Tíminn - 29.10.1978, Síða 10

Tíminn - 29.10.1978, Síða 10
10 Sunnudagur 29. október 1978 Sunnudagur 29. október 1978 11 Í$P$ „Frá þvi ég steig upp á pall til þess að syngja dægurlag? Það hef- ur nú sjálfsagt verið árið 1944. Já, það var eftirminnilegt. Þarna sat maður i sófa eða „sessaión” I Iðnó og söng, — mjög „nervös”. Svo tóku stúkuböllin við. Þetta var nú svona byrjunin á ævintýrinu og ég sé ekki fyrir endann á þvi enn nema síður sé. Fólk er að spyrja mig af hverju ég fari ekki að hætta en ég segi bara, að ég muni syngja þar til ég dett upp fyrir... Ég lit raunsætt á málin. Röddin hefur heldur skánað, áhuginn er meiri og skilningur á ljóðrænni túlkun, sem ég tel ákaflega mikilvægan er ekkert sambærilegur við þaö sem hann var fyrst. Nú ég þarfn- ast áheyrenda minna og þeir þarfnast min. Þvl ekki þaö? Nei, það veröur ekki svo auövelt að losna við mig (hann hlær). „Breiðskífa á leiðinnT Viö erum stödd á heimili Hauks Morthens söngvara og konu hans Ragnheiðar aö Heiöargeröi 41. Haukur leikur á als oddi og viö finnum aö eitthvað liggur i loft- inu. Okkur tókst að fiska það upp — ný stór breiðskifa á leiöinni með lögum, sem Haukur hefur sungiö gegnum árin. „Vonandi kemur platan út fyrir jól, segir hann, annars yrði ég hryggur. Aö gefa út plötu er eins og að standa allt i einu nakinn fyrir framan áheyrendur og það tekur á taugarnar. Maöur vill auövitað hitta I mark og siikt kostar mikla vinnu. Svo er þaö nú auglýsinga- starfsemin I kringum þetta. Hér áður fyrr nægði ein tveggja dálka auglýsing i blaði og platan seldist upp, nú gilda allt önnur lögmál og ég verö aö hlaupa eftir þeim, enda þótt ég vilji fyrst og fremst að gæðin standi fyrir slnu. Lögin sem ég syng á þessari plötu hafa flest ekki komiö út áöur og tvö ný erlend lög — alveg á toppnum núna — munu fýlgja með og ólafur Gaukur er að gera texta fyrir mig við ansi fallegt lag, sem ég held aö eigi alveg er- indi á hljómplötu. Þarna veröur t.d. Þú ert mitt sólskin, gamalt reviulag, Þú ert yndisleg, sem ég hef nú sungið talsvert, La Paloma, nú og svo væri kannski ekki úr vegi fyrir mig aö rifja upp Lóu litlu á Brú og fleiri lög, sem ekki eru til I sama anda og ég gaf þeim fyrir 20 árum. Þá á ég einnig við draumlyndu meyna DIsu og Ég er kominn heim I heiðardalinn. Ungt fólk hefur talsvert verið að herma eftir þvi sem ég er og hef veriö aö gera, og finnst mér tlmi til kominn aö raula lögin mln aftur. Það er ekkert á móti þvi aö breyta rytmanum eilltiö, I sam- ræmi viö þaö sem gerist I dag. Slíkur rytmi passar fyrir þá yngri og eldra fólkiö vill einnig gera sinar kúnstir eftir þeim rytma.” » Ungt fólk skemmtir sér yndislega” Þaö er dálltiö merkilegt, aö Haukur hefur veriö stúkumaöur alla sina tiö, gekk I Eininguna og er þar félagsmaöur en Hótel Borg, Rööull, Hótel Saga og fleiri staðir, þar sem Haukur hefur troöiö upp eru nú engir stúku- staöir. „Eg er ekki fanatlker, gæti ekki veriö þaö I minu starfi, en aö sjálfsögöu sé ég þaö út und- an mér aö sumir ættu aldrei aö bragöa þennan vökva. Ungt fólk skemmtir sér yndislega, áöur fyrr voru til menn sem létu mjög illa, gengu berserksgang á skemmtistööum og voru kallaöir slagsmálamenn fyrir vikiö. Ég held aö menn sláist minna nú og skemmti sér yfirleitt prýöilega. „Þú ert yndisleg” verður á nýju plötunni” Ragnheiöur: „Líst vel á sjúkraliðanámið” Ragnheiöur kom nú inn.en hún haföi veriö aö sinna öörum gest- um. Viö spuröum hana hvort hún tæki þátt I plötusmíö manns sins og öllu sem þvl fylgir. „Nei, ég hef nóg annaö aö gera og er reyndar ein af þeim, sem skapa „Lögin sem ég syng á þessari plötu hafa flest ekki komið út áður.” mér alltaf mjög mikiö aö gera heima og annars staöar. Ég er nú i sjúkraliöaskólanum, — og var aö ljúka þar fyrsta áfanga og hef veriö I verklegu undanfarna tvo daga. Mér llst mjög