Tíminn - 02.02.1979, Side 10
10
Föstudagur 2. febrúar 1979
/' " "
HERRANÓTT 1979
YVONNE BÍJRGtlNDAR
PRINSESSA eftír
Witold Combrowicz
Þýðandi Magnús Jónsson.
Leikstjórn:
Hrafn Gunnlaugsson
Skraparotspredikun:
Þórhallur Eyþórsson.
Leikmynd gerðu
nemendur i byggingalist.
Herranótt Menntaskólans i
Reykjavik frumsýndi Yvonne
Búrgundarprinsessu á Hótel
Borg, gyllta salnum, síöastlið-
inn miðvikudag, en þar hefur
liklega ekki verið leikið áður,
a.m.k. ekki heilt leikrit, þótt
salurinn og öll aðstaða sé góö.
Þarna stóð áður salthús Thors-
fjölskyldunnar og hann Jón Otti
vigtaði fisk og merkti við með
nagla.
Yvonne
Yvonne er aö sögn eitt höfuð-
verka absúrd leikhússins, en
fáránleikinn er ekki mjög mik-
ill, ef þvi er kippt út úr timan-
um eins rækilega og þarna er
gert.
Höfundur Yvonne er pólska
skáldið Witold Combrowicz,
(1904), en hann skrifaði leikritið
þegar hann var um þritugt.
Yvonne var sýnt f Iönó áriö
1968 og uröu sýningarnar þá tólf
talsins.
Ýmsir telja Yvonne vera
mjög merkilegt leikrit, einkum
vegna þess að Witold Combrow-
icz notar f.áránleikaformið og er
þar á undan bæði Smuel Beckett
og Ionesco.
Sagan segir fra konungfjöl-
skyldu viðbrögðum hennar og
hirðarinnar, þegar erföaprins-
inn trúlofast afskaplega ein-
kennilegri stúlku sem fær öll
völd viö hirðina meö þvl að
þegja. Kemur öllu i uppnám
með þögn sinni og sofandi til-
Sviösmynd frá Herranótt á Borginni.
(TImamyndir:Tryggvi)
un örðuga og þaö absúrda verð-
ur sjalfsagt.
Að öðru leyti er þetta frjáls
sýning, þar sem æskumenn
njóta sin vel.
Um leikinner það að segja, aö
frumsýningin gekk ekki
vandræðalaust fyrir sig. Eink-
um var framsögnin bágborin
framan af, en það var hraðinn of
mikill. Menn misstu mikinn
texta.
Leikhópurinn þarf aö finna
réttan rómstyrk og réttan
hraða.
Þetta lagaðist mikið þegar á
leið, og liklega hefur þarna ver-
ið um frumsýningarhræðslu aö
ræða, sem er gott, þvi menn
leika best skjálfandi á beinun-
um.
Eftir hlé, lagaöist framsögn-
in.
Um frammistöðu einstakra
leikenda verðurekki fjallað hér,
fremur en endranær, þegar
skólastykki eru metin en þarna
komu fram þó nokkrir, sem
hafa leikhæfileika.
I leikskrá tjá leikmyndasmið-
ir vonbrigði sín með leikritið.
Þeir segja: „Einfaldleiki i
hvivetna átti að einkenna
sýninguna, hér skyldi leika
ekki sýna”.
Ég get vel skilið þá, enda and-
vigur því að tímasetja ekki
þetta verk og staðfæra það.
Að leikur sé blessunarlega
laus við alla staðsetningu i tlma
og rúmi, þýðir ekki að timinn sé
afmáður úr sjónleiknum. Menn
velja sér einfaldlega tima og
hliðstæður, þvi fáránleikinn
hlýtur að vera andstæða hins
sjálfsagða og hversdagslega.
Yvonne er sjónleikur fyrst og
fremst, alveg sama þótt hann sé
ekki leikinn I búðargluggaleik-
húsi, heldur á' miöju gólfi.
Innan sins ramma eru fá-
brotnir munir og hentugir bún-
ingar gerðir af skemmvisi.
Aðkomur eru þó vondar.
Ef ætlunin var að gera það
fáránlega sjálfsagt og eðlilegt,
hefur það tekist vel.
Jónas Guðmundsson
Yvonne á
Herranótt
Hún er aö lokum drepin með
Sild.
JYvonne er hvöss ádeila á til-
litleysiö geöþóttastjórnina og
kerfiö, en eins og hann Jón Otti
áttu örðugt með að rita fiskmat
Thorsfjölskyldunnar með nagla
I sinni tlð, vefst það fyrir manni
að skýra gang þessa leiks, svo
margslunginn er hann að maöur
verðurhelstað sjá hann, til þess
að vita við hvað er átt.
