Tíminn - 26.07.1978, Blaðsíða 6
6
Miðvikudagur 26. júli 1978
Útgefandi Framsóknarflokkurinn
Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar:
Þórarinn Þórarinsson og Jón Sigurðsson. Auglýsinga-
stjóri: Steingrimur Gisiason. Ritstjórnarskrifstofur,
framkvæmdastjórn og auglýsingar Siðumúia 15. Simi
86300.
Kvöldsimar blaðamanna: 86562, 86495. Eftir kl. 20.00:
86387. Verö I lausasölu kr. 100.00. Askriftargjaid kr. 2.000 á
mánuðL Blaðaprent h.f.
Ungmennafélögin
Það er enginn yfirdrepsskapur að viðurkenna
að margvisleg óheppileg öfl sitja um heill æsk-
unnar i landinu. Það er engin hræsni að játa að
fjölmargt gæti farið betur i uppeldismáium og
félagslifi æskulýðsins en verið hefur. Það er ekki
heldur neitt einsýni að láta það koma fram að holl
útivera og heilbrigðar iþróttir gera hvern mann
betri, hraustari og heilsteyptari en ella. Og ekki
verður það talið bera neinu ofstæki vitni þótt sagt
sé að æska landsins hefði gott af meiri þjóðernis-
anda en rikt hefur i landinu um langt skeið.
Það er vafalaust að á þessum sviðum á hið
opinbera miklu hlutverki að gegna. Sú staðreynd
haggar þó ekki þeirri vissu að sjálft starfið á
þessum vettvangi er best komið i höndum
frjálsra áhugamannasamtaka. Þar fær framtak-
ið, hugkvæmnin og félagsþroskinn hentasta og
æskilegasta tækifærið til að brjótast fram og láta
gott af sér leiða. 1 slikum samtökum fær æskan
sjálf að takast á við viðfangsefnin á frjálsan hátt
og getur þannig lagt sitt af mörkum við mótun
þjóðlifsins.
Islenska þjóðin hefur notið þess að eiga samtök
af þessu tagi sem um áratugabil hafa unnið stór-
kostlegt verk i þessum efnum. Ungmennafélögin
um land allt hafa átt meiri þátt en margan grun-
ar i þeirri hröðu framsókn sem einkennt hefur
islenskt þjóðlif á þessari öld þrátt fyrir allt.
Siðastliðna helgi hélt þessi mikla hreyfing lands-
mót sitt á Selfossi, og var það þátttakendum og
samtökunum i heild til mikils sóma.
Landsmót ungmennafélaganna sýndi að i þess-
um fjölmennu samtökum á islenska þjóðin raun-
verulegan valkost i uppeldismálum og félags-
málum æskunnar. Um þessi mál er oft fjallað
eins og vonlitinn vandræðabálk. Slikt er skamm-
sýni og ber þess ekki vitni að menn fylgist með
þeim hreyfingum sem fyrir hendi eru.
Fyrir þvi eru sjálfsagt margar ástæður að ung-
mennafélögin hafa ekki verið svo mjög i sviðs-
ljósi undan farin ár sem verðugt væri. En það er
með þau eins og flest það sem er gott, fagurt og
siðlegt og stefnir til umbóta og uppbyggingar, að
þau starfa hljóðlátlega og af hógværð meðan
vindgapar niðurrifs og veifiskatar tisku riða
húsum og æpa sig hása. Hitt er verkefni, jafnt
fyrir ungmennafélögin, önnur skyld samtök i
landinu og fyrir þá sem til forystu veljast fyrir
málefnum þjóðarinnar, að styrkja þessi samtök
og efla þannig að þau geti náð til allrar æsku
landsins.
Ræktun lýðs og lands er kjörorð ungmenna-
félaganna og það á enn jafnbrýnt erindi sem fyrr.
Lifsbarátta litillar þjóðar á sér engan endi og
framfarirnar biða sifellt vinnufúsra handa.
Reynslan ætti að vera ólygnust um það að vandi á
sviði uppeldismála og félagslifs æskunnar verður
ekki leystur með háskólagengnum sérfræðing-
um, heldur þroskandi og mannbætandi félags-
þátttöku unglinganna sjálfra i þeirra eigin frjálsu
samtökum.
