Tíminn - 23.05.1978, Qupperneq 21
Þriöjudagur 23. mal 1978
iw'iiwi'ia
21
iOOOOGOOOi
2363 áhorfendur fóru ánægðir heim af
Laugardalsvellinum...
Atli og Hðrður
voru óstöðvandi
Það voru sannarlega
ánægðir áhorfendur,
sem fóru heim af Laug-
ardalsvellinum, eftir að
hafa séð Valsmenn og
Víkinga leiða saman _______________
hesta sina. Leikur þeirra var einmitt af þeirri gerð-
inni, sem við höfum svo sorglega litið af. Hinir 2363
áhorfendur fengu svo sannarlega að sjá spennu,
baráttu, hraða, leikbrellur og að sjálfsögðu mörk,
en Valsmenn báru sigur úr býtum 5:2. Knötturinn
gekk fram manni til manns og einstakir leikmenn
voru ófeimnir við að leika á einn til tvo andstæðinga
til að auka verulega á hættuna i sókninni. Sem sagt,
Valsmenn og Víkingar, sem leika mjög álika knatt-
spyrnu i sjálfu sér, sýndu áhorfendum alit það
bezta, sem islenzk knattspyrna hefur upp á að
bjóða. Leikur þeirra var sannkallaður sýningar-
leikur.
Það fyrsta sem kom i ljós í
leiknum var að Valsmenn virtust
staðráðnir að ráða miðvallarspil-
inu — og bað tókst beim með til-
stilli þeirra Alta Eðvaldssonar
þegar Valsmenn unnu
sigur - 5:2 yfir Vikingum
i glæsilegum sýningarleik
rpóii
JL 14
ekki við
hraða okkar”
— sagði Nemes, þjálfari Vals
og Harðar Hilmarssonar, sem
áttu mjög góðan leik. Þeir unnu
hvert einvigið á fætur öðru — og
með hraða sinum og leikni tókst
þeim að byggja upp sóknarleik
Valsmanna, sem léku mjög góða
knattspyrnu, þar sem knötturinn
var látinn ganga manna á milli.
Guðmundur Þorbjörnsson og Al-
bert Guðmundsson aðstoðuðu þá
Atla og Hörð eftiiv mætti og skiluðu
þeir hlutverkum slnum vel. Jón
Einarsson og Ingi Björn Alberts-
son sköpuðu usla I vörn Vikinga
með hraða sinum — og Dýri Guð-
mundsson og Sævar Jónsson
voru traustir i vörninni.
Valsliðið var heilsteyptara en
Vikingsliðið — og styrkleika Vals
á miðjunni munaði þar mest um.
Valsmenn réðu þar lögum og lof-
um. Þeir Atli og Hörður voru
hreint frábærir — leikni þeirra og
hraði er mjög mikill og þarna eru
á ferðinni tveir leikmenn, sem
leika fyrir Iiðið, með góðum send-
ingum og leikbrellum. Það er
mikill skilningur á milli leik-
manna Vals og er sóknarleikur
þeirra þvi vel útfærður og
skemmtilegur.
Vikingar börðust hetjulega i
leiknum og léku þeir oft á tiðum
mjög vel en þeir áttu hreinlega
við ofurefli að etja. Diðrik ólafs-
son var mjög traustur i markinu
og stöðvuðust markar sóknarlot-
ur á honum. Þá var Róbert Agn-
arsson sterkur i vörninni, en
Gunnar örn Kristjánsson var sá
leikmaður sem kvað mest að i
Vikingsliðinu á miðjunni. Gunnar
Orn er yfirvegaður leikmaður —
með góðar sendingar. Leikur Vik-
ings byggist mikið á langspyrn-
um fram völlinn — til Arnórs
Guðjohnsens og Jóhannesar
Torfasonar. Arnór er geysilega
fljótur og ákveðinn — leikinn með
knöttinn og með afbrigðum
marksækinn. Þegar þessi 17 ára
leikmaður komst á ferðina og
nálgaðist mark Valsmanna,
skapaöist ringulreið hjá varnar-
mönnum Vals.
Eins og fyrr segir, þá var leik-
urinn mjög spennandi og vel
leikinn og skemmtu áhorfendur
sér konunglega.
MAÐUR LEIKSINS: Atli Eð-
valdsson og Hörður Hilmarsson,
sem léku mjög vel — stundum
virtist þessum snjöllu leikmönn-
um vera stjórnað af sama heilan-
, um svo samrýndir voru þeir.
