Tíminn - 15.02.1979, Side 12

Tíminn - 15.02.1979, Side 12
12 Fimmtudagur 15. febrúar 1979 Igí Útboð Tilboö óskast i efni fyrir borholudælur fyrir hitaveitu Reykjavikur. Otboösgögn eru afhent á skrifstofu vorri Frikirkjuvegi 3, Reykjavik. Tilboðin verba opnuB á sama staö þriöjudag- inn 20. mars n.k. kl. 11, f.h. INNKAUPASTOFNUN REYKJAVÍKURBORGAR Fríkirkjuvegi 3 — Sími 25800 Varmaskiptar — Verðkönnun Hitaveita Þorlákshafnar óskar eftir verð- um á varmaskiptum fyrir ibúðahús: A. fyrir ofnakerfi B. fyrir neysluvatn Gögn eru afhent á verkfræðistofunni Fjöl- hönnun hf. Skipholti 1, R. Simi 26061. Skilafrestur er til 5. mars 1979. Sveitarstjóri ölfushrepps Laus staða Staða deildarstjóra bókhalds hjá Tryggingastofnun rikisins er laus til um- sóknar. Laun samkvæmt kjarasamning- um rikisstarfsmanna. Umsóknir, sem tilgreini aldur, menntun og fyrri störf, sendist Tryggingastofnun rikisins eigi siðar en 15. mars 1979. Tryggingastofnun ríkisins Skrifstofustarf Viljum ráða simavörð nú þegar. Vélritunarkunnátta æskileg. Laun samkv. 8. launaflokki rikisstarfs- manna. Umsóknum þarf að skila fyrir 23. febrúar n.k. Umsóknareyðublöð fást á skrifstofunni. Vegagerð ríikisins Borgartúni 7, Reykjavik. Landssamband hestamannafélaga óskar eftir að ráða starfsmann hluta úr degi. Æskilegt er að viðkomandi geti auk fram- kvæmdastjórastarfs annast erindsrekst- ur við L. H. Skriflegar umsóknir ásamt upplýsingum um menntun og fyrri störf berist undir- rituðum fyrir 1. mars 1979. F.h. Stjórnar L.H. Albert Jóhannsson, formaður Skógaskóla, A-Eyjafjöllum, Rang. Simi um Skarðshlið. Svartur markaður sem lofar góðu RÚV/HLJÓÐVARP SVARTUR MARKAÐUR framhaldsleikrit 1. þáttur Höfundar: Þráinn Bertelsson og Gunnar Gunnarsson. Leikstjóri: Þráinn Berteisson. Þaö hefur ekki verið venjan hér á blaðinu aö fjalla sérstak- lega um útvarpsleikrit. Þó hefur það komið fyrir, og þá einkum af sérstöku tilefni. Vafalaust er útvarpið að koma til móts við hlustendur sina, þegar það hefur leikritin i útvarpinu á fimmtudagskvöld- um, — þegar ekki er sjónvarp, — en manni er þó til efs að það sé besti timinn, þvi bókstaflega allir reyna að notfæra sér sjón- varpsleysið á fimmtudögum, þannig að flestir starfandi menn eru bundnir við annað þetta kvöld, fundi, ráðstefnur, eöa aðrar uppákomur, sem telja fimmtudagskvöldin vera kjckin fyrir sína starfsemi. Svartur markaður Svartur markaður er fram- haldsleikrit, sem flutt verður f útvarp f átta þáttum, sagði ein- hver, og nú ber svo við aö leik- ritið er flutt á sunnudegi, milli kvöldfrétta útvarps og sjón- varps. Það er liklega einkum af ræíni að undirritaöur hlustaði á þennan fyrsta þátt, og haföi gaman af, og er reiðubúinn til að hlusta á fleiri slfka, ef færi gefast. Leikurinn er haglega saminn og hann er leikinn á sérstakan hátt, og virðist mér tjáningar- mátinn helst minna á vinnu danskra og breskra útvarps- stööva, en leikarar þessara landa, og reyndar Bandarikja- menn líka, virðast hafa náö betri tökum á útvarpsleik, en við hér heima. Að visu er ekki unnt að alhæfa þetta fremur en annaö. „Theaterleikur” i út- varp á ekki alltaf jafn vel við, þótt vissulega henti hann oft sérstökum, bókmenntalegum