Tíminn - 05.12.1978, Blaðsíða 8

Tíminn - 05.12.1978, Blaðsíða 8
8 Þriðjudagur 5. desember 1978 á víðavangi Tvær stéttir úr háskóla 1. des. hátíðarhöld stúdenta fóru fram með hefðbundnum hætti á föstudaginn og var út- varpað yfir allan landsiýð. Nú iiggur þaö ekki ljóst fyrir hversu stór hluti þjóðarinnar hlustar á þessa dagskrá eða hvað hann hugsar um hana, en eftirtektarvert þótti mér að stúdentar sýndu að þessu sinni örlitla viðleitni til sjálfsgagn- rýni og þaö held ég að falli i góöan jarðveg. • ' - Þann hluta gagnrýninnar sem fjallaði um námslánin sá að visu gesturinn um, verkakona úr Vestmannaeyjum og hún hitti einmitt naglann á höfuðið. Stúdentar geta ekki ætlast til velvilja hjá almenningi I land- inu gagnvart þeirri kröfu að verða studdir betur fjárhags- lega til háskólanáms á meöan þeir koma út úr skólum sem sterkur kröfuhópur sem svlfst einskis i aö troða aðra undir I samkeppninni um bitana úr þjóðarkökunni. Nemendur þykja skera sig úr I þjóðfélaginu fyrir sterka til- finningu að þvi er virðist með bágum kjörum þeirra sem veröa undir I þjóðfélaginu. Gengur þetta stundum út I öfgar eins og flest annað en er eins og sagan sannar mjög sterkt mót- andi afl I þjóöfélagsþróuninni og er ekki til að iasta. Aftur þykir almenningi kannski heldur hart að sjá það fólk sem hann hefur stutt til námsifylkja sér þegar það kemur út úr skólunum,! liö með þeim sem hinum megin standa. Kerfið margfræga hefur nú samt sem áður búið svo um hnútana að stúdentum er nokk- ur vorkunn. í raun er aöeins um tvennt aðvelja vilji menn að all- ir eigi kost á háskólanámi hvaöan úr stétt sem þeir koma. Það verður annað hvort að tryggja stúdentum örugg lán til framfæris ellegar að breyta þvi tímatakmarkanakerfi sem vlðast er nú allsráðandi i deild- um háskólans og beinllnis hindrar að nemendur geti tekiö sér fri frá námi tii að þyngja pyngjuna á ný. Það er nú lika svo að háskóla- menntaö fólk er alls ekki I öllum tilvikum þeir sem hæstar hafa tekjurnar á islandi I dag. Mörg verkalýðsfélög verkamanna, iðnaðarmanna og verksmiöju- fólks hafa náð verulegum árangri á siðustu árum og launahlutföll hafa mikið breytst án þess að allir geri sér grein fyrir útkomunni. Þegar há- skólastúdentar koma út úr skóla 25-30 ára gamlir með kannski þriggja milljón króna náms- skuld á bakinu hafa margir jafnaldrar þeirra I iðnaðarstétt til dæmis byggt yfir sig hús og skulda ekki miklu meira en stúdentinn. Gerist þessi stúdent kannski blaðamaður eða fer að vinna skrifstofuvinnu eru launin oft ekki meiri en svo að t.d. iönaðarmaður eða verksmiðju- starfsmaöur getur haft allt að þvi helmingi hærri iaun á mánuði. Niðurstaðan er raunar sú aö Háskóli islands útskrifar a.m.k. tvær launastéttir, hálaunamenn og láglaunamenn og á sama tima og enginn þarf að vor- kenna hinum fyrrnefndu að greiða námslán sin að fullu og þaö verðtryggt/verður vlst varla það sama sagt um hina slðar- nefndu láglaunamenn úr há- skóla. KEJ Á laugardagskvöld 9. des. eru slðustu forvöð að sjá hina vinsælu sýningu islenska dansflokksins og Þursaflokksins I Þjóðleikhúsinu. Þessi ballettsýning hefur fengið ágæta aðsókn og vakið athygli fyrir fjölbreytileika og ferskieika en þarna er boðiö upp á þrjá bailetta: klassiskan dans, nútimadans og rokkballett. Dansaðir eru ballettarnir: Pas de Quatreeftir hinn fræga ballett- dansara