Tíminn - 12.10.1978, Side 5
Fimmtuda^ur 12. október 1978
5
Kirkjuorgan
istiim á
Þingevri....
— er áströlsk stúlka
Mikil uppbygging er á Þingeyri — sjö ný ibúðarhiis eru þar Ismlftum.
VS— Áslaug Jensdóttir
á Núpi i Dýrafirði hafði
þetta að segja, þegar
hringt var til hennar
baö er ekki hægt aö segja
annaö en að heyskapurinn hafi
gengið vel hjá okkur i sumar. Aö
visu var svalt framan af sumr-
inu, og oft var sólarlitið, en þaö
komu sólskinsdagar inn á milli,
og þeir nýttust vel. Við gátum
hirt af heimatúninu án þess að
raka upp, og eftir að þurrheyið
var komið i hlöðu, þurftum við
ekki mikið að nota súgþurrkun-
ina. Siöari hluta sumarsins var
hlýtt og þá spratt allur jaröar-
gróði vel.
Kartöfluuppskera var með
besta móti, og miklu betri en i
fyrra. Til samanburðar má geta
þess, að á kalárunum fraus oft i
görðum fyrrihluta sumars, og
þá kom jafnvel fyrir, að menn
fengju færri kiló upp úr görðun-
um áhaustín,ensetthöföu veriö
niður að vorinu.
Berjaspretta var mjög góð
hér um slóðir i sumar, og
óvenjumikið af krækiberjum,
enda naut sólar og hita i rikum
mæli um vaxtartimann.
Haustið er búið aö vera gott,
þaðsemaf er, og t.d.hefur viðr-
að vel i fjárleitir. Hjá
Kaupfélagi Dýrfirðinga á bing-
eyri verður slátrað um hálfu
niunda þúsundi fjár i haust, og
það fé er úr Dýrafirði og norð-
anverðum Arnarfirði.
Hrognkelsaveiði var með lak-
ara móti i vor, einkum
grásleppuveiðin.
Skuttogarinn Framnes á
bingeyri er núna búinn að afla
meira en allt árið i fyrra, eða
3.180 tonn, miðað við slægðan
fisk. Færabátar hafa fiskað vel i
sumar, en gæftir hafa verið
misjafnar. bað hefur verið
mikil vinna i frystihúsinu, og
núna eftír helgina (þ.e. eftir 8.
okt. Innsk.), koma fimmtán
útlendingar til starfa þar.
A bingeyri eru sjö ibúðarhús i
smiðum, og þar er nýkominn
læknir, sem gert er ráð fyrir að
verði i eitt ár, en annars hafa
þeiroftekki verið nema nokkra
mánuði i einu. Hins vegar hefur
enginn sótt um prestakallið,
þótt það hafi verið auglýst, en
menn vona, að úr þvi rætist.
Ráðinn hefurverið nýr organ-
istí i bingeyrarkirkju. baö er
áströlsk stúlka, sem kom til
starfa i frystihúsinu á bingeyri,
og er nú búsett þar. HUn hafði
verið organisti i heimahéraöi
sinu i Ástraliu, áður en hún
fluttist hingað til lands. Fram
að þessu hafði verið organisti i
bingeyrarkirkju GuðrUn
Sigurðardóttir prestsfrú á bing-
eyri, en hún flyst nú á brott
þaðan eftir lát manns sins. bað
er mikill sjónarsviptir að þeim
hjónum fyrir bingeyri, og
héraðið allt.
FRAMNES.. er búinn að afla meira en allt árið I fyrra.
Sj álfvirkur sími á
alla b
Ölfushr
ESE — Þessa dagana er
verið að ljúka við lagn-
ingu sjálfvirks sima i
Ölfushreppi og þegar því
verki verður lokið innan
fárra daga, þá verður
Ölfushreppur einn af
fyrstu dreifbýlishrepp-
um landsins, þar sem
allir bæir fá sjálfvirkan
síma.
Timinn ræddi af þessu tílefni
við Garðar Hannesson sim-
stöðvarstjóra i Hvera^eröi og
kom fram i máli hans að í þessum
siðasta áfanga yrði lagður sjálf-
virkur simi á 14 bæi I hreppnum.
Sjálfvirkni simans i ölfushreppi
hófst árið 1976 og alls eru það um
60bæir,sem sjálfvirki siminn nær
til.
Garðar sagði að hér væri um
mikið hagsmunamál fyrir ölfus-
inga að ræða og nefndi hann þaö
sem dæmi, að áöur en sjáifvirki
siminn heflli komiö til, þá hefðu
bæir i hreppnum veriö simasam-
bandslausir þetta 12-14 tima 'á
sólarhring, þegar stöðin i Hvera-
gerði hefði farið út.
