Tíminn - 18.07.1978, Qupperneq 6
6
Þriðjudagur 18. júli 1978
veiðihornið
Veiðihornið hafði i gær sam-
band við Friðrik Stefánsson
hjá Stangaveiðifélagi Reykja-
víkur, og innti hann eftir þvi
hvernig veiðin hefði gengiö i
þeim ám, sem félagið hefur á
leigu. Friðrik sagöi veiðina
hafa gengið mjög vel og væri
nú veitt af kappi i öllum helstu
ám félagsins en þó sagöist
Friðrik hafa litlar fréttir af
Norðurá, en þar eru út-
lendingar við veiðar fram yfir
mánaðamót.
69% aukning í Elliðaán-
um frá þvi í fyrra
Veiðin i Elliðaánum hefur
gengið mjög vel og s.l. föstu-
dag voru komnir 514 laxar á
land, en á sama tfma i fyrra
voru þeir 305, og er þaö 69%
aukning. Friðrik sagði, aö nú
væru um 2300 laxar komnir
upp fyrir teljara i Elliöaánum
á móti 1630 á sama tima i
fyrra og væri áin full af laxi.
Það hefði komið fyrir nokkr-
um sinnum að veiðst hafi yfir
30 laxar á dag en stærsti lax
sumarsins I Elliðaánum hing-
aö til vó 16 pund, og veiddi
hann Sigurbjörn Fanndal I
Ullarfossi, 3.7. s.l.
Breiðdalsár
Nú eru konmir um 50 laxar á
land úr Breiðdalsám, eða um
10 löxum fleiri en á sama tfma
i fyrra. Meðalþyngd laxanna
er mjög góð og hafa mjög
margir 10 - 11 punda laxar
veiðst úr ánum i sumar.Veiðin
er mest á svæði 2, en þaö er
Suöurdalsá upp aö Beljanda.
Leirvogsá
Úr Leirvogsá voru komnir
40 laxar á land, áttunda þessa
mánaðar og var það svipuð
veiði og á sama tlma I fyrra.
Friðrik Stefánsson sagöi að
laxinn væri svipaður aö stærð
og i fyrra, og væri hann yfir-
leitt nokkuö vænn.
Stóra- Laxá í Hreppum
Ekki hafði Friðrik neinar
spurnir af veiði á svæöi 1 og 2 I
Stóru- Laxá, en 13,7. s.l. voru
komnir um 80 laxar á land á
svæöum 3 og 4 hvoru um sig,
og hafði Friðrik fregnir af
tveim 20 punda löxum sem
veiðst heföu á svæði 3, en að
öðru leyti er fiskurinn yfirleitt
vænn.
Gífurleg veiði í Grímsá
Þaö hefur verið alveg gifur-
leg veiði i Grfmsá-, sagði Frið-
rik Stefánsson, þegar við
ræddum við hann i gær. Áin er
full af laxi og eru nú komnir
yfir 700 laxar á land frá þvi að
veiði hófst þar 23. siöasta
mánaðar. Það eru útlending-
ar, sem eru með ána á leigu
þessa stundina, en SVFR tek-
ur aftur við stjórntaumunum i
næsta mánuði. Stærsti laxinn
sem veiðst hefur i Grimsá á
þessu sumri er 17,5 pund.
Flókadalsá
Friðrik sagöi okkur að
Flókadalsá væri aö venju
nokkuð sein til, en þó heföi þar
veriö reytingsveiði að undan-
förnu, Hannkvaðstþó eiga von
á að veiði færi aö glæðast úr
þessu en veiði i ánni væri yfir-
leitt nokkuð góð seinni part
sumars.
Góð veiði í Langá
Einar Jóhannesson á Jarð-
langsstöðum sagði Veiðihorn-
inu I gær, aö á svæðinu Háhóll,
Hvltstaöir, Jarðlangsstaðir,
sem nefnist svæði 2, væru nú
komnir um 200 laxar á land.
Einar sagði veiði hafa gfengið
vel og samkvæmt nokkuö
áreiðanlegum fréttum sem
hann hefði fengiö, þá ættu nú
að vera komnir yfir 800 laxar á
land úr allri ánni.
Ólafsvík —
Sveitarstjóri
Starf sveitarstjóra i ólafsvik er laust til
umsóknar, umsóknir um starfið ásamt
upplýsingum um menntun og fyrri störf
sendist oddvita ólafsvikurhrepps,
Alexanders Stefánssonar fyrir 31. ágúst
1978.
Hreppsnefnd Ólafsvikurhrepps.
Kennarar óskast
að Grunnskólanum Staðarborg, Breið-
dalshreppi.
Upplýsingar gefa skólastjóri i sima 97-
5618 og formaður skólanefndar i sima 97-
5648.
m Ritari -
^ Heyrnardeild
Ritara vantar á Heyrnardeild heilsu-
verndarstöðvar Reykjavikur nú þegar.