En ungmennafélögin berjast einnig fyrir þvi
háleita markmiði að rækta og græða þjóðlif og
fósturjörð. Þessar hugsjónir eru ekki úreltar þótt
það þyki bera góðri menntun vitni á stundum að
hæðast að þeim. Annað kjörorð ungmennafélag-
anna er: Islandi allt, og það á lika brýnt erindi
við alla þjöðina, ekki sist á timum sundrungar og
efnishyggju.
ERLENT YFIRLIT
Pinochet og Frei
keppa í Chile
Ágreiningur innan
hershöfðingjastjómarmnar
Augusto Pinochet Ugarte
ÞAÐ vakti nýlega nokkra
athygli, aö einn þeirra
fjögurra manna, sem þá
skipuðu stjórnarnefnd hers-
höföingjastjörnarinnar i
Chile, Gustavo Leigh Guzman,
yfirmaöur flughersins, lét I
ljós I viötali viö italskt blaö,
Corriere Della Sera, veru-
legan ágreining viö Augusto
Pinochet Ugarte, yfirmann
landhersins, en hann hefur
veriö talinn valdamesti
maðurinn I stjórnarnefndinni
og er oftast nefndur einræöis-
herra landsins. Hinir tveir i
stjórnarnefndinni eru Jose
Toribio, yfirmaöur sjóhersins,
og Cesar Mendoza Duran,
yfirmaður rikislögreglunnar.
Allir bera þeir fjórmenningar-
nir hershöföingjatitil.
1 viðtalinu viö Leigh hers-
höfðingja kemur m.a. fram,
aö hann vill koma á lýðræöis-
legrí st jórn i Chile innan fimm
ára, en Pinochet hefur látiö i
ljós, aö til þess þurfi miklu
lengri tima eöa a.m.k. tiu ár.
Leigh hélt þvi fram, aö meiri-
hluti Chilebúa vildi búa viö
lýðræðisstjórn, enda heföi
aldrei veriö ætlun hersins,
sem langoftast hefur haldiö
sig utan við stjórnmáladeilur,
aö fara meö völd, nema i
stuttan tima.
Leigh kvaöst óttast, aö lang-
varandi hershöföingjastjórn
gæti leitt til skæruhernaöar og
óaldarverka. Þess vegna yröi
aö gefa fyrirheit um, aö lýö-
ræöisstjórn yröi endurreist.
Leigh vildi þó ekki láta leyfa
byltingarsinnaöa sósialistiska
flokka, en flokkar I likingu viö
sósialdemókrata á Noröur-
löndum væru sjálfsagöir.
Kristilegi flokkurinn ætti
einnig aö fá aö taka þátt i
kosningum, þvi aö meginþorri
flokksmanna hans væru lýö-
ræöissinnar, þótt hann heföi
bæöi kommúnista og nazista
innanborös.
Leigh lýsti sig andvigan
pyntingum og launmorðum,
og kvaöst ekki trúa þvi, aö lög-
tegluyfirvöld I Chile heföu
beitt slikum aöferöum. Fyrir
þvi eru þó óyggjandi sannanir.
Leigh lýsti andúö sinni á
moröinu á Orlando Letelier
del Solar, sem var sendiherra
Chile i Washington fyrir tiö
hershöföingjastjórnarinnar.
Letelier var myrtur i
Washington 1976 og þykir
sannaö.aö leyniþjónusta Chile
hafi verið þar aö verki. Sumar
heimildir telja, aö hún hafi
fariðeftir beinum fyrirmælum
Pinochets.
ÞETTA viötal italska blaös-
ins viö Leigh hershöföingja
þótti benda til, að Pinochet
hershöfðingi væri ekki eins
traustur i sessi og álitiö hefur
verið eftir þjóöaratkvæöa-
greiösluna, sem fór fram i
janúar siöastl. Pinochet efndi
til hennar I tilefni af þvi, aö
allsherjarþing Sameinuðu
þjóöanna hafði vitt hin stór-
felldu mannréttindabrot i
Chile. Pinochet ákvaö aö
svara þessu með þvi aö efna til
þjóðaratkvæöagreiöslu um,
hvort Chilebúar væru sam-
þykkir þessum vitum. Aörir
hershöföingjar I stjórnar-
nefndinni voru þessu andvigir,
en Pinochet haföi sitt fram.
