Tíminn - 09.06.1978, Page 13
12
Föstudagur 9. júnl 1978
Kappreiðar Sörla:
~' ' Óla
byrj aður
af tur....
Sigurvegarinn i unglingafiokki firmakeppn
innar tekur við verðlaunum sinum.Við hliðina
á honum er sá sem varð þriðji. Ljósmyndir S.V.
Týr og Sigurður Sæmundsson.
Gæðingar
— „Það er ekkert um þaö aö
tala, þetta er meö ljótustu hest-
um sem þú sérö”. Þaö er Sig-
uröur Ólafsson sem hefur orðið.
Hann var einn þeirra fyrstu sem
ég hitti á mótsstaö Sörla i Hafn-
arfirði á sunnudaginn. Hann
hélt i gráan 8 v. hest frá, Kistu-
felli í Borgarfiröi, sem hann á
og kallar Kulda. Hann var kom-
inn meö Kulda til aö leggja hann
i 150 m nýliðaskeiði. ,,Ég skelf
og titra af hræöslu að ég stend
Hafþór Hafdal er einn af okk-
ar dugleguungu knöpum. Hann
sækir mótstiftoger meö nokkra
hesta i hlaupum, þekktastur
þeirra er Blákaldur, sem hefur
hlaupiö á mörgum mótum viöa
um land. Þetta var ekki hans
dagur, Blákaldur sat eftir i
startinu i úrslitum i 300 m
spretti og i úrslitum folahlaups-
ins var Hafþór dæmdur úr leik
fyrir hávaðasamar hvatningar
og fyrir að hafa ásamtöðrum, —
sem einnig var dæmdur úr leik,
— hindraö keppanda, sem sótti
fram á milli þeirra. Hafþór tók
þessumótlæti öllu meö stillingu,
eins og knapa ber aö gera, þótt
ekki færi dult að hann var
óánægöur. Sama var ekki hægt
aö segja um aðra, sem þótti
Hafþór órétti beittur og vildu
rétta hlut hans. Þaö er vont
fyrir dómnefnd aö þurfa aö
liggja undir grófu aökasti áhorf-
enda, fyrir aö framfylgja lög-
um.
Sigurður Ólafsson segir: „Mannasiöi" og Kuldi réttir
fram hægri „höndina”.
Hrannar og Gunnar Arnarson.
varla og hef ekki hugmynd um
hvað ég heiti. Ég hef ekki lagt
hest á móti i fjögur ár, maður”
Kuldi er systursonur Hrolls
hans Sigurðar, og enda þótt
hann sé ekki beinlinis fagur, er
stórýkt að hann sé meö ljótustu
hestum. Sigurður var ánægður
með þessa keppnisgrein — ný-
liðaskeiðið —. Hann var búinn
að tala um það i mörg ár, sagöi
hann, að það væri ekkert vit i að
hleypa byr jendum á móti svona
jöxlum, og hann benti á Vafa,
sem Erling sonur hans var með
þarna rétt hjá, það dregur bára
kjark úr bæði mönnum og hest-
um.
Völlur þeirra Hafnfiröinga er
moldarvöllur, gljúpurogerfiöur
eftir rigningar eins og verið
hafa að undanförnu. Menn
gerðu það san þeir gátu til úr-
bóta, sléttuðu, völtuöu og tróðu
með bilum en þaö dugði ekki til,
völlurinn var þungur. Töluverð-
ur vindstrekkingur var i fangið
á keppendum. Þetta tvennt varð
til þess að ekkert kappreiða-
hrossanna náði góöum tima.
Tafir voru óþarflega miklar
milli hlaupa, og nokkur önnur
smámistök voru á framkvæmd
mótsins. Áhorfendur voru fáir
og þul varö mismæli, bað hesta
að hafa knapa sina tilbúna
o.s.frv. I stuttu máli: dæmigert
mót litils félags. En þrátt fyrir
allt þetta, eða öllu heldur vegna
þessa var mótið skemmtilegt.
Þarna var góöur andi og laus
við spennu, — meö einum
skugga þó. — Þaö er full ástæöa
til að benda áhugafólki á
Stór-Reykjavikur svæðinu á að
sækja mót Hafnfirðinga betur
og eiga þar skemmtilegan dag í
þægilegu umhverfi.
Gunnar Arnarson (t.v.) hefur
alvarleg tiðindi að segja
Jóhanni Tómassyni. Hann hafði
heitið að raka af sér yfirvarar-
skeggið ef Hrannar ynni gæð-
ingakeppni eöa næði 23,5 sek. á
skeiði — og nú verður það að
falla.