Við lifum á einkennilegum
tímum. Lifum kjarnorkuöld,
hugsum um vetni og járnblendi.
Samt var keisaradæmi aö
hrynjarétti'þessuogmann hafa
i hyggju aö stofna íslamst riki,
YVONNE Búrgundarprmsessa
ásamt konungshjónunum
með Komeini trúarleiötoga og
Kóraninn á oddinum.
Þá verður flett upp I gömlum
bókum til aö kunna skil á réttu
og röngu, en áöur hafði rlkinu
verið stjórnað með bankabók-
um og oliu.
Að voru mati er þaö meðferð
manneskjunnar innan rikjandi
kerfis, sem þarna er til umræðu,
þvi þegar rikið er tryggt, hafa
menn ekkert að óttast nema
sjálfa sig.
Leikur og sviðsetning
Herranótt hefst að þessu
sinni, eins og áður meö
skraparotspredikun. Það er
Þórhallur Eyþórsson, sem hana
flutti.
Þetta var ágæt hugvekja, vel
samin ogfrumleg. Æskan málar
meðsterkum litum ogfordæmir
veröld hinna fullorönu, sem
hreyfa ekki legg né lið, ótil-
neyddir, og vel það.
Ég hygg að Hrafn Gunnlaugs-
son hafi misskiliö þetta verk
með þvl aö sýna leikendur I
náttfötum, eða júdófötum. Það
idregura.m.k. úr fáránleikanum
andstæður verða að hliðstæðum
fyrir bragðið. Það einkennilega
sem kemur upp úr fólki veröur
ekkert einkennilegt ef það er
einkennilega til fara.
Þetta sést m.a. með þvi
bera saman senur.
Peysufatasenan var örstutt,
en samt einna best heppnuð.
Peysufötin voru absúrd, en
náttfötin ekki. Þau gera viðmið-
Sláið
188.780
Verðið er mjög hagstætt
vegna magninnkaupa
einu höggi
★ Plötuspilari
★ Segulband
imTveir hátalara •
• Sjálfvirkt Cro2/Normal segulband
• Oliudempað cassettulok
• Sjálfvirkt stopp
• Biðtakki
• ALC
Armurinn fer sjálfvirkt af þegar platan
er búin
Vökvalyfta fyrir tónarminn
OSC rofi
Sér snúningsrofar fyrir bassa, skæra tóna
og stereo — jafnvægi
Sími 29800
Kvikmyndin
Ef
í sjónvarpinu
Á morgun verður sýnd I sjón-
varpinu ein af athyglisverðari
kvikmyndum sem gerðar voru i
Bretlandi á 7. áratugnum. Hér er
um að ræða myndina If, leik-
stýrða af Lindsey Anderson.
Höfundur kvikmyndahandrits er
Daviö Sherwin.
Kvikmyndin If fjallar um upp-
reisnþriggja drengja gegn stöðn-
uðu og löngu úreltu skipulagi
bresks almenningsskóla sem þeir
sæk ja. Skólinn, umhverfi hans og
þær persónur sem koma við sögu,
smækkuð mynd af bresku stétta-
þjóðfélagi sem er miskunnarlaust
gagnrýnt i kvikmyndinni.
I henni er lögð megináhersla á
aö skapa ákveðin hughrif hjá
áhorfendum með snilldarkvik-
myndatöku, þ,e, táknmál kvik-
myndarinnar er fremur notað til
að koma boðskap höfundar á
framfærien sá texti sem leikend-
ur flytja.
Hugmyndin var að If yrði lit-
mynd, utan fáein atriði sem áttu
að vera I svart-hvitu og tákna
óraunveruleika. Vegna f járskorts
urðu svart-hvitu atriðin fleiri en
gertvar ráð fyrir. Þetta gerir það
að verkum að áhorfandin á stund-
um i erfiðleikum með að greina á
milli atriða sem eiga að vera
raunveruleiki og þeirra sem eiga
að túlka imyndun i kvikmyndinni.
Með aðaíhíutverk fara David
Wood ogMalcolm Mcdowell, sem
frægur er fyrir leik sinn I kvik-
mynd Stanley Kubricks A Clock-
work Orange (1971) og annarri
mynd eftir Anderson O Lucky
man (1973). Báðarþessar myndir
voru sýndar i Austurbæjarbiói á
sinum tima. Þess má geta að If
hlaut 1. verðlaun á kvikmynda-
hátiöinni i Cannes 1969. g.K.
Auglýsið
í Tímanum