Spurningin, sem kjósendur
voru látnir svara, þótti mjög
óljós og telja ýmsir frétta-
skýrendur, aö úrslitin heföu
orðiö á annan veg, ef spurn-
ingin heföi veriö nákvæmlegar
oröuö. Um 75% þeirra, sem
greiddu atkvæöi, svöruöu á
þann veg, sem Pinochet vildi,
og þótti sú niðurstaða mjög
styrkja stööu hans en veikja
áhrif hinna hershöföingjanna i
stjórnarnefndinni. Þeir hafa
þó ekki latið af þvi aö lýsa yfir
ágreiningi viö Pinochet, eins
og viötaliö viö Leigh sýnir.
Einkum mun það Pinochet
andstætt, að honum tekst ekki
nógu vel aö hreinsa sig af þvi
að eiga þátt I moröinu á Lete-
lier. Letelier naut vinsælda
innan hersins. Sumir frétta-
skýrendur telja að herinn
kynni að snúast gegn
Pinochet, ef þaö sannaöist á
hann aö hafa átt þátt i morö-
inu.
PINOCHET hefur nú sýnt1
styrk sinn með þvi að vikjá
Leigh úr stjórnarnefndinni og'
svipta hann starfi sem yfir-'
maður flughersins. Það þykir'
óumdeilanlega sýna, aö hann1
sé enn valdamesti maður
Chile, þótt átökin viö Leigh
kunni aö hafa veikt hann. Þaö
hefur styrkt stöðu Pinochet,
aö enginn annar maöur hefur
komið áberandi fram á
sjónarsviöiö siöan herinn
brauzt til valda i september
1973. Pinochet hefur yfirleitt
komið einn fram fyrir hönd
hershöfðingjastjórnarinnar.
Siöustu árin hafa stjórnmála-
flokkarnir veriö bannaöir og
nýir menn þvi ekki getaö
komiötilsöguá vegum þeirra.
Flestir hinna eldri stjórn-
málamanna hafa dregiö sig i
hlé. Úr hópi þeirra stendur þó
einn eftir, sem ööru hvoru
lætur til sln heyra og á vafa-
UtiÖ enn mikíö fylgi hjá þjóö-
inni.
Þaö er Eduardo Frei Mont-
alva, foringi Kristilega flokks-
ins. Hann var forseti Chile
1964-1970, en gat samkvæmt
stjórnarskránni ekki boðiö sig
fram aftur. I forsetakosning-
unum 1970 fékk enginn fram- .
bjóöenda meirihluta greiddra
atkvæöa ogréöi þvi þingiö vali
forsetans. Frei lét flokk sinn
fylgja þeirri venju, aö þingiö
kysi þaö forsetaefniö, sem
fengiö haföi flest atkvæöi i
kosningunum. Það var
sósialistinn Salvador Allende
Gossens. Allende reyndi siöan
að beita forsetavaldi sinu til
að koma á sósialisma i and-
stöðu viö þingiö og leiddi þaö
til þeirrar upplausnar, aö her-
inn taldi sig verða aö gripa i
taumana, enda þótt hann heföi
haft minni afskipti af stjórn-
malum i Chile en annars
staðar I Suður-Amerlku.
Frei hefur fylgt þeirri stefnu
siöan herinn brauzt til valda,
að telja ekki óeölilegt aö her-
inn heföiaö nokkruleyti hönd I
bagga meöan veriö væri aö
koma á lýöræöisstjórn aö
nýju. Þetta hefur valdið þvi,
aö herinn hefur ekki snúizt
gegnhonum og sætt sig við, aö ‘
hann gagnrýndi ýmis verk
hershöföingjastjórnarinnar.
Um skeiö var taliö, aö Letelier
gæti komiö til greina sem for-
sætisráðherra i stjórn, sem
herinnog borgaraleg öfl stæöu
aö og færi meö völd meðan
veriö væri aö endurreisa lýð-
ræöi aö nýju. Ef til vill hefur
sá orðrómur oröiö til þess, aö
Letelier var rutt úr vegi.
Þ.Þ.
Eduardo Frei Montalva
JS.