Tíminn - 30.09.1978, Blaðsíða 17

Tíminn - 30.09.1978, Blaðsíða 17
Laugardagur 30. september 1978 17 ...... "Einþáttimgari Þjóðleikhúsinu Í!S •Starfsár Fílharmóníunnar JG RVK: Sigríður Olafsdóttir Candi opnaði sýningu á mynd- vefnaði i sýningarsal FIM að Laugarnesvegi 112 i Reykjavik á föstudaginn. Frú Sigríður kallar sýningu sina „Uppgötvanir” en þetta er fyrsta einkasýning hennar á myndvefnaði en hún hefur áður sýnt málverk. Sýningin verður opin daglega en henni lýkur 8. október. •Áskriftarkort Þjóðleikhússins — nær uppseld Gifurleg sala hefur verið i áskriftarkortum Þjóðleikhúss- ins og hefur orðið að bæta við sölu á tveimur áskriftarsýning- um: 7. og 8. sýningu. Uppselt er orðið á þá 7. en enn eru fáanleg kort á 8. sýningu. Verður þetta siðasta áskriftarsýningin. Askriftarkort Þjóðleikhússins kosta 10 þúsund krónur og gilda á 6 sýningar á Stóra sviðinu. Er hér um að ræöa 20% afslátt frá venjulegu aðgöngumiðaverði. Fólk kaupir sér ákveðin sæti og gengur síðan að þeim visum á þeirri sýningu sem það velur sér (2.-8. sýning). hafið Söngsveitin Filharmónia hóf sitt 19. starfsár miðvikudaginn 20. september s.l. Verkefnin i vetur munu verða „Sköpunin” eftir Joseph Haydn, sem flutt verður á tónleikum meö Sinfóníuhljómsveit Islands þann 15. febrúar, undir stjórn Marteins Hunger Friðriks- sonar. Og „9. sinfónían” eftir Ludwig van Beethoven, en hún verður flutt á tónleikum með Sinfóniuhljómsveit íslands þann 7. og 9. júní undir stjórn franska hljómsveitarstjórnandans J.P. Jacquillet. Þá mun Söngsveitin einnig æfa nokkur Islensk lög með útvarpsupptöku fyrir aug- um. Eftirfarandi er stutt kynn- ing á þeim verkum, sem veröa á dagskrá Söngsveitarinnar FIl- harmóniu I vetur. Sköpunina samdi Haydn á ár- unum 1795 og 1798 eftir að hafa kynnst kórverkum Handels á Lundúnaárum sinum. Sköpunin er I hefðbundnum óratóriustil, samin fyrir fiögurra radda kór, þrjá einsöngvara og hljómsveit. Þar skiptast á yndislegar ariur, resitativ og kórar, og lýsir Haydn á skemmtilegan og leik- rænan hátt fjölbreytni og dýrð sköpunarverksins. Verkið veröur sungiö á þýsku og tekur 105 minútur I flutningi. Beethoven samdi 9. sinfóni- una á siðustu árum ævi sinnar. Þrátt fyrir miskunnarlausa ævi var hann lengi staðráðinn I að semja gleðinni lofsöng. Boð- •skapur ljóðsins, sem er eftir Schiller er áhrifamikill, og á alltaf erindi til okkar. Kröfur til flytjanda eru miklar, en falleg- ar laglinur og stórkostleg dramatik verksins gera erfiðið að ógleymanlegri ánægju. I vetur munu fjórir einsöngv- arar, þau Ólöf Harðardóttir, Rut Magnússon, Friðbjörn G. Jónsson og Halldór Vilhelms- son, starfa meö stjórnandanum og þjálfa hverja rödd fyrir sig, viö æfingu fyrrgreindra verka. Einnig mun kórinn hafa milli- göngu við útvegun einsöngvara til kennslu i hóp og einkatimum. Þá mun Pétur Hafþór Jónsson tónmenntakennari hafa með höndum stjórn á tónfræði- kennslu innan kórsins. Þess má geta að Söngsveitin Fflharmónia, óskar eftir nú eins og ávallt áhugasömu söngfólki til starfa með ser. En stjórnandi Söngsveitarinnar er Marteinn Hunger Friðriksson og undir- leikari Agnes Löve. fólk í listum Þjóðleikhúsið hefur að nýju hafið sýningar á ein- þáttungunum ,/Þeir riðu til sjávar" eftir J.M. Synge og „Vopn frú Carr- ar" eftir Bertholt Brecht, á litla sviðinu. Þættir þessir voru frumsýndir í vor og voru þá 11 sýning- ar fyrir fullu húsi við af- bragðs undirtektir. Myndin hér fyrir ofan er úr „Vopnum frú Carrar" og sýnir Bríeti Héðins- dóttur sem fer með aðal- hlutverkið ásamt Ævari Kvaran og Bjarna Stein- grimssyni. Fer með barna- leikrit í skóla SJ — Starfsemi Alþýðuieikhúss- ins á þessum vetri er nú i þann veginn að hefjast og eru nú hátt á fjórða tug leikara innan vé- banda sunnandeildar leikhúss- ins. Snemma i október hefjast sýningar á nýju barnaleikriti „Vatnsberarnir” sem Alþýðu- leikhúsið fiytur i barnaskóium i Reykjavik. Höfundur þess er Herdis Egilsdóttir kennari. Einnig er ætlunin að halda uppi fullu starfi I Lindarbæ og efna til leikferða út um land svo sem AI- þýðuleikhúsið hefur gert til þessa. Flest af þvi unga fólki sem út- skrifast hefur úr leikskólum hér á landi siðustu árin er i Alþýðu- leikhúsinu og auk þess hafa þvi borist