Umsóknarfrestur er til 26. júli 1978.
Upplýsingar veitir forstöðumaður heyrn-
ardeildar Birgir Ás Guðmundsson.
A % HESTASL OÐUM
Sigurjón
Valdimarsson
Gæðingar
Skúmur, Sigfinns i Stóruiág I
Hornafirði, varð efstur alhliða
gæðinga með 8,94 i meðaleink-
unn, Frami, Skúla Steinssonar
varð annar með 8,86 og þriðji
varð Garpur, Harðar G.
Albertssonar með8,84. 1 B-flokki
om fram ný stjarna, Hlynur frá
Akureyri og sigraði glæsilega og
heillaði áhorfendur. Hann hlaut
9,16 i meðaleinkunn. Brjánn,
Harðar G. Albertssonar varð
annar með 8,98 og Náttfari úr
Hornafirði, Guðmundar Jóns-
sonar, varð þriðji með 8,78.
Einu glæsilegasta hestaþingi
frá upphafi lauk á Skógarhólum
á sunnudagskvöld. Svo er þeim
guðum sem stýra veðrum
ásamt Islenskum hrossaræktar-
mönnum og knöpum og að sjálf-
sögðu islenska hestinum fyrir
að þakka, að allar sýningar og
kappleikir voru glæsilegt
augnayndi fyrir þvf sem næst
tuttugu þúsund áhorfendur, sem
létu þakklæti sitt I ljós með
prúðmannlegri framkomu.
Lögregla og hjálparsveit
skáta áttu náðuga daga, trúlega
hefur stærsta verkefni lögregl-
unnar veriö að halda nokkrum
hluta áfiorfenda frá keppnis-
brautum. A öllum hestamanna-
mótum er nokkur hópur fólks,
sem vill komast sem næst
hlaupabrautunum, sumir til að
reyna að sjá meira en aörir,
sumir til að ljósmynda og sumir
bara til aö vera uppáþrengj-
andi. Flester þetta fólk börn og
unglingar og i Skógarhólum
varð hópurinn stundum s vo stór
að til vandræða horfði, og mót-
stjórn varð að beita lögreglu og
hótunum um að stöðva keppni
tO að stöðva þennan átroðning,
en mikil slysahætta skapast
þegar svo mikill fjöldi flykkist
að keppnisbrautum.
Engin teljandi slys urðu á
mönnum.en tvo hesta mun hafa
þurft að aflifavegna meiösla,
annan á fimmtudag og hinn á
mánudagsmorgun, eftir að mót-
inu lauk. i dag birtum við úrslit
úr mótinu, en nánar verður
fjallað um einstakar greinar og
mótshaldið I heild siðar.
Kynbótahross
Sörli 653 frá Sauöárkróki
stefndi að heiðursverðlaunum
og náði þeim. Til þess þurfti
hann að fá 8,10 stig fyrir tólf
afkvæmi, og hlaut hann 8,11.
Sörli var fyrir einn þekktasti
stóöhestur landsins og ekki
minnkar frægð hans nú við að fá
heiðursverölaun. Eigandi Sörla
er Sveinn Guömundsson,
de&darstjóri á Sauðárkróki.
Þrfr aðrir stóðhestar voru
afkvæmasýndir, en með þeim
voru sýnd sex afkvæmi. Allir
hlutu þeir 1. verðlaun fyrir
afkvæmi, til þess þurftu þeir að
fá 7,90 stig fyrir afkvæmi. Efst-
ur þeirra varð Þáttur 722 frá
Kirkjubæ, með 8,09 stig, annar
varð Stjarni 610 frá
Bjóluhjáleigu með 8,05 stig og
Fáfnir 747 frá Laugarvatni
þriðji með 7,99 stig
Ein hryssa, Fjöður 2826 frá
Tungufelli, keppti að heiöurs-
verölaunum og náði þeim með
glæsibrag, hlaut 8,18 stig fyrir
afkvæmi. Hryssan var sýnd
með fjórum afkvæmum og má
raunar segja að þar hafi veriö
tvöföld afkvæmasýning, þvf
fimm synir eigandans, Esterar
Guömundsdóttur á Laugar-
vatni, sýndu hryssuna og af-
kvæmi hennar, og mátti varla á
millisjáhvor afkvæmahópurinn
stóð sig betur.
Stjarna 3335 frá Kirkjubæ
hlaut 7,82 stig fyrir afkvæmi og
þrjár aðrar hryssur hlutu 1.
verðlaun, fengu allar 7,80 stig
fyrir afkvæmi, þær Drottning
3241 frá Reykjum, Blesa 3313 frá
Hllð og Elding 4698 frá Akur-
eyri.