Arnþór öskársson dæmdi leik-
inn og gerði hann það vel. Hörður
Hilmarsson var bókaður.
—sos.
SOS-Reykjavik — Ég
var mjög ánægður með
strákana, þeir léku góða
knattspyrnu og hraðinn
var mikill í leik þeirra,
sagði Jan Nemes, hinn
ungverski þjálfari Vals-
manna, eftir leik þeirra
gegn Vikingi. — Mið-
vallarspilið var mjög
gott og Atli Eðvaldsson
hreint frábær — hann
lék tvö hlutverk þ.e.a.s.
bæði varnar- og sóknar-
leikmann og skilaði því
mjög vel.
— Ég get ekki annað en verið
ánægður með leik strákanna, sem
gáfu aldrei eftir gegn ákveðnum
Vikingum, sagði Nemes.
— Hvernig fannst þér leikur
Vikings-Iiðsins?
— Vikingar léku dæmigerða
enska knattspyrnu. Þeir voru
harðir og leikur þeirra byggðist
upp á langsendingum fram völl-
inn, þar sem hinn efiiilega Arnór
Guðjohnsen átti að vinna úr þeim.
GUÐMUNDUR
ÞORBJÖRNSSON, sóknarleik-
maður Vals, hafði þetta að segja
um leikinn: — Þetta var stórgóð-
ur leikur og ég er mjög ánægður
með leik okkar Valsmanna. Við
héldum okkar striki Ut allan leik-
inn. Ég er sérstaklega ánægður
með, að við slökuðum ekkert á
þegar Vikingar minnkuðu mun-
inn i 2:3 — við héldum áfram að
spila yfirvegað og siðan kom
markið hans Jóns Einarssnar,
sem gerði út um leikinn, sagði
Guðmundur.
Guðmundur sagði að leikaöferð
Valsmanna hefði heppnast mjög
vel, þar sem völlurinn var mjög
góður og knötturinn hefði runnið
vel. — Við vorum fljótir að snúa
vörni sóknog þeir Atli og Hörður
Hilmarsson áttu stórgóðan leik —
vorufljótir fram með knöttinn og
þegar fram var komið beittum
við leikbrellum, sem heppnuðust
vel.
ur Valsmanna
Vikinga og skoraði fjórða mark Vals
skorar örugglega úr vitaspyrnu á
74. min. sem var dæmd á Magna
Pétursson fyrir að fella Arnór Guð-
johnsen inn i vitateig.
Diðrik ver víti
Diðrik ólafsson varði stuttu sið-
ar (80. min.) vitaspyrnu frá Inga
Birni Albertssyni, með þvi að kasta
sér niður og handsama knöttinn.
Vitaspyrna var dæmd á Magnús
Þorvaldsson fyrir að fella Guð-
mund Þorbjörnsson.
0 4.2.... Róberti Agnarssyni,
miðverði Vikings, verða á mistök á
82. min., er hann missir knöttinn til
Jóns Einarssonar, hins fljóta leik-
manns Vals, sem kemst inn fyrir
vörn Vikings og skorar örugglega
fram hjá Diðriki sem kom út á móti
honum. Þetta mark Jóns gerði út
um leikinn.
• 5:2... Albert Guðmundsson
tekur aukaspyrnu fyrir utan vita-
teig Vikinga á 86. min. Hann spyrn-
ir föstum knetti fram hjá varnar-
vegg Vikinga — knötturinn stefnir
að marki, en hafnar i Ragnar
Gislasyni, bakverði Vikings —
þannig að knötturinn breytti um
stefnu og fór framhjá Diðriki sem
átti ekki von á breytingunni á
knettinum — hann hafði kastað sér
niður og ætlaði að handsama knött-
inn. ,
Mörg önnur marktækifæri sköp-
uðust i leiknum og átti óskar
Tómasson (Vikingi) t.d. skot i
stöng af stuttu færi, þegar staðan
var 3:1 fyrir Val og einnig átti
Arnór Guðjohnsen skot i hliðarnet,
eftir að hann hafði komizt einn inn
fyrir mark Vals. Valsmaðurinn
Guðmundur Þorbjörnsson komst
þá einn inn fyrir vörn Vikinga — en
skaut yfir markið. —SOS.
ARNÓR GUÐJOHNSEN... hinn efnilegi leikmaður Vikings
(t.v. skoraði fyrra rnark Vikinga. Sævar Jónsson , ungi mið-
vörðurinn hjá Val, sést ih.
(Timamynd: Róbert.