A-flokkur
Hafnfirðingar hafa oft getaö
státaðaf góðum gæðingum. Svo
var einnig nú, og sá sem stóð
efstur nú er hinn þekkti vekr-
ingurHrannar. Hrannarer 12 v.
rauður, frá Guðnabakka i
Borgarfirði, undan rauöum
heimahrossum þar, knapi og
eigandi er Gunnar Arnarson.
Hrannar fékk 8,60 í meðaleink-
unr.. Arinar varð Týr frá Garða-
bæ, 7 v. rauður, undan Hyl frá
Kirkjubæ og Gránu frá Brekku i
Þingi. Hann er sameign þeirra
Eggerts Hvanndal og Sigurðar
Sæmundssonar og Sigurður sat
Tómas og Þróttur verða aö viöurkenna yfirburöi kvenkynsins og sætta sig viö aö sjá bara aftan
frá þegar Friöa og Loka koma i mark.
Og hér sést fegurö þeirra
B-flokkur
Þar varð efstur Rektor, 6 v.
mórauður frá Vatnsleysu I
~m---------------------—►
Lisbeth Gerestig og Rektor
sigruöu i B-flokki gæðinga og
kvennaf lokki firmakeppninnar
og auk þess fékk Lisbeth knapa-
verðlaun mótsins. Hún gat varla
haft hönd á öilum bikurunum,
sem Ellert Eggertsson formaö-'
ur Sörla afhenti henni.
hann. Einkunn: 8,50. Þriðji varð
Svipur 7 v. brúnn frá Veðra-
móti, faðir er Sörli 653, eigandi
Sigurður Adolfsson en Trausti
Þ. Guðmundsson var knapi.
V.
Föstudagur 9. júnf 1978
13
'j Þjóðleikhúsið:
Leikárinu
senn að ljúka
Skagafirði, faðir er Ljósvaki 794
og móðir Blökk 3061 frá Kylju-
holti. Eigandi og knapi er
Lisbeth Gerstig, Einkunn: 8,22.
t öðru sæti varð Stigur, 15 v.
jarpur úr Skagafirði, eigandi
Ólafur Eyjólfsson, knapi Jón P.
Ólafsson. Hann hlaut 8,13. Þriðji
varð tslandus 6v. rauðtvistjörn-
óttur frá Breiðavaöi, Hún., faðir
Ýr frá Kirkjubæ, móðir Spóla
frá Breiðavaði,eigandi ogknapi
er Sigurður Sigurösson. Hann
fékk i einkunn 8,00.
Þessir sex gæðingar verða
fulltrúar Sörla á landsmótinu og
knapar þeirra verða að þjálfa
vel og samvizkusamlega undir
eftirliti Sigurðar Sæmunds-
sonar. Verði misbrestur á þjálf-
uninni, hefur Sigurður umboð
félagsstjórnar tii að visa viö-
komandi úr keppnissveitinni og
taka inn varahest.
Nú eru aðeins eftir tæpar
þrjár vikur af leikári
Þjóðleikhússins og er sýningum
að Ijúka á þeim leikritum, sem
enn eru i sýningu. A
fimmtudagskvöldið verður
siðasta sýning á þessu leikári á
Mæörum og sonum, tveim ein-
þáttungum á Litla sviðinu, sem
sýndir hafa veriö 10 sinnum viö
góöa aösókn og afbragösdóma
gagnrýnenda.
Þá eru aðeins eftir þrjár
sýningar á italska gamanleikn-
um Laugardegi, sunnudegi.
mánudegi. sem sýndur hefur
verið viðgóða aðsókn i vor. Með
aðalhlutverk i þessum italska
fjölskylduleik fara Herdis
Þorvaldsdóttir og Róbert
Arnfinnsson, en margir helztu
leikarar leikhússins koma fram
i sýningunni. Leikstjóri er
Gunnar Eyjólfsson. Leikritið
veröur sýnt á föstudagskvöldiö
og eru þá aðeins eftir tvær
sýningar á verkinu.
Ennþá er Káta ekkjan sýnd
fyrir fullu húsi og verður sýnd
fram til 24. júni, en þá lýkur
leikárinu.
Myndin er úr Laugardegi, sunnudegi, manudegi. Herdis
Þorv. Róbert Arnfinnsson, Hclgi Skúlason og Steinunn
Jóhannesdóttir.
Kappreiðar
Fannar var skráður i skeið-
keppnina, en mætti ekki og
Hrannar lá hvorugan sprettinn.
Vafi sigraði á 25,2 sek. og Týr,
sem varð annar I A-fiokki gæö-
inga varö einnig annar i skeið-
inu á 25,5 sek. og er þá búinn aö
tryggja sér þátttökurétt bæði
sem gæöingur og vekringur á
landsmóti. Þriöji varö Villing-
ur, 6 v. brúnn hestur, sem Berg-
ljöt Leifsdóttir á, en Trausti Þór
Guðmundsson situr, hann hljóp
á 26,7 sek.