fleiri liðsmenn. Sumt af þessu fólki starfar einnig hjá at- vinnuleikhúsunum I Reykjavik. Alþýðuleikhúsfólk er óánægt með gildandi leiklistarlög og telur að þar sé alls ekki gert ráð fyrir starfsemi á borð við Al- þýðuleikhúsið, heldur aðeins at- vinnuleikhúsunum tveim og Bandalagi' islenskra leikfélaga. A sunnudagskvöld sýnir sjón- varpið leikrit Böðvars Guð- mundssonar, Skollaleik i upp- setningu Alþýðuleikhússins. • Skáld-Rósa Skáld-Rósa leikrit Birgis Sig- urðssonar er nu aftur á fjölun- um i Iðnó. Verkið var frumsýnt um siðustu áramót og sýnt 56 sinnum i vetur leið og hefur ekk- ert verk verið sýnt jafn oft á svo skömmum tima hjá Leikfélagi Reykjavikur, enda aðsóknin með eindæmum góð. Alls komu um 13.000 manns á þessar sýn- ingar. A myndinni eru Ragnheiöur Steindórsdóttir i titilhlutverkinu og Harald G. Haraldsson sem leikur Natan. •Sýnir mynd- vefnað i Söngsveitin Filharmonia voriö 1978 Arnar Jónsson, Messiana Tómasdótti.r, Þórhildur Þorleifsdóttir og Evert Ingólfsson eru meðal 30-40 félaga I Alþýðuleikhúsinu sem nú hefur starfsemi sunnan fjalla en ætlar þó framvegis sem hingaö til að vera leikhús allra landsmanna. Timamynd Róbert • Alþýðuleikhúsiö.... •Saumastofan i Færeyjum i færeyska blaðinu 14. september er frá þvi sagt að i byrjun október verði ieikritið Saumastofan eftir Kjartan Ragnarsson frumsýnt i Sjón- leikarhúsinu i Þórshöfn. Leik- félag Reykjavíkur gaf Havnar Sjónleikarfelag leiktjöldin og mun Jón Þórisson,sem málaöi þau, setja þau upp i Þórshöfn. i blaðinu stendur að þetta sé ákaflega skemmtilegur leikur og sé nýnæmi að sjá konur i meirihluta á sviðinu. Auglýsing um aðalskoðun bifreiða í lögsagnarumdæmi Reykjavíkur í októbermánuði 1978 Mánudagur Þriðjudagur Miðvikudagur Fimmtudagur Föstudagur Mánudagur Þriðjudagur Miðvikudagur Fimmtudagur Föstudagur Mánudagur Þriöjudagur Miðvikudagur Fimmtudagur Föstudagur Mánudagur Þriðjudagur Miðvikudagur Fimmtudagur Föstudagur Mánudagur Þriðjudagur Bifreiðaeigendum ber að koma með bif- reiðar sinar til bifreiðaeftirlitsins, Bilds- höfða 8 og verður skoðun framkvæmd þar alla virka daga kl. 08:00-16:00 Bifreiðaeftirlitið er lokað á laugardögum. Festivagnar, tengivagnar og farþega- byrgi skulu fylgja bifreiðum til skoðunar. Við skoðun skulu ökumenn bifreiðanna leggja fram fullgild ökuskirteini. Sýna ber skilriki fyrir þvi að bifreiðaskattur og vá- trygging fyrir hverja bifreið sé i gildi. Athygli skal vakin á þvi að skráningar- númer skulu vera læsileg. Vanræki einhver að koma bifreið sinni til skoðunar á auglýstum tima verður hann látinn sæta sektum samkvæmt umferðar- lögum og bifreiðin tekin úr umferð hvar sem til hennar næst. Þetta tilkynnist öllum, sem hlut eiga að máli. Lögreglustjórinn i Reykjavik 26. september 1978 Sigurjón Sigurðsson HARÐVIÐARVAL H= Skemmuvegi -40 KÓPAVQC3I s;74111 Grensásveg 5 REYKJAVIK s; S47’ 27 Harðviðarklæðningar Spónlagðar spónaplötur Furu & Grenipanell Spónaplötur Gólfparkett Veggkrossviður Plasthúðaðar spónaplötur 2. október R-46001 til R-46500 3. október R-46501 til R-47000 4. október R-47001 til R-47500 5. október R-47501 til R-48000 6. október R-48001 til R-48500 9. október R-48501 til R-49000 10. október R-49001 til R-49500 11. október R-49501 til R-50000 12. október R-50001 til R-50500 13. október R-50501 til R-51000 16. október R-51001 til R-51500 17. október R-51501 til R-52000 18. október R-52001 til R-52500 19. október R-52501 til R-53000 20. október R-53001 til R-53500 23. október R-53501 til R-54000 24. október R-54001 til R-54500 25. október R-54501 til R-55000 26. október R-55001 til R-55500 27. október R-55501 til R-56000 30. október R-56001 til R-56500 31. október R-56501 til R-57000 Sólbekkir Smiðum sólbekki eftir máli, álimda með harðplasti. Mikið litaúrval. Stuttur afgreiðslufrestur. Trésmiðjan Kvistur Súðarvogi 42 (Kænuvogsmegin) Simi 33177 Hjólbarðasólun, hjólbarðasala og öll hjólbarða-þjónusta Nú er rétti timinn tU að senda okkur hjólbarða til sólningar EÍRum fyrirlinKjandi flestar stœróir hjóiharöa, sóiaða OR nýja Mjög gott verð Fljót og góð þjónusta niJM UM LAND ALLT VINNU STOfAN HF Skipholt 35 105 REYKJAVÍK slmi 31055

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.