vel á þaö.sem kemur til meö aö veröa min at- vinna, en ég hef þurft að leggja feiknin öll á mig I náminu. Þetta er bara eins árs nám og allt veröur aö rúmast á þessu eina ári. Þaö er svo erfitt aö setjast aftur á skólabekk eftir 30 ár, en vel þess viröi. Stelpurnar á námskeiöinu eru 60, og er þaö fjölmennasti hópurinn til þessa. Þær eru á öll- um aldri frá miöjum aldri og niöur 118 ár, allar mjög skemmti- legar. Ég er fegin nú aö ég dreif mig I þetta. Ég heföi ekki getaö hugsaö mér aö vera heima næstu 20 árin, þegar börnin væru alveg farin I burtu, og ég haföi ekki áhuga á þvl aö fara aö vinna I sjoppu eöa I búö.” Haukur skaut hér inn I, aö hann væri algjör jafnréttismaður. „Já, ég held ég sýni þaö I verki.” „Ég hugsa aö ég teljist minna fyrir jafnréttiö,sagöi Ragnheiður hlæjandi og seint myndi ég gleyma heimilisverkunum, þótt ég ynni úti.” Hún segir þó aö þau heföu gleymst meöan prófin stóöu yfir I Sjúkraliöaskólanum. Texti: F.I. Myndir: Tryggvi Eg er algjör jafn réttíS' maður” ,Eins og að standa nakinn fyrir framan áheyrenduF Rætt við hjónin Ragnheiði og Hauk Morthens vil þó helst vera innan Reykja- vlkursvæöisins. Þaö er alltof mik- il áhætta aö fara út á land, — vont aö veröa veöurtepptur, en I þvl hef ég oft lent. — Hefuröu sviösskrekk? — Þetta er atvinna,sjáöu til. Ég ber viröingu fyrir atvinnunni og fólkinu, en áheyrendur ráöa miklu um þaö hvernig manni tekst til. Ragnheiöur og Haukur ósamt yngsta syninum Hauk. Haukur yngri er 16ára og er I menntaskóla. — Hvaö kokkar þú helst Hauk- ur, þegar svo ber undir? — Ég brasa helst eitthvaö eöa laga góöar súpur. Aö baka finnst mér of djarft. Ragnheiður var tvo vetur I Myndlistar- og handiöaskóla Is- lands og læröi þar myndvefnaö og jurtalitun, og um allt I stofunni má sjá árangur þessa náms, lltil laglega ofin teppi, sem Ragn- heiöur hefur einnig teiknaö upp. „Meö hjálp Hauks, þvi aö hann er frábær teiknari”, segir hún. Syngí einkasamkvæmum” — Hvar syngur þú nú Haukur? — Þaö má segja aö ég sé I svo- kölluöum Iausabisness, og er til- búinn aö syngja I hvaöa einka- samkvæmi sem er. Viö erum fjór- ir sarnan I þessu og ætlum aö halda hópinn I vetur. Mér finnst gott aö hafa þennan hátt á, en ég Nú er Gyða á gulum kjól” Hefuröu hugsaö um titil á nýju plötuna? — Já, ég hef mikiö hugsaö um hann og vil hafa hann sterkan,svo sem eins og „Nú er Gyöa á gulum kjól”. — Platan kemur út um jól, þetta er mjög jólalegur titill. — Já, en á ekkert skylt viö jólin. Textinn er eins og menn muna kannske eftir Þorstein Glslason og lagið eftir tónskáld Hafn- firöinga Friörik Bjarnason. Haukur sagöi okkur aö lokum, aö á hann sækti mikil þrá eftir þvl aö fara aö starfa sem prentari á ný. Og hann talaöi svo fjálglega um prentiönina aö blm. óskaöi þess^ö fyrr eöa slöar ætti Haukur eftir aö sýna sig I Blaöaprenti, en þar eru m.a. prentuö fjögur dag- blaöanna. F1 Ragnheiöur: „Já, ég teikna munstrin sjálf”. „Sumir ættu aldrei að bragða þennan vökva” Beinttil BaltámoreWashington Með tilkomu áætlunarflugs til Baltimoreflugvallar víkkar enn leiðanet okkar. BWI (Baltimore Washington International Airport) er nýlegur alþjóðlegur flugvöllur milli stór- borganna Baltimore og Washington. BWI flugvöllur þjónar báðum borgunum í senn. Þaðan er aðeins 50 mínútna akstur til Washington og 20 mínútna akstur til Baltimore. Stöðugar bílferðir eru til og frá flugvellinum, svo biðin er engin. Frá BWI eru framhaldsflug um öll Bandaríkin og víða um heim. Flogið verður til Baltimore/ Washington einu sinni í viku, á föstudögum kl. 17.45 og til baka á laugardögum kl. 21.00. Fjölgun áætlunarstaða er liður í víðtækari og betri þjónustu við lands- menn. Þessi nýja flugleið er enn einn ávinningurinn af sameiningu okkar. FLUGFÉLAG tOFTLElDlfí ílSLAHDS

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.