Tíminn - 13.09.1978, Síða 8
8
Miðvikudagur 13. september 1978
á víðavangi
........... 1111
Vitræn
stefna
..Langflestir tslendingar
höfðu gert sér grein fyrir þvi,
að ekki yrði það almenningi
sársaukalaust, ef reyntyrði að
takast á við efnahagsvandann
i alvöru. Það hefur hins vegar
komið á daginn að i þjóðfélag-
inu eru hópar manna, sem
litlu eða engu vilja fórna. Lát-
laus kröfugerð og inisrétti i
launum hefur brenglað af-
stöðu margra til grundvallar-
þátta i rekstri þjóðarbúsins.
Þegar svo er komið er brýn
nauðsyn að stjórna af hörku.
Um leið þarf að uppræta þær
meinsemdir misréttis, sem
eru gróðarstia kröfugerðar og
andfélagslegrar afstöðu. Það
kemur ekki til greina að fá-
mennir hópar kippi grundvell-
inum undan þeim tilraunum
sem gerðar eru á hverjum
tima, til að bæta hag heildar-
innar. Slíkir hópar hafa þegar
stjórnað of miklu.”
Forystugrein Alþýðublaðs-
ins i gær fjallar um efnahags-
málin og þann vanda sem við
er að glima á þvi sviði.
t fyrra hluta forystugreinar-
innar er vikið að þeim aðstæð-
um sem þegar höfðu skapast
fyrir kosningarnar á s.l. sumri
óg þeim öfugsnúnu viðhorfum
sem alltof lengi hefur gætt i
þjóðlffinu að þvi er lýtur að
lifsgæðum og sérhagsmunum.
Gróðrarstía
andfélags-
legrar
afstöðu
1 forystugreininni segir svo
um þetta:
1 “
1 T| bé 1
1 8 * P * WrMiíh , #|K
Nánast
glæpsamlegt
t þessum orðum kemur
fram alveg hárrétt afstaða og
mat á þeim vandamálum sem
við er að eiga hér á landi.
Efnahagsvandinn er fyrst
og fremst til kominn fyrir þá
sök að einstakir hagsmuna-
hópar hafa neitað að viður-
kenna og virða ákvarðanir
þær sem lögmæt stjórnvöld
hafa tekið fyrir hönd þjóðar-
heildarinnar og með hags-
muni hennar að leiðarljósi.
Leiðarahöfundur Alýðu-
blaðsins heldur áfram:
,,Nú er góðæri til lands og
sjávar á islandi og allar að-
stæður fyrir hendi til að lag-
færa það, sem úr böndum
hefur farið. Það væri ekki
bara hryggilegt, heldur nán-
ast glæpsamlegt, ef tækifærið
yrði ekki notað. En til að það
megi takast verða stjórnvöld i
fyrsta lagi að stjórna af festu
og i öðru lagi að móta skyn-
samlega efnahagsstefnu til
langs tima. Þar er endurskoð-
un vísitölunnar og sjálf pen-
ingamálin langsamlega mikil-
vægustu þættirnir. Afstaða
þjóðarinnar til núverandi
rikisstjórnar mun að verulegu
leyti byggjast á þvihvernig til
tekst i þessum efnum.”
Þessum ummælum ber
vissulega að fagna eftir allt
það sem á undan er gengið i
stjórnmálaskrifum foringja
Alþyðuflokksins fram að sið-
ustu kosningum.
Ákveöin
stjóm og
raunsæi
Lokaorð forystugreinarinn-
ar eruekkisiður fagnaðarefni,
en þar segir:
„Verði fylgt vitrænni efna-
hagsstefnu er ekki vafi á þvi,
að unnt reynist að eyða kúfn-
um af efnahagsvandanum.
Verði það hins vegar ekki gert
og stöðugar bráðabirgðaráð-
stafanir látnar ráða ferðinni,-
verður vandinn aðeins meiri
og fórnirnar enn þyngri, sem
siðar þarf að færa. Akveðin
stjórn og raunsæi i efnahags-
málum ræður úrslitum.”
JS.
------ ■
Eins og sjá má á þessari mynd Páls Þorlákssonar eru báðir bílarnir talsvert skemmdir, sérstaklega þó
fólksblllinn.
Gleymdi stöðvunarskyldunni
ATA — A sunnudaginn varð all-
harður árekstur á Suðurlandsvegi
við Þorlákshafnarafleggjarann.
Rákust þar saman Lada fólksbill
og Lada-sport jeppi.
Að sögn Sigurðar Jónssonar,
lögregluvarðstjóra á Selfossi,
varð slysið klukkan 10:52 á
sunnudagsmorgun. Fólksbilnum
var ekið eftir Þorlákshafnar-
veginum að Suðurlandsvegi. Þar
er stöðvunarskylda en ökumaður
bilsins sinnti þvi ekki og ók beint
inn á veginn i veg fyrir
Lada-jeppann.
ökumaður fólksbilsins
slasaðist nokkuð, svoog tvö börn,
sem i bilnum voru. Þau voru flutt
til Reykjavikur en meiðsli þeirra
munu ekki hafa verið verið
alvarleg.
Báðir bilarnir skemmdust
mikið.
— sá fyrstí
sem
ísland
gerir
1 gær skiptust þeir Henrik Sv.
