Tíminn - 02.02.1979, Blaðsíða 9

Tíminn - 02.02.1979, Blaðsíða 9
Föstudagur 2. febrúar 1979 Jón Helgason og Vilhjálmur Hjálmarsson: Híkisstjórnin láti kanna þátt landbúnaðarframleiðslu í atvinnulífi þjóðarinnar — mikil röskun á hag landbúnaðarins hefur alvarlegar afleiðingar i félags- og byggðamálum SS — Jón Helgason (F) og Vilhjálmur Hjálmarsson (F) hafa lagt fram á Alþingi svohljóöandi tillögu til þingsályktunar um könnun á þætti landbúnaöarfram- leiöslu i atvinnulffi þjóöarinnar: „Alþingi ályktar aö skora á rikisstjórnina að láta kanna hvaö stór hluti þjóöarinnar hefur at- vinnu af framleiðslu og vinnslu landbúnaöarafuröa og þjónustu i sambandi við hana, enn fremur hvaöa áhrif hugsanlegur sam- dráttur i búvöruframleiðslu heföi á atvinnulifið og þá sérstaklega á þá miklu möguleika til vaxandi ullar- og skinnaiönaðar, sem komiö hafa iljós á siöustu árum. Nú þegar veröi gerð um þetta áætlun, sem byggist á þeim gögnum, er fyrir hendi eru, og þvi verki hraöaö svo aö sú áætlun liggi fyrir á komandi vori. Siöan veröi verkinu haldiö áfram meö itarlegri könnun, þannig aö traustar heimildir fáist um gildi þessa mikilvæga þáttar þjóöar- búskaparíns.” I greinargerð meö tillögunni segja flutningsmenn aö sú skoðun hafi komiö fram hjá mörgum, aö erfiðleikar landbúnaöarins viö aö ná viöunandi verði fyrir allar framleiösluvörur, væru vanda- mál bænda einna. Hins vegar hefðu bændasamtökin bent á, aö áhrifanna gætti miklu viöar. Siöan segir i greinargeröinni: „Landbúnaöurinn á mestan þátt iaöbyggöhaldistum land allt, og mikil röskun á hag hans hefúr þvi ófyrirsjáanlegar afleiöingar I fé- lags- og byggðamálum. Vinnsla og dreifing búvöru ásamt fjöl- þættum öörum þjónustustörfum i þágu landbúnaöarins veita at- vinnu miklu fleira fólki en þvi, sem viö framleiösluna starfar. Vaxandi útflutningur iönaöar- vöru á siöustu árum byggist aö miklu leyti á ullar- og skinna- iönaöi, og er ótaliö aö enn sé hægt að margfalda þá framleiðslu. Reynt hefur veriö aö áætla laus- lega þann mannafla, sem beint eöa óbeint byggir atvinnu sina á húfi og hvaöa ráöstafanir er hag- kvæmt að gera. Þess vegna er i þessari tíllögu skoraö á rikisstjórnina aö láta nú þegar semja eins itarlega áætlun og kostur er meö þeim heimild- um, sem fyrir liggja, enda þótt nánari könnun þurfi til aö afla fyllri upplýsinga. Slika áætlun er mikil viröi aö rikisstjórnin fái Jón Helgason. landbúnaðinum. En vegna þess, hve marga er þar um aö ræöa og sérstök könnun hefur ekki fariö fram, hefur ekki fengist örugg niöurstaða. Þörfin fyrir aö hafa örugga vitneskju um þetta er sér- staklega brýn nú, þegar horfur eru á að bændur neyöist til aö draga eitthvaö úr búvörufram- leiðslu. Er þá mikils viröi aö ljóst sé, hvaöa afleiðingar þaö geti haft fyrir atvinnulifið i heild og búsetu i landinu. Þá fyrst er hægt aö meta til fulls hvaö mikiö er hér i Vilh jálmur Hjálmarsson. sem fyrst, þar sem augljóst er aö viö vaxandi erfiöleika er aö eiga, a.m.k. eins og nú horfir. Bændasamtökin hafa lagt áherslu á aö ráöa þurfi fram úr vandanum meö margvislegum aögeröum, t.d. nýjum fram- leiöslugreinum og hagræöingu i búrekstrinum. En mikilvægt er, að þaöliggi ljóst fyrir, hvaö þjóö- in öll á mikiö undir þvi, aö þeirri vörn, sem landbúnaöurinn stendur nú i, veröi sem fyrst snúiö i öfluga sókn á ný.” Pálína Kreis F. 3-10-1921 D. 22-1-1979. Dauöinn er ekki gröf heldur varir, sem hljóölega anda lifi inn i meira ljós. Tendra ljósi meira lif. M. — Hún Palla frænka er komin. Þessiorö vöktuávallt gleöi ogeft- irvæntingu hjá okkur fjölskyld- unni i Sólheimum 23 — áöur á Sól- vallagötu 54. Þaö var svo stutt á milli okk ar þar, hún á Holtsgötu 17. (Hún og ég vorum þremenn- ingar aö frændsemi). — Ætli hún Palla skreppi nú ekki ýfir til okkar í dag, sagöi mamma stundum á morgnana, og okkur hló hugur i brjósti viö tilhugsunina. Og oft kom Palla, þessi aufúsugestur, sem ávallt bar meö sér lif og fjör í bæinn. Þaö