Tíminn - 14.02.1979, Page 6
6
rnmrn
MiRvikudagur 14. febrúar 1979
Ctgefandi Framsóknarflokkurinn
Framkvæmdastjóri: Kristinn Finnbogason. Ritstjórar:
Þórarinn Þórarinsson og Jón Sigurbsson. Auglýsinga-
stjóri: Steingrimur Gislason. Ritstjórnarskrifstofur,
framkvæmdastjórn og auglýsingar Sibumiila 15. Simi
86300. — Kvöldsimar blabamanna: 86562, 86495. Eftir kl.
20.00: 86387. Verö i lausasölu kr. 125.00. Askriftargjald kr.
2.500.00 á mánuði. Blaöaprent
Erlent yfirlit
Margir binda góðar
vonir við Bazargan
Hann hefur verið talsmaður aukinna mannréttinda
Mbl. gerist bænda-
og samvinnublað
Forustugrein Morgunblaðsins i gær flokkast
undir það, sem kallað hefur verið ótrúlegt en satt.
Vafalitið hefur enginn átt von á þvi, að Morgun-
blaðið ætti eftir að verða bæði bændablað og sam-
vinnublað. En þetta gerðist samt i gær, ef dæmt er
eftir forustugrein blaðsins. Þar er látin i ljós mikil
hryggð yfir þvi hversu illa sé komið hlut bænda-
stéttarinnar og samvinnufélaganna. Milli linanna
eiga menn svo að lesa það að Sjálfstæðisflokkurinn
sé eini flokkurinn sem sé vænlegur til að bjarga
bændastéttinni og samvinnufélögunum!
Engum dettur i hug að neita þvi.að bæði bænda-
stéttin og samvinnufélögin glima við mikla erfið-
leika um þessar mundir. En heldur Mbl. að þetta
séu einu aðilarnir, sem hafa slika sögu að segja?
Telur Mbl. t.d. að sjávarútvegurinn og iðnaðurinn
baði i rósum? Heldur Mbl. að hlutur láglauna-
stéttarinnar sé of góður? Þannig mætti lengi telja,
þótt höfundar Morgunblaðsgreinarinnar i gær sjái
hvergi erfiðleika nema hjá bændastéttinni og sam-
vinnufélögunum.
Ef dæma ætti eftir þessum skrifum og öðrum
skrifum Mbl. hefur allur sá vandi, sem nú er feng-
izt við, orðið til i tið núverandi rikisstjórnar. Trúa
menn virkilega þeim fullyrðingum Mbl., að allur
sá vandi hafi orðið til á siðustu sex mánuðum?
Mikill má áróðursmáttur Mbl.vera ef einhver fæst
til að trúa þessu. Sá vandi,sem nú er glimt við,
hefur verið að skapast stöðugt á siðustu áratug-
um. Hann var til og magnaðist i stjórnartið Sjálf-
stæðisflokksins og Alþýðuflokksins á árunum 1959-
1971. Hann hélt áfram að magnast i tið vinstri
stjórnarinnar á árunum 1971-1974 og magnaðist
svo enn meira i tið rikisstjórnar Geirs Hallgrims-
sonar á árunum 1974-1978. Þennan vanda er hægt
að nefna einu orði: Verðbólga. Engin rikisstjórn
hefur ráðið við hana á undanförnum áratugum. Nú
er þvi svo komið,að atvinnuvegir landsmanna og
atvinnuöryggið er að hrynja^ nema loks nú á
siðustu stundu verði tekið rösklega i taumana.