Ekki sagði Garðar ráðgert að
stækka simstöðina i Hveragerði
Garðar Hannesson simstöðvarstjóri I sjálfvirku simstöðinni I
Hveragerði. TlmamyndG.E.
fyrr en i fyrsta lagi árið 1980, en
gat þess að i sumar hefði 100
númerum verið bætt við stöðina,
þannig að hún hefði nú yfir 500
númerum að ráða. brátt fyrir
þessa stækkun þá væri orðið mjög
erfitt að fá núrner og væri stööin
að veröa fullsetin. Einnig væri
mjög erfittað ná Ut úr Hveragerði
á annatimum, vegna fárra val-
lina og yrði varla bót ráðin á þvi
vandamáli fyrr en viöbygging
simstöðvarinnar á Selfossi yrði
tekin i notkun i árslok 1979.
KVIKNAÐI f ÚT
FRÁ VINDLIN6I
ATA —Klukkan 3:12 aðfaranótt
þriðjudags var Slökkviiið
Akureyrar kallaö út. Eldur var
þá i rishæð hússins að
Munkaþverárstræti 5.
Eldurinn var i einu herbergi og
fljótlega tókst að slökkva. Tjón er
ekki talið mikið en þó eitthvaö,
bæði af völdum reyks og vatns.
I fyrstu var talið að kviknað
hefði I út frá gömlum rafmagns-
kapli en nú þykir likiegra, að glóð
frá vindlingi hafi verið orsökin.
Nú er rétti tíminn
aó endurryóverja
bilinn fyrir veturinn.
Verklysing á endurryövörn.
ÞVOTTUR:
Óhreinindi á undlrvagni og annarsstaóar eru
þvegin burt með upplausnarefni og heitu vatni (sem
hefur þrýsting alit að 130 kg/cm2). Kemur það í veg
fyrir að óhreinindi geti ieynst i undirvagni eða hjól-
hlífum.
ÞURRKUN:
Eftir nák»æman þvott, er bifreiðinni ekið í lyftu inn í
þurrkskáp og þurrkuð með 60—70° heitum loft-
blæstri. Þetta er eitt af þeim grundvallaratriðum,
sem nauðsynlegt er að framkvæma. til að ná sem
bestum árangri gegn ryði og tæringu, þ. e. að bif-
reiöin sé bæði hrein og þurr þegar ryðvarnarefni er
borið á.
BORUN:
Þegar bifreiðin er orðin þurr, er henni ekið úr
þurrkskápnum. Síðan eru boruð 8 mm göt til að
koma ryðvarnarefninu Tectyl í öll holrúm og á þá
staði, sem nauðsynlegt reynist meó hliðsjón af þar
til gerðu plani, sem til er yfir flestar tegundir bif-
reiða. — öllum slíkum götum, sem boruð hafa
verið, verður lokað eftir sprautun á snyrtilegan hátt
með sérstökum plasttöppum.
1. SPRAUTUN:
Fyrst er þunnu ryðvarnarefni (Tectyl 153B) spraut-
að í öll samskeyti, brot og suður, en það hefur mjög
góða eiginleika til aö smjúga inn í staði þar sem
mest hætta er á ryðskemmdum. Þetta efni er einnig
sett inn í hurðir, lokuð rúm, vélarhús o.fl.
2. SPRAUTUN:
Eftir að sprautun 1 er lokið, er sprautað þykkara
ryðvarnarefni (Tectyl 125) á staði, þar sem meira
mæðir á, svo sem allan undirvagn og bretti.
3. SPRAUTUN:
Aö lokum er sprautað gúmmímassa innan í bretti og
á alla viökvæma staöi undir bflnum til frekari hliföar,
ryðvarnarefn'nu og til einangrunar.
ÞURRKUN:
Að sprautun lokinni heldur bifreiðin áfram á lyftunni
inn í þurrkskáp, en þar er ryðvarnarefnið á bif-
reiðinni þurrkað með heitum loftblæstri.
ÞVOTTUR:
Að lokum er bifreiöin þrifin að utan jafnt sem innan.
Fyrst er hún úðuð með hreinsiefni og siðan spraut-
uð með vatni, þannig að Tectyl og önnur óhreinindi
á lakki skolast burt.
Ryövörn sem aöeins tekur um tvo daga.
Ryóvarnarskálinn
vió JSigtún
Simi 19400 - Póstholf 220 |CCl!|l