Tíminn - 12.10.1978, Page 6

Tíminn - 12.10.1978, Page 6
6 Fimmtudagur 12. október 1978 Otgefandi Framsóknarflokkurinn Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: þórarinn Þórarinsson og Jón Sigurösson. Auglýsinga- stjpri: Steingrimur Gislason. Ritstjórnarskrifstofur, framkvæmdastjórn og' auglýsingar Siöumúla 15. Simi 86300. Kvöidsímar blaöamanna: 86562, 86495. Eftir kl. 20.00: 86387. Verö i iausasöiu kr. 110.00. Askriftargjald kr. 2.200 á' mánuði. Biaöaprenth.f. _____________________________________________________________/ Vandinn verður ekki leystur með orðagjálfri Það er ljóst af fréttum, að fleiri þjóðir eiga við efnahagsvanda að glima en íslendingar. Norska rikisstjórnin hefur nýlega gripið til þess ráðs að banna allar verðhækkanir og kauphækkanir á annað ár. Rikisstjórn brezka Verkamannaflokks- ins hefur ákveðið i andstöðu við verkalýðshreyf- inguna að beita sér fyrir þvi, að kaup hækki ekki meira en 5% frá 1. ágúst i ár til 1. ágúst á næsta ári. Framundan virðast mikil átök á vinnumark- aðnum i Danmörku. Danski forsætisráðherrann, Anker Jörgensen, sem er leiðtogi helzta verka- lýðsflokks Danmerkur, lýsir yfir þvi i stefnuræðu, að kaup megi ekki hækka, heldur verði að þrengja lifskjörin nokkuð meðan verið sé að sigrast á mesta efnahagsvandanum. Anker Jörgensen lýsir þessu yfir, þrátt fyrir það, að verkalýðssamtökin hafa borið fram verulegar kaupkröfur. Þau dæmi, sem hér hafa verið rakin, sýna og sanna, að það er viðar glimt við efnahagserfið- leika en á íslandi. Sennilega eru þeir þó öllu meiri hér en annars staðar, þvi að íslendingum hefur tekizt verr að hemja verðbólguna en flestum öðr- um. Orsakirnar til þess eru þær, að hér er búið við viðtækara og hraðvirkara vixlhækkunarkerfi en annars staðar munu dæmi um. Þess vegna hækkar verðlagið og kaupgjaldið hraðara hér, án þess að nokkur græði á þvi, nema braskararnir, sem láta verðbólguna mala gull fyrir sig. Það er ósæmiiegur áróður, þegar þvi er haldið fram,aðþetta megi ieysa með einhverjum undra- ráðum. Það er nú óðum að koma i ljós, að þau töfraráð, sem sigurvegararnir i kosningunum i sumar töldu sig luma á, voru orðagjálfur eitt. Þó sést enn viðleitni til að halda þessu orðagjálfri áfram, eins og t.d. að vandann megi leysa með •aukinni framleiðni, markvissari fjárfestingu og stöðugri útflutningi. Það er rétt, að þetta eru framtiðarúrræði, sem stefna ber að, en þau leysa ekki efnahagslega erfiðleika dagsins i dag. Þau geta t.d. ekki komið að gagni við afgreiðslu fjár- laganna nú. Hjörleifur Guttormsson iðnaðarmála- ráðherra hefur t.d. nýlega skipað nefnd til að fjalla um iðnaðarþróunina. Vafalaust á hún eftir að vinna gott starf og koma með margar ágætar til- lögur, en þær verða ekki framkvæmdar á svip- stundu, nema þá örfáar þeirra. Þær munu ekki stuðla að lausn þess vanda, sem glimt verður við nú fyrir áramótin, nema þá að örlitlu leyti. Þess vegna er það óheppilegt verk og raunar illt, þegar stjórnarblöð eru að flagga með sliku i sambandi við efnahagsvanda liðandi stundar. Framtið þeirrar stjórnar, sem nú fer með völd, veltur á þvi, að stuðningsflokkar hennar sýni raunsæi og takist á við vandann, eins og hann er, en reyni ekki að koma sér hjá þvi með þvi að benda á eitthvað, sem hillir undir i framtiðinni. Verði þannig haldið á málunum, getur stjórnin ekki orð- ið annað en skammtimastjórn, eins og vissa menn i tveimur stjórnarflokkunum dreymir um. Það reynir á næstu vikurnar, hvort stjómarflokkamir verða færir um að leysa málin til nokkurrar fram- búðar, eða hvort þeir hafa aðeins getað náð sam- komulagi um ráðstafanir til áramóta. Þ.Þ. Erlent yfirlit Enn vex fylgi GUstrupista varö þvi stjórn flokkanna tveggja. Báöir láta þeir i ljós.aö hér sé ekki stefnt að langri sam- vinnu heldur sé samstarfið að- eins miöað við að afstýra yfir- vofandi hruni. Forustumenn Al- þýðusambands Danmerkur (LO) voru andvigir þessu stjórnarsamstarfi og létu það ótvirætt i ljós. Það hefur ekki bætt Ur skák, að formaður Vinstri flokksins, Henning Christophersen , utanrikis- ráðherra. lét nýlega svo um- mælt á þingi flokksins.aö Anker Jörgensen hafi sýnt karl- mennsku með þvi að láta ekki verkalýðshreyfinguna stjórna sér, og hann muni enn frekar þurfa á þvi að halda. Anker Jörgensen lét í ljós óánægju yfir þessum ummælum. Þessi orða- skipti þykja benda tilaö sljórnin byggistá takmörkuðum heilind- um. FYRSTA skoðanakönnunin á fylgi flokkanna, sem fór fram eftir myndun stjórnarinnar, var gerð á vegum Gallups og Berlingske Tidende I slöari hluta september. Sam- kvæmt henni hafði fylgi sósíal- demókrata heldur minnkaö, en það hafði raunar farið minnk- andi næstu mánuði á undan.eða úr 40,1% I marz niður i 37% i ágúst.en var nú komið niður I 35,9%. 