En hver er þáttur Sjálfstæðisflokksins óg
Morgunblaðsins i þessum efnum? Hvað hefur
stærsti stjórnmálaflokkurinn fram að leggja til úr-
lausnar? Bókstaflega ekki neitt. Að visu er sagt,
að sérfræðingar hans séu að semja mikla áætlun
um það sem eigi að gera á áratugunum 1981-2000
og fylgi þar i fótspor Alþýðubandalagsins. En frá
Sjálfstæðisflokknum heyrist ekki neitt um það sem
eigi að gera á árunum 1979 og 1980. Og hvert er svo
framlag blaðsins,sem hælir sér af þvi að vera út-
breiddasta blað þjóðarinnar og ætti þvi að finna til
sérstakrar ábyrgðar? Næstum öll stjórnmálaskrif
þess um þessar mundir eru endursögn á forustu-
greinum Þjóðviljans frá þeim árum, þegar hann
var i stjórnarandstöðu. Jákvæð atriði er ekki
lengur að finna i pólitiskum skrifum þess. Allt er
gert til að reyna að ala á úlfúð og sundrungu. Há-
marki sinu ná þó þessi skrif þegar Mbl., bregður
sér i gervi bændablaðs og samvinnublaðs.
Það er hörmulegt að sjá stærsta flokk landsins
og stærsta blað þjóðarinnar haga sér þannig undir
þeim kringumstæðum, sem nú eru. Vonandi
verður gæfa þjóðarinnar slik að þessir aðilar hafi
ekki erindi sem erfiði.
Þ.Þ.
Mehdi Bazargan
ENN er margt á huldu um,
hvort sú mikla hreyfing sem
Khomeiny hefúr vakiö i Iran
muni stefna aö lokum, þótt hann
og fylgismenn hans tali um aö
koma á islömsku lýöveldi. Jafn-
vel margir fylgismenn
Khomeiny eru ósammála um
hvaö þetta táknar. Þetta fer
m.a. eftir þvi.hversu stranglega
kenningunum veröur framfylgt.
Margir virðast hafa þá trú á
Khomeiny, að hann sé mikill
strar.gtrúnaðarmaður og þvi sé
ekki viö neinu góöu aö búast úr
þeirri átt. Aörir benda á, aö
Khomeiny hafi ekki aöeins sýnt
einbeitni iátökunum aö undan-
förnu heldur einnig mikil hygg-
indi og hann geti þvi sýnt i
stjórnarathöfnum sinum meiri
sveigju en flestir eiga von á.
Þaö, sem hefur ekki sizt þótt
merki um hyggindi Khomeinys
og jafnframt vissa tilhliörunar-
semi viö frjálslyndari öfl I Iran,
er tilnefning hans á Medhi
Bazargan sem forsætisráöherra
þeirrar bráðabirgöastjórnar,
sem mun fara meö völd i nafni
Khomeinys, unz varanlegu
stjórnkerfi hefur verið komiö á
fót. Tilnefningin á Bazargan
varö tvimælalaust til þess aö
draga úr andstööu hinna frjáls-
lyndari afla gegn Khomeiny.
T.d. er talið aö hinni nýju miö-
stétt, sem hefur veriö aö mynd-
ast I Iran siöustu áratugina.hafi
oröiö mun rórra eftir aö Bazar-
gan hafi verið tilnefndur for-
sætisráöherraefni Khomeinys.
Meöal hennar rikti andúö á
keisarastjórninni en einnig and-
staöa gegn því aö afturhalds-
söm stjórn sem þrengdi aö
mannréttindum, leysti hana af
hólmi. 1 augum miöstéttarinnar
var útnefning Bazargans sönn-
un þess, aö Khomeiny yröi ekki
eins afturhaldssamur I
stjórnarathöfnum sinum og
áöur haföi veriö óttast.
