Tíminn - 30.09.1978, Side 6
6
Laugardagur 30. september 1978
Otgefandi Framsóknarflokkurinn
Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar:
Þórarinn Þórarinsson og Jón Sigurðsson. Auglýsinga-
stjóri: Steingrimur Gislason. Ritstjórnarskrifstofur,
framkvæmdastjórn og' auglýsingar Siðumúla 15. Sfmi
86300.
Kvöldsimar blaðamanna: 86562, 86495. Eftir kl. 20.00:
86387. Verð i lausasölu kr. 100.00. Áskriftargjald kr. 2.000 á
mánuði.
Blaðaprenth.f.
Erlent yfirlit
Kosningamar í Hesse
geta orðið sögulegar
Áróðursherferð gegn Bahr og Holtz misheppnaðist
Mannréttindabaráttan
í ágætri ræðu, sem Benedikt Gröndal utanrikis-
ráðherra flutti á allsherjarþingi Sameinuðu þjóð-
anna 26. þ.m., kom hann viða við, eins og titt er við
slik tækifæri. M.a. vék hann að mannréttindamál-
um, sem nú eru mjög á dagskrá. Utanrikisráð-
herra minnti á, að mannréttindayfirlýsingin á
senn 30 ára afmæli. Utanrikisráðherra sagði
siðan:
„Yfirlýsing þessi, sem gefin var svo skömmu á
eftir stofnskránni sjálfri, er einn af stærstu áföng-
unum i starfsemi Sameinuðu þjóðanna. Á sama
hátt og boðorðin 10 i kristinni trú hefur hún verið
og er enn leiðarljós margra. Hún hefur verið
hræðslu- og áhyggjuefni þeirra, sem hafa gerzt
brotlegir við hana, en þvi miður hafa allt of margir
virt hana að vettugi.
Baráttan fyrir mannréttindum hefur harðnað og
jafnframt hefur hún minnt okkur á allt það, sem
ógert er á þessu sviði.
Við vitum, að pyntingum er beitt á ýmsa vegu i
tugum landa, sem aðilar eru að samtökum okkar.
Við megum ekki láta baráttu linna fyrr en þessi
blettur á mannkyninu hefur verið afmáður.
Við vitum, að þúsundum manna hefur verið
varpað i fangelsi i fjölda landa af pólitiskum
ástæðum, vegna þátttöku þeirra i verkalýðssam-
tökum eða vegna trúarbragða, og þeim er haldið i
fangelsi eða fangabúðum, án þess að koma fyrir
dómstól. Þetta er óþolandi ástand.
Við vitum, að kynþáttastefna og kynþáttamisrétti
er ekki aðeins víða i framkvæmd heldur opinber
stjórnarstefna i sumum löndum. Mikið hefur verið
um ályktanir á allsher jarþinginu um kynþátta-
misrétti, en fram að þessu hefur litill árangur
náðst.
Við vitum, að önnur mannréttindi, borgaraleg
og pólitisk, efnahagsleg, félagsleg og menningar-
leg, eru viða vanvirt. í tilefni af afmæli mannrétt-
indayfirlýsingarinnar skulum við enn herða sókn-
ina á þessu sviði. An grundvallar mannréttinda er
ekki að ræða um raunverulegt einstaklingsfrelsi,
og án einstaklingsfrelsis verður höfuðmarkmiðum
stofnskrár Sameinuðu þjóðanna ekki náð”.
í framhaldi af þessu vék utanrikisráðherra svo
sérstaklega að kynþáttadeilum i suðurhluta Afriku
og lýsti eindreginni andstöðu gegn kynþáttamis-
mununinni þar.
Vigbúnaður á höfunum
Utanrikisráðherra vék i ræðu sinni að vigbún-
aðarkapphlaupinu og nauðsyn þess að draga úr
þvi. Ráðherrann sagði m.a.:
,,Hitt atriðið, sem ég legg áherzlu á,varðar höfin
viðáttumiklu. Nú stendur yfir mikið og vaxandi
vigbúnaðarkapphlaup á sviði sjóhers, kaupskipa,
fiskveiða og rannsókna, allt i hernaðarþágu. Að
sýna fánann i hverri höfn i heiminum, eins og risa-
veldin gera, er vottur um nýja heimsveldisstefnu.
Það er hörmulegt að vita til þess, að kafbátar
hlaðnir kjarnorkueldflaugum sigla stöðugt um
gamalkunnar fiskislóðir og sjómenn geta átt von á
þvi að fá alls konar rafeindatæki i veiðarfæri
sin”.
Hvergi mun vigbúnaðurinn á höfunum vera
meiri en á Norður-Atlantshafi. Það er vissulega
orðið timabært að Islendingar hefji máls á sam-
drætti vigbúnaðar þar. Þ.Þ.
Alfred Dregger
VAFALAUST anda leiötogar
vestur-þýzku stjórnarflokkanna
léttara eftir aö Kurt Rebmann,
aöalsaksóknari rikisins,birti þá
yfirlýsingu siöastliöinn þriöju-
dag, aö ásakanirnar gegn
tveimur þingmönnum
sósialdemókrata, Egon Bahr og
Uwe Holtz, um njósnir og óleyfi-
legt samband viö rúmensku
leynilögregluna,væru algerlega
tilhæfulausar og gæfu þvi ekki
tilefni til frekari rannsókna.
Hefði úrskurður aöalsaksóknar-
ans oröiö á aöra leið,myndi
þetta mál hæglega geta
haft mikil áhrif á hinar mikil-
vægu fylkisþingskosningar sem
fara fram i Hesse 9. október
næstkomandi, en úrslit þeirra
gætu leitt til falls sambands-
stjórnarinnar í Bonn ef þau yröu
mjög óhagstæö fyrir stjórnar-
flokkana, einkum þó Frjáls-
lynda flokkinn.