1 þingkosningunum 15. febrúar 1977 fengu sósialdemó- kratar 37% atkvæðanna. Staða þeirra má þvi enn teljast sæmi- leg miðað við stjórnarforustu á erfiöum tima. Vinstri flokkur- inn virtist hins vegar hafa grætt á stjórnarþátttökunni. Hann fékk nú 13,9% en hafði ekki fengið nema 11,7% i ágúst. 1 kosningunum 1977 fékk hann 12%. En sá flokkurinn sem nú virðist græða mest, er flokkur Glistrups. Hann fékk f kosning- unum 1977 14,6% atkvæðanna, var kominn niður i 13,7% í marz 1978, en hafði hækkað i 17,2% i ágúst ogvarnú kominn i 18,2%. Athyglisvert er að flokkarnir til vinstri við sósíaldemókrata virðastsiðurensvohafa grættá stjórnarandstöðunni. Hvorki kommúnistar eða vinstri sósialistar náöu þeirri tölu nú, sem þeir höfðu fengið i kosning- unum 1977, en Sósialiski þjóöar- flokkurinn hafði örlitiö bætt stöðu sina. Þ.Þ. Henning Christophersen utanrikisráöherra. MARGT bendirtil þess.aö hin nýja stjórn Danmerkur, sem er minnihlutastjórn sósialdemó- krata og gamla Vinstri flokksins, megi búast við hörðum átökum á vinnumarkaðnum á komandi vetri. Þessi ályktun er dregin af þvi.að óvenjulega mikið bil er milli sjónarmiða verkalýðs- félaganna og atvinnurekenda i sambandi við þá gerð heildar- samninga, sem framundan er. Sum verkalýðssamtökin hafa borið fram kröfur um miklar kauphækkanir eða allt að 20-30%. Þetta er raunar ekki .óalgengt.þvi að það er venja í Danmörku eins og hér að verka- lýðssamtökin beri fram meiri kröfur en þau búast við að fá fram. Hitt vekur meiri athygli að nú hafa atvinnurekendur ekki látið sér nægja að segja eins og venjulega,að atvinnu- vegirnir þoli ekki frekari kaup- hækkun. Nú segja þeir ákveðiö, að kaupið veröi að lækka frá 1. marz næstkomandi. Þeir gera tillögur um aö kaupið lækki sem svarar tveimur visitölustigum, en láta mun nærri aö þetta nemi um 2.232 krónum miðað við 60 þús. króna árslaun. 1 báöum til- fellum er miðað við danskar krónur. Þeir leggja til, að i staðinn fái tekjulægstu launþegarnir skattalækkun, og þannig yrði kauplækkunin að nokkru leyti bætt. Þá myndi það einnig draga úr áhrifum kaup- lækkunarinnar, að verölag myndi hækka minna en ella,ef kaupið lækkaði. Þrátt fyrir þetta er reiknað með,að tillögur atvinnurekenda skerði kaup- máttinn um allt að 3%. Þeir segja,að þessi kauplækkun myndi hleypa auknu fjöri I at- vinnulífiö og bendi áætlanir til þess,að þetta gæti dregið tölu- vert úr atvinnuleysinu á næstu árum eða tryggt vinnu fyrir 55 þús. manns umfram það.sem nú er. Að sjálfsögðu hefur þessum tillögum verið tekið illa af verkalýössamtökunum,og gefa margir leiðtogar þeirra til kynna.að nú dugi ekki annaö en láta hart mæta hörðu. t STEFNURÆÐU þeirri,sem Anker Jörgensen flutti eftir setningu þingsins á dögunum, kom þaö fram, aö rikisstjórnin litur efnahagsstööuna svo dökk- um augum, aö lifskjörin veröi eitthvaö aö rýrna i bili eöa meöan veriö sé aö vinna bug á viöskiptahallanum viö útlönd, sem enn er mjög mikill og at- Anker Jörgensen og kona hans. vinnuleysinu,sem enn fer vax- andi. Sparnaður þyrfti að auk- ast ög skuldasöfnun ein- staklinga að minnka. Þess vegna hefði stjórnin i huga að draga úr vaxtafrádrætti við skattaálagningu. Annars var ræðan fáorð um fyrirætlanir stjórnarinnar. Hún fjallaði einkum um það, sem þyrfti að gera, en ekki hvernig stjórnin hygðist framkvæma það. Það var ekkihelduróeðlilegt á þessu stigi, þar sem stjórnin er minni- hlutastjórn og þarf að ná sam- komulagi við aðra flokka um framgang mála. Þó hefur komið fram,að hún stefnir aö einhverri hækkun tekjuskattsins, en óvist er að hún fái stuðning annarra flokka til þess. Rikisstjórnin var mynduð á siðastliðnu sumri eftir að Anker Jörgensen treysti sér ekki til þess að láta minnihlutastjórn sósialdemókrata einna fara áfram meö völd. Hann taldi sig þurfa að fá meiri þingstuðning. Helzt vildi hann mynda meiri- hlutastjórn með Vinstri flokkn- um og Radikala flokknum. Vinstri flokkurinn hafnaöi þessu nema íhaldsflokkurinn yröi einnig tekinn meö. Þvi höfnuöu sósialdemókratar. Niöurstaöan Harðar vinnudeilur framundan hjá Dönum

x

Tíminn

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.