sem gjöröi persónuleika frænku minnar einhvern veginn svo heilsteyptan og hrlfandi var þetta hreina og beina viömót, aldrei nein uppgerö hvorki i gleöi né sorg. Yfir henni hvfldi bæöi reisnogþokki, skaprikvar hún og einörö en drenglunduö og sam- úöarrik svo af bar. Hún var svo sannarlega vinur vina sinna, og aldrei fæ ég, sem þessar linur rita, og fjölskylda min, þakkaö henni alla hennar hjálpfýsi og greiöasemi. Hversu oft var ekki leitaö til Pöllu f rænku meö eitt og annaö — ná I blek ellegar bækur og blokkir og sitthvaö fleira, sem mér var ókleyft aö nálgast. Ætiö var allt alveg sjálfsagt og meira en þaö ogeinatt margt óumbeöiö i pokahorninu, þegar af voru rakt- ar umbúðir varningsins. Pálina var höföingi I sjón og raun i þess orös bestu merkingu, og margar ógleymanlegar ánægjustundir áttum viö á hinu hlýlega og eink- ar smekkvislega búna heimili hennar og eftirlifandi manns hennar, Skúla Þorleifssonar, aö Holtsgötu 17. Og hversu oft var ekki glatt á hjalla heima, þegar Palla var á ferö. Hún Pálina Kreis var einhvern veginn svo bráðlifandi, að allur doöi og sút hlaut aö hverfa fyrir hnyttnum oröum hennar og hjartanlegum hlátri. Tvisvar haföi frænka min sigr- ast á vágestinum gamla, berkla- veikinni, en nú I lokin var það krabbameiniö, sem lagöi hana aö velli langt fyrir aldur fram. Hún andaöist aö Landspitalanum þann 22. jan. 011 sin miklu og erfiðu veikindi bar Pálina meö eindæma æöruleysi og hugprýöi til hinstu stundar. Núsegir fólk: Hún Pálína Kreis er dáin — hún er farin. En fyrir okkur, sem varsvo tamt aö segja meö gleöihreim I röddinni: — Hún Palla frænka er komin, er þessu ekkiþannig variö. Viö trúum þvi, aöhúnsé núkominiannanstaö — liöin fram á veginn, þar sem viö öll munum mætast einhvern tima. Elskulega frænka min, haföu þökk mina og foreldra minna fyr- ir dýrmæta vináttu og frændsemi Fylgi þér bjartir geislar fram á veginn. Eftirlifandi eiginmanni, Skúla Þorleifssyni, útgeröar- manni, aldraöri móöur og móöur- systur, svo og öörum ættingjum og vinum vottum viö innilega samúö. Maria Skagan. Alternatorar t Ford Bronco,' Maverick, Chevrolet Nova, Blaser, Dodge Dart, Playmouth. Wagoneer Land-Rover, Ford Cortina, Sunbeam, Fíat, Datsun, Toyota, VW, ofl. ofl. Verð frá kr. 17.500.-. Einnig: Startarar, Cut-Out, Anker, .Bendixar, Segulrofar, Miöstöövamótorar ofl. I margar teg. bifreiöa. Póstsendum. BAaraf h.f. S. 24700. Borgartúni 19. ^ á áBi Nú er boðið upp á luxusinnréttingu á Trabant Allur gjörbreyttur ad innan. Nýtt mælaboró. bakstilling á framsætum og hægt aó leggja þau nióur og allur frágangur mjög vandaóur. Komið og kynnió ykkur ótrúlega vandaóan bil á þvi sem næst leikfangaverói. TRABANT/WARTBURG UMBOÐIÐ Vonarlandi við Sogavog Simar 8 45 10 & 8 45 11 -bwbt CJPEL CHEVR0LET TRUCKS Seljum í dag: Tegund: ára. Bedford disel sendif.bill ,74 VauxhallChevette ’77 Ch.Malibu2d ’78 Ch. Malibu Classic ’79 GMC Itallv Wagon ’78 Ch. Malibu Classic ’78 Toyota Carina ’74 Opel Ascona ’77 Mazda 929 4ra dyra ’77 Volvo 244 De luxe ’76 Chevrolet Blazer ’76 AMC Concord 4d '78 Ch. Nova Concours 2d '77 Datsun Disel 220 C '’73 Pcugeot 504 sjálfsk. ’76 Volvo 144DL sjálfsk. ’73 Ch. Monte Carlo ’77 ' Fiat 131 Mirafiori ’77 Opel Caravan ’73 Volvo 142 '74 Ford 8000 vörub. LT m/krana ’74 Datsun disel 220 C Land Rover diesel Ch. Blaicr beinsk. Toyota Mark 2 G.M.C. Jimmy Ch. Nova Opel Ascona Ch. Blazer Custom Ch. Malibu 2 d V-8 Datsun diesel 220 Mazda 929 Chevrolet Vega Datsun 180B SSS Verð 2.000 2.900 5.800 6.200 5.800 5.600 1.950 3.800 3.600 4.300 6.100 . 5.000 5.000 2.000 4.100 2.600 6.200 2.800 1.950 3.000 9.000 Peugout 504st.7M Mazda 818 4d 1600 Samband Véladeild ’76 3.500 ’77 4.500 ’77 6.500 ’74 2.300 ’74 4.500 ’76 3.800 1 D ’78 7.300 '77 3.700 ’75 4.850 ’74 3.400 ’76 4.000 ’74 2.300 74 1.600 '78 ‘..300 ’78 5.300 5.300 ’74 1.800 ica.:. .1 ÁRMÚLA 3 - SÍMI 38900

x

Tíminn

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.