Tíminn - 23.12.1978, Blaðsíða 15
Laugardagur 23. desember 1978
15
Keyptu 5
Trabant-
bifreiöar
Á fimmtudaginn tók
Guðni B. Guðnason, að-
stoðarkaupfélagsstjóri
Kaupfélags Árnesinga,
fyrir hönd Kaupfélags-
ins við fimm bifreiðum
af Trabant-gerð.
Þorvarður
R. Elíasson
— ráðinn
skólastjóri
Verslunarskólans
Skólanefnd Verslunarskóla ts-
lands hefur ráðió Þorvarð R. Eli-
assonsem skólastjóra Verslunar-
skólans tilnæstu 5ára, frá og með
1. jtini næstkomandi.
Þorvarður R. Eliasson er fædd-
ur 9. júli 1940 aö Bakka i Hnlfsdal,
sonur hjónanna Eliasar Ingi-
marssonar og Guönýjar Jónas-
dóttur. Þorvaröur varð stúdent
frá Menntaskólanum á Akureyri
1960 og viðskiptafræðingur frá
Háskóla Islands 1965. Hann vann
hjá Kjararannsóknarnefnd árin
Að sögn Guðna voru bilarnir
keyptir til að starfsmenn Kaup-
félagsins gætu betur sinnt ýms-
um þjónustustörfum viö við-
skiptavinina, svo sem farið á
bæi og gert viö vélar og fleira.
Trabantinn varð fyrir valinu,
þvi kaupverð bifreiðanna fimm
er ekki hærra en 1-2 bilar af dýr-
ari gerðum myndu kosta. Kaup-
verð hvers þessara blla er 1.250
þúsund krónur.
1965 — 1969 og hjá ráögjafafýrir-
tækinu Hagverk sf. árin 1970 —
1972. Frá ársbyrjun 1973 hefur
Þorvarður verið framkvæmda-
stjóri Verslunarráðs íslands.
Hann er kvæntur Ingu Rósu
Sigursteinsdóttur og eiga þau
fjögur börn.
Yfirlýsing frá
Iðnaðarráðuneytinu:
Vegna blaðaskrifa
um hækkun
á sementsverði
Vegna blaðaskrifa um hækkun
á sementsverði vill iðnaöarráðu-
neytið taka fram eftirfarandi:
Með bréfi dags. 16. ágúst 1978
fór stjórn Sementsverksmiðju
rikisins fram á 20% hækkun á út-
söluverði sements frá og með 15.
september s.l. og hækkun á öðr-
um tegundum sements i sam-
ræmi við það. 1 bréfi Sements-
verksmiðjunnar eru helstu ástæö-
ur fyrir hækkuninni taldar vera:
1. Hækkun oliuverðs
2. Hækkun raforkuverös
3. Nýlög um 3% jöfnunargjald af
innfluttum iönaöarvörum
4. Hækkun launagreiöslna vegna
vlsitölubóta
5. Gert er ráö fyrir aö erlendur
gjaldeyrir hækki um 17.5% og er
reiknaö með þeirri hækkun á inn-
flutaing til áramóta.
Erindi þetta var ekki afgreitt
fyrir stjórnarskiptin um mánaða-
mótin ágúst-september.
Eftir aö svonefnd gjaldskrár-
nefnd, sem f jalla á um gjaldskrár
opinberra fyrirtækja, haföi veriö
skipuö var erindi þessu vlsað til
hennar meö tillögu iönaöarráöu-
neytisins um aö heimiluö yröi
15% hadckun sementsverös frá 1.
nóv. s.o.
Gjaldskrárnefnd samþykkti i
lok október að gera ekki tillögu
um gjaldskrárbreytingu aö sinni.
1 desember uröuenn verulegar
kostnaöarhækkanir hjá verk-
smiðjunni s.s. vegna hækkunar
oliuverös og launahækkana.
Var nú svo komiö aö fyrirs jáan-
legur var halli á rekstri Sements-
verksmiðjunnar og tap á hverju
seldutonni nam nokkrum þús. kr.
Um miöjan desember var útlit
fyrir aö reksturinn myndi stööv-
ast um 20. desember ef ekkert
yrði aö gert. Oliuafgreiösla haföi
veriö stöövuö og oliubirgöir voru
aöeins fyrir hendi til nokkurra
daga.
Iðnaðarráöuneytiö lagöi
áherslu á aö máliö >röi leyst meö
20% veröhækkun til verksmiöj-
unnar.
Sementsverö hefur hækkaö
einu sinni slðan samkomulagiö i
júni' 1977 var gert.
Hækkun þessi um 30% gekk i
gildi 12. april s.l. Kom hún þvi til
framkvæmda utan þess tima sem
kveöiövará um I samkomulaginu
frá júni 1977 um aö opinberar
verðhækkanir skuli einungis
koma til á siöustu 10 dögunum
áöur en framfærsluvisitala er
reiknuð út.
r
Auglýsið í Tímanum
J
Ingvar Helgason, réttir Guðna B. Guömundssyni kaupsamninginn. Meö þeim er verslunarfulltrúi
Þýska alþýöulýöveidisins, Alfred Muhlmann. Timamynd: Tryggvi
FRÁ LOKUM
■
c.unW''11"1.!?*
SEINNA BINDI KORIASÖGU ÍSLANDS
EFTIR HARALD SIGURÐSSON ER KOMIÐ ÚT
Þetta er gullfalleg og vönduð bók, eitt af afrekum
íslenskrar prentlistar og stórmerkur þáttur
landfræðisögunnar. Seinna bindi hennar, sem nú er
komið út, nær frá lokum 16. aldartil 1848, þegar
Björn Gunnlaugsson lýkur mælingu íslands og kort
hans eru gefin út. Hefur bókin að geyma, auk
textans, 165 myndir af landakortum og kortahlutum,
og eru 146 myndanna svart-hvítar en 19 litmyndir.
Er í bókinni rakin af mikilli nákvæmni saga
íslands á kortum frá dögum Guðbrands biskups
Þorlákssonar til miðrar 19. aldar og rækileg grein
gerð fyrir þróun kortagerðar af norðvestanverðri
kringlu heims á því tímabili.
Fyrra bindi Kortasögu íslands kom út 1971 og nær
frá öndverðu ti! loka 16. aldar.
Rit þetta er stórviðburður í sögu íslenskrar
bókaútgáfu.
BÓKAÚTGÁFA
MENNINGARSJÓÐS
OG ÞJÓÐVINAFÉLAGSINS
Skálholtsstíg 7 Sími 13652