Tíminn - 12.12.1978, Síða 19

Tíminn - 12.12.1978, Síða 19
ÞriBjudagur 12. desember 1978 ÍMÍliliÍÍ 19 Ijóð undir berum himni Hólmfríður Jónasdóttir HÓLMFRÍÐUR JÓNASDÓTTIR UNDIR BERUM HIMNI LJÓÐ Útgefandi: Bókaforlag Odds Björnssonar 1978 Meöal bóka sem forlag Odds Björnssonar á Akureyri sendir frá sér á þessa vertfð bókanna er ljóöabókin Undir berum himni, ljófi eftir Hólmfriöi Jónasdóttur frá Sau&árkróki en I bókinni er um þa& bil 90 kvæ&i á 109 bla&sf&um sem er allstór bók af ljó&abók a& vera og gæti þvi innihaldiö veriö allt sem þessi kona hefur ort um sina daga. Engin deili veit undirrita&ur á Hólmfriöi Jónasdóttur nema hún mun vera dóttir Jónasar frá Hoftúnum, sem er kunnur skag- firskur hagyröingur og stóö fram á siöustu ár viö Héraös- vötn og varnaöi fé aö komast úr einu hólfi i annaö. Hefi ég heyrt aö þar hafi margir gjört stuttan stans til þess aö tala viö skáldiö á kvöldi lifsins en nóg um þaö. Hólmfriður Jónasdóttir frá Sauðárkróki Hólmfriöur Jónasdóttir er ekki mikiö skáld ef talaö er I fullri alvöru en þaö var samt ánægjulegt aö lesa þessa bók hennar svona notalega i allri gerö, og hin liöna tiö birtist hægt og h,ægt gegnum þessi löngu og einlægu kvæöi. Timar þegar skáld skiptu máli og voru jafn ómissandi viö öll tækifæri og blómin viö jaröarfarirnar og fánarnir fyrsta mai. Hólmfriöur velur sér yrkis- efni i gömlum stil. Bók hennar hefst á Blönduhliöinni þar sem hún segir frá landslagi I Skaga- firöi, frá Bólu-Hjálmari. Þetta er heldur væmiö kvæöi svona á köflum og stundum stirölega ort: _ „Hér nam hann draum sinn til dá&rikra starfa dagsins vinur en samdi ei griö viö skortinn né kotungshátt lslands arfa, en átthaga sótti á vesturmiö.” En svo fer þetta aö skána. Hún sækir yrkisefni sin aftur I tiöina i landslag, árstiöir og minningar. Þaö er greinilegt aö skáldkonan ann landi sinu og þjóö hugástum og þótt brösótt gangi þaö heldur aö fella þaö I bók er viss heiörikja og einlægni i þessu verki öllu. Helsti gallinn er aö stundum er haldiö áfram aö yrkja eftir aö kvæöiö er I rauninni þrotiö. Dæmi um þetta er aö finna i kvæöinu Vorkoma á bls. 31. Fyrstu þrjár visurnar eru I raun og veru þetta kvæöi en slöan bætast viö fimm erindi sem auka engu viö þetta annars fallega og tilfinningarika upp- haf. Dæmi um hiö gagnstæöa er siöan Flugan á bls. 35 þar sem efni og kvæöi eru nokkurn veg- inn af sömu lengd og myndin sem þaö skilar okkur er heilleg og sönn en kvæöi er svona: # Spékoppar — Barnabækur eftir Herdisi Egilsdóttur ísafoldarprentsmiöja hefur gefiö út tvær barnabækur, sem heita Spékoppar 1, og Spékoppar 2. Teikningar og texti eru eftir Herdisi Egilsdóttur. I fyrri bók- inni er sagt frá þreyttum strætis- vagni, öfundsjúkum ormi, krökk- um I snjó, og svo henni Boggu blekklessu. I ööru bindinu eru aftur á móti þessar fyrirsagnir: Hrossataös- hrúgan, Sokkarnir og peysan og Hunang til sölu. Báöar þessar bækur eru óbundnar og aöeins ein örk hvor. Teikningar eru I góöu samræmi viö efniö, og hvort tveggja er vel viö hæfi yngstu lesendanna. Flugan Brug&ust vonum vængir smáir veslings flugan mfn? Endar svona ömurlega ævin stutta þin? 1 morgun lékstu létt á glugga, iaunráb kvöldiö vill þér brugg. Fjörlegt var þitt flugusuö. Viö undum hér við eldhússtörfin eina morgunstund er ung og fögur aprilsólin okkar gladdi fund En þó vilji flugu feiga flestir þeir sem einhvers mega samt ég hálfgert sakna þin. Tækifærisljóð og vísur Tækifærisljóö taka talsvert rúm i bók Hólmfrlðar, hún yrkir um félög á afmælisdögum og til félaga, þar á meðal til Skag- firöingafélagsins. Einnig um Sauöárkrók. Hólmfrföur Jónasdóttir. Þá eru kvæöi um nokkur skáld, Stephan G. Stephansson, Jóhann Sigurjónsson og Þor- stein Erlingsson. Hinstu kveöju fá Guömundur Böövarsson og fleiri hljóta eftirmæli. Hinsta kveöja til Guömundar Jósafatssonar ber af öðrum og er éitt besta kvæöi þessara bók- ar en þaö hljóöar svo: Gu&mundur Jósafatsson hinsta kve&ja Ég græt ei vinur vegna þin, úr volkinu hérna megin brá&um liggur lei&in mfn lika sama veginn. Vinur sáran söknuö finn I svala vetrarljósa brei&i þvi yfir bcöinn þinn blóm sem ekki frjósa. Alltaf reyndist okkur stætt aldrei vinsemd þrotiö, á fimmta tug viö súrt og sætt saman glaöst og notib Vakir hjá mér von og trú verma minning þina. Enginn skildi eins og þú ótal bresti mina. Þó aö oss blési einatt grátt örlög kaldra ragna gegnum basl og bli&u átt barnaláni aö fagna. Viö höfum ekki vinur minn veriö þar ein i ráöum þeim hefur skilaö skaparinn þvi skásta úr okkur bá&um. Þegar brýt ég bát viö strönd bakkans hinum megin vona ég þin hlýja hönd hjáipi mér fram á veginn.” Svona kvæöi réttlæta heila bók. Eins og sagt var hér aö framan er Hólmfriöur Jónas- dóttir ekki mikiö skáld. Bók hennar heföi oröiö betri meö dá- litiö færri kvæöum — of margt er tekiö meö — en þaö skiptir ekki öllu máli. Kvöldstund meö þessa bók milli handa var ekki illa variö. Maöur les þarna um ættjaröar- ást.fegurö sveita og tregabland- in söknuö hluti sem skáldin sjá varla lengur i voru landi, eftir aö innflutningsmálin uröu þar efst á blaöi. Þaö væri mikill skaði ef hag- yröingar hyrfu á tslandi, og mikiö verður lifiö dauft þegar þeir eru horfnir. Jónas Guömundsson bókmenntir

x

Tíminn

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.