Mál þatta hófst meö þvi aö
helztu blöð Springer-hringsins,
Bild-Zeitung og Die Welt, tóku
aö glósa um þaö i byrjun siöasta
mánaöar,að 1 uppsiglingu væri
mikiö njósnamál i Bonn. Siðar
var gefiö i skyn aö viö þetta mál
væru riðnir Uwe Holtz, sem er
talinn einn af efnilegri yngri
þingmönnum sósíaldemókrata
og Joachim Broudre-Groeger,
náinn aöstoðarmaöur Egon
Bahr, eins helzta leiðtoga
sósialdemókrata og náins sam-
starfsmanns Brandts og Sch-
midts um langt skeiö. Onnur
blööfóru svo aö birta fréttir um
þetta. Þetta leiddi til þess.aö
vestur-þýzka þingiö var kvatt
saman til skyndifundar i byrjun
þessa mánaöar og þar sam-
þykkt aösvipta Uwe Holtz þing-
helgi, svo aö dómsvöld gætu
rannsakað mál hans. 1 kjölfar
þessa hertu Springer-blööin
áróðurinn gegn honum.
Það kom fljótt I ljós hvaöan
þessar ásakanir voru runnar. í
byrjun siðasta mánaöar gaf
rúmenskur njósnari, Ion
Papeka, sig fram viö banda-
risku leyniþjónustuna (CIA) og
óskaöi eftir landvistarleyfi i
Bandarikjunum. t staöinn gaf
hannupp ýmsar upplýsingar.en
hann hafði starfað i Bonn um
skeiö. Meöal þessara upp-
lýsinga voru þær, að Holtz og
Broudre-Groeger heföu haft
verulegt samband við
rúmenska sendiráöiö 1 Bonn.
Eftír einhverjum duldum
leiðum komust þessar upp-
lýsingar brátt I Springer-blööin.
Þaö bættist svo viö, að Egon
Bahr hefði gert áætlun um
brottför Vestur-Þýzkalands úr
Nato og hlutleysi sameinaös
Þýzkalands. ttarleg rannsókn
dómsvalda hefur nú leitt I ljós,
að allt er þetta óhróöur einn.
Holtz hafði haft nokkurt sam-
band viö rúmenska sendiráðiö
vegna þess aö hann var for-
inaður þeirrar þingnefndar,sem
fylgistmeð efnahagslegri aöstoö
við önnur rflú,en Rúmenia var
um skeiö eitt þeirra.
Broudre-Groeger haföi llka átt
erindi við sendiráöið af eölileg-
um ástæöum. Aöalsaksóknarinn
hreinsaöi þá þvi af öllum grun.
Söguna um þær áætlanir sem
Bahr átti að hafa samiö,hefur
enginn tekið alvarlega. Sjálfur
segist Bahr ekki vera svo vit-
laus að láta sér detta slikt í hug.
ÞETTA tilbúna njósnamál
mun þvi vart hafa áhrif á
kosningarnar í Hesse.nemá þá
öfugt. Þar er nú staðan sú,að
fylkisstjórnin byggist á sam-
starfi sósialdemókrata og
Frjálslynda flokksins, en
samanlagt hafa þeir aöeins
tveggja atkvæöa meirihluta á
fylkisþinginu. Meirihluti þeirra
má því ekki tæpari vera. Kristi-
legir demókratar hafa veriö
taldir i sókn 1 Hesse og er þaö
m.a. þakkað forustumanni
þeirra þar, Alfred Dregger,sem
er snjall ræöumaöur og kemur
vel fyrir I sjónvarpi. Hann til-
heyrir ihaldssamari armi
flokksins. Hann er talinn koma
til greina sem kanslaraefni
kristilegra demókrata, ef þeir
sigra I Hesse.þvi aö Strauss
muni þá tefla honum fram gegn
Helmut Kohl.
Hættan sem vofir yfir
stjórnarflokkunum i Hesse er
ekki aðeins sú, að þeir missi
meirihlutann. Mesta hættan er
sú, aö Frjálslyndi flokkurinn fái
ekki 5% greiddra atkvæöa og
þurrkist þvi alveg út úr þinginu.
Þessihætta hefuraukizt viö þaö,
að flokkur umhverfisverndar-
manna býðurnúframf Hesseog
virðist ná fylgi frá Frjálslynda
flokknum. Ef Frjálslyndi flokk-
urinn þurrkast Ut i Hesse, getur
það vel oröiö til þess, að hann
rjúfi stjórnarsamstarfið i Bonn.
Stjórnarsamstarfið þar er að
þvi leyti óheppilegt fyrir Frjáls-
lynda flokkinn að Schmidt nýtur
samkvæmt skoðanakönnunum
miklu meiri vinsælda en flokkur
hans og þvi kjósa óháöir kjós-
endur frekar sósialdemókrata
en Frjálslynda flokkinn. Leið-
togi Frjálslynda flokksins
Hans-Dietrich Genscher utan-
rikisráðherra, nýtur tak-
markaöra vinsælda.
HINN 14. október fara svo
fram fylkisþingskosningar i
Bæjaralandi. Þar þykir flokkur
Strauss vera sigurviss og mun
athyglin beinast mest aö þvi,
hvort hann fær meira en 62%
greiddra atkvæða,en þaö fékk
hann i siöustu kosningum. Þetta
verður talið merki um persónu-
legt fylgi Strauss, en þvi hefur
verið lýst yfir, aö hann veröi
fylkisstjóri eftir kosningarnar
og hætti þá um leið þing-
mennsku i Bonn. Strauss telur
fylkisstjóraembættiö vænlegra
til frama, en þingmennskuna.
Genscher og Schmidt