Af stóðhestum án afkvæma
var Náttfari 776 frá Ytra-
-Dalsgerði langefstur og fékk
hæstu einkunn, sem kynbóta-
hrosshefur fengið til þessa, 8,0
fyrir byggingu, 9,08 fyrir
hæfileika, meðaleinkunn 8,54.
Gáski 920 frá Hofsstööum varð
efstur 5 v. stóðhesta, einnig með
mjög háa einkunn, 8,10— 8,53 —
8,32. Dómarar brutu hin
óskráðu lög sfn og dæmdu ein-
um 4 v. hesti 1. verðlaun, sá er
Hlynur 910 frá Hvanneyri sem
fékk 8,20 — 7,87 — 8,04.
Þrjár hryssur i flokki 6 v. og
eldri voru áberandi hæstar,
Snælda 4154 frá Argerði, meö
8,30 —8,38 —8,34, Sunna 3558 frá
Kirkjubæ með 8,30— 8,35— 8,33
og Rakel 4288 frá Kirkjubæ með
8,20 — 8,40 — 8,30. Elding 4595
frá Höskuldsstöðum varð efst 5
v. hryssa með 8,20 — 8,30 — 8,25.
Þá var Brynja 4734 frá Torfa-
stöðum meö8,0 — 8,38 — 8,19 og
Gletting 4725 frá Stóra-Hofi með
8,0 — 8,32 — 8,16.
Kappreiðar
Geysilegur spenningur rikti
um úrslit hlaupa, einkum i 350
m og 800 m stökki. t skeiðinu var
þó lltn spenna, enda hefur verið
heldurdauftyfirskeiðinu I sum-
ar. Fannar sigraði þar og kom
engum á óvart, hann hljóp á 23,0
sek. ölver frá Akureyri varð
annar á 23,5 sek og þriðji varð
Vafi á 23,6 sek.
Funi frá Búöardal kom til
brokkkeppninnar og sigraði á
nýju meti, 3:02,5 min., Blesi frá
Miðey hljóp einnig undir gamla
metinu á 3:06,9 mln. og þriðji
varð Gráni frá Garösauka á
3:09,2 min. Kóngur frá
Stafholtsveggjum sigraöi I
folahlaupinu á 18,1 sek. eftir
geysiharða keppni viö Storm,
sem hljóp á 18,2 sek, og Snegla
frá Stórulág varð þriðja á 18,4
sek. öskubuskan Nös, frá
Urriöavatni, sigraði örugglega f
350 m stökki, á 24,5 sek. Gjálp
frá Laugarvatni vann jafn-
örugglega til annars sætisins,
hljóp á 24,7 sek. og þriðja varð
Blesa frá Hvitárholti, sú sem
sigraði Loku á Rangárbökkum
viku fyrr, varð þriðja á 25,1 sek.
Loka meiddist eftir fyrsta
sprettinn (undanrásir), sem
húnhljóp á 24,9 sek.ogvar mikil
eftirsjá i að hún skyldi ekki geta
haidið áfram keppni. Glóa,
methaflnn i greininni, hljóp á
25,1 sek. i undanrás en á lakari
tíma bæði i milliriöli og úrslit-
um. 800 m stökkið sigraöi Gust-
ur á 63,5 sek. Mósi, hinn efnilegi
frá Vindási varö annar á 63,4
sek. og Frúar-Jarpur, sá sem
bætti metið i greininni viö
Pétursey I sumar, varð þriöji á
64,3 sek.
Hlynur frá Akureyri kom öllum að óvörum og sigraðl glæsilega
bæði I B-flokki gæðinga og tölti. Knapi er Eyjólfur Isólfsson.
Sjórall 78
Eins og flestum mun kunnugt
efndu Dagblaðiö og Snarfari til
sjóralls ’78 I kringum ísland.
Keppnin hófst sunnudaginn 9. júli
og komu fyrstu bátarnir til
Reykjavikur rétt fyrir kl. 22 á
sunnudagskvöld. Voru það Hafrót
05 og Signý 08. Sigldu þeir hnlf-
jafnt inn I Reykjavlkurhöfn og
var svo mjótt á milli þeirra I
keppninni, að endanleg úrslit
voru ekki kunn, fyrr en speking-
arnir höföu borið saman bækur
sinar og reiknað út stig þeirra eft-
ir öllum kúnstarinnar reglum.
Urslitin voru siöan kynnt kl. 21 i
gærkvöldi i sýningarhöllinni á
— aðallega flugi.
DB. ljósmynd Ragnar TIl.
Tveir bátanna á ferð og flugi
Bfldshöfða og kom þá i ljós að
báturinn Hafrót hafði sigraö, en
keppendur á honum voru þeir
Hafsteinn Sveinsson og Runólfur
Guðjónsson.
Var þeim vel fagnað og hlutu
þeir að launum veglegan bikar og
áletruð tölvuúr.