Tíminn - 08.11.1978, Blaðsíða 3

Tíminn - 08.11.1978, Blaðsíða 3
Miðvikudagur 8. nóvember 1978 lili'iit'Í' Ný gangbrautaljós Nú á að fjölga gangbrautum með umferðaljós- um i Eeykjavík. Á nokkrum stöðum i borginni er verið að vinna að þessum framkvæmdum, svo sem á Suðurlandsbraut, fyrir framan Hótel Esju, og á Hringbraut, fyrir framan Land- spitalann. — Timamvndir: G.E. Mikil uppbygging í Nauteyrarhreppi — Bygging sláturhúss, félagsheimilis og vélaverkstæðis á döfinni ATA — t lok slðasta mánaðar var stofnaO hlutafélag viö lsafjaröar- djúp og hlaut þaö nafnið Snæfell h.f. Tilgangur félagsins er bygg- ing og rekstur sláturhúss, afuröarsala og verslun fyrir Inn- djúpssvæöiö, en aö sögn stofn- enda hlutafélagsins hafa þessi mál veriö I miklum ólestri undan- farna áratugi. Hlutafélagið var stofnað á fjöl- mennum fundi sem var haldinn að Melgraseyri við tsafjarðar- djúp. Stofnfé félagsins er 40 milljónir en stærstu hluthafar eru Norðurtanginn og Sandfell á lsa- firöi svo og Nauteyrarhreppur, en þar er heimili og varnarþing hins nýstofnaða félags. Allt sláturfé úr Inndjúpi er nú flutt til slátrunar annað hvort yfir Þorskafjaröarheiði i Króks- fjarðarnes eða til tsafjaröar bæði á sjó og landveg en vegalengdin til tsafjaröar frá ystu bæjum norðan Djúps er um 240 km. Sjó- leiðin er styttri en nær ógerningur Fv’iávik Hei^’i yHavq. J kTlna o O i i 1 P^Qua7 'lx M 1 Fi l ippseyj^ F l(<a \ 1 Iz. Iíl V/ev\e^ue la ~7 FT 1 ” Itk. o mmwMm Fv ol Vc \c \ \y\(X kTo L u\/v\b i a so?» Arangur íslensku skáksveitarinnar Arangur Islensku skáksveitanna á 23. Olympluskákmótinu I Buenos Aires hefur komið nokkuð á óvart og þá einkum frammistaða Helga Ólafssonar, sem er hreint frábær. Eins og sést á meðfylgjandi töflu þá hefur Helgi teflt 8 sinnum, unnið 5 skákir, gert 2 jafntefli og tapað aöeins 1 skák — 75% árangur. Friðrik Ólafsson er meö sama vinningshlutfall eftir 4 skákir. Ingvar As- mundsson hefur einnig staðið sig mjög vel, en hann er með 66% vinningshlutfall. Frammistaða Margeirs Péturssonar er einnig mjög athyglisverö, en hann hefur hlotið 64, 3% vinninga. Guömundur Sigurjónsson er meö 50% árangur og hefur frammistaöa hans, sem og frammistaða Jóns L. Arnasonar, sem er með 35,7% vinningshlutfall, valdið vonbrigðum. ■ __________________________________________________________________ Frá Nauteyrarhreppi. Hér mun fljótlega rlsa nýtt sláturhús. Mvnd- Helgi Sveinbjörnsson er að flytja fé þannig i misjöfnum veörum. Auk þess, segja stofn- endur hins nýja sláturhúss, er sláturhús Isfirðinga orðiö ónot- hæft. Fyrirhugaö er að hefjast handa við byggingu sláturhússins þegar næsta vor en það verður byggt á Nauteyri I Nauteyrarhreppi. Þar er umtalsveröur hiti i jöröu og hafði veriö ákveöið að bora þar eftir meira vatni og heitara síð- asta sumar en það dróst af ýms- um ástæðum en verður gert strax næsta vor. Auk sláturhússins eru á döfinni bygging félagsheimilis og véla- verkstæðis að Nauteyri og jafn- framt aö koma þar upp léttum iðnaöi. Þessar fyrirhuguöu fram- kvæmdir mundu treysta mjög bú- setu viö Isafjaröardjúp og koma I veg fyrir aö unga fólkiö þyrfti I jafnrikum mæli og nú aö leita burt eftir atvinnu og félagsllfi. Stjórn Snæfells h.f. skipa þeir Engilbert Ingvarsson, Tyröil- mýri, formaður, Benedikt Eggertsson, Hafnardal, og Jón F. Þórðarson, Laugarási. Ingi Tryggvason byrjar hjáÚI Kás — Ingi Tryggvason, fyrr- verandi alþingismaður, mun taka við starfi forstöðumanns Ullar- og skinnaverkefnis hjá Útflutningsmiðstöö iðnaðarins um miöjan þennan mánuð. I fréttabréfi Félags isl. iðn- rekenda segir, aö hvorki Inga — né þessa starfsemi hjá Otflutn- ingsmiðstöðinni — þurfi að Ingi Tryggvason. kynna. En starfeviö hans verði að auka iðnþróunarhraöann á öUum sviöum 1 þessum grein- um. Olympíuskálonótíð: Góður sig- ur gegn Búlgörum - og íslendingar blanda sér nú i toppbaráttuna ESE — tslendingar unnu glæsi- legan sigur gegn Búlgarlu 3-1 I 10. umferð Olympluskákmóts- ins I Buenos Aires I gær. Aðeins einni skák lauk á réttum tlma, skák Helga og Ezmekov, en Helgi sigraöi búlgarska stór- meistarann i 38 leikjum. Ekki gekk hinum búlgörsku stórmeisturunum neitt sérstak- lega vel 1 biöskákunum sem tefldar voru i gær, þvl aö þá sigraði Guðmundur Radulov, en skákum Margeirs og Jóns L. við þá Tringov og Padevski lauk meö jafntefli. tslenska sveitin hefur þvi hlotið 24 vinninga aö loknum 10 umferöum og er hún nú komin I hóp efstu þjóöanna á þessu 23. Olympiuskákmóti. önnur helstu úrslit i 10. um- ferð urðu sem hér segir: Sovétrikin — tsrael 1,5 - 1,5 (skák Romanishin og Gruenfeld fór I bið öðru sinni) Vestur-Þýskaland — Ungverja- land 2-2. Sviþjóð — England 2,5-1,5. Júgóslavla — Argentina 2,5-1,5. Danmörk — Sviss 2,5-1,5. Spánn — Austurriki 3-1. Sovétmenn eru enn efstir með 25,5 vinninga og biðskák, en Vestur-Þjóðverjar hafa hlotið sama fjölda vinninga. Skammt á eftir koma svo Ungverjar með 25 vinninga.

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.