Tíminn - 08.11.1978, Side 6

Tíminn - 08.11.1978, Side 6
6 Miðvikudagur 8. nóvember 1978 'Otgefandi Framsóknarflokkurinn Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar: Þórarinn Þórarinsson og Jón Sigurðsson. Auglýsinga- stjóri: Steingrimur Gislason. Ritstjórnarskrifstofur, framkvæmdastjórn og' auglýsingar Siðumúla 15. Sími 86300. , " j Kvöldsfmar blaöamanna: 86562, 86495. Eftir kl. 20.00: 86387. Verð i lausasölu kr. 110.00. Askriftargjald kr. 2.200 á' mánuöi. Blaðaprent h.f. Ummæli Vísis um Albert Guömundsson Sjálfstæðisflokkurinn hélt um helgina svokall- aða flokksráðs- og formannaráðstefnu. Tilgangur ráðstefnunnar átti einkum að vera sá að draga úr persónulegri ósætt og óheilindum i flokknum. Þetta virðist ekki hafa borið mikinn árangur, ef marka má forustugrein Visis i fyrradag. Þar er ráðizt hatramlega á aðalleiðtoga Sjálfstæðis- flokksins i Reykjavik, Albert Guðmundsson, fyrsta þingmann Reykvikinga. Yfirskrift greinar- innar er Alþingisloddarar, en hún fjallar um tillög- ur, sem Albert Guðmundsson og Ólafur Ragnar Grimsson hafa flutt. Um þær og flutningsmenn þeirra segir m.a. i greininni: ,,Efnislega er ekki unnt að taka tillögur þessar of alvarlega fyrir þá sök að hvorugur flutnings- manna nýtur þess álits, sem til þarf. Þeir eru hvor i sinum flokki fulltrúar gaspurs og slagorða”. Þannig gefur Visir fyrsta þingmanni Reykvik- inga og helzta leiðtoga Sjálfstæðisflokksins i Reykjavik þann vitnisburð, að hann sé þingloddari og fulltrúi „gaspurs og slagorða”. Svo mikið traust hafa þó Sjálfstæðisflokksmenn sýnt Albert Guðmundssyni, að hann er eini leiðtogi þeirra, sem á bæði sæti á Alþingi og i borgarstjórn. Þótt Visir afneiti þvi, að hann sé flokksblað, er það alkunna, að útgefendur hans eru Sjálfstæðis- flokksmenn og a.m.k. annar ritstjórinn hefur tekið og tekur virkan þátt i flokksstarfinu. Hann og út- gefendur Visis hafa skipað sér i þann arm flokks- ins, sem berst gegn þeim Gunnari Thoroddsen og Albert Guðmundssyni. Visir hefurverið persónu- lega á eftir þeim og reynt að gera þeim sem flest til pólitisks tjóns og vanza. 1 umræddri forustu- grein bergmálar afstaða þeirra þingmanna og annarra forustumanna flokksins, sem vildu fella Gunnar Thoroddsen sem formann þingflokksins og felldu Albert Guðmundsson, þegar kosið var i utanrikisnefnd og fjárhagsnefnd neðri deildar. Það er ljóát af Visisgreininni.að þessir aðilar eru siður en svo af baki dottnir. A svipaðan hátt og Visir hefur barizt gegn Gunn- ari Thoroddsen og AlbertGuðmundssyni, hefur hitt siðdegisblaðið, sem gefið er út af Sjálfstæðis- flokksmönnum, Dagblaðið, beitt sér gegn Geir Hallgrimssyni og talið hann óhæfan til flokksfor- ustu. Þannig vinna þessi tvö siðdegisblöð, sem Sjálfstæðisflokksmenn gefa út, að þvi að ófrægja helztu forustumenn flokksins á vixl. Það er ekki von að vel fari, þegar voldugar flokksklikur, sem hafa útbreidd blöð á valdi sinu, ófrægja leiðtoga flokksins á vixl. En þótt útgefendur Visis og Dagblaðsins séu þannig ósammála um leiðtoga Sjálfstæðisflokks- ins og valdi flokknum þannig mikilli raun, eru þeir innilega sammála um hver stefna Sjálfstæðis- flokksins eigi að vera. Markmið blaðanna beggja er að sveigja flokkinn til hægri. Bæði eru blöðin mjög hægri sinnuð i leiðaraskrifum sinum. Þar greinir ekki neitt á milli þeirra. Morgunblaðið hefur heldur reynt að malda i móinn, en með slik- um hálfkæringi, að allt bendir til, að siðdegisblöðin muni mega sin betur og hafa á komandi tið meiri áhrif á stefnu Sjálfstæðisflokksins en Mbl. Spurn- ingin er meira sú, hvort sókn Visis má sin meira en vörn Dagblaðsins varðandi það að gera Albert Guðmundsson að fulltrúa þingloddara i augum Reykvikinga. Þ.Þ. Erlent yfirlit Risaveldin eru hlið- holl íranskeisara Þau óttast að verra getí teklð við TURKEY Mashhad AFGHANISTAN "JORDAN PAKISTAN KUWAIT SAUD! ARABIA SUDAN SöMALIA ETHI0PIA SVO mikil hefur óöldin orðiö I tranvegna mótmælaöldu þeirr- ar, sem stjórnarandstæðingar hafa reist gegn keisaranum og vissum fyrirætlunum hans, að hann hefur neyðzt til þess að fela hernum að far a með stjórn I landinu I umboöi sinu. Um helg- ina var mynduð I Teheran ný rfkisstjórn, sem er eingöngu skipuð hershöfðingjum, að und- anskildum utanrikisráðherran- um. Forsætisráðherraer Ashari hershöfðingi, sem var áður formaöur herróðsins og er sagð- ur náinn vinur og stuönings- maður keisarans. Keisarinn sagði, þegar hann tilkynnti hina nýju stjórn, að henni væri ætlaö að fara með völd til bráöabirgða eða meðan verið væri aökoma á friði i landinu. Hún hefði veriö mynduö sökum þess, aö ekki heföi tekizt aö mynda sam- steypustjórn allra flokka, að undanskildum flokki kommiln- ista, sem starfar ólöglega eða m.