texta. Þráinn Bertelsson Verkefnavalið virðist þvi eiga mestan þáttl áhrifamætti hljóð- varpsleikja hér, að verkið henti honum Hamlet og henni Söru Bernhardt, en ekki öfugt, að leikstjórar aðlagi leikendur að verkunum, eða textanum. „Bókleikur” I útvarpi er lika oft vondur, en svo nefnir maður samlestur leikrita I útvarpssal, sem fluttur er undir vöruheitinu leikrit. Það viröist einkenni erlendra útvarpsstööva sem flytja leik- rit, að gera þau aðgengilegri með þvl aö auka hraöann og hafa samtölin ekki of bók- menntaleg. Hjálparhljóð eru talsvert notuð, líka tónlist. 1 teaterleik er hraðinn aftur á móti versti óvinur textans, þannig að útvarpið hér og út- varpiö þar sitja á allt öðrum enda á vinnupallinum. Höfundar Það sem vakti athygli mlna er, aðnúna virðast komnir fram leiklist Gunnar Gunnarsson menn, sem kunna aö nota sér útvarp á sama hátt og gert er erlendis. Höfundar aö framhaldsleik- ritinu Svartur markaður eru tveir. Þráinn Bertelsson og Gunnar Gunnarsson. Ég hefi litið lesiðeftir þá, ekkert held ég eftir Þráinn Bertelsson, en eina slæma bókogein sérdeilis frum- leg eftirmæli eftir Gunnar Gunnarsson, en þar ritaði hann um afa sinn, látinn. Ég geri ekki ráð fyrir að höfundar hafi ætlað sér að frelsa heiminn með Svörtum markaöi, en þettaerbýsna haglega samið leikrit, annað verður ekki sagt, og leikstjórnin er hreinasta af- bragð, að ekki sé nú meira sagt. Með hlutverk fara ýmsir kunnir leikarar og aörir sem minni tækifæri hafa fengið, en meðal leikenda eru Róbert Arn- finnsson, Erlingur Gislason, Siguröur Skúlason, Kristin A. ólafsdóttir, Sigurður Karlsson, Rúrik Haraldsson, Herdis Þor- valdsdóttir og fl. Verður fróðlegt aö fylgjast með framvindu mála, en helst óttast maður aö leiknum verði dreift á of langan tlma, Sum framhaldsleikrit þola ekki viku salt, heldur þurfa um- stöflun eftir einn eða tvo daga, til að allt njóti sin sem best. Helst ætti að flytja þau á hverju kvöldi ef vel ætti að vera. Jónas Guömundsson. Volvo F7 kjörinn .Vöru- bíll Volvo F7 ársins’ 16.1. s.l. voru afhent verölaun, ásamt sæmdarheitinu „Vörubiil ársihs” á Alþjóölegu bilasýn- ingunni i Brússei, sem nú stendur yfir. „Vörubill ársins” er VOLVO F7, nýr vörublil frá Volvoverksmiöjunum, sem kom á markaöinn á þessu söluári. Alþjóöasýningin skipaði að vanda sjö blaöamenn, sem skrifa um bifreiðar, I sérstaka dómnefnd, tU þess aö velja „VörubU ársins”. 1 dómsoröi nefndarinnar kom sérstaklega fram, að nefndin hafi verið sammála um kosti VOLVO F7, sem fælust m.a. I spameytni, fjölþættum nýtingarmöguleik- um og framförum I öllum bún- aöi, sem varðar þægindi bif- reiðarstjórans. VOLVO F7 kom á markaðinn 1. október 1978. BiUinn er hann- aöur I beinu framhaldi af VOLVO F87, sem framleiddur var 1 rúmlega 40.000 eintökum. Reynsla Volvoverksmiðjanna og prófanir I sambandi viö F87 liggur á bak við hinn nýja F7 vörubll. í Svlþjóð öðlaðist VOLVO F7 miklar vinsældir svo að segja þegar I stað, og hafa pantanir á F7 farið langt fram úr björtustu vonum verksmiðj- anna.

x

Tíminn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Tíminn
https://timarit.is/publication/50

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.