefa svinum kúm og kálfum til fóðrunar. „Danir hafa skuldbundið sig til að kaupa afurðirnar frá skipinu á þvi verði sem rannsóknirnar koma til með að kosta, sv að við förum slétt út úr þessu fjárhags- lega séð en reynslunni rikari. En ljóst er að hér gæti verið um mikilvægt mál að ræða, þvi fóður- bætisframleiðsla af þessu tagi er mun ódýrari en fiskimjölsverk- smiðjur,” sagi Björn. Ríkisútgáfa náms- bóka fjörutíu ára SKJ — Rikisútgáfa námsbóka á um þessar mundir 40 ára afmæli. Útgáfan gaf i fyrstu eingöngu út bækur fyrir barnaskóla, en með timanum hafa verkefnin orðið fjölbreyttari og vafalitið á útgáf- an eftir að aukast enn. Megin- markmið Rikisútgáfu námsbóka hefur frá upphafi verið að sjá öll- um nemendum fyrir námsbókum án efnalegs manngreinarálits. Þrátt fyrir að islenzkar aðstæður bjóði upp á mjög takmarkaðan nemendafjölda og fjárráð, hefur tekizt á undanförnum fjörutiu ár- um að gera islenzka námsbókaút- gáfu að verulegu leyti sambæri- lega við það sem gerist með stærri þjóðum, sem við berum okkur oft saman við. A árinu 1938 komu út fyrstu frumsömdu námsbækur Rikisút- gáfu námsbóka, en þær voru Bib- liusögur, Grasafræði, Lestrarbækur, Reikningsbók og Skólaljóð. Útgáfan keypti einnig útgáfurétt nokkurra eldri náms- bóka. Reynt hefur verið frá upp- hafi að myndskreyta námsbækur barna, og 1938, þegar Grasafræð- in var gefin út, voru i henni tvær litprentaðar siður, sem þá var al- ger nýjung. Hin viðfraéga bók Gagn og gaman var hins vegar Jfvrsta litprentaða bók útgáfunn- ar. Fljótt varð ljóst, að nauðsyn- legt var að Rikisútgáfa námsbóka hefði forgöngu um útvegun kennslutækja, og var árið 1957 komið á fót verzlun með skólavörur og nafn hennar ákveð- ið Skólavörubúðin. Forsvars- menn búðarinnar hafa siðan reynt að fylg.jast með nýjungum á sviði kennslutækni og hafa á boðstólum sem mest úrval kennslutækja. Starfsemi þessara tveggja fyr- irtækja hefur aukizt með árunum vegna aukinnar notkunar hvers konar hjálpartækja og fjölbreytt- ari bókakosts, sem nú eru notuð við kennslu. í tilefni af 40 ára afrhæli Rikis- útgáfu námsbóka og 20 ára af- mæli Skólavörubþðarinnar hefur verið gefið út serstakt afmælis- hefti af ritinu Bækur og kennslu- tæki, og þar ritar Vilhjálmur Hjálmarsson menntamálaráð- herra grein i tilefni af afmælun- um. Auk hans minnast f jölmargir afmælanna i ritinu. Öperutónleikar Sinfóniu- hlj ómsveitarinnar i kvöld GV— I kvöld kl. 20,30 verða óperutónleikar á vegum Sinfóniu- hijómsveitar Islands og verða eingöngu flutt atriði úr óperum eftir Beethoven og Wagner. Stjórnandi tónleikanna er þýzki óperustjórnandinn Wilhelm Bruckner-Ruggeberg. A tónleik- unum koma fram þýzku óperu- söngvararnir Astrid Schirmer og Heribert Steinbach, auk hljóm- sveitarinnar og Karlakórs Reykjavikur, sem Páll P. Pálsson hefur æft. Tónleikarnir verða endurteknir næstkomandi laug- ardag i Háskólabíói kl. 15. Mynd- in er tekin á æfingu hljómsveitar- innar og sögvaranna i gær. Timamynd:GE Hnifsdalur: Tjónið meira en talið var í fyrstu JB — Klukkan 17.50 I fyrradag var slökkvilið Isafjarðar kvatt út, er kviknaði I húsi Smjörlikis- gerðar Isafjarðar á Hnifsdal. Þegar slökkviliðiö kom á stað- inn var húsið alelda, en að sögn Jóns Ólafs Sigurðssonar, slökkvistjóra tókst að ráða nið- urlögum eldsins á um klukku- tima, og var það til hjálpar að veður var gott er þetta gerðist. Vakt var höfð I húsinu til mið- nættir. Magnús Sigurðsson, einn eig- enda verksmiðjunnar, sagði i samtali við Timann i gærkvöld, að eldsupptök væru enn ókunn, og skildu menn ekkert i þvi hvernig þetta gæti hafa gerzt. Ekki er búið að meta tjóniö, en ljóst er að það skiptir milljón- um, og er þaö meira en búizt hafði verið við I upphafi. Hluti hússins er til dæmis álveg ónyt- ur. Annars sagði Magnús að menn frá Reykjavik myndu sjá um að meta tjónið, en annar þeirra væri enn ókominn vestur. Þetta er mikið áfall fyrir okk- urk og var þvi ekki hátt tryggt. Auk þess stöðvast verksmiðjan um óákveðinn tima, sagði Magnús. Sólu fagnað á ísafirði Sólrishátið menntaskólans á Isa- firði hófst sunnudaginn 5. marz og lauk viku siðar, 12. marz. Var vel vandað til dagskráratriða alla vikuna. Meðal annars voru leiksýning- ar, sem bæði voru ætlaðar börn- um og fullorðnum, fyrirlestur um bókmenntir og flutningur bókmenntaverka, kórsöngur og tónleikar, ljóðalestur og mynd- listarsýning. Þótti mjög myndarlega að þessari sólrishátið menntaskóla tsfirðinga staðið.

x

Tíminn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.