ö.o. er bannaöur i landinu. Sumir trúarleiötogarnir munu hafa gert þab að skilyrði, að keisarinn afsalaði sér völdum, en óeir öirnar haf a færzt meir og meir f þann farveg, að ekki aöeins væri fyrirætlunum keis- arans mótmælt, heldur væri einnig krafizt afsagnar hans. Keisarinn hefur vitanlega ekki viljað fallast á það, nema þá að fullreyndu, og hefur þvi gripið til þess ráös ab fela hernum að fara með stjórnina i trausti þess, að hann reyndist keisara- stjórn hollur.Þaö mun nú ætlun- in að berjaalla mótspyrnu niður með harðri hendi, en mikilU hörku hefur veriö beitt undan- fariö, án þess aö þaö hafi borið árangur. Nú viröist eiga að beita enn meiri hörku, en marg- ir fréttaskýrendur efast um að það beri tilætlaöan árangur. Þeir fréttaskýrendur, sem áður töldu keisarann og stjórn hans aUtrausta i sessi og eiga veru- legu fylgi aðfagna, einkum utan stórborganna, eru farnir aö ef- astum,aö keisaranum takist að halda velU. ÞAÐ þykir styöja verulega stöðu keisarans, að hann hefur erlend riki og þó einkum risa- veldin sér heldur hliöhoU i þess- um átökum. Það þykir nokkurn veginn ljóst, að verði keisaran- um steypt úr stóU, undir núv. kringumstæðum, munu völdin komast i hendur afturhalds- sinna undir forustu öfgafyUstu trúarleiðtoga múhameðstrúar- transkeisari er áhyggjufullur manna. Bandarlkin og önnur vestræn riki telja sér þetta ekki heppilegt. Meöal annars væru hinir nýju valdhafar Hklegir til aö taka upp haröa andstööu gegn Israel og jafnvel hætta oliusölu þangaö, en tsraelsmenn fá nú mest af þeirri oliu, sem þeir kaupa, frá íran. Þá mun slik stjórn enn liklegri en keis- arastjórnin tU aö hækka oliu- veröiö. RUssar viröast einnig telja, aö slik stjórn yröi þeim óhagstæöari en keisarastjórnin. Trúarleiötogarnir eru mjög andvigir Sovétrikjunum og kommúnismanum og væru sennilega fUsari til samstarfs viö Kinverja en Rússa vegna þess, aö Klnverjar eru lengra i burtu. Leiötogar Klnverja virö- ast þó treysta varlega á þetta. Hua leiötogi kinverskra kommúnista heimsótti Irans- keisara á siöastl. sumri og fór þá miklum viöurkenningarorö- um um stjórn hans. Vegna hinnar miklu oliuauð- legðar og landfræðilegrar legu J Of Oman YEMEN Arabian Sea tran ntt náftrnnnnrfki Hms Irans, getur stjórnin þar haft mikil áhrif á valdataflið i heim- inum. Her Irans er orðinn mjög öflugur og myndi auðveldlega geta lokað Persaflóa eða hindr- aö siglingar um hann. Viö Persaflóa eru langsamlega mestu ollulindir heims. Með þvi að stöðva siglingar um Persa- flóa, gæti tran raunverulega haft írak, Kuwait, Saudi-Arablu og arabisku furstadæmin i greip sinni, en olluflutningar frá þess- um löndum fara aö langmestu leyti um Persaflóa. Stórveldin fylgjast lika betur meö atburöum I íran en I flest- um öörum löndum. Þaö getur haft hin mikilvægustu áhrif, hvernig lyktarþeim átökum, sem nú eru aö gerast þar. ÞÓTT margt megi finna aö stjórn keisarans, hefur óneitan- lega þokaö I rétta átt á ýmsum sviöum undir forustu hans. Hægrimenn telja breytingarnar alltof miklarog eru hinir áhrifa- miklu trUarleiötogar þar fremstir I flokki. Þeir hafa látiö mest til sin taka aö undanförnu. Vinstrimenn telja breytingarn- ar alltof litlar og ekki beinast aö þvi aö bæta kjör alþýöu manna. Þeir hafa gengiö til liös viö hægri menn i baráttunni gegn keisaranum, enda þótt þeir eigi ekki von á neinu góöu, ef hægri öflin næöu völdum. Sennilega yröi þaö eitt fyrsta verk þeirra aö bæla niöur róttæk vinstri öfl meö enn meiri hörku en nU er gert. öfgafullir vinstri menn viröast standa i þeirri trú, aö til þess aö ástandiö geti batnaö, þurfi þaö fyrst aö versna. Ofga- full hægri stjórn yröi meö tiö og tlma meira vatn á myllu vinstri afla en keisarastjórnin, sem reynir aö aöhafast sitthvað, er stefnir til bóta. Þaö hefur verið ætlun keisar- ans að efna til kosninga næsta sumar og veita þvl þingi, sem þá veröur kosið, aukin völd. Enn telur hann sig stefna að þvi, en eins og nú horfir, er alveg eins liklegt, aö hann hafi fyrir þann tlma misst völdin. 1 Iran rlkir nú alger óvissa um hvað næstu mánuöir bera I skauti sér. Þ.Þ.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.