MEHDI Bazargan hefur á
siöari áratugum veriö einn
helzti merkisberi mannrétt-
indastefnu i íran. Um alllangt
skeiö hafa hann og Baktiar
veriö helztu leiötogar þeirra,
sem hafa haldiö uppi baráttu
fyrir auknum mannréttindum i
Iran. Þeir hafa þannig átt
margt sameiginlegt og veriö
góöir kunningjar þangaö til
Baktiar féll fyrir þeirri freistni
aö láta keisarann útnefria sig
forsætisráöherra. Bazargan fór
aöra leiö. Hann var ákveöinn
andstæöingur keisarans og vildi
ekkert samneyti hafa viö hann,
enda þótt hann heföi stigiö viss
spor í áttina til aukinna mann-
réttinda eftir aö Carter kom til
valda í Bandarikjunum. I staö
þess aö þiggja boð um viöræöur
viö keisarann,hélt Bazargan til
Parisarog átti þar viöræður viö
Khomeiny, en þeir höföu ekki
þekkzt áöur. Khomeiny féll
Bazargan svo vel I geö aö hann
ákvaö aö gera hann að for-
sætisráöherra sinum. Ýmis um-
mæli,sem Khomeiny lét falla á
biaöamannafundum eftir aö
kynni þeirra Bazargan hófust,
þóttu benda til, aö Khomeiny
heföi tekið verulegt tillit til
ráölegginga Bazargans.
Tildrög þess, aö leiöir þeirra
Baktiars og Bazargans lágu
sundurogannar skipaöi sér við
hliö keisarans en hinn viö hliö
Khomeinys að lokum,eru talin
þau, aö þeir höföu mismunandi
viöhorf til trúmála. Draumur
Bazargans hefur jafnan veriö
islamskst lýöveldi sem byggi á
lýöræði og persónulegu frelsi.
Þar fóru skoðanir hans og
Khomeinys saman. Baktiar
haföi hins vegar meira i huga
vestrænt stjórnkerfi og keisar-
inn vildi einnig stefna I þá átt-
ina.
BAZARGAN hefúr sagt aö
hann reikni ekki meö aö hafa
stjórnarforustuna lengi á hendi,
sennilega ekki lengur en sex
mánuöi. Hlutverk hans verði
fyrst og fremst aö koma
islömsku lýöveldi á laggirnar.
Jafnvel þótt hann gegndi ekki
forustunni lengur, getur hún
orðiö mikilvæg og ráöiö úrslit-
um um framtið Irans, þvi að
sjálfsögöu skiptir þaö höfuömáli
hvort hiö nýja lýöveldi mótast
af frjálslyndum eöa afturhalds-
sömum sjónarmiöum.
Bazargan er 73 ára gamall,
verkfræöingur aö menntun.
Hann hefur jafnan veriö mikill
þjóöernissinni og þvi studdi
hann Mossadeq á stoum tima.
Mossadeq þjóönýtti oliu-
vinnslurnar og skipaöi Bazar-
gan yfirmann hins nýja rikis-
fyrirtækis. Bazargan missti aö
sjálfsögöu þessa stööu þegar
Mossadeq var hrakinn frá völd-
um. Síðan hefur hann haldið
uppi sleitulausri baráttu gegn
keisarastjórninni og kúgun
hennar. Hann hefur iöulega set-
ið I fangelsi og nemur fangavist
hans samtals meira enfimm ár-
um. Ariö 1961 stofnaöi hann sér-
staka frelsishreyfingu og var
hún talin einna bezt skipulögö
slikra hreyfinga I Iran,þótt hún
yröi aldrei mjög fjölmenn. Þaö
voru einkum menntamenn og
miöstéttarfólk, sem skipaöi sér
um Bazargan. Taliö er,aö hann
muni velja marga ráöherra úr
hópi þessara fyrri fylgismanna.
Þaö veröur ekki létt verk,sem
biöur Bazargans. Hann veröur
vafalitiö aö taka mikiö tillit til
ráða Khomeinys. Bæði innan-
lands og utan er þvi treyst af
mörgum, aö bylttogin i Iran
muni veröa friösamari og far-
sælli, meöan Bazargans nýtur
við og getur haft áhrif á gang
mála.
Þ.Þ.
Khomeiny ræöir viö Bazargan (t.h.) og aöstoöarmann sinn