Björnsson, rá^uneytisstjóri, og
Raimund Hergt, sendiherra, á
fullgildingarskjölum af hálfu
tslands og Sambandslýðvcldis-
ins Þýskalands vegna samnings
milli landanna um gagnkvæma
Henrik Sv. Björnsson, ráöuneytisstjóri, og Raimund Hergt,
sendiherra, skiptast á skjölum til undirskriftar. Tlmamynd G.E.
aðstoðf tollamálum, sem undir-
ritaður var i Bonn hinn 11.
október 1977. Jafnframt undir-
rituðu þeir I utanrikisráðu-
neytinu bókun varðandi full-
gildingu samningsins.
Aðstoö sú sem i samningnum
felst er tvenns konar, annars
vegar aðstoð viö framkvæmd
tollalaga almennt, þ.e.
álagningu tolla og annarra inn-
og útflutningsgjalda svo og það
aðhaldnar séu regluruminn- og
útflutning og hins vegar aðstoð
tilaðkoma i veg fyrir, rannsaka
og upplýsa brot á tollalög-
gjöfinni.
Samningurinn um gagn-
kvæma aðstoð i tollamálum
tekur formlega gildi hinn 11.
október nk. og munu ákvæði
hans hafa lagagildi hér á landi i
samræmi við lög nr. 44 frá 10.
mai sl.Samningur þessi er fyrsti
tvíhliða samningurinn um
tollamái sem Island gerir.
Tvíhliöa
samningur
um
tollamál
• 15 vísinda- og tæknimenn
þinga um hávaðamengun
og starfsumhverfi
Dagana 27.-31. ágúst s.l. voru
staddir hér á landi 15 visinda og
tæknimenn frá Norðurlöndun-
um á vegum NORDFORSK,
sem er samstarfsráð Norður-
landa um hagnýtar rannsóknir.
Einn höfuðtilgangur ferðar-
innar var að kynna fyrir is-
lenskum visindamönnum og
embættismönnum nokkur af
þeim rannsóknaverkefnum sem
NORDFORSK vinnur að eða
eru i undirbúningi hjá samtök-
unum.
Fimmtudaginn 31. ágúst var
haldinn almennur kynningar-
fundur á Hótel Esju i Reykja-
vik. Þangað var boðið tæplega
40 stjórnendum stofnana, vis-
indamönnum og tæknimönnum.
0 Vantar fólk
Grindavikur fengust þær"
upplýsingar, að litil vinna hefði
verið undanfarið, þótt húsið
hefði aldrei lokaö alveg siðasta
mánuðinn, og væri þar fyrst og
fremst hráefnisleysi um að
kenna. t morgun hefði skutttog-
arinn Jón Dan hins vegar komið
með fullfermi til Grindavikur,
þannig að hráefnisleysi stæði
þar ekki nú fyrir þrifum. Nú
væri það fólksleysi sem ylli
mestum vanda. Skólarnir væru
að byrja þessa dagana, og erfið-
lega gengi að fá fólk i stað
skólakrakkanna. Hjá H.G.
vinna að staðaldri 70-80 manns,
en i gær voru ekki nema um 40
manns þar i vinnu. Sömu vand-
kvæði voru hjá Hraðfrystihúsi
Þórkötlustaða.
Sandgerði virðist hafa
einhverja sérstööu i þessu máli,
en þar var „nógur mannskap-
ur”, eins og einn starfsmaður
hjá Jóni Erlingssyni orðaði það,
jafnvel „yfirfljótandi”. Sami
starfsmaður sagðist ekki hafa
trú á þvi að þetta ætti eftir að
verða vandamál þar á
Suðurnesjunum, þ.e. mannekl-
an. „Þetta er kannski svona rétt
i bili, en þetta á eftir að breytast
og fólkið kemur áreiðanlega aft-
ur. Það fer ekki neitt, þvi það
fær ekkert betra i staðinn.”
A fundinum kynntu fulltrúar
NORDFORSK rannsóknaverk-
efni á sviði hávaðamengunar og
starfsumhverfis. Fjallað var
um rannsóknir á hávaða I iðn-
fyrirtækjum og i ytra umhverfi
fyrirtækja. Þá voru kynntar
rannsóknir á hávaða i og frá
farartækjum. Kynnt var rann-
sóknaverkefni sem lýtur að
öryggis og áhættumati i iðnaði
og rannsóknaverkefni sem mið-
ar að þvi að finna leiðir til að
bæta loftræstingu i iðnfýrir-
tækjum. A fundinum var einnig
fjallað um undirbúning rann-
sókna i vinnuumhverfi i stóreld-
húsum.
Nokkrir íslendingar flutu er-
indi á kynninarfúndinum. Skúli
Johnson borgarlæknir flutti er-
indi um hávaðavandamál i is-
lensku atvinnulifi. Sigurður
Þórarinsson tæknifræðingur hjá
öryggiseftirliti rikisins flutti er-
indi um slysatiðni i atvinnulif-
inu og vinnustaðaeftirlit á ís-
landi. Þá flutti Ólafur Ólafsson
landlæknir athyglisvert erindi
um fjarvistir og vinnuálag i at-
vinnulifi á Islandi og saman-
burð við Norðurlöndin.
VERDLAUNAGRIPIR gg
OG FÉLAGSMERKI »
Fyrir allar tegundir iþrótta, bikar-
ar. styttur, verdlaunapeningar.
- Framleiðum telagsmerki
§
fr
/^Magnús E. BaldvinssonS
fáy Laugavegt 8 - WeyWjavik - Simi 22804 NSb
%///#« nmwww