Anton Dolin,en hann sviðsetti sjálfur þennan ballett með dansflokknum, ROKK-ballettinn ,,1955” sem dansflokkurinn samdi sjálfur undir stjórn kennara sins, Karen Morell viö vinsælustu lög Elvis Presley og loks ballett Ingibjargar Björnsdóttur, SÆMUNDUR KLEMENSSONen hann er saminn út frá gamalli Is- lenskri grafskrift. Tónlistin við þennan síðasta ballett er samin og flutt af Þursaflokknum. mismun of mikinn HEI — 1 könnun á jafnréttis- málum sem gerð var I fjórum bæjarfélögum, Kópavogi, Hafnarfiröi, Garöabæ og Nes- kaupstað kemur fram að mik- iil meirihluti þeirra sem spuröir voru telja launamis- mun i landinu vera of mikinn. Nokkuð er þetta þó mismun- andi eftir búsetu. Þannig sker Garðabær sig talsvert úr hvað það varðar álit á þvl hvort launamismunur sé eðlilegur eða of litill. Einnig kemur fram að fleiri konur en kariar álita mismuninn of mikinn. 78-84% kvenna og 71-74% karla i Kópavogi Hafnarfirði og Neskaupstaö telja muninn of mikinn. 1 Garðabæ eru sömu tölur 74% og 61%. 6-10% kvenna telja launa- mismuninn eðlilegan og að- eins 0,7-2,4% þeirra eru þeirr- ar skoðunar að launamunur sé of lltill. Karlar sem telja launamun- inn eölileganeru frá 7-18%. Að launamismunur sé of litill töldu 2.8-4% af körlunum, nema í Garöabæ, þar var sú tala 11%. hafa sótt ótal námskeið I snyrtingu m.a. hjá Lancome I Paris. Myndina tók ljósmyndari Tlmans Tryggvi, t.f.v. Stella Bragadóttir, Stefana og Mar- grét Ölafsdóttir. —Tónskóli— Sigursveins — beldur tónleika annað kvöld Annaö kvöld kl. 20.30 munu kór og hljómsveit Tónskóla Sigursveins D. Kristinssonar halda tónleika I kirkju Óháða safnaðarins við Háteigsveg. A eftiisskrá tónleikanna eru m.a. verk eftir Beethoven Bartók, Praetorius, Sigur-_ svein D. Kristinsson ,Victoria Poulenc o.fl. Mörg verkefnin veröa nú flutt i fyrsta sinn á tónleikum hérlendis. Stjórn- andi er Sigursveinn Magnús- son. Myndin hér aö ofan var tek- in af kórnum á æfingu fyrir nokkrum dögum. við Laugaveginn Könnun á jafnréttismálum: Mikill meiri- hluti telur launa- FI — Fimmtudaginn 23. nóv. var opnuð glæsileg snyrti- vöruverslun f nýjum húsa- kynnum að Laugavegi 51. Nafn verslunarinnar er Top Class og verður lögð áhersla á að hafa jafnan til sölu allar al- mennar snyrtivörur og ilm- vötn af vönduðustu gerðum fyrir dömur á öllum aklri, t.d. Lancome, Juvena og fleiri. Innréttingar eru allar mjög vandaðar og voru fluttar inn frá Þýskalandi, sérvaldar þar af forsvarsmönnum verslunarinnar, sem jafn- framt sáu sjálfir um hönnun _og fyrirkomulag. Verslunarstjóri er Stefana Karlsdóttir, sem hefúr unniö við sölu og leiðbeiningar um notkun á snyrtivörum I fjölda- mörg ár, jafnframt þvi aö „Top Class” Höfn Hornafirði: Kaupfélagið opnar veglega byggingavöruverzlun AA-Höfn. — t byrjun vikunnar opnaði Kaupfélag Austur-Skaft- feliinga nýja járnvörubúð á Alaugarey rétt hjá nýju vöru- höfninni á Höfn I Hornafirði. Verslunin er á einni hæð. Aöur var járnvöruverslunin i gömluhúsi við aðalgötu bæjarins en með auknum umsvifum hefur hún veriö færð I sitt nýja um- hverfi. Með hinu nýja húsnæði gefst kostur á fjölbreyttari þjón- ustu og verður hér eftir boðið upp á allar byggingarvörur I verslun- inni. Húsbyggjendur og þeir sem vilja breyta geta þvl leitað á einn og sama staðinn þegar þeir kaupa

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.