Nýliöunum gekk misvel i 150
m skeiði, fæstir vildu liggja, en
hjá öðrum mátti sjá geysifaílee
grip. Sigurður ólafsson og
Gunnar Arnarson ræddust við
fyrir keppnina, Siguröur sagöist
ætla að láta Kulda fara á 15,0
sek. og Gunnar sagöi að það
væri i lagi, þvi Fengur færi hjá
honum á 13,5 sek., en hvorugur
stóð við orð sin. Fengur sigraði
á 17,1 sek. annar varð Garpur,
sem Sigúrbjörn Bárðarson er
með og verður i gæðingasveit
Fáks á landsmóti, á 17,4 sek. og
Kuldi varð þriðji á 18,7 sek.
Friða Steinarsdóttir hleypti
Loku, sem sigraði i 300 m stökki
á 23,8 sek. og fast á eftir fylgdi
Tómas Ragnarsson á Þrótti.
Þróttur hljóp á 24,0 sek. Að
undanförnu hefur Þróttur verið
ýmist skráður á nöfn þeirra
feðga, Tómasar eða Ragnars,
svo ég spurði Ragnar hvor
þeirra væri réttur eigandi og nú
er það komið á hreint, Tómas
Ragnarssoná Þrótt. Þriðji varð
Fengur á 25,4 sek.
í folahlaupi sigraði Reykur á
20,1 sek., það er ekki sami
Reykur og sigraði á báðum
kappreiðum Fáks i vor, þessi er
5 v. ieirljós, eig. Kristján Guð-
mundsson, knapi Kristján R.
Kristjánsson. Annar var Lykill
á 20,3 sek. Tveir hestar hlupu á
betri tima, en hlaup þeirra var
dæmt ógilt, áns og aö framan
segir.
Firmakeppni
Firmakeppni var háö i sam-
bandi við mótið og keppt I þrem
flokkum: unglinga-, kvenna og
karlaflokki. 1 unglingaflokki
sigraði Fifill, knapi Þröstur
Ingvarsson og keppti fyrir Góu,
sælgætisverksmiðju, Hafþór
Hafdal á Blakk varð annar og
keppti fyrir Lögmannsskrif-
stofu Ingvars Björnssonar og
PétursKerúlf. Rektor Lisbethar
Gerestig sigraði i kvennaflokki,
keppti fyrir Verzlunina Embla.
Annar varð Blakkur, sem keppti
fyrir Kristján og Geir, knapi Jó-
hanna Guömundsdóttir. Valur,
knapi Siguröur Sæmundsson,
varðefstur i karlaflokki, keppti
fyrir Ashúsgögn og annar varð
Glókollur Ómars Hallssonar og
keppti fyrir Ferdinand Róbert
Eiriksson ORTHOP skósmiður.
Fimmtiu og átta fyrirtæki
tóku þátt i keppninni.
S.V.
þúflýgurí
vestur
til New York.
Svosuður
á sólarstrendur Florida.
Flatmagar
á skjannahvítri Miami
ströndinni eða buslar
í tandurhreinum sjónum.
Býrð á lúxus
hóteli
í tveggja manna herbergi,
með eða án eldunaraðstöðu,
eða í hótelíbúð.
Shoðar Cape
Kennedy
Safari Park, Everglades þjóðgarðinn
og hin litríku kóralrif Florida Keys.
Tekur í hendina
á Mikka mús á fimmtugsafmælinu.
Snæðir
safaríkar amerískar
steikur. (Með öllu tilheyrandi).
Slærð til
og færð þér bílaleigubíl
fyrir 19-23 þúsund kr.
á viku. Ekkert kílómetragjald.
íslenshur
fararstjóri
verður að sjálfsögðu öllum
hópnum til halds og trausts.
NÆSTU 3JA VIKNA ferðir verða: 9. júní (Uppseld).
7. júlí, (Konoverhótel og íbúðir) 4. ágúst, (Ivanhoehótel m/eða án eldunaraðstöðu)
1. september (Konoverhótel og íbúðir)
Sem dæmi um verð fyrir ferðir og gistingu má nefna kr. 174.800 þann 7/7 og 1/9, og kr. 189.000 þann 4/8.
FLUGFÉLAG
ÍSLANDS
LOFTLEIDIR
Nánari upplýsingar: Söluskrifstofur okkar Lækjargötu 2 og Hótel Esju, sími 27800, farskrárdeild,
sími 25100, skrifstofur okkar úti á landi, umboðsmenn og ferðaskrifstofur